Morgunblaðið - 17.09.1998, Side 72
Það besta
úr báðum heimum!
unix og NT = hp
OPIN KERFIHF
HEWLETT
PACKARO
WWW.NYHERJI.LS
111 Netfinity
020nýherj|
MORGUNBLAÐID, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
FIMMTUDAGUR 17. SEPTEMBER 1998
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Dagvist barna í Reykjavík hefur
gjaldskrárhækkun í athugun
Þýðir allt að
7% tekjuauka
STJÓRN Dagvistar barna í Reykja-
vík hefur til athugunai- að hækka
gjaldskrá á leikskólum borgarinnar
frá og með næstu áramótum og voru
tillögur þar að lútandi ræddar á
fundi stjómarinnar í gærmorgun, en
afgreiðslu frestað. TOlögurnar fela í
sér í heild allt að 7% tekjuauka
vegna gjaldanna, en einstakir liðir
gjaldskrárinnar breytast með ólíkum
hætti, að sögn Bergs Felixsonar,
framkvæmdastjóra Dagvistai' barna.
Bergur sagði að gjaldskrá Dag-
vistar bai'na hefði ekki breyst í rúm-
lega tvö ár eða frá 1. júlí 1996. Þótt
verðlag hefði verið stöðugt á þessu
tímabili hefðu laun hækkað mikið, en
Féll í Geysi
og brenndist
MAÐUR brenndist illa á báðum
fótum er hann féll ofan í hverinn
Geysi í Haukadal síðdegis í gær.
Maðurinn var fluttur með
einkabíl búnum hvítum veifum
til Reykjavíkur á neyðarmóttöku
Landspítalans. Var hann með
vatn til kælingar í bílnum. Að
sögn vakthafandi læknis hlaut
maðurinn 2. stigs bruna á fótum
en líðan hans var eftir atvikum.
laun og launatengd gjöld vægju
mjög þungt í rekstrarkostnaði stofn-
unarinnar eða um 75%. Vísitölur
launa og verðlags hefðu þannig
hækkað um 12% frá 1. júlí 1996 til
jafnlengdar í ár og að auki myndu
laun hækka samkvæmt samningum
um næstu áramót. Rekstrarforsend-
ur hefðu því breyst mjög af þessum
sökum.
Bergur sagði að gjaldskrárbreyt-
ingin yrði væntanlega tekin fyrir á
næsta fundi í byrjun október. Ef hún
yrði samþykkt þar kæmi til kasta
borgarráðs að staðfesta gjaldski-ái'-
breytinguna.
Gengið verr að fá starfsfólk
Bergur sagði að yfír 1.600 starfs-
menn störfuðu hjá Dagvist barna og
gera mætti ráð fyrir að um 200 nýir
starfsmenn kæmu til starfa árlega
vegna þeirra sem hættu störfum af
einhverjum sökum, til dæmis vegna
náms. Mjög fæii eftir efnahagsá-
standinu hvernig gengi að útvega
starfsfólk og hefði það gengið verr
nú í haust en síðastliðið haust. Sam-
kvæmt nýlegri könnun hefði vantað
um 50 manns í störf, þar af 29 á
deildir og 22 í hlutastörf. Að auki
hefði stofnunin verið að auglýsa eftir
starfsfólki á nýjan leikskóla í Grafar-
vogi, sem ætlað væri að hæfí starf-
semi seinnihluta októbermánaðai’.
STÓR liluti lendingarstaðarins í Þórsmörk er nú undir vatni. Verður hann ekki nothæfur fyrr en
búið er að ýta upp á ný varnargarði við Markarfljót.
Flugbrautin í Þórsmörk
nærri horfin eftir flóð
FLUGBRAUTIN í mynni Húsadals
f Þórsmörk sópaðist svo gott sem í
burtu nýverið þegar varnargarð-
ur, sem halda átti Markarfljóti frá
vellinum, brast. Hefur fljótið síðan
runnið yfir stærstan hluta vallar-
ins, sem er nefndur lendingarstað-
ur eftir skilgreiningu Flugmála-
stjórnar, og verður hann því ónot-
hæfur uns hann hefur verið endur-
byggður.
Oskar Siguijónsson, staðarhald-
ari í skála Austurleiðar í Húsadal,
segist aldrei hafa séð svo mikinn
vatnsgang í fljótinu eins og var um
daginn og enn er hluti lendingar-
staðarins undir vatni. Brautin, sem
er í um 600 feta hæð yfir sjó og
hátt í 600 metra löng, hefur síð-
asta hálfan annan áratuginn mikið
verið notuð og segir Óskar lend-
ingar hafa verið 200 til 300 á
hveiju sumri. Hann segir völlinn
mikilvægt öryggistæki og notaðan
bæði fyrir skemmtiflug og Iend-
ingaræfingar.
Starfsmenn Flugmálastjórnar
litu á völlinn í gær og verður síðar
metið hvort og þá í hvaða lagfær-
ingar verður ráðist. Jóhann H.
Jónsson, yfirmaður flugvallaþjón-
ustu hjá Flugmálasljórn, segir það
vart verða skoðað fyrr en um
næstu áramót. Annaðhvort verður
að fá fé frá flugmálaáætlun til end-
urbyggingarinnar eða nota af fjár-
veitingu til flugvalla eða lendinga-
staða sem ekki eru á flugáætlun.
Jóhann segir tiltölulega einfalt að
ýta upp velli og aka í hann slitlags-
efni en kveðst ekki geta sagt neitt
um tímasetningar eða kostnað.
Málefnaskrá sameiginlegs framboðs þriggja flokka lögð fram
Aðild að ESB ekki áform-
uð á næsta kjörtímabili
Morgunblaðið/Kristinn
GUÐNÝ Guðbjörnsdóttir, Sighvatur Björgvinsson og Margrét Frímannsdóttir kynntu málefnaskrá
samfylkingar vinstrimanna á blaðamannafundi í gær.
EKKI eru ráðgerðar breytingar á
aðild íslands að NATO á næsta kjör-
tímabili en framtíðarmarkmiðið hlýt-
ur að vera að ísland geti staðið utan
hernaðarbandalaga, er meðal þess
sem segir í málefnaskrá sameigin-
legs framboðs Alþýðuflokks, Alþýðu-
bandalags og Kvennalista, en for-
ystumenn flokkanna kynntu hana
opinberlega í gær.
Þá segir að taka skuli upp viðræð-
ur við Bandaríkjastjórn um varnai--
samninginn. Fyrii- liggi vilji Banda-
ríkjamanna til að loka herstöðvum í
Evrópu og draga úr herstyrk og beri
að styðja þá þróun. í málefnaskránni
segir meðal annars að ekki sé áform-
að að Island sæki um aðild að Evr-
ópusambandinu á kjörtímabilinu en
verði breytingar sem kalli á aðra af-
stöðu, áherslur eða markmið en sett
séu fram í málefnaskránni, skuli
stofnanir flokkanna fjalla um þær og
taka afstöðu til þeirra.
„Tekið verði sanngjarnt gjald fyrir
afnot af auðlindum í þjóðareign til
lands og sjávai', sem m.a. verði notað
til að standa straum af þeim kostnaði
sem þjóðin ber af nýtingu þeirra og
stuðla að réttlátari skiptingu á af-
rakstri auðlinda,“ segir einnig í mál-
efnaskránni.
Flokkarnir vilja að stjórnkerfi
fiskveiða verði gjörbreytt fyrir árið
6002. Tekið er sérstaklega fram að
bæta verði stöðu báta- og smábáta-
útgerðar á grunnslóð og tryggja
aukinn rétt þeirra til veiða á heima-
slóð.
Lagt er til að öll áform um hefð-
bundna orkufreka stóriðju verði tek-
in til endurskoðunar. Þá er kveðið
upp úr með það, að Islandi eigi að
staðfesta og fullgilda Kyoto-bókun-
ina um losun gróðurhúsalofttegunda
út í andrúmsloftið.
Flokkarnh' vilja einnig taka upp
fjölþrepa tekjuskatt, afnema tekju-
tengingu barnabóta og hækka þær,
heimila foreldrum að nota ónýttan
persónufrádrátt barna yngri en 18
ára, lengja fæðingarorlof úr 6 mán-
uðum í 12 mánuði, afnema komu-
gjöld í heilsugæslunni, fella tann-
lækningar inn í heilsugæsluna, setja
ákvæði um hámarks biðtíma efth'
heilbrigðisþjónustu, hækka örorku-
bætur og lækka endurgreiðsluhlut-
fall námslána.
Málefnaskráin er lögð fram með
fyrirvara um samþykki flokka og
samtaka.
Davíð Oddsson forsætisráðherra,
formaður Sjálfstæðisflokksins, kom
til landsins frá Portúgal í gærkvöld.
Hann vildi ekki tjá sig um málefna-
skrána að _svo stöddu. Ekki náðist í
Halldór Asgrímsson utanríkisráð-
herra, formann Framsóknarflokks-
ins.
■ Fjölskyldumál/36
Aðstoðarframkvæmda-
stjóri NATO
• •
Oryggis-
málastefna
samfylking-
ar undarleg
DR. KLAUS-Peter Klaiber, aðstoð-
arframkvæmdastjóri Atlantshafs-
bandalagsins, segist undrast þá
stefnu samfylkingar vinstrimanna,
sem kynnt var síðdegis í gær, að
draga eigi úr umsvifum bandai'íska
hersins hér á landi.
Dr. Klaiber segir að það hefði ekki
komið sér á óvart þó að stjórnmála-
hreyfing með slíkar áherslm- hefði
verið stofnuð fyi'st efth' lok kalda
stríðsins.
Hann segir að nærvera banda-
rísks herliðs i Evrópu sé mikilvægur
þáttur í að tryggja öryggi í heimsálf-
unni.
■ Undrast/6
--------------
Heilbrigði og
lífskjör könnuð
SPURNINGALISTAR vegna viða-
mikillar könnunar á heilbrigði og
iífskjöi’um Islendinga hafa verið
sendir fólki um allt land. Meðal ann-
ars verður athugað hvort heilbrigðis-
kerfið standi undir því fyrirheiti að
vera jafn opið öllum, en fyrri könnun
hefur leitt í ljós vísbendingar um að
svo sé ekki.
■ Kanna mun/36