Morgunblaðið - 02.12.1998, Síða 2
2 MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Þingmönnum boðið
til Bessastaða
ÓLAFUR Ragnar Grímsson,
forseti Islands, hélt kvöldverð-
arboð á Bessastöðum til heiðurs
Alþingi í gær, 1. desember, á 80
ára afmæli fullveldisins. Gestir
voni alþingismenn og æðstu
embættismenn Alþingis. Á
borðum voru sjávarréttir, kjöt,
ostar og annað úr sýslum og
kaupstöðum Norðurlands, en í
fyrra var boðið upp á rétti frá
Vestfjörðum og Vesturlandi.
Sagðist hafa unnið með leysiefni skömmu fyrir akstur
Sýknaður af ákæru
um ölvunarakstur
Morgunblaðið/Golli
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur
sýknaði 22 ára gamlan mann í gær
af ákæru um að hafa ekið bifreið
undir áhrifum áfengis 14. júní síð-
astliðinn.
Niðurstaða öndunarsýnismælis
lögi'eglu, Intoxilyzer 5000-N, sýndi
að maðurinn var yfir sektarmörk-
um og því var hann sviptur öku-
leyfí til bráðabirgða. Lögregla fann
áfengisþef af manninum við hand-
töku og sagðist hann hafa drukkið
5-6 staup af sterku áfengi og 2-3
bjóra aðfaranótt 14. júní. Við seinni
yfirheyrslu, sem fram fór 21. ágúst,
sagðist maðurinn hafa verið að
vinna með leysiefni, þ.ám. ethyl-
bensín, í óloftræstum bílskúr án
hlífðargrímu tæpum tveimur
stundum áður en hann settist undir
stýri.
Fræðilega séð ethylbensín
en ekki áfengi
Efnaverkfræðingurinn Terje
Kjeldsen, sem var einn þeirra sem
hönnuðu Intoxilyzer 5000-N, bar
vitni fyrir dóminum og sagði að
öndunarsýnismælirinn ætti að vara
við framandi efnum í útöndun. Ef
um ethylbensín væri að ræða
myndi hámarksgildið í áfengismæl-
ingunni og niðurstöðu mælingar-
innar vera 0,025 mg á lítra að við-
bættum 5% alkóhólgildis. I um-
ræddu tilviki hefði tækið átt að gefa
slíkt til kynna ef um hefði verið að
ræða meira magn en ofangreind
viðmiðunai-mörk. Þetta þýddi
m.ö.o. að um gæti hafa verið að
ræða hámark 0,05 mg á lítra, sem
fræðilega séð gæti verið vegna et-
hylþensíns en ekki áfengis.
Ákærði fullyrti að hann hafí
nefnt, að hann hefði verið að vinna
með leysiefnin þegar öndunarsýnið
var tekið á lögreglustöð, en aðstoð-
aivarðstjóri bar fyrir dómi að
ákærði hefði svarað því neitandi
þegar hann var spurður hvort hann
hefði verið með leysiefni skömmu
fyrir aksturinn.
I niðurstöðu dómsins segir að
ekkert vitni hafi verið viðstatt þeg-
ar sýnatakan fór fram og að ákæru-
valdið hafi ekki sýnt fram á það, að
ákærði hafi svarað þeirri spurningu
neitandi að hann hafi verið að vinna
með leysiefni skömmu fyrir hand-
tökuna.
Því var bráðabirgðaökuleyfis-
svipting felld úr gildi og ákærði
sýkn af öllum kröfum ákæruvalds-
ins.
Bandarísku erfðafyrirtæki veitt einkaleyfí vestanhafs á brjóstakrabbameinsgeni
Islenskar rannsóknir
engin forsenda einkaleyfís
Hafnarfjarðarmálið
Vitni gefa
skýrslur
ENGINN hefur enn verið handtek-
inn vegna meintrar alvarlegrar kyn-
ferðislegrar áreitni sem tvær 13 ára
stúlkur urðu fyrir á sunnudagskvöld
á Skólabraut í Hafnarfirði.
Leitað er þriggja fullorðinna karl-
manna, sem urðu á vegi stúlknanna
klukkan rúmlega 19 og misbuðu
þeim, en þær gátu gefið greinargóða
lýsingu á þeim. Stúlkumar era frá
Reykjavík og Garðabæ og ætluðu í
heimsókn til ættingja annaraar
þeiraar í Hafnarfirði þegar atvikið
átti sér stað. Teknar hafa verið
skýrslur af þremur vitnum, sem hafa
gefið sig fram.
Rannsókn er í fullum gangi og
óskar lögreglan eftir fleiri vitnum.
---------------
Harður árekstur
í Ólafsvík
TVEIR voru fluttir á Sjúkrahús
Akraness eftir harðan árekstur
tveggja bifreiða í hálku á Ennisbraut
í Ólafsvík í gær kl. 16.40. Þeir reynd-
ust ekki hættulega slasaðir. Ársgam-
alt barn, sem sat í barnabílstól í aft-
ursæti annan-ar bifreiðarinnar, sak-
aði ekki.
Ökumenn og farþegar beggja bif-
reiðanna voru allir í bílbeltum og
segir lögreglan í Ólafsvík að notkun
þeiraa hafi dregið úr meiðslum.
JÓRUNN Erla Eyfjörð, yfirmaður
erfðarannsókna hjá Krabbameins-
félagi íslands, segir að einkaleyfi,
sem bandaríska erfðarannsókna-
fyrirtækinu Myi-iad Genetics virð-
ist hafa verið veitt á
brjóstakrabbameinsgeninu
BRCA2, í Bandaríkjunum hafi eng-
in áhrif á rannsóknir hérlendis. ís-
lenskar rannsóknir á geninu séu á
engan hátt forsenda þessa einka-
leyfis og vegna þeirra hafi hvorki
bandaríska fyrirtækið né aðrir er-
lendir aðilar fengið afhent lífsýni
úr íslendingum.
Alls engin samvinna
við Myriad
„Myriad hefur fengið einkaleyfi á
geninu BRCA2 í Bandaríkjunum.
Til grundvallar liggur vinna fleiri
hundruð, kannski fleiri þúsund ein-
staklinga, víða í Evrópu og í Banda-
ríkjunum, þar á meðal tveggja
rannsóknastofa á íslandi, okkar og
rannsóknastofu í frumulíffræði á
Landspítalanum. Við erum á sama
báti og allir þessir aðilar,“ sagði
Jórunn.
í gögnum sem einkaleyfið banda-
ríska byggist á er m.a. vísað til nið-
urstaðna úr rannsóknum starfs-
manna Krabbameinsfélagsins á
þessu geni. Jórunn sagði að sam-
skipti íslensku aðilanna við hið
bandaríska fyrirtæki hefðu alls eng-
in verið. Það hefði engan aðgang
fengið að lífsýnum úr Islendingum.
Öll sýni sem tekin hefðu verið úr Is-
lendingum hefðu verið raðgreind
hér á landi.
Hún sagði að mikill fjöldi stökk-
breytinga hefði fundist í geninu
BRCA2. Sams konar stökkbreyting-
ar og fundust í íslenskum konum
hefðu t.d. komið fram í Finnlandi og
Bandaríkjunum. Hún sagði sér-
kennilegt og tímanna tákn að banda-
ríska fyrirtækið gæti tekið sér
einkaleyfi á geni í Bandaríkjunum.
Þarlendis geta fyrirtæki sótt um
einkaleyfi á genum en í Evrópu eru
aðeins veitt einkaleyfi á hagnýtum
þáttum, t.d. ákveðnum aðferðum.
Jórunn sagði að sinn skilningur á
tilkomu þessa einkaleyfis væri sá að
breskur rannsóknahópur hefði selt
réttinn til að leita eftir einkaleyfi á
gi-unni sinna niðurstaðna til líf-
tæknifyrirtækis í Bretlandi. Það
fyrirtæki hefði síðan verið yfirtekið
af Myriad.
- Hvernig er það fyrir ykkur að
sjá afrakstur ykkar vinnu að ein-
hverju leyti orðinn háðan einkaleyfi
óskyldra aðila?
„Það er ekki hægt að líta þannig
á það, þetta snertir okkar vinnu
ekki neitt. Þetta hefur ekki áhrif á
rannsóknir, hvorki hér né annars
staðar," sagði Jórunn. Hún sagði að
hins vegar virtist þetta óneitanlega
geta haft áhrif á dreifmgu arðsins af
rannsóknunum. „Vonandi heldur
Evrópa í það að veita ekki einkarétt
á genum heldur aðeins aðferðum,"
sagði hún.
Finna aðferðir sem nýtist
vísindasamfélaginu
Islensku rannsóknirnar voru, að
sögn Jórunnar, kostaðar með er-
lendu fé að stærstum hluta, m.a.
með styrkveitingum frá ESB og
norrænu krabbameinsfélögunum.
Jórunn segir að þær rannsóknir
sem hún hefur verið að vinna að
beinist ekki að því að finna gen
heldur aðferðir sem nýst geti vís-
indasamfélaginu í heild. Styrkveit-
ingarnar hafi byggst á því. Ef ætl-
unin væri hins vegar að finna gen
hefði undirbúningi og samstarfi við
aðra aðila verið háttað á annan veg.
Um það hvort íslendingarnir
hefðu í samstarfi sínu við erlenda
vísindamenn getað reist einhverjar
skorður við því að þetta einkaleyfi
yrði veitt eða tryggt sér hlut í arðin-
um, sagði Jórunn að erfitt væri að
segja til um það.
Hún ítrekaði að einkaleyfið
byggðist á rannsóknum hundraða
og þúsunda manna, sem eins væri
ástatt fyrir, víða um heim. Stór fyr-
irtæki í Bretlandi hefðu ekki getað
tryggt sér ágóðahlut heldur hefðu
þau verið keypt af öðrum stærri
fyrirtækjum. „Þetta er það sem er
að gerast, stór fyrirtæki eru að
gleypa minni fyrirtæki. Það hafa
margir miklar áhyggjur af því að
þetta sé vond þróun en þetta hefur
ekki áhrif á rannsóknir og það er
það sem menn horfa fyrst og fremst
á,“ sagði hún.
► í SÉRBLAÐINU Úr verinu í dag er fjallað um
miklar verðhækkanir á saltfiski á þessu ári og
stóran markað fyrir þurrkaðan saltfisk í Brazil-
íu. Ennfremur er viðtal við Elínbjörgu Magnús-
dóttur og greint frá aflabrögðum og fiskverði.
ELDV
GETRAUN
ísland í riðli með Sviss og
Kýpur í forkeppni EM/C1
38 ára bið Real Madrid á
enda í Tókýó/C4
Morgun-
blaðinu í
dag fylg-
ir aug-
lýsing
„Vetrar-
áætlun
Flugfé-
lags ís-
lands“.
MEÐ Morgunblaðinu
í dag fylgir auglýs-
ingabæklingur frá
Terma, „LANCOM -
JÓLIN 1998“.