Morgunblaðið - 30.10.1998, Side 1

Morgunblaðið - 30.10.1998, Side 1
247. TBL. 86. ÁRG. FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Skýrsla s-afrísku Sannleiks- og sáttanefndarinnar hlífír engum Fylkingar kyn- þáttanna snú- ast til varnar Höfðaborg. Reuters. ÓLÍKAR stjómmálafylkingar í Suður-Afríku snerust til varnar í gær eftir að Sannleiks- og sátta- nefndin svokallaða lagði fram sögu- lega skýrslu sína með niðurstöðum tveggja ára starfs, sem hlífði eng- um. Thabo Mbeki, varaforseti lands- ins, gagnrýndi nefndina fyrir að komast að þeirri niðurstöðu um flokk hans, Afríska þjóðarráðið, að hann hefði gerzt sekur um mann- réttindabrot. Þjóðarflokkurinn, stærsti flokkur hvíta minnihlutans, sem hélt aðskilnaðarstefnunni við lýði í yfir 30 ár fram til ársins 1994, sniðgekk hina hátíðlegu athöfn sem haldin var í Pretoríu þegar Desmond Tutu erkibiskup, formað- ur Sannleiksnefndarinnar, færði skýrsluna formlega í hendur Nelson Mandela forseta. I skýrslunni, sem er 3.500 blað- síður, eru bæði leiðtogar og stofn- anir stjórnar hvíta minnihlutans á árum aðskilnaðarstefnunnar sem og ýmsir aðilar, sem börðust gegn stjóminni, sakaðir um að bera ábyrgð á alvarlegum mannréttinda- brotum. Aðskilnaðarstefnan sjálf er brennimerkt sem „glæpur gegn mannkyni". Meðal þeirra, sem tilgreindir em sem sökudólgar í skýrslunni, em P.W. Botha, fyrrverandi forseti, Winnie Madildzela-Mandela, fyrr- verandi eiginkona Nelsons Mand- ela, Mangosuthu Buthelezi, höfðingi Zulu-manna, og Afríska þjóðarráðið (ANC). Afhendingarathöfnin í Pretóríu fór fram aðeins tveimur stundum eftir að dómstóll í Höfðaborg hafði vísað frá beiðni ANC um að lögbann yrði sett á birtingu skýrslunnar ef því, sem þar stendur um fortíð hreyfingarinnar, yrði ekki breytt. Hjálp til að komast að sáttum Desmond Tutu sagðist í gær mið- ur sín yfir að ANC skyldi hafa reynt að hindra birtingu skýrslunnar. Hann fagnaði niðurstöðu dómstóls- ins sem „sigri sannleikans og mann- kærleikans“. ■ Fljótfengnar sættir/25 ATION Reuters NELSON Mandela, forseti Suður-Afríku, tekur við skýrslu Sannleiks- og sáttanefndarinnar úr hendi formanns hennar, Desmonds Tutus erkibiskups. Þar eru fyrrverandi stjórnvöld og Afríska þjóðarráðið sökuð um gróf mannréttindabrot. Handtaka Pinochets Urskurður- inn gagn- rýndur Genf, París, Stokkhólmi. Reuters. ALÞJÓÐARÁÐ lögfræðinga (ICJ), hreyfmg 42 virtra lögfræðinga víða um heim sem beitir sér fyrir mann- réttindum, gagnrýndi í gær úrskurð bresks dómstóls um að handtaka Augustos Pinochets, fyrrverandi einræðisherra í Chile, væri ólög- mæt. Ráðið sagði að úrskurðurinn gengi í berhögg við alþjóðlega samninga. Dómstóllinn komst að þeirri nið- urstöðu að Pinochet nyti friðhelgi þar sem hann var í embætti þjóð- höfðingja þegar meintir glæpir hans voru framdir. Talsmaður ICJ í Genf sagði þetta hvetja til „refsileysis úti um allan heim“. Elisabeth Guigou, dóms- málaráðherra Frakklands, tók í sama streng. „Hugmyndin um frið- helgi manna eins og Pinochets hers- höfðingja, sem ber ábyrgð á þús- undum morða, er óbærileg," sagði hún. Göran Persson, forsætisráðherra Svíþjóðar, kvaðst telja að sækja bæri Pinochet til saka. „Það væru mikilvæg og góð skilaboð til einræð- ishen-a heimsins ef Pinochet yrði dæmdur,“ sagði hann. 18 útlagar frá Chile hafa óskað eftir því að farið verði fram á fram- sal Pinochets til Svíþjóðar. ■ Pinochet fluttur/22 Tillögur um breytingu á bresku kosningalöggjöfínni Vilja að tekin verði upp hlutfallskosning London. Reuters. NEFND sem skipuð var til að gera tillögur um breytingar á bresku kosn- ingalöggjöfinni lagði í gær til að tekið yrði upp tvíhliða hlutfallskosninga- kerfi og sagði Roy Jenkins, lávarður og fyrrverandi fjármálaráðherra, for- maður nefndarinnar, að hið nýja kerfi myndi gera kosningar lýðræðislegri og tryggja sanngjarnari niðurstöður. Gagnrýnendur segja hins vegar hættu á að kerfið leiði til samsteypustjórna og ótryggara stjórnmálaástands. * Hryðjuverk í Israel Yassin í stofufangelsi Gaza. Reuters. PALESTÍNSK yfirvöld settu Ahmed Yassin, stofnanda Hamas- hreyfingarinnar, í stofufangelsi í gær en þá hafði hreyfingin lýst yf- ir ábyrgð á sprengjutilræði við ísraelsk börn á Gaza. Tilkynningin um stofufangelsið kom aðeins nokkrum klukkustund- um eftir að bílsprengja sprakk steinsnar frá ísraelskum börnum á leið í skóla. Sluppu þau raunar al- veg en sprengingin varð hennanm, sem gætti skólabílsins, að bana og annar særðist alvarlega. Þá lést einnig ökumaður bílsins, sem sprengjan var í. ■ Eykur óvissu/24 í Bretlandi er kosið í einmenn- ingskjördæmum og sá sem flest at- kvæði fær í hverju kjördæmi hefur komist á þing. Hefur þetta valdið því oft og tíðum að hlutfallslegt fylgi flokka hefur ekki skilað sér í fjölda þingsæta og sérstaklega hef- ur fylgi Frjálslynda demókrata- flokksins ekki alltaf nýst sem skyldi. Gerði flokkurinn á síðasta ári samkomulag við Verkamanna- flokkinn um endurskoðun kerfisins og jafnframt lofaði Tony Blair, for- sætisráðherra Bretlands, að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu þar sem kosið yrði um tillögur nefndarinnar og núverandi kerfi. Ekki til framkvæmda strax Jack Straw, innanríkisráðherra í Bretlandi, sagði hins vegar í gær að engin ákvörðun hefði verið tekin um hvenær slík atkvæðagreiðsla færi fram. Vitnaði hann í skýrslu Jenk- ins-nefndarinnar þar sem segir að ekki sé raunhæft að ætla að tillög- urnar komist til framkvæmda fyrr en í fyrsta lagi við þarnæstu þing- kosningar, eða eftir u.þ.b. 8 ár. Tillögur Jenkins-nefndarinnar fela í sér að á milli 80-85% þing- manna í neðri deild breska þingsins yrðu áfram kjörnir í einmennings- kjördæmum. Fengi hins vegar eng- inn frambjóðenda meira en 50% fylgi við fyrstu talningu myndu þau atkvæði sem féllu í hlut þeirra frambjóðenda sem síðastir komu nýtast öðrum, og þannig ákvarða hver næði 50% markinu. Til að gefa sanngjarnari mynd af fylgi flokka á landsvísu yrðu síðan á milli 98 og 132 þingmenn kjörnir af sérstökum héraðs- eða borgarlista til að leiðrétta stöðu flokka sem nýta atkvæði sín illa í kjördæmunum. Sagði í umsögn Jenkins-nefndar- innar að ef kosið hefði verið eftir þessu kerfi í fyrra í Bretlandi hefði ríkisstjórn Blairs notið 77 sæta meirihluta að loknum kosningunum, í stað 179 sæta meirihluta eins og nú er raunin. Jafnframt kom fram að ekki væri hægt að halda því fram að samsteypustjómir myndu verða alltof algengar með þessu kerfi, og þá um leið veikara stjórnvald, því að í þremur af síðustu fjórum kosning- um hefði einn flokkur þrátt fyrir allt tryggt sér hreinan meirihluta hefði verið notast við þetta kerfi. Glenn út í geim eftir 36 ár „Eins og Woodstock okkar gaml- ingjanna“ Kanaveralhöfða. Reuters. BANDARÍSKI geimfarinn John Glenn geystist út í geiminn í gær með geimferjunni Discovery, 36 árum eftir að hann fór í sína fyrstu og sögulegu ferð. Gekk geimskotið að óskum en mikill mannfjöldi fylgdist með því úr nokkurri fjar- lægð. Mikil áhugi hefur verið á ferð Glenns enda er hann orðinn 77 ára gamall og margir telja, að teflt sé á tæpasta vað með því að láta jafn aldraðan mann gangast undir það erfiði, sem geim- ferðinni fylgir. Ferðafélagar hans eru sex, fjórir Banda- ríkjamenn, Spánverji og Japani, en tilgangurinn með ferðinni, sem stendur í níu daga, er alls konar vísindarannsóknir. Hundruð þúsunda manna fylltu alla vegi, strandir og önnur svæði þar sem unnt var að fylgj- ast með geimskotinu og áberandi var hvað margir voru á líku reki og Glenn. „Þetta er eins og Woodstock okkar gamlingjanna," sagði einn áhorfendanna, „og við erum laus- ir við rokktónlistina." Viðstödd geimskotið voru for- Reuters Geimferjan Discov- ery leggur upp í langferðina með sjö manns innanborðs, þ.á m. John Glenn, sem varð fyrstur Bandaríkjamanna til fara á braut um jörðu. Það var hinn 20. febrúar árið 1962. setahjónin, Bill Clinton og Hill- ary, auk þingmanna og annars fyrirmennis. Sjálfur situr Glenn í öldungadeildinni. Þá sendu gaml- ir, rússneskir geimfarar honum sínar bestu óskir og sögðu, að með ferðinni sýndi hann, að aldr- að fólk gæti lagt sitt af mörkum til geimrannsókna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.