Morgunblaðið - 29.11.1998, Blaðsíða 10
10 SUNNUDAGUR 29. NÓVEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
+
Taprekstur Iceland Seafood Corporation í Bandaríkjunum veldur
Islenskum sjávarafurðum hf. miklum vandræðum
Blæðandi sár í
Bandaríkjunum
✓
Stjórnendur Islenskra sjávarafurða hafa
tekið mikla áhættu við uppbyggingu fé-
lagsins. Reksturinn gekk vel þar til á síð-
asta ári en nú gefur alvarlega á bátinn
einkum vegna stórfellds tapreksturs á
nýrri fískréttaverksmiðju í Bandaríkjun-
um. Af lestri greinar Helga Bjarnasonar
má sjá að stjórnendur félagsins róa lífróð-
ur til að koma skipinu til hafnar.
SLENSKAR sjávarafurðir
hf. eiga við mikinn rekstrar-
vanda að glíma, einkum
vegna gríðarlegs tapreksturs
hjá nýrri fískréttaverksmiðju
Iceland Seafood Coi-poration í
Bandaríkjunum. Athygli vakti þegar
frá því var skýrt á dögunum að
Benedikt Sveinssyni hefði verið
veitt ótímabundið leyfi frá störfum
sínum sem forstjóri IS til að taka við
daglegum rekstri Iceland Seafood
Corp. í fullu starfi sem stjórnarfor-
maður. Sýnir þessi ráðstöfun
kannski best hve vandinn er mikill,
eða öllu heldur „frekar mikill, flók-
inn og erfiður“, svo notað sé orðalag
Benedikts úr viðtali í Morgunblað-
inu á dögunum.
íslenskar sjávarafurðir eru víðar í
stórum verkefnum. Dótturfélag ÍS í
Frakklandi, Gelmer-Ieeland
Seafood SA, sem til varð með kaup-
um á franska fyrirtækinu Gelmer og
sameiningu þess við sölufyrirtæki
ÍS, hefur einnig verið rekið með
miklu tapi en stjórnendur ÍS segja
að áætlanir um að snúa þar tapi í
hagnað gangi eftir og hagnaður
verði á íyrirtækinu á næsta ári.
Farið fullhratt í sakirnar
Ný fiskréttaverksmiðja Iceland
Seafood Corporation, dótturfélags
ÍS í Bandaríkjunum, var opnuð í
október 1997. Félagið byggði nýju
verksmiðjuna í borginni Newport
News í Virginíu og lokaði um leið
TÖLVUKERFI verksmiðjunnar hrundu og þúsundir sendinga fóru á
vitlausa staði um öll Bandaríkin.
eldri verksmiðju sinni í Camp Hill í
Pennsylvaníu. Afar illa gekk að
koma starfseminni á nýja staðnum í
fullan gang.
Benedikt Sveinsson segir að
lengri tíma hafi tekið að þjálfa upp
nýtt starfsfólk en reiknað hafði ver-
ið með og kannski hafi verið farið
full hratt í sakirnir við flutning
verksmiðjunnar.
Snemma á þessu ári hrundi tölvu-
kerfi verksmiðjunnar með þeim af-
leiðingum að dreifingarkerfin rugl-
uðust. Það lýsti sér í því að þúsundir
pantana fóra á vitlausa staði, til
dæmis þannig að sending sem fara
átti til kaupanda í Texas fór til
Chicago og þannig fram eftir götun-
um. Gerðist þetta í byrjun mikils
sölutímabils, fyrir föstuna, og það
gerði það að verkum að eifiðara var
að leysa úr vandanum en ella hefði
orðið. Vegna þess að ekki var hægt
að treysta tölvukerfinu þurfti að
framleiða nánast handvirkt upp í
hverja einustu pöntun með tilheyr-
andi kostnaði.
Bilun tölvukerfisins hefur haft
ómældan kostnað í för með sér fyrir
fiskréttaverksmiðjuna, eins og
nærri má geta. Nægir að nefna
kostnaðinn við að ná sendingunum
til baka og vinnu við að tryggja að
kaupendurnir fengju rétta vöru.
Birgðabókhaldið raskaðist vegna
þessa og ekki reyndist unnt að
halda utan um framleiðslu og rekst-
ur.
Þegar fiskréttaverksmiðjan var