Morgunblaðið - 29.11.1998, Page 28

Morgunblaðið - 29.11.1998, Page 28
28 SUNNUDAGUR 29. NÓVEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ FULLVELDINU fagnað fyrir framan Stjórnarráðshúsið 1. desember 1918. Þegar stefna Jóns Sigurðssonar sigraði / x Attatíu ár eru liðin frá því að Island varð frjálst og fullvalda ríki hinn 1. desember nk. Jón Þ. Þór rekur hér aðdragandann að þessum merka atburði Islandssögunnar, sem hin síðari ár hefur fallið nokkuð í skuggann af lýðveldisstofnuninni 1944, Lýðveldisstofnunin var þó fyrst og fremst rökrétt framhald af sambandslagasamn- ingnum og eru fyrir því gild rök að hinn -----------------7----------- 1. desember 1918 hafí Islendingar unnið stærsta pólitíska sigur sögu sinnar. Hinn 1. desember næst- komandi eru áttatíu ár liðin frá því ísland varð frjálst og fullvalda ríki. Þá var náð því marki, sem forystu- menn í sjálfstæðisbaráttunni höfðu stefnt að allt frá dögum Jóns Sig- urðssonar. Ekki verður skorið úr um hvenær sjálfstæðisbarátta Islend- inga hófst, en löngum hefur verið miðað við það er Baldvin Einars- son hóf útgáfu Armanns á alþingi árið 1829. Víst má þó rekja þræð- ina enn lengra aftur, jafnvel allt til síðari hluta 18. aldar. Á 4. og 5. áratug 19. aldar urðu og ýmsir merkir atburðir í pólitískri sögu Is- lendinga og má þar nefna Tilskip- un Danakonungs frá 28. maí 1831 um stofnun ráðgefandi stéttaþinga í Danaveldi, stofnun ráðgjafasam- komu embættismanna í Reykjavík árið 1838 og loks endurreisn al- þingis árið 1845. Alla þessa atburði mætti með nokkrum rökum telja til upphafsviðburða í sjálfstæðisbar- áttu Islendinga, og víst skiptu þeir allir máli. Það var hins vegar ekki fyrr en árið 1848, þremur árum eft- ir að endurreist alþingi kom fyrst saman, að fram vora sett í riti þau meginmarkmið, sem upp frá því urðu leiðarljós Islendinga í barátt- unni fyrir sjálfstæði landsins. Árið 1848 var ár mikilla viðburða í danskri sögu. Kristján konungur VIII. lést að kvöldi 19. janúar og kom þá til valda sonur hans, Frið- rik VII. Hinn 28. janúar birti hann auglýsingu, þar sem hann boðaði stofnun löggjafarþinga í ríki sínu og um vorjafndægur afsalaði hann sér einveldi, tók sér nýja ráðgjafa og boðaði til stjórnlagaþings. Is- lendingar gerðu sér ljóst, að hér voru miklir atburðir að gerast og að nú riði á að gæta að hvora- tveggja: að Island yrði ekki njörv- að við Danmörku og reyrður sá hnútur, sem erfitt gæti orðið að leysa, og að tryggja sem best rétt- indi Islands og Islendinga og helst af öllu, að alþingi fengi löggjafar- og fjárveitingarvald og að innlend stjóm tæki við völdum í landinu. Jón Sigurðsson fór mjög fyrir Islendingum í þessum málum öll- um. Á úthallandanum árið 1848 settist hann niður og ritaði Hug- vekju til Islendinga, einhveija gagnorðustu og djúphugsuðustu stjórnmálaritgerð sem samin hefur verið á íslenska tungu. I ritgerð- inni, sem birtist í Nýjum Félagsrit- um, ræddi Jón fyrst um auglýsingu konungs frá 28. janúar um væntan- leg löggjafarþing og fjallaði síðan um réttarstöðu Islands innan norska og síðan dansk-norska rík- isins í aldanna rás. Því næst vék hann að stöðu Islands í danska rík- inu er konungur hefði afsalað sér einveldi. Hann benti á, að íslend- ingar hefðu viðurkennt veldi hinna einvöldu konunga, en hvorki Dana, Þjóðverja né nokkurrar annarrar þjóðar. Með afnámi einveldisins væri Gamli sáttmáli í raun kominn aftur í gildi, en samkvæmt honum ættu íslendingar að eiga við kon- ung einan um öll sín mál, en ekki við ríkisstjóm Danmerkur eða væntanlegt löggjafarþing Dana. Vildi konungur í raun og sannleika efla framfarir á Islandi og bæta Stjórnarháttu og hag þjóðarinnar, yrði hann að veita Islendingum a.m.k. sömu réttindi og þeir hefðu haft samkvæmt Gamla sáttmála. Síðan sagði orðrétt: „Það er því nauðsyn, að auka réttindi alþíngis, á sama hátt og í Danmörku verður gjört, og setja landstjómarráð á Islandi, sem standi fyrir stjóm þar á aðra hlið- ina, en á hinn bógin leiti um öll stórmæli úrskurðar konúngs. Til að standa fyrir slíkum málum hér þarf íslenzkan mann, sem hafi skrifstofu undir sér, og gegnum hana ætti öll íslenzk mál að gánga til konúngs eða annara. Ef menn vildi haga þessu svo, að í stjómar- ráðinu væri ávallt fjórir: einn land- stjóri eða jarl og þrír meðstjóm- endur, en einn af þessum þremur væri til skiptis í Kaupmannahöfn, sem forstöðumaður hinnar íslenzku skrifstofu, sýnist sem það mætti allvel fara. Stjómarráðherramir og jarlinn ætti þá að bera fram fyr- ir alþíng erindi af konúngs hendi, og taka við þjóðlegum erindum þíngsins aptur á móti. Þeir ætti og að geta gefíð allar þær skýrslur, sem þíngið hefði rétt á að heimta af stjórnarinnar hendi, og yfirhöfuð að tala hafa ábyrgð stjómarinnar á hendi fyrir þjóðina. En - er ekki þetta að vilja rífa sig öldúngis frá Danmörku? - engan- veginn, heldur er þetta miklu fram- ar til þess að gjöra sambandið við Danmörku það fastast sem það getur orðið, þegar það er byggt á jöfnum réttindum hvorutveggja." Þessi orð Jóns Sigurðssonar urðu eins konar stefnuskrá Islend- inga í sjálfstæðisbaráttunni næstu sjö áratugina. Með þeim var mörk- uð sú stefna, að Islendingar og Danir skyldu hafa sameiginlegan konung og konungserfðir, en önnur mál skyldu ekki vera sameiginleg, nema þau, sem sérstaklega yrði um samið. Sú varð einnig niðurstaða meirihluta nefndar, sem kosin var á þjóðfundinum 1851, og Jón var í forsvari fyrir. Þjóðfundinum var ætlað að verða stjórnlagaþing íslendinga og bundu margir vonir við að hann myndi skila miklum árangri, jafn- vel sérstakri stjórnarskrá og inn- lendri stjóm í einhverri mynd. Þær vonir brugðust með öllu. Fundur- inn var leystur upp án þess að nið- urstaða fengist og ekki fékkst skorið úr um hver væri staða Is- lands innan danska ríkisins. Á þann hnút reyndu Danir að höggva tveimur áratugum síðar, 1871. Þá settu þeir Stöðulögin svpnefndu, en þar sagði í 1. grein að Island væri „óaðskiljanlegur hluti Danaveldis með sérstökum landsréttindum“. Með þessu hugðust danskir ráðamenn skera úr um stöðu ís- lands innan ríkisheildarinnar en lagasetningin var eitur í beinum Is- lendinga. Lögin gengu þvert gegn óskum þeirra um aukna sjálfstjóm og viðurkenningu á fomum rétt- indum landsins og mörgum sveið að lögin vora valdboðin og sam- þykkt af danska þinginu. Það eitt gekk þvert á kröfur og kenningar Jóns Sigurðssonar um að danska þingið hefði ekki lögsögu í íslensk- um málum, íslendingar ættu að eiga við konung einan um öll sín mál. Kristján konungur IX. færði Is- lendingum stjórnarskrá á þúsund ára afmæli íslandsbyggðar árið 1874. Samkvæmt henni skyldi al- þingi hafa löggjafarvald í íslenskum málum og fjárveitingarvald. íslend- ingar töldu hins vegar ekki nóg að gert og hófu á ný baráttuna fyrir innlendri stjóm. Sú barátta varð hörð og löng, en allar tillögur, sem þeir bára fram og samþykktu á tímabilinu fram til 1904, hvort sem þær nefndust „bendiska“, „endui-- skoðun“, „rniðlun", „valtýska" eða eitthvað enn annað, voru sem end- urtekning eða tilbrigði við tillögur Jóns Sigurðssonar í Hugvekju til Islendinga árið 1848. Á þessum áram stóðu oft harðar deilur á milli Islendinga og Dana og á milli Islendinga innbyrðis, síð- ustu árin m.a. um það hvar ráð- hema Islands ætti að vera búsett- ur. Baráttan bar loks sýnilegan ár- angur í upphafi nýrrar aldar. Hinn 10. janúar 1902 tilkynnti Kristján konungur IX., að hann félhst á ósk- ir Islendinga um að skipa sérstak- an ráðherra til að fara með íslensk málefni en Islendingar yi'ðu sjálfir að skera úr um hvort hann hefði aðsetur í Reykjavík eða Kaup- mannahöfn. Árið 1903 samþykkti alþingi lög um heimastjórn og þar með að ráðherrann skyldi vera bú- settur í Reykjavík. II. Islendingar fengu heimastjóm og Hannes Hafstein varð fyrsti ráðherra Islands með búsetu í Reykjavík 1. febrúar árið 1904. Þar með var mikilsverðum áfanga náð. Framkvæmdavaldið fluttist inn í landið og ráðherrann bar ábyrgð fyrir alþingi, sem gat vikið honum úr embætti með því að lýsa yfir vantrausti á hann. Við fyrstu sýn gat svo virst sem stefna Jóns Sig- urðssonar hefði sigrað árið 1904, en hér var þó ekki allt sem sýndist. Margir vora sáróánægðir með heimastjómarlögin, þótt þeir við- urkenndu að vísu að þau væru framför frá fyrri háttum, er ráð- herra Islandsmála var jafnframt ráðherra í dönsku ríkisstjóminni, sat í Danmörku og bar ábyrgð fyrir danska þinginu, en ekki alþingi. Að dómi andstæðinga heima- stjómarlaganna var sá hængur á þeim, að þau höfðu að geyma ákvæði um að ráðherra Islands skyldi fara svo oft sem þurfa þætti til Danmerkur og bera þar upp fyr- ir konungi, í ríkisráði, lagafram- vörp, er alþingi hafði samþykkt. Þetta töldu andstæðingar heima- stjómarlaganna að skerti mjög sjálfstæði íslenskra stjórnvalda. I ríkisráði sátu konungur, krón- prinsinn og ráðherrar í dönsku rík- isstjórninni. Andstæðingar „ríkis- ráðsfleygsins“, eins og þetta ákvæði var oft nefnt, héldu því fram, að með því að mæta í ríkis- ráðinu með framvörp frá alþingi viðurkenndi ráðherra Islands, að hann væri í raun ráðherra í dönsku ríkisstjórninni. Auk þess gætu danskir ráðherrar haft áhrif á af- stöðu konungs til íslenskra laga- framvarpa. Afgi'eiðsla þeirra kæmi dönskum stjómvöldum og danska þinginu hins vegar ekkert við. Það varð svo til að bæta gi'áu ofan á svart, að þegar Hannes Hafstein var skipaður fyrsti ráðherra Is- lands árið 1904, skrifaði forsætis- ráðherra Danmerkur undir skipun- arbréfið ásamt konungi. Það töldu andstæðingar heimastjórnarlag- anna dönsk afskipti af íslenskum málum og sumir óttuðust að at- höfnin væri merki um það, sem koma skyldi, að Danir ætluðu sér ekki að sleppa tökunum. Harðvítugar deilur um stjórnar- skrárfrumvarpið frá 1903 (heima- stjórnarlögin) hófust þannig um leið og það var samþykkt - og reyndar fyrr. Andstæðingarnir vora háværir í gagnrýni sinni en kjarni málsins var sá, að þótt lögin um heimastjóm veittu Islending- um aukið sjálfstæði og sjálfstjóm í innanlandsmálum, láðist að leysa um leið deiluna um ríldsréttarleg tengsl íslands og Danmerkur. Þar vora Stöðulögin frá 1871 enn í fullu gildi og þau höfðu Islendingar aldrei samþykkt. Þar stóð hnífur- inn í kúnni og smám saman varð ljóst, að hann yrði að draga úr sár- inu, þótt það kynni að reynast sárs- aukafullt. Nokkur skriður komst á þessi mál á fyrri hluta ársins 1906. Krist- ján konungur IX. lést í janúar það ár og kom þá til valda sonur hans, Friðrik VIII. Hann hafði lengi haft meiri áhuga á íslandi og íslenskum málefnum en flestir aðrir ráða- menn í Danmörku og vildi gera hvað hann gæti til að koma sam- bandi landanna í það horf að báðar þjóðir teldu sig geta bærilega við unað. í því skyni beitti konungur sér fyrir því að alþingismönnum var boðið til Danmerkur sumarið 1906 og dvöldust þeir þar í boði konungs og ríkisþingsins.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.