Morgunblaðið - 29.11.1998, Side 31
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 29. NÓVEMBER 1998 31
arlega áhættusömum rekstri.
Þannig séu yfir 90% verkefna fengin
í útboðum og sum verkin afar stór á
mælikvarða fyrirtækisins. „Það þarf
lítið útaf að bera við einstök verk til
þess að það hafi veruleg áhrif á af-
komuna. Þess vegna reikna ég með
að þeir sem hugsa eingöngu um að
ávaxta sitt pund teiji sig eiga betri
ávöxtunarmöguleika. Við höfum aft-
ur á móti fimmtíu ára verkreynslu í
þessu fagi. I henni felast mikil
verðmæti fyrir þá sem það geta nýtt
sér.“
Samvinna við Slippstöðina
í kjölfar eignatengslanna tóku
Stál og Slippstöðin upp náið sam-
starf. „Slippstöðin er skipasmíðafyr-
irtæki, hið stærsta í þeirri grein,
með 150 manna starfslið. Við erum
aftur á móti með sérþekkingu á öðr-
um sviðum málmiðnaðarins. I stað
þess að við færum að víkka út starf-
semi beggja fyrirtækjanna ákváðum
við að taka höndum saman og nota
það besta úr báðum. Saman getum
við tekist á við stærri verkefni og
skilað þeim á styttri tíma en hvor í
sínu lagi,“ segir Theodór.
Hann segir að samstarfið hafi
gengið vei. „Ég tel að eignatengsl
séu forsenda fyrir árangursríku
samstarfi. í okkar tilviki hefur sam-
starfið gengið vel smurt efth- að
Slippstöðin kom inn í Stál.“ Sem
dæmi um samvinnu íyi-irtækjanna
má nefna að Vélsmiðjan Stál tók að
sér að lengja Smáey frá Vestmanna-
eyjum. Síðar óskaði útgerðarmaður-
inn eftir því að fá verkið unnið fyrr
en áætlað hafði verið. Til þess að
mæta óskum hans tók Slippstöðin að
sér að smíða stykkið sem síðan var
sett í bátinn hjá Vélsmiðjunni Stáli.
Stál hefur einnig átt gott samstarf
við Vélsmiðju KA á Selfossi um
vinnu við virkjanirnar fyidr sunnan.
Sem dæmi um það nefnir Theodór
að Stál hafi tekið að sér stórt verk-
efni við Búi'fell, viðgerð á einni
stærstu lokunni í virkjuninni.
Vélsmiðja KA tók búnaðinn niður,
gert var við stykkið á Akureyri þar
sem besta aðstaðan var til þess, ým-
is önnur smíði fór fram á Seyðisfirði
og Vélsmiðja KA setti búnaðinn síð-
an aftur upp.
„Ég sé fyrir mér að það geti orðið
frekari samvinna milli fyiártækj-
anna, til dæmis við uppbyggingu
virkjana og orkufreks iðnaðar ef af
því verður. „Ef við ætlum okkur að
eiga verulegan þátt í þessum fram-
kvæmdum verður sameiningar- eða
samstarfsferlið að halda áfram.
Verkefnin eru svo stór að okkar til-
tölulega litlu fyrirtæki ráða ekki við
þau nema með sameiginlegu átaki,“
segir framkvæmdastjórinn.
Ný kynslóð
málmiðnaðarmanna
Öll fyrirtæki í skipasmíðaiðnaði
standa saman að hugmyndum um að
smíða varðskip hér á landi. Theodór
fagnar þessum áformum og segir
hugsanlegt að Vélsmiðjan Stál hf.
komi að verkefninu með beinum
hætti. Ef ekki þá fái fyrirtækið betri
færi á að ná í bitana sem alltaf falla
til á almenna markaðnum því þeir
sem taki að sér smíði skipsins verði
meira og minna uppteknir á meðan.
Reiknað er með að ski-okkur varð-
skipsins verði keyptur nokkuð hrár
að utan og segir Theodór að sú að-
ferð gæti orðið leið íslensku skipa-
smíðastöðvanna inn í endurnýjun ís-
lenska fiskiskipaflotans. „Við vitum
að íslensku fyrirtækin eru ekki sam-
keppnisfær við vinnslu á stálmass-
anum en þau eru færari en önnur
við að útbúa skipin. Þess vegna er
dýrmætt að fá að komast að smíði
varðskipsins," segir Theodór.
Hann segir að það hafi háð
málmiðnaðinum að á erfiðleikaárun-
um hafi margir góðir iðnaðarmenn
horfið úr greininni og engin endur-
nýjun orðið. Verið er að endurskipu-
leggja málmiðnaðarmenntunina.
„Nú fara að koma inn í smiðjurnar
vel menntaðir iðnaðarmenn, alveg
ný kynslóð málmiðnaðarmanna.
Með þeim ættu fyrirtækin að verða
hæfari til að takast á við flóknari
verkefni en áður, bæði hér á landi og
erlendis. Við gætum til dæmis nýtt
þá þekkingu sem við höfum á því að
útbúa fiskiskip til veiða og í fram-
leiðslu búnaðar fyrir fiskvinnslu til
að ná okkur í verkefni erlendis.
Þarna geta legið framtíðarverkefni
íslenskra fyrirtækja,“ segir Theodór
Blöndal.
Bamaskór
Ekta leðurskór með
lokaðri tungu.
St. 21—28.
Ljósblátt
og rautt.
Verð kr.
sérverslun með barnaskó,
í bláu húsi v/Fákafen, s. 568 3919
3.990
SMÁSKÓR
www.mira.is
Ármúla 7, sími 553 6540,
Nýbýlavegi 30, (Dalbrekkumegin), sími 554 6300.
POLLINI
Itáls kar
lieima s
Utdraganlegarhillur
fyrir lyklaborð ásamt
góðum hirslum.
Litir: grátt, svartog
hnotubrúnt.
Kr. g.goo
Kr. 21.900
L. 21.000
Kr. 22.900
Kr. 9.900
Hom-eining
Horn-einmg
Horn-emmg
Y/T09