Morgunblaðið - 29.11.1998, Blaðsíða 12
12 SUNNUDAGUR 29. NÓVEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
fisksöluviðskiptunum þannig að ÍS
kaupi meira af afui-ðum til endursölu
í stað hinna hefðbundnu umboðssölu-
viðskipta. I þriðja lagi er lögð áhersla
á að hlutverk félagsins sé að þjóna
hagsmunum eigenda sinna með því
að skila hagnaði og greiða arð.
I þessari stefnumörkun vekur at-
hygli að ÍS vill breyta umboðssölu-
kerfínu sem lengi hefur verið ríkj-
andi í sjávarafurðasölu hér á landi í
það fonn sem félagið hefur kynnst í
öðrum viðskiptum á alþjóðlegum
sjávarafurðamarkaði. Ljóst er að
umboðssölukerfið skilar félaginu
ekki miklum tekjum en áhaattan er
jafnframt lágmörkuð. Með því að
kaupa meira af afurðunum tekur IS
rneh-i áhættu en á jafnframt von um
aukinn hagnað þegar vel gengur.
Breytingar á skipulagi
Jafnframt stefnumótunarvinnu
hefur verið unnið að undirbúningi
skipulagsbreytinga. Hennann segir
það eðlilegt vegna þeiiTar breyting-
ar sem orðið hefur á uppbyggingu
félagsins og tengslum þess við dótt-
urfélög og framleiðendur. Fyrir
tveimur árum varð sú breyting á
eignarhaldi sölufyi-irtækjanna er-
lendis, annars Iceland Seafood
Corp. í Bandaríkjunum, að Islensk-
ar sjávarafurðir eignuðust þau að
öllu leyti en áður áttu frystihúsin
líka í sölufyrirtækjunum.
Líklegt er að skipulagið verði lag-
að að þessum staðreyndum, þannig
að samstæðan verði ein skipulagsleg
heild. Hei-mann Hansson telur ekki
tímabært að skýra frá því hvernig
stjómskipulagið er hugsað en segir
að skýrt verði frá því þegar nauð-
synlegar ákvarðanir hafí verið tekn-
ar. Eftir að Benedikt tók við stjórn
físksölufyrirtækisins í Bandaríkjun-
um vakna spurningar um það hvort
það sé til marks um að dótturfélög-
unum verði í framtíðinni stýrt ineira
frá höfuðstöðvunum í Reykjavík.
Eðlilega vakna einnig spurningar
um það hvort skyndileg vestui-för
forstjórans sé byrjun á breytingum
á æðstu stjóm samstæðunnar óg
Benedikt helgi sig áfram því verk-
efni að reka Iceland Seafood Corp.
Það fæst ekki upplýst.
Spurður um fyrirkomulag fram-
kvæmdastjórnar félagsins til fram-
tíðar ítrekar Hermann það sem seg-
ir í samþykkt stjórna ÍS og ISC, að
Benedikt hafí fengið ótímabundið
leyfi frá störfum forstjóra ÍS til að
taka að sér yfirstjórn fyrirtækisins
vestra. Jafnframt er kveðið á um að
Hermann muni sem stjórnarfor-
maður ÍS taka að sér aukin verkefni
hjá félaginu og að núverandi aðstoð-
arforstjóri og framkvæmdastjórar
muni áfram bera ábyrgð á dagleg-
um rekstri þess með svipuðum
hætti og verið hefur. Um tímasetn-
ingar er það eitt sagt að ráðstafan-
irnar muni gilda þar til stjórnir fé-
laganna ákveði aðra skipan mála.
Hermann tekur það fram að
Benedikt njóti trausts stjórnar Is-
lenskra sjávarafurða. Við mikinn
vanda sé að etja í daglegum rekstri
Iceland Seafood Corp. og stjórnin
hafi einfaldlega ákveðið að senda
þangað sinn besta mann.
Benedikt Sveinsson hefur verið
„sterki maðurinn“ í íslenskum sjáv-
arafurðum. Hann hefur stjórnað
uppbyggingu félagsins og útþenslu
og flestir nánustu samstarfsmenn
hans hjá móðurfélaginu eru félagar
hans úr Fiskvinnsluskólanum.
Benedikt skilur því eftir sig tóma-
rám í höfuðstöðvum félagsins við
Sigtún, ekki síst ef mál þróast með
þeim hætti að hann taki að sér yfir-
stjórn Iceland Seafood Corporation
til frambúðar. Þeirri óvissu hlýtur
stjórn ÍS að þurfa að eyða sem
fyrst. Gera má ráð fyrir að það ger-
ist ekki síðar en þegar nýtt skipurit
félagsins verður kynnt.
Greinilegt er að sú ákvörðun Is-
lenskra sjávarafurða að fela for-
stjóra sínum að taka við daglegum
rekstri dótturfélagsins í Bandaríkj-
unum er gerð til að sýna hluthöfum
og lánardrottnum að allt er gert sem
unnt er til að snúa þróuninni við.
Fyrirtækið í heild á mikið undir því
að leiðangurinn heppnist. Einnig
Benedikt persónulega því sem
stjórnarformaður Iceland Seafood
Corporation hlýtur hann að taka
ábyrgð á þeim ákvörðunum sem leitt
hafa til þeirrar stöðu sem íslenskar
sjávarafurðir eru nú komnar í.
áhættu sem fylgir kaupum á hluta-
bréfum ÍS miðað við þá óvissu sem
sé í rekstri félagsins um þessar
mundir. Til þess að kaupa hlutabréf
á genginu 1,80 við þessar aðstæður
þurfi kaupandinn að hafa trú á því
að rekstur félagsins lagist fljótt.
Þorsteinn spyr hvort ekki hefði
verið rétt að Ijúka þeirri endur-
skipulagningu og stefnumótunar-
vinnu sem nú standi yfir, áður en
efnt hefði verið til hlutafjárútboðs.
Með þeim hætti hefði verið hægt að
draga nokkuð úr óvissu fjárfesta
um framtíð fyrirtækisins jafnframt
því að gera þeim betur grein fyrir
því hvernig fyrirtækið hygðist leysa
núverandi rekstrarvanda. Hann
veltir því einnig íyrir sér hvort ekki
hefði verið heppilegra að birta end-
urskoðað níu mánaða uppgjör í ljósi
tímasetningar útboðsins. Það hefði
gefið fjárfestum gleggri mynd af
stöðu IS í dag og þeirri þróun sem
átt hefði sér stað frá því félagið birti
sex mánaða uppgjör sitt.
Hvað sem öðru líður er ljóst að IS
hefur þegar selt 80 milljónir til for-
kaupsréttarhafa og Landsbanki ís-
lands sölutryggir 50 milljónir kr. til
viðbótar. Þannig liggur fyrir að fé-
lagið fær alltaf 230 milljónir kr. fyr-
ir hlutabréfin, jafnvel þótt ekkert
seldist í almenna hluta útboðsins.
í síðasta hlutafjárútboði ÍS, í maí
1996, voru hlutabréfin seld á geng-
inu 2,8. Ef öll hlutabréfin í yfir-
standandi útboði seljast, sem þó
engan veginn er víst, fá Islenskar
sjávarafurðir um 350 milljónir í
kassann. Ef hlutabréfin hefðu verið
seld strax og hluthafafundur veitt
fyrir henni heimild, á genginu 2,5
sem þá var markaðsgengi, hefði fé-
lagið fengið 500 milljónir út úr út-
boðinu.
„Jú vissulega er þetta slæmur
tími til að selja, en á móti má segja
að tíminn sé góður til að kaupa,“
segir Hermann þegar hann er
spurður um tímasetningu útboðsins.
Hann segir ekki rétt að miða við þá
tíma sem gengið var 2,5 eða jafnvel
5, þá hafi verðið verið spennt upp
með spákaupmennsku. Hann lýsir
þeirri skoðun sinni að hlutabréf í ís-
lenskum sjávarafurðum séu góð
fjárfesting íyrir þá sem hafi trú á
framtíð sjávarafurðaviðskipta. „Við
höfum almennt traust í viðskiptum
og markaðskerfi okkar er afar dýr-
mætt. Við eigum í tímabundnum
erfiðleikum í Bandaríkjunum en
höfum sent okkar besta mann þang-
Hermann tekur það
fram að Benedikt
njóti trausts stjórnar
íslenskra sjávaraf-
urða. Við mikinn
vanda sé að etja í
daglegum rekstri
lceland Seafood
Corp. og stjórnin hafi
einfaldlega ákveðið
að senda þangað sinn
besta mann.
að. Við erum vissir um að okkur
tekst að ná tökum á málinu og telj-
um að hlutabréfin séu góð langtíma-
fjárfesting.“
Fullnægjandi ráðstafanir?
Ef hlutafé Islenskra sjávarafurða
selst upp fær félagið um einn millj-
arð kr. með útboðinu og sölu hluta-
bréfanna til Olíufélagsins. „Þetta
eru miklar aðgerðir,“ segir Her-
mann Hansson stjórnarformaður
spurður að því hvort ráðstafanirnar
væru fullnægjandi eða hvort íyrir-
hugað væri að selja fleiri eignir.
Gerður hefur verið samningur um
sölu verksmiðjunnar á Camp Hill.
Bendir Hermann á að nettóskuldir
samstæðu ÍS hafi verið 3,3 milljarðar
kr. á miðju ári en færu að öllum lík-
indum niður í um 2 milljarða kr. um
áramót ef þessar aðgerðir gengju
eftir og hefðu þar með lækkað um
40% á hálfu ári. Tekur reyndar fram
að þótt undirritaður hafi verið
samningur um sölu gömlu verk-
smiðjunnar íyrir vestan muni
endanleg staðfesting sölunnar ekki
liggja fyrir fyrr en eftir tæpa tvo
mánuði. „Þetta er mikill árangur og
ég tel að sú breyting á efnahag íyrir-
tækisins sem í aðgerðunum felst ætti
að vera nægjanleg,“ segir Hennann.
Mismunandi hagsmunir
í hluthafahópi fslenskra sjávaraf-
urða hf. eru bæði framleiðendur
sjávarafurða og hreinir fjárfestar.
IS hefur til skamms tíma átt í fram-
leiðendum sem aftur hafa átt í ÍS,
þannig að eignarhaldið hefur einnig
verið flókið. Því hefur stundum verið
haldið fram að við stjómun félagsins
hafi hagsmunir framleiðenda ráðið
og það hafi orðið á kostnað fjárfesta
sem aðeins gera arðsemiskröfur.
í þessu sambandi er nauðsynlegt
að rifja upp að íslenskar sjávaraf-
Morgunblaðið/Hjörtur Gíslason
FRAMHLIÐ hinnar nýju fiskréttaverksmiðju Iceland Seafood Corporation í Newport News í Bandaríkjunum.
GAMLA verksmiðjan í Camp Hill í Pennsylvaníu.
FRÁ opnun fiskréttaverksmiðjunnar í Newport News, stjórnendurnir
og sjávarútvegsráðherra hlaðnir gjöfunr. Þorsteinn Pálsson, Hermann
Hansson, Benedikt Sveinsson og Hal Carper.
urðir voru stofnaðar á grunni sjáv-
arafurðadeildar Sambands ís-
lenskra samvinnufélaga og voru í
upphafi hrein sölusamtök, þótt
Landsbanki íslands ætti einnig
stóran hlut. Síðan hefur aukist hlut-
m- þeirra fjárfesta sem ekki eru
jafnframt framleiðendur.
Benedikt Sveinsson, sem verið
hefur forstjóri félagsins frá upphafi,
lítur svo á að á árinu 1993 þegar fé-
lagið var opnað og á síðasta ári, þeg-
ar ákveðið var að skráð félagið á al-
mennum hlutabréfamarkaði, hafi
eðli þess breyst úr því að vera sölu-
samtök og í hlutafélag sem stefnir
að hámörkun arðsemi hlutabréfa
sinna. „Það er síðan spurningin
hvernig það gengur að ná þessu
markmiði. En eftir að skrefið er
stigið höfum við ekki leyfi til að
vinna fyrir einn hluthafahóp á
kostnað annars,“ segir Benedikt.
Hermann Hansson segir að það
taki félagið ákveðinn tíma að breyt-
ast úr sölusamtökum sem fyrst og
fremst þjónuðu framleiðendum í fé-
lag sem hefði einnig það hlutverk að
greiða eigendum góðan arð. „Félag-
ið er að breytast úr framleiðslu-
drifnum sölusamtökum í markaðs-
drifið alþjóðlegt verslunarfyrirtæki
með sjávarafurðir," segir Hermann.
Hann bendir hins vegar á að á sex
fyrstu rekstrarárum félagsins hafi
það greitt út arð og þjónað eigend-
um sínum með þeim hætti, árið 1997
væri eina heila rekstrarárið í sög-
unni sem eigendurnir hefðu ekki
fengið arð. „Það er meginmarkmið
okkar að snúa tapi í hagnað til þess
að geta haldið áfram að greiða arð,“
segir Hermann.
Unnið hefur verið að endurskoðun
stefnumörkunar fyrir félagið. Her:
mann nefnir þijú áhersluatriði. I
íyrsta lagi að félagið fjárfesti ekki í
framleiðendum. í öðru lagi að breyta