Morgunblaðið - 29.11.1998, Side 48

Morgunblaðið - 29.11.1998, Side 48
,48 SUNNUDAGUR 29. NÓVEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ * Smáfólk ► THI5 15 A PICTURE /1 THINK \ OFAMANWHO 1 YOU'RE WA5 RAI5ED IN A / ON TO MALL BV APE5.. ( ^SOMETHIN 6..y djP r —-V -s. 6x.<!h /0-/2. Þetta er mynd af manni sem apar Eins og hver? Það Ég breyti því í Þetta er mynd af manni sem apar ólu ólu upp í frumskóginum ... eins hefur verið gert. verslunarmið- upp í verslunarmiðstöð ... Ég held að og Tarzan. stöð... þú sért að plata... > BREF TIL BLAÐSINS Kringlan 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329 Landssíma- vandræði Frá Atla Má Jóhannssyni: ÉG ER að skrifa þetta bréf af illri nauðsyn, ég lenti í þeirri ömurlegu lífsreynslu fímmtudaginn 26. nóv- ember 1998 að þurfa að hringja í Landssímann. Þessari lífsreynslu vildi ég helst hafa sleppt. Að mínu mati er GSM kerfí Landssímans hrunið. Ég hef undan- farnar vikur lent í því að 80% sím- tala í gegnum þetta kerfí slitna eftir stuttan tíma. í fyrstu hélt ég að sím- inn minn væri bilaður og hugleiddi að fara með hann í viðgerð. En fyrst spurði ég fólk í kringum mig, sem einnig er með GSM síma tengda við kerfi Landssímans, hvort það hefði orðið vart við að símtöl þess slitn- uðu, og viti menn, allir sem ég hef talað við kannast við þetta vanda- mál, það virðist vera sama hvort maður hringir úr venjulegum síma í GSM síma, samtölin slitna í flestum tilvikum. Nú veit ég ekki hvort þetta er landlægt, en þetta hlýtur að vera mál sem Landssíminn verður að kanna til að geta þjónustað við- skiptavini sína. Af þessum orsökum hringdi ég í Landssímann til að í'á einhverjar skýringar á þessu, í fyrsta símtalinu mínu var símtalið flutt áfram á ein- hvern sem átti að vita eitthvað um málið. Ég beið í dágóða stund þar til ég gafst upp og hringdi aftur, þá var símtalið flutt á einhvern annan aðila, og enn bíð ég, í þetta skipti í 7 mínútur án þess að nokkur svari. í þriðja sinn hringi ég og fæ þá skýr- ingu frá skiptiborðinu að þessir aðil- ar hafí sennilega sent símtöl sín áfram í annan síma og þess vegna fór símtalið mitt ekki aftur til skiptiborðs. Þá er mér gefið sam- band við þriðja aðila sem, ótrúlegt en satt, svaraði símanum. Eftir að hafa skýrt mál mitt fyrir þessum aðila tjáir hann mér að hann sé ekki sá sem eigi að fá svona kvartanir og kannist hann því ekkert við málið og að þeim orðum sögðum slitnaði sambandið á milli okkar, og í þetta sinn var ég ekki að nota GSM síma heldur venjulegan síma. í fjórða sinn hringi ég í Landssímann skipti- borð, og tjái konunni sem svaraði að sá maður sem hún gaf mér samband við hefði ekkert með málið að gera og spurði hvers vegna hún hefði gefíð mér samband við hann. Ekki fékk ég þau svör sem ég óskaði eftir og fauk þá í mig og heimtaði ég þá þjónustu sem mér ber frá fyrirtæki sem ég versla við fyrir hundruð þúsunda á ári, brást þá símadaman ókvæða við og sagði að hún hefði engan tíma til að sinna svona mál- um, ég mætti ekki teppa skiptiborð- ið með þessum hætti. I framhaldi af því sagðist hún ætla að gefa mér samband við þjónustufuiltrúa en þá var þolinmæði mín á þrotum og skellti ég á. Mér er óskiljanlegt að fyrirtæki sem á í samkeppni geti hagað sér svona. Fyrirtækið? spyrja kannski einhverjir, jú, sú manneskja sem svarar skiptiborðinu fyrir fyrirtæki er rödd fyrirtækisins út á við, þetta vita allir sem eitthvað vita um þjón- ustu. Þama var mér sagt að ég mætti ekki hringja í fyrirtækið og teppa símalínur þess, mér var sagt að enginn væri við til að svara spum- ingum mínum um þjónustu fyrirtæk- isins, mér var sagt að ég væri óæski- legur viðskiptavinur vegna þess að ég vildi fá þá þjónustu sem ég er að borga fyrir. Ég krefst þess að Landssíminn tald sig saman í andlit- inu og lagi þessi mál, og ég æski svars við þessum GSM vandamálum, ég verð greinilega að skrifa svona bréf í blöðin til að ná athygli þeirra hjá Landssímanum vegna þess að það er svo erfítt að ná í þá í síma. ATLI MÁR JÓHANNSSON, Lambhaga 15a, Bessastaðahreppi. Með skærin á lofti Frá Þorsteini Guðjónssyni: í SJÓNVARPSÞÆTTI dr. Þor- valds Gylfasonar um Halldór K. Laxness (Sjónvarpið 22.11.98) gerði hann breytingu á texta skáldsins, með sérstakri niðurfellingu úr því sem lesið var. Halldór er þar að nefna í röð nokkra þá menn sem honum þykja merkilegastir í menn- ingarframsókn íslendinga um þær mundir („skýr tákn risavaxinnar framtíðarmenningarij og eru orð hans þannig óbreytt, eins og þau standa í Alþýðubókinni, 1. útg. (1929): ...ljóð Einars Benediktssonar, grundvallarlínurnar í heimspeki Helga Péturss, myndlist Einars Jónssonar, hið yfirpersónulega í ör- æfamyndum Asgríms Jónssonar, hinar dulrænu baksýnir í raunsæis- myndum Kjarvals, hetjuandi sá er lýsir sér í meðferð Jóns Leifs á ís- lenskum tónhugtökum, o.s.frv." Dr. Þorvaldur lét hinn ágæta leikara sinn lesa þennan texta óbreyttan, að öðru leyti en því, að hann felldi niður nafn eins manns, dr. Helga Pjeturss. Það nafn virtist ekki mega heyrast í sjónvarpi - allra síst í slíku samhengi! Dr. Helgi var klipptur burt - og hefðu ein- hvemtíma þótt tíðindi! Og vissulega eru það ný tíðindi almennt, að text- ar sem njóta almennrar virðingar séu þannig leiknir - af virðingar- mönnum. Varla mundu prófessor- arnir við þá fínu skóla, sem dr. Þor- valdur hefur sótt erlendis vera ýkja hrifnir af slíkum vinnubrögðum. Ég hringdi í nokkra kunningja mína til þess að fullvissa mig um, að við hérna á Rauðalæk 14 hefðum heyrt rétt, og var það staðfest. Einn þessara kunningja minna, forn Birkibeinn í fræðum dr. Helga, sagði af þessu tilefni, og öðrum: „Þeir eru eitthvað hræddir við hann.“ - Ég veit ekki hvað þeir eru hræddir við, en eitt er víst, að hræddir eru þeir - með skærin á lofti. ÞORSTEINN GUÐJÓNSSON, Rauðalæk 14, Reykjavík. Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga- safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt tii að ráðstafa efninu þaðan, hvort sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.