Morgunblaðið - 02.12.1998, Page 30
30 MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 1998
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Stofnun Félags
um sjónlistir
í undirbúningi
%
„ÞÓF“ eftir Önnu Þóru
Karlsdóttur.
Fljúgandi
teppi
MYNDLIST
Listasafn ASÍ
UNDIRBÚNINGSSTOFNFUND
UR félags listunnenda til eflingar
og styrktar sjónlistum á nýrri öld
var haldinn 24. nóvember sl. á
Hótel Holti. I fréttatilkynningu
segir að tilgangur félagsins, sem á
að heita Félag um sjónlistir, sé að
kynna listamenn og verk þeirra og
veita þeim stuðning og hvatningu,
hvetja til kaupa á listaverkum og
efla íslenskan og eriendan lista-
verkamarkað.
Ennfremur að efla sjónlistir á
landsbyggðinni, skipuleggja heim-
sóknir á listasöfn innanlands sem
utan, stuðla að alþjóðasamstarfi
listunnenda og stuðla að ótgáfu-
starfsemi og kynningu á íslensk-
um sjónlistum innanlands sem ut-
an.
Að undirbúningi félagsins stend-
ur um 20 manna hópur og er Ár-
mann Reynisson framkvæmda-
stjóri einn af þeim. „Félagsskapur-
inn er hugsaður sem vettvangur
fyrir listunnendur til að hittast og
ræða saman um áhugamálið, sem
eru sjónlistir. Einnig að fá fræðslu
og að hitta listamenn. Við notum
orðið sjónlistir vegna þess að hug-
tökin myndlist eða höggmyndalist
eru orðin of þröng,“ segir Armann.
Hann tekur fram að ekki sé um
hagsmunahóp að ræða og að til-
gangurinn sé að veita sjónlistafólki
hvatningu, sem sé alls ekki fyrir
hendi í dag.
Miklir möguleikar
í útflutningi á íslenskri list
„Við ætlum að skapa umræðu-
grundvöll um sjónlistir almennt, en
hann vantar alveg hér á landi, og
benda á þá miklu möguleika sem fel-
ast í útflutningi á íslenskri list á
nýrri öld. Það er alltaf verið að tala
um tölvm- og hugbúnaðariðnað, en í
framtíðinni munum við einnig flytja
út íslenska list,“ segir hann.
Akveðið hefur verið að halda ann-
an undirbúningsstofnfund 19. janú-
ar nk. og stefna að því að félagið
verði formlega stofnað í febrúar nk.
Armann kveðst vilja benda öllum
þeim listunnendum sem hafa áhuga
á félagsskapnum að hafa samband
við hann eða Hannes Sigurðsson hjá
íslensku menningarsamsteypunni,
art.is.
TEXTÍL
ANNA ÞÓRA KARLSDÓTTIR
Opið frá þriðjud. til sunnud. frá 14:00
til 18:00. Aðgangseyrir 200 kr. Til 6.
des.
ÞAÐ er óhætt að segja að fióka: 1
gerð sé sérgrein Önnu Þói-u. í
þessari gleymdu iðngrein hefur
hún fundið óvenjulegan vettvang
fyrir myndrænt hugmyndaflug. Á
síðustu sýningu sem hún hélt í
mars síðastliðnum í Ráðhúsi
Reykjavíkur, í samvinnu við Guð-
rúnu Gunnarsdóttur, gerði hún til-
raun til að útfæra forna aðferð við
þæfingu ullar í hagnýtum tilgangi.
Þar sýndi hún flókamottur úr ís- L
lenskri ull, nýtískulega vöru úr ís- ;
lenskum efnivið og tekur sér þar }'i
með þjóðlega handverkshefð að w
íýrirmynd. Á sýningunni í Lista-
safni ASI er hún enn með nokkurs
konar flókamottur, en nú er mynd-
ræni þátturinn allsráðandi og nota-
gildið ekki haft að leiðarljósi.
Þegar gengið er upp á efri pall-
inn blasir við óvænt sjón. Ullar-
lagðar svífa um salinn, hanga í
lausu lofti, eins og þeir hafl frosið í |
miðju flugi. Lýsingin eykur enn ||
frekar á dramatík sviðsmyndarinn- ) ;:
ar, því feldimir varpa skugga á
gólf og loft. AIls eru flókarnir sex,
allir af sambærilegri stærð, u.þ.b.
tveir metrar á langveginn og einn
og hálfur á breiddina. Þrír þeirra
eru ljósir og bylgjast hver með
sínu lagi, og heita til samans „Upp-
haf‘. Þrír era dökkir, heita „Þóf‘,
og mynda samfelldan feld, grófan
og loðinn, eins og þeir hafi komið af |J
forsögulegum úruxa. Efnið er gróf- j'
unnið og litirnir upprunalegir, í:
þannig að eiginleikar efnisins era
dregnir fram í sviðsljósið eins og
kostur er. Flókarnir eru einfaidir í
lögun og án munsturs. Ekkert
dregur athyglina frá efniskennd og
áferð ullarinnar, sem hlykkjast um
feldinn.
Það er óneitanlega einhver þjóð-
legur andi í þessum sérstæðu l
flókafeldum; ullin, sauðalitimir, ||
flókinn og handverksiðnaðurinn - ■
það mætti halda að saga þjóðarinn- P
ar og lífsbarátta hefði verið soðin
og þæfð, þjappað saman í þétta
flókana. Hrá teppin virðast búa yf-
ir leifum af einhverju frumstæðu
og fomu, á mörkum hins náttúr-
lega og manngerða. Flókarnir eru
mjúkir og þjálir en einnig hrjúfir
og grófir, og bjóða ekki upp á
heimilislega hlýju. Það er þó heil- ;*
mikil kvika í samanþjappaðri ull- f'
inni, eins og í henni búi innibyrgð ||
orka og kenjóttir töfrar.
Gunnar J. Árnason
?;■
Með bros á vör
heimshorna á milli!
Við hjáTNT önnumst hrað-
sendingar milli landa með bros á vör.
Hjá okkur miðast allt við að ná sem
mestum hraða og öryggi í flutningi og
meðferð sendinga. Með næturflutning-
um um aðaldreifingamiðstöð TNT í
Liege í Belgíu er hægt að koma send-
ingum til skila innan 24 tíma til helstu
viðskiptalanda.TNT er einnig með
fullkominn leitarvef sem finnur hvar
sendingin er stödd á hverjum tíma.
FlutninganetTNT nær til
meira en 200 landa og starfa yfir
55.000 manns hjá fyrirtækinu. Þjónusta
TNT byggir á yfir 50 ára reynslu og
meðhöndlarTNT í dag yfir 2 milljónir
sendinga í viku. Aðaldreifingarmiðstöð
TNT er ein sú fulikomnasta sinnar
tegundar í Evrópu og þar eru allt að
30.000 sendingar meðhöndlaðar á
klukkustund allan sóiarhringinn og eru
starfsmenn um 700 talsins.
TNT Hraðflutningar sjá um
flutning hraðsendinga hérlendis fyrir
hið alþjóðlega flutningafyrirtækiTNT
Global Express. ÞjónustaTNT byggir
á áralangri reynslu við flutningastarf-
semi. Láttu okkur hjáTNT koma
sendingunni þinni til skila.Allar nánari
uppiýsingar fást hjáTNT Hraðflutn-
ingum, Suðurlandsbraut 26,
108 Reykjavík. Sími 580 1010.
Opið er alla virka daga kl. 8.30 -17.00.
UmboðsaðiliTNT á Islandi.
Hraðflutningar
Sími 580 1010 * www.tnt.com