Morgunblaðið - 30.10.1998, Síða 24
24 FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 1998
ERLENT
MORGUNB L AÐIÐ
Reuters
ÍSRAELSKIR hermenn skoða flak bfls, sem var hlaðinn sprengiefni og sprakk nálægt ísraelskum skólabfl á
Gaza-svæðinu í gær.
Flókið mál verður einfaldara
Þú færð hvergi betra yfirlit yfir dagskrá sjónvarps og
útvarps en í sérblaði Morgunblaðsins, Dagskrá. Þar getur
þú á einfaldan hátt greitt úr þeirrí flækju sem dagskrá
allra stöðva er ( dag. í blaðinu eru einnig fréttir, myndir
og umfjöllun um þættina, kvikmyndirnar og fólkið sem
kemur við sögu. Dagskránni er dreift með Morgunblaðinu
annan hvern miðvikudag og ókeypis á helstu bensín-
stöðvum á höfuðborgarsvæðinu.
Hafðu Dagskrána alltaf við hendina. /'allri sinni mynd!
Stjórn ísraels og Arafat fordæma
sprengjutilræði á Gaza-svæðinu
Eykur óvissuna
um framkvæmd
samningsins
Kfar Darom. Reuters.
TVEIR menn biðu bana þegar bíl-
sprengja sprakk nálægt ísraelskum
skólabíl og herjeppa á Gaza-svæðinu
í gær og ísraelska ríkisútvarpið
sagði að íslamska hreyfingin Hamas
hefði lýst tilræðinu á hendur sér.
Stjóm ísraels sagði að sprengjutil-
ræðið sýndi að Israelar gætu ekki
staðið við samkomulagið um frekari
brottflutning hermanna frá Vestur-
bakkanum nema palestínsk yfirvöld
efndu loforð sín um að skera upp
herör gegn palestínskum hermdar-
verkamönnum. Benjamin Netanya-
hu, forsætisráðherra ísraels, ræddi
við Yasser Arafat, leiðtoga Palest-
ínumanna, og krafðist þess að hann
gripi strax til aðgerða gegn palest-
ínskum hermdarverkamönnum.
Sjónarvottar sögðu að reynt hefði
verið að aka bíl hlöðnum sprengiefni
á rútu, sem flutti skólabörn frá
byggð gyðinga á yfirráðasvæði ísra-
ela í miðhluta Gaza-svæðisins, og
bfllinn hefði rekist á herjeppann.
Palestínskur embættismaður sagði
að tveir menn hefðu beðið bana,
ísraelskur hermaður og palestínskur
ökumaður bflsins sem notaður var í
árásinni. Ekkert bamanna særðist
en tveir ísraelskir hermenn voru
fluttir á sjúkrahús og annar þeirra
var þungt haldinn.
Sjónarvottar sögðu að ísraelskir
og palestínskir lögreglumenn hefðu
hleypt af byssum við leit á akri ná-
lægt veginum þar sem tilræðið átti
sér stað. Palestínska lögreglan sagði
að a.m.k. einn Palestínumaður hefði
særst.
Krefjast efnda af hálfu
Palestínumanna
Þetta er fyrsta sprengjutflræðið
frá því leiðtogar ísraela og Palest-
ínumanna undirrituðu samning á
föstudaginn var um að Israelar
flyttu herhð sitt frá 13% Vestur-
bakkans til viðbótar gegn því að
palestínsk yfirvöld skæru upp herör
gegn hermdarverkamönnum.
Talsmaður ísraelsstjómar sagði
að tflræðið sýndi að Israelar gætu
ekki flutt herliðið frá Vesturbakkan-
um nema Palestínumenn legðu fram
„ýtarlega starfsáætlun um aðgerðir
gegn samtökum hermdarverka-
manna“ eins og kveðið er á um í
samningnum. „Palestínumenn lof-
uðu algjöm stríði á hendur hermd-
arverkamönnum og standi þeir ekki
við það fá þeir engin landsvæði,"
sagði hann.
Yitzhak Mordechai, vamarmála-
ráðherra Israels, kvaðst hafa rætt
árásina við yfirmenn öryggissveita
Palestínumanna og þeir hefðu lofað
að „grípa strax tfl aðgerða“.
Benjamin Netanyahu tilkynnti
fyrr í vikunni að hann hefði ákveðið
að fresta atkvæðagreiðslu í ríkis-
stjóminni um samninginn við Pa-
lestínumenn þar sem þeir hefðu ekki
lagt fram ýtarlega áætlun um að-
gerðir gegn hermdarverkamönnum.
Bill Clinton Bandaríkjaforseti skor-
aði á báðar þjóðirnar að fresta ekki
framkvæmd samningsins, en hann
tekur gildi á mánudaginn kemur.
Arafat fordæmir tilræðið
Yasser Arafat fordæmdi árásina
og sagði þá sem stóðu á bak við hana
hafa „skaðað hagsmuni palestínsku
þjóðarinnar af ráðnum hug“. Hann
kvaðst hafa hringt í Netanyahu og
sagt honum að palestínsk yfirvöld
myndu gera allt sem í þeirra valdi
stæði til að upplýsa hverjir stóðu
fynr hermdarverkinu.
Israelska ríkisútvarpið sendi út
upptöku af yfirlýsingu manns, sem
talaði arabísku og sagði að Hamas-
hreyfingin hefði staðið fyrir tflræð-
inu. Maðurinn lýsti árásinni sem
„dásamlegri aðgerð til að þjaka
landnema á hernumdum svæðum
okkar á Gaza-svæðinu og Vestur-
bakkanum".
Ahmed Yassin, stofnandi og trú-
arlegur leiðtogi Hamas, kvaðst þó
ekki vita hverjir hefðu staðið á bak
við tilræðið. Herskáir félagar í
Hamas hafa orðið tugum ísraela að
bana í sprengjutilræðum frá friðar-
samkomulagi ísraela og Palestínu-
manna í Ósló 1993.
íbúar byggða gyðinga á
hernumdu svæðinum hafa lagst
gegn nýja samningnum og segja
hann gera þá berskjaldaða fyrir
árásum palestínskra öfgamanna.
„Mitch“ veldur
usla í Hondúras
Puerto Cortez ( Hondúras. Reuters.
FELLIBYLURINN Mitch olfl í
gær usla á Karíbahafsströnd
Hondúras og ógnaði öUu svæðinu
við norðvestanvert Karíbahaf. Dauði
að minnsta kosti nítján manna var í
gær rakinn til óveðurslægðarinnar.
„Mitch“ hefur að mestu haldið
kyrru fyrir undan strönd Hondúras
undanfarna tvo sólarhringa og vald-
ið þar steypiregni sem orsakað hef-
ur flóð og aurskriður. Lýst var yfir
neyðarástandi og um 100.000 íbúar
strandhéraðanna hafa verið fluttir
burt frá heimilum sínum. Einnig
hefur fjöldi fólks flúið ströndina í
nágrannaríkjunum Belize,
Gvatemala og Mexíkó, en veður-
fræðingar hafa taUð að fellibylurinn
muni ganga á land á þessu svæði
Mið-Ameríku.
Nokkuð hafði dregið úr vindhraða
í bylnum í gær; hann mældist um
140 km á klst., en fyrr í vikunni náði
hann 295 km hraða. Almannavarnir
voru þrátt fyrir það enn í viðbragðs-
stöðu vegna fellibylsins í Hondúras,
Gvatemala, Belize og á Júkatan-
skaga í Mexíkó.
Undanfarna sólarhringa hafa flóð-
öldur skollið á ströndinni sem rifu
tré upp með rótum og ollu miklu
tjóni. Meira en 62 cm úrkoma
dembdist yfir strandhéraðið og olli
gífurlegum vatnavöxtum. Að
minnsta kosti þrettán Hondúras-bú-
ar týndu lífi.
í nágrannaríkinu Gvatemala ollu
vatnavextir í Motagua eyðileggingu
í þorpinu E1 Quetzalito þar sem einn
maður drukknaði, að sögn tals-
manns þarlendra almannavarna. Og
í Níkaragva, suður af Hondúras,
drukknaði tvennt við að reyna að
fara yfir fljót sem skyndilega uxu
vegna úrhellisins frá „Miteh“.
Þannig hafa nítján manns farizt af
völdum fellibylsins, svo vitað sé, en
fórnarlömbin gætu hæglega verið
fleiri. I mexíkóskum fjölmiðlum var
greint frá því að þrír hefðu farizt í
borginni Chetumal við Karíbahafs-
ströndina, og í Hondúras var sagt að
fjórtán manna væri saknað á eynni
Guanaja, sem þar er undan strönd-
inni. Þessar frásagnir höfðu ekki
fengizt staðfestar í gær.