Morgunblaðið - 02.12.1998, Qupperneq 11
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 1998 11
FRÉTTIR
Fjármálaráðherra vísar útreikningum borgarstjórans á bug
Skatttekjurnar aukist
um 17% en ekki 30%
GEIR H. Haarde fjármálaráðherra
segii’ samanbui'ð borgarstjórans í
Reykjavík á útgjöldum ríkis og
Reykjavíkurborgar milli áranna 1997
og 1999 vera hreina fjarstæðu. Borg-
arstjóri taki ekki með í reikninginn
þær miklu breytingar sem hafi verið
gerðai' á bókhaldi ííkisins. I raun hafí
skatttekjur ríkissjóðs hækkað um
17-18% á þessu tímabili en ekki 30,8%
eins og borgarstjórinn hélt fram.
I Morgunblaðinu í gær er haft eft-
ir Ingibjörgu Sólrúnu Gísladóttur
borgarstjóra í umi’æðum á auka-
fundi borgarstjórnar á mánudag, að
skatttekjur ríkisins hafí hækkað um
30,8% milli áranna 1997-1999. Geh’
sagði að þetta væri rangt.
„Hið rétta er að skatttekjur á
sambærilegum gi'unni hafa hækkað
á milli 17-18%. Ekki veit ég hvort
hér er misskilningur á ferðinni eða
blekkingar, en allir sem að þessum
málum hafa komið vita að frá 1997
og til 1999 hefur rekstrargrunninum
verið breytt sem er notaður. Það er
búið að taka inn í þessa útreikninga
bæði tekjur og gjöld, sem áður voru
ekki tekin með,“ sagði Geir.
Bætur og sértekjur
færðar inn í fjárlög
„Stærstu liðimir í þessum breyting-
um era ýmsar bótagreiðslur, vaxta-
bætur og bamabætur, sem áðm' vora
fyrii' utan fjái'lögin. Nú eru þessir liðh'
teknir með bæði tekna- og gjaldameg-
in. Sama er að segja um ýmsar sér-
tekjur stofnana. Nú er t.d. afnotagjald
Ríkisútvai-psins fært sem tekjur ft-á
ííkinu og útgjöld flutt til stofnunar-
innai'. Hvor þessara liða fyrir sig er
upp á um 8 milljarða. Þai- við bætist
að afskiiftaiTeglum hefm' verið breytt
hvað varðar afskrifaðar skattaskuldh'.
Nú era skattarnir teknh' með sem
tekjur og afskriftímai' reiknaðai' sem
gjöld. Þetta þýðir að tekjumar hafa
hækkað á pappírunum, en ekki í raun.
Það þýðir því ekki að reikna þetta
saman á þessum mismunandi for-
sendum. Ef maður reiknar tekjurnar
á hinum gamla gi-unni frá árinu 1997
til 1999 kemur í ljós að munurinn er
17-18%. Þetta hefur mai'gsinnis ver-
ið útskýi't í fjárlagaframvörpum síð-
ustu ára og í ríkisreikningi. Þær töl-
ur sem borgarstjóri notar eru hins
vegar greinilega niðurstöðutölur
ríkisreiknings 1997 og fjárlagafrum-
varpsins 1999. Ekki hefur hins vegar
verið tekið tillit til breytinga á
grunninum. Það finnst mér mjög
miður því það er betra þegai' verið er
að bera saman tölur hjá öðrum aðil-
um að hafa þær réttar,“ sagði Geir.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Jólatréð
tendrað í
Jólabæ
SÍÐASTLIÐINN laugardag var
kveikt á jólatré í Jdlabænum við
Fjörukrána í Hafnarfirði. Jóla-
bærinn verður formlega opnað-
ur fimmtudaginn 3. desember
þar sem margs konar jólasiðir
verða iðkaðir. Rekinn verður
jólaskóli fyrir börn, sem og jóla-
sveinaverkstæði, jólabakarí, auk
tónleikahalds barnakóra og
hljómsveita.
Það voru þeir Steingrímur
Hermannsson fyrrverandi
ráðlierra og barnabarn lians og
alnafni, sem fengu að tendra
Ijósin á jólatrénu. Lúðrasveit
Hafnarfjarðar lék létt lög og
Grýla og Leppalúði komu fær-
andi hendi með gjafir handa
jólasveininum, sem síðar mun
afhenda þær stríðshrjáðuin
börnum í Kosovo.
Haskolarað motfallið hugmyndum um gialdtöku af háskólanemum
*
Formaður SHI
telur um stefnu-
mörkun að ræða
' ' Morgunblaðið/Árni Sæberg
KATRIN Júlíusdóttir, framkvæmdastjóri SHÍ, til vinstri og Ásdís
Magnúsdóttir, formaður SHI, lögðu í gærmorgun blóm á leiði Jóns
Sigurðssonar.
HÁSKÓLARÁÐ samþykkti á fundi
sínum 19. nóvember sl. þá tillögu
fulltrúa stúdenta að gjald yi'ði ekki
tekið af nemendum vegna
rannsókna- og framhaldsnáms við
HI í bráð. Ásdís Magnúsdóttir, for-
maður Stúdentaráðs, kvaðst í ræðu
sinni á fullveldisfagnaði stúdenta j
gær líta svo á að með þessu hefði HI
hafnað hugmyndum um skólagjöld.
Um var að ræða breytingatillögu
frá fulltrúa stúdenta í ráðinu vegna
umfjöllunar um drög að nýjum sér-
lögum fyrir HI sem voru til lokaaf-
gi'eiðslu á fundi ráðsins. I lagadrög-
unum var gert ráð fyrir að
rannsókna- og framhaldsnám við
skólann, þ.e. meistara- og doktor-
snám, yrði byggt upp með gjaldtöku
af nemendum fyrir þjálfun, efni og
tæki sem þeir nota. Samþykkti ráðið
að leggja til að þetta heimildar-
ákvæði yrði fellt úr lögunum. Einnig
samþykkt háskólaráð tillögu þess
efnis að Hollvinasamtök HI skipuðu
sk. þjóðlífsfulltrúa í ráðið, í stað þess
að ráðherra sæi alfarið um þá skipan
eins og gert er ráð fyrir í drögunum.
Ásdís kveðst Hta svo á að með þvi
að samþykkja breytingatiHöguna, hafi
ráðið'í raun markað sér skýra stefnu í
málum tengdum hugmyndum um
skólagjöld og þá stefnu eigi að virða.
„Ráðherra ber frumvörp sem
þessi undir viðkomandi skóla og
hefðin hefur verið sú að ráðherra
hafi ekki gengið þvert á vilja skól-
anna. Því teljum við mjög mikilvægt
að þessi eindregna afstaða ráðsins
liggi fyi'ir og að mjög erfitt verði fyr-
ir ráðherra að sniðganga vilja ráðs-
ins. Hann getur það auðvitað í ki-afti
valdsins en siðferðilega væri honum
illa stætt á því,“ segh' Ásdís. Hún
kveðst líta svo á að Háskólinn hafí
hafnað skólagjöldum og því að
ráðherra fái að skipa pólitíska full-
trúa í ráðið.
Blómsveigur á leiði
Jóns Sigurðsonar
Háskólanemai' héldu hátíðlegt 80
ára fullveldisafmæli Islendinga í gær
að viðstöddum forseta íslands, Olafí
Ragnari Grímssyni. Dagskrá hátíð-
arhaldanna hófst í gærmorgun með
hátíðarmessu í kapellu skólans, þar
sem séra Bolli Gústafsson vígslu-
biskup þjónaði fyrir altari. Þá var
blómsveigur lagður að leiði Jóns Sig-
urðssonar og minni hans flutt. Fá-
mennt var við þá athöfn og segir Ás-
dís að táknrænt gildi hennar sé það
sem skipti orðið mestu máli í sam-
bandi við hana, enda sé torvelt að fá
námsmenn til að fjölmenna þar sem
þeir séu byrjaðir í prófum.
Að því loknu var efnt til hátíðar-
samkomu í sal aðalbyggingar HÍ, þar
sem Ásdís Magnúsdóttir, formaður
stúdentaráðs HÍ, og Páll Skúlason
háskólarektor ávörpuðu gesti. Þeir
Sigurður Guðmundsson landlæknh'
og Steingrímur Hermannsson, fyrr-
verandi Seðlabankastjóri, fluttu síð-
an hátíðarræður, auk þess sem
Háskólakórinn flutti nokkur lög und-
h' stjórn Egils Gunnarssonar.
Meniitamálaráðherra
Færsla
tímamarka
möguleg
BJÖRN Bjarnason menntamál-
aráðherra telur vel koma til greina
að rýmka ákvæði laga um einsetn-
ingu grunnskólans. Samkvæmt
gildandi lögum eiga sveitarfélögin
að hafa lokið einsetningu gi'unn-
skólans árið 2002.
Páll Pétursson félagsmál-
aráðherra sagði á fjármálaráðstefnu
Sambands íslenskra sveitarfélaga í
síðustu viku, að hann teldi vel koma
til greina að lengja þennan tíma um
tvö eða þrjú ár.
Menntamálaráðherra sagðist
geta tekið undir þetta. „Eg hef
alltaf sagt og sagði þegar grunn-
skólinn var fluttur til sveitarfélag-
anna, að löggjafinn hlyti að taka til-
lit til óska sveitarfélaganna um
þetta. Það var ekki ætlunin að
þvinga neinn í þessu efni. Ef þessi
lagaákvæði þykja of ströng er sjálf-
sagt að taka það til endurskoðunar.
Frá mínum bæjardyrum séð ætti
ekki að stofna fjárhag eða fram-
kvæmdum sveitarfélaganna í voða
með slíkum ákvæðum,“ sagði
Björn.
Björn sagði að engin formleg
beiðni hefði komið frá sveitarfélög-
unum um að breyta lögunum.
Samvinnunefnd um svæðisskipulag
Tillaga að svæðis-
skipulagi miðhá-
lendis samþykkt
SAMVINNUNEFND um svæðis-
skipulag miðhálendisins hefui'
samþykkt tillögu að svæðisskipulagi
miðhálendisins og skilað tillögunni
og meðfylgjandi gögnum og korti til
Skipulagsstofnunar. Að sögn
Guðrúnar Höllu Gunnarsdóttur, rit-
ara nefndarinnar, mun skipulags-
stjóri í framhaldi af þessu taka af-
stöðu til tillögunnar, og samkvæmt
lögum verður hún svo send send um-
hverfisráðherra til staðfestingar.
Samvinnunefndin er skipuð 12 full-
trúum héraðsnefnda af öllu landinu
sem eiga land að hálendinu og skipai-
umhverfísráðheri'a 13. fulltrúann,
sem er formaður nefndai'innar. Til-
laga að svæðisskipulagi miðhálendis
Islands til 2015 var auglýst 6. júní
1997. Frestur til að skila inn athuga-
semdum við tillöguna rann út 10. des-
ember 1997 og bárust athugasemdir
frá alls 95 aðilum. Síðasti kynningar-
fundur nefndarinnar þar sem helstu
niðurstöður skipulagsvinnunnar og
breytingar á skipulagsgögnum voru
kynntai', var haldinn í ágústmánuði
sl. Að sögn Guðrúnar hafa ekki verið
gerðar breytingar á tillögunni frá því
hún var kynnt í ágúst. Þá kom fram
að nefndin hefði haldið fast við þá
skoðun að víkja eigi frá fyrirliggjandi
virkjunarhugmyndum vegna mikilla
náttúruverndarhagsmuna, ekki síst
norðan Vatnajökuls.
I haust var sveitarfélögunum 38
sem fara með stjórnsýslu á miðhá-
lendinu send tillagan til kynningar
skv. skipulagslögum en aðeins tvö
sveitarfélög svöruðu nefndinni og
gerðu þau engar athugasemdir við
tillöguna.
Komdu jélapókkunum
örugglega tíl skila!
Slatilboð á smápökkum 0-20kg
Aðeins 300 kr. pakkinn - hvert á land sem er!
- Opið alla laugardaga til jóla kl. 10-14. -
M&MÍ
FLUfNINGAR
HÉÐINSGÖTU 3
S: 581 3030
Kevrum á
eftirtalda staði:
Vestmannaeyjar • Egilsstaði
Sevðisfjörð • Reyðarfjörð • Eskifjörð
Neskaupstað • Varmahlíð • Sauðárkrók
Patreksfjörð • Bfldudal • Tálknafjörð • ísafjörð
Súðavík • Flateyri • Þingeyri • Suðureyri
Bolungarvík • Hellu • Hvolsvöll
Þykkvabæ • Akureyri • Hvammstanga
Vik • Klaustur • Hólmavík • Drangsnes