Morgunblaðið - 02.12.1998, Qupperneq 14

Morgunblaðið - 02.12.1998, Qupperneq 14
14 MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Bæjarstjóri við fyrri umræðu um fjárhagsáætlun bæjarsjóðs Akureyrar Framkvæmdir sveitarfélaga hafa fjölgað störfum KRISTJÁN Þór Júlíusson bæjar- stjóri á Akureyri sagði við fyiTÍ um- ræðu fjárhagsáætlunar bæjarsjóðs Akureyrar í gær að það væri ekki keppikefli sveitarfélaga að safna skuldum, þvert á móti væri það markmið þeiiTa að greiða þær nið- ur, en aðstæður þeirra til þess væi-u ærið misjafnar. Hann gat þess að á fjármálaráðstefnu sveitarfélaga í liðinni viku hefði mikið borið á um- ræðu um hallarekstur sveitarfélaga. Þrátt fyrir kröftuga uppsveiflu í efnahagslífí hefðu heildarskuldir sveitarfélaga aukist. Ibúum höfuð- borgarsvæðisins hefði fjölgað um nær 8.000 manns á árunum 1995 til 1997, sem samsvaraði íbúafjölda Sauðárki-óks, Húsavíkur og Horna- fjarðar, en útsvarstekjur þessara staða væru um 900 milljónir króna, sem samsvaraði hallarekstri sveit- arfélaga á síðasta ári. „Eg fullyrði að þjónusta sveitai’félaganna sem töpuðu þessum íbúum hefur ekki dregist saman og fremur hafi verið aukið í til að sporna við flutningum fólks úr sveitarfélögunum," sagði Ki-istján. Á sama tíma og rætt væri um hallarekstur sveitarfélaganna og skammast yfir framkvæmdum þeiiTa væri talað um að lofað hafi verið ákveðnum fjölda nýrra starfa í síðustu Alþingiskosningum. „Eg er þess fullviss að framkvæmdir á veg- um sveitarfélaga og ný þjónusta eigi sinn þátt í þessari fjölgun starfa og spyrja má hvort þau eigi þá skammir skilið fyrir sinn þátt í að gefln loforð standi?“ Ki’istján nefndi einnig að rætt væri um undanlát- semi sveitarfélaga í launamálum grunnskólakennara, en minna færi fyrir umræðu um áhrif svonefndra aðlögunarsamninga ríkisins við ýmsar starfsstéttir. „Hvað um kauphækkanir starfsfólks við störf í heilsugæslunni?" spurði bæjar- stjóri. Samskipti í ógöngum Kristján sagði það sitt álit að um- ræða um samskipti ríkis og sveitar- félaga væri komin í ógöngur, menn hefðu ekki skilning á stöðu hvor annars. Því væri brýnt að taka vel í hugmyndir fjármálaráðherra um að skipa samráðsvettvang ríkis og sveitarfélaga um efnahagsmál, sér- staklega ef það gæti orðið til þess að efia skilning ríkis á kostnaði sveitarfélaga við þær skyldur sem það legði þeim á herðar. Þær blikur sem væru á lofti í byggðamálum kölluðu enn frekar á að samráð byggðist á heilindum, en umræða frá nýliðinni fjármálaráðstefnu bæri þess ekki vott. Jakob Bjömsson, oddviti Fram- sóknarflokks, varaði mjög við skuldasöfnun og sagði að ef sam- svarandi aukning yrði á skuldum allt kjörtímabilið og nú hefði verið myndu þær aukast um rúman millj- arð. „Við hefðum raðað hlutunum upp á annan hátt, það er ekki hægt að gera allt í einu,“ sagði Jakob. Oddur Helgi Halldórsson, bæjar- fulltrái L-lista, sagði að tekjur bæj- arsins ykjust gremjulega lítið, eða um 3%. Framundan væri mikil bar- átta um fólkið og helsta vopnið þar væri að bjóða upp á góða þjónustu í bænum. I því skyni væri að sínu mati í lagi að auka reksturinn. Ásgeir Magnússon, formaður bæjarráðs, fullvissaði Jakob um að ekki stæði til að auka skuldasöfnun bæjarsjóðs, líkt og hann boðaði. Bú- ið hefði verið að taka ákvarðanir um þær framkvæmdir sem íyrirhugað er að fara í á næsta ári og þeim yrði hrint í framkvæmd eins fljótt og kostur væri. Skatttekjur nema rúmum 2.200 millj. Skatttekjur bæjarsjóðs Akureyr- ar á næsta ári nema rámlega 2.200 milljónum króna, þar af eru út- svarstekjur áætlaðar um 1.825 milljónir króna, fasteignaskattur 303 milljónir og framlag úr jöfnun- arsjóði 112 milljónir króna. Rekstrargjöld er áætluð 1852 milljónir króna á næsta ári. Lang- mest fer til fræðslumála eða 820 milljónir króna og þá fara 404 millj- ónir ki’óna til félagsmála. Rekstrar- gjöld sem hlutfall af skatttekjum eru 82,71%. Áætlað er að fjárfest- ingar bæjarins á næsta ári nemi um 650 milljónum króna, þar af fari 450 milljónir í eignfærða fjárfestingu og 200 í gjaldfærða fjárfestingu. Á árinu 1999 er ráðgert að taka ný langtímalán að upphæð 350 milljónir króna. Dýpkun í Fiskihöfninni Færeyskt fyrirtæki bauð lægst FÆREYSIÍA fyi-irtækið Sand- grevstur átti lægsta tilboðið í dýpkun í Fiskihöfninni á Akureyi’i, en tilboð vora opnuð í gær. Fjögur tilboð bárast í verkið og vora þau öll undir kostnaðaráætlun. Sandgi’evstur bauðst til að vinna verkið fyrir um 23 milljónir króna, sem er um 66% af kostnaðaráætl- un. Björgun hf. í Reykjavík bauð 26 milljónir króna, eða tæp 75%, Jarðverk hf. á Dalvík bauð 30,9 milljónir króna, eða 88,6% og Am- arfell ehf. á Akureyri bauð um 34,5 milljónir króna, eða um 99%. Kostnaðaráætlun verkkaupa hljóð- aði upp á um 34,8 milljónir króna. Heildarefnismagn við dýpkun hafnarinnar er um 82 þúsund rúmmetrar og skal verktakinn flytja um 75 þúsund rúmmetra af efninu í Krossanes, þar sem það verður notað í uppfyllingu og um 7 þúsund rámmmetrar fara upp á Sanavöllinn. Dýpi við vesturkant Fiskihafnar- innar verður 9 metrar en annað svæði í höfninni verður 7,5 metrar á dýpt. Verkinu skal lokið eigi síðar en 15. apríl á næsta ári. Morgunblaðið/Jónas Baldursson Blaðbera Vantar f eftirtalin hverfi: Innbærinn, Akureyri. Blaðburður verður að hefjast um leið og blaðið kemur í bæinn. Góður göngutúr sem borgar sig. Morgunblaðið, Kaupvangsstræti 1, Akureyri sími 461 1600 Morgunblaðið leggur áherslu á að færa iesendum sínum vandaðar og áreiðanlegar fréttir, upplýsingar o.s.frv. Morgunblaðið leggur áherslu á að færa lesendum sínum vandaðar og áreiðanlegar fréttir og upplýsingar. Morgunblaðið er eina dagblaðið á Islandi sem er í upplagseftirliti og eru seld að meðaltali rúmlega 53.000 eintök á dag. Höfuðstöðvar Morgunblaðsins eru í Kringlunni 1 í Reykjavík þar sem eru hátt í 300 starfsmenn. Á Akureyri er starfrækt skrifstofa í Kaupvangsstræti 1. Morgunblaðið kom fyrst út 2. nóvember 1913. Árvakur hf. er útgefandi Morgunblaðsins. Ný Sjöfn til Grenivíkur NÝR bátur, Sjöfn ÞH 142, kom til heimahafnar á Greni- vík nú nýlega. Báturinn hét áður Sæljón SU og kemur hann í stað minni báts, sem einnig hét Sjöfn, en sá fer yfír til Sólrúnar á Árskógsströnd og mun heita Sólrún EA. Engar aflaheimildir fylgja með í þessum tilfærslum þannig að heimildir Grenvík- inga verða óbreyttar þótt nýi báturinn bætist í flota þeirra. Hlutafélagið Hlaðir á Grenivík gerir Sjöfn út og er ætlunin að vera á þorskanet- um í vetur. Einnig ætla inenn að reyna fyrir sér á rækju á komandi ári en fyrri bátur fé- lagsins var gerður út á rækju, aflanum var landað á Greni- vík en honum ekið til vinnslu á Akureyri. Skipstjóri á Sjöfn er Gísli Gunnar Oddgeirsson. Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar bs. Hólmar ráðinn framkvæmdastj óri HÓLMAR Svansson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri At- vinnuþróunarfélags Eyjafjarðar bs. en hann var valinn úr hópi sjö umsækjenda um stöðuna. Atvinnuþró- unarfélag Eýjafjarðar er nýtt félag og er ætl- að að vera leiðandi afl í uppbyggingu atvinnu á E yj afj arðarsvæðinu, með það að markmiði að fjölgja atvinnutæki- færam og auka fjöl- breytni þeirra starfa sem í boði eru. Atvinnuþróunarfé- lagið mun taka yfír hlutverk Iðnþróunarfé- lags Eyjafjarðar og Ferðamálamiðstöðvar Eyjafjarðar á Akureyi’i. Auk þess mun félagið leitast við að taka að sér aðra starfsemi er lýtur að at- vinnumálum á gi-undvelli þjónustu- samninga svo sem þá starfsemi sem sveitarfélögin hafa haft á sinni könnu og starfsemi Byggðastofnun- ar á Akureyri. Þurfum að spyrna við fótum „Þetta leggst alveg ágætlega í mig og það er alltaf gaman að breyta aðeins til. Það er ekki hægt að búa hér og láta sig þessi mál engu varða,“ sagði Hólmar í samtali við Morgunblaðið. Hann sagðist í gegnum líf og starf á Akureyri síð- ustu sex ár hafa fylgst með atvinnu- málum svæðisins og að hér þyi’ftu menn að fara að spyma við fótum. Hólmar sagði framundan að halda áfram stefnumótun félagsins. „Svo vonast maður til að geta sýnt einhvern árangur. Það ræðst m.a. af því að fá til liðs við okkur gott og samhent starfsfólk, en til að byrja með er gert ráð fyrir að starfsmenn verði 3-4.“ Rekstrarframlag miðast við hvern fbúa Sveitarfélögin 13 sem eiga aðild að félaginu gi’eiða rekstrarframlag sem miðast við hvern íbúa og er hlutur Akur- eyrarbæjar langstærst- ur, eða rúm 72%, hlut- ur Dalvíkurbyggðar er 10%, Ólafsfjarðar rúm 5% og Eyjafjarðar- sveitar 4,5%. „Það er því hvetjandi fyrir okkur að því fleiri sem íbúarnir á svæðinu eru því hærra er rekstrarframlagið til félagsins." Hólmar er 33 ára Akureyringur, rekstr- ai’verkfræðingur, með MBA-gráðu í viðskipt- um, en hann lauk námi í Bandaríkjunum árið 1992. Hann starfar sem deildarstjóri innkaupa- deildar á skrifstofu Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna á Akureyri en tekur við nýja starf- inu upp á næstu áramótum. Hólmar er kvæntur Eyi’únu Ingvadóttur talmeinafræðingi og eiga þau þrjú börn. Vörður fag*nar helgarakstri STJÓRN Varðar, félags ungi’a sjálfstæðismanna á Akureyri, fagnar þeim breytingum sem gerðar verða á rekstri Strætis- vagna Akureyrar nú með til- komu helgaraksturs. Gleðjast þeir yfir því að sjónarmið unga fólksins í Verði eigi upp á pall- borðið hjá stjórnendum stræt- isvagnanna, en Varðarfélagar telja skynsamlegt að láta á það reyna hvort grundvöllur er fyi-ir helgarakstri strætis- vagna og vonast til að áræði yfírvalda eigi eftir að koma í ljós á fleiri sviðum. ^ Morgunblaðið/Kristján HÓLMAR Svansson, nýráðinn fram- kvæmdastjóri At- vinnuþróunarfélags Eyjafjarðar bs.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.