Morgunblaðið - 02.12.1998, Qupperneq 53

Morgunblaðið - 02.12.1998, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 1998 53 þeirra enn í dag. En það átti oft eftir að reyna á samheldni og styrk fjöl- skyldunnar, því þar hefur sorgin oft knúið óvænt dyra. Eg held að styrk- ur og þroski ömmu Kristínar hafi þá jafnan verið sú fyrirmynd sem aðrir studdust við. í dag eru Halldóra og Anna, móðir mín, einar eftir úr þess- um stóra systkinahópi. Bjarni varð snemma að temja sér mikla ögun, því á unglingsárum slas- aðist hann alvarlega í bílveltu og varð að breyta lífsháttum sínum mikið upp frá því. Ekki er ólíklegt að slysið hafi haft áhrif á það að Bjarni valdi sér langskólanám. Hann fékk líka slysabætur sem studdu fátækan sveitadreng og laga- nám varð hans val. Heiðarleiki, hátt- vísi, samviskusemi og formfesta voru íákir þættir í skapgerð Bjarna og framgöngu. Ég held líka að hann hafi verið farsæll í störfum sínum sem dómari, fyrst í borgardómi og síðar Hæstarétti. Bjarni hafði alla tíð mikinn áhuga á fólki og kunni góð skil á ættum manna og uppruna. Hann var mikill ræktunarmaður og stundaði skógrækt af elju. En eitt held ég þó að Bjarna hafi tekist best af öllu og það var að velja sér konu. Hann eignaðist einstakan lífsföru- naut, Ólöfu Pálsdóttur frá Búrfelli, sem stóð við hlið hans í blíðu og stríðu til hinstu stundar. Þegar ég man fyrst eftir Bjarna Kristni var hann var ungur og ókvæntur laganemi sem stundaði bústörf í Öndverðarnesi í skólaleyf- um. Þangað komu jafnan aðrh- úr fjölskyldunni að hjálpa til þegar þeir gátu og var því oft margt um mann- inn og jafnan glatt á hjalla. Bjarni var alla tíð formfastur og hikaði ekki við að siða okkur krakkaormana þegar honum þótti þess þörf. Mig kallaði hann nöfnu og mér fannst upphefð í því. Næsta minning er af Bjarna og Ólöfu á Bárugötu 20, þar sem þau bjuggu um tíma í sambýli við fjölskyldu Unnar systur hans og tengdaforeldra hennar. Þá var Lauf- ey fædd og þar fæddist Birna Krist- ín. Ég man hvað það var mikil hátíð í húsinu, þegar Birna Kristín og jafnaldra hennar Elva, dóttir Unnar og Jóns Brynjólfssonar, voru skírð- ar í stofunni hjá Unni og Jóni. Síðan fluttu Bjarni og Ólöf á Hagamelinn í sína fyrstu íbúð. Þangað kom ég stundum til að passa stelpurnar þeiiTa, þegar þau fóru út að kvöld- lagi. Þá var Auður fædd og síðar Ragnhildur. Ég man hvað mér fannst þessar ferðir á Hagamelinn skemmtilegar og þau hjónin glæsi- leg, þegar þau voru prúðbúin að fara út á lífið. Mér fannst ég líka alltaf vera heldur merkilegri þegar ég fór en þegar ég kom, því Bjarni spurðist ævinlega fyrir um okkur frændsystkini sín, var minnugur á það sem vel gekk og hélt því á lofti. Síðar byggðu þau hús sitt á Eini- melnum, þar sem heimili þeirra hef- ur staðið síðan. Þar bjuggu þau þeg- ar yngsta barnið Bjarni Þór fæddist. Heimili Bjarna og Ólafar hefur alltaf einkennst af gagnkvæmum kærleika þeirra hjóna og þeirri virð- ingu sem þau báru hvort íyrir öðru. Dætur þeirra bera líka gott svipmót síns heima. Það var mikið áfall fyrir fjölskylduna að yngstu börnin, Ragnhildur og Bjarni, höfðu skerta þroskamöguleika. Ennfremur var höggið þungt, þegar Birna Kristín lést sviplega aðeins 24 ára gömul. Hún lét þá eftir sig sex ára dóttur, Tinnu Laufeyju Ásgeirsdóttur, sem ólst upp hjá afa sínum og ömmu og varð þeirra huggun og augasteinn. Nú eru barnabörn Bjarna og Ólafar orðin sex og eru þau hvert öðru mannvænlegra. Af þeim var Bjarni afar stoltrn-. Elsku Ólöf og fjölskylda, enn hef- ur sorgin knúið á ykkar dyr. Ég og fjölskylda mín sendum ykkur öllum innilegar samúðarkveðjur og þökk- um tryggum frænda samfylgdina. Bjarnheiður Kristín Guðmundsdóttir. Okkur systkinin langar til þess að minnast Bjarna með nokkrum orð- um. Við áttum því láni að fagna að fá að njóta samvista við hann um all- langa hríð. Foreldrar okkar hófu bú- skap sinn í kjallaranum hjá Ólöfu og Bjarna eins og svo mörg frændsystkina okkar. Við vorum að vísu ekki þar á meðal, en litum engu að síður á Einimelinn sem eins kon- ar annað heimili. í endurminning- unni eru þær margar heimsóknh-nar á heimili þeirra hjóna. Efst eru í minningunni jólaboðin á jóladag, enda litum við systkinin svo á, að jólin væru ekki komin fyi'r en möndlugrauturinn var þar á borð borinn. Móttökurnar í anddyrinu voru hátíðlegar, Bjarni heilsaði öll- um með handabandi, tók við yfir- höfnum og kom fyrir haganlega. Sjálfsagt hefði mörgum unglingnum þótt nóg um, en við sem þekktum Bjarna vissum sem var að öllum var tekið með sömu virðingu, allir voru jafn réttháir og á alla yi’ði hlýtt. Þegar kærastar/ur komu með spurði Bjarni gjarnan út í ættir, enda mik- ill áhugamaður um ættfræði. Senni- lega hefur það komið þeim á óvart, að á tíðum vissi hann meira en þau sjálf um sína áa. En það var ekki bara umgjörðin sem heillaði. Bjarni bar hag okkar systkinanna mjög fyrir brjósti. Hann hafði mikinn metnað fyrir okkar hönd, fylgdist grannt með, spurði frétta og ráð- lagði, hvort heldur varðandi áhuga- mál eða menntun. Segja má að við höfum snemma litið á hann sem n.k. afa okkar. Ró- semi, virðuleiki og umhyggja er okk- ur efst í huga er við minnumst Bjarna og voru þessir kostir hans ein af mörgum ástæðum þess að okkur þótti svo gott að njóta návist- ar hans. Rausnarskapur, góðvild, umhyggja og hlýja í garð okkar systkinanna er það sem við munum ávallt varðveita í endurminningunni sem og þakklæti íyi’ir það veganesti sem hann færði okkur. Elsku Ólöf, börn og barnabörn. Megi Guð styrkja ykkur í soi’ginni. Páll, Ásta og Laufey Alda. Ég kynntist Bjarna haustið ‘65 og ári seinna hófum við Ragnheiður bú- skap í kjallaranum hjá Ólöfu og Bjarna. Þar bjuggum við í tæp fimm ár og var það sannarlega góður tími. Upp frá þessu urðum við Bjarni góðir vinir. I mörg ár fój’um við saman í veiðiferðir og öfluðum vel, því Bjarni var veiðimaður góður og kappsamur. Ái’ið 1972 missti ég föður minn Pétur og má segja að Bjarnþhafi að hluta til komið í hans stað. Ég held að í nær öllum málum er ég hef tek- ið mér íyrir hendur síðan hafi ég ráðfært mig við Bjarna áður en ég hef tekið ákvörðun. Hann var ráð- hollur að leita til, boðaði varfærni, velti málum á ýmsa vegu, sem reyndist mér vel. Bjarni var í okkar augum mjög farsæll og agaður maður sem gætti þess ávallt að hvorki hallaði á menn né málefni í umræðu dagsins. A þann hátt mótaði hann þá er honum kynntust. Hann lét sig skipta hag annarra og fylgdist vel með öllum. Hann hugsaði mikið um heilsuna og í fjölskylduferðum og samveru- stundum í sumarbústaðnum lét eng- inn sjá sig með óhollustufæði. Bjarni lét sig hafa það, þótt hann vissi að umræðan væri ekki alltaf vinsæl, að bi-ýna fyrir okkur hollustu og við lærðum af því. Hans afakex var þó undanskilið hollustunni. Bjarni og Ólöf áttu mjög fallegt heimili. Fjölskyldan á Látraströnd hlakkaði alltaf til jólaboðsins á Eini- melnum. Þar stýrði Ólöf með sínum sterka persónuleika en saman stóðu þau sem sterk heild, traust og góð. Börn og barnabörn voru Bjarna sannir gleðigjafar sem hann var stoltur af. Hann var einstakur fjöl- skyldufaðir. Viljum við þakka hon- um alla tryggð og vináttu í okkar garð. Elsku Ólöf, börn og barnabörn. Við vottum ykkur dýpstu samúð. Guð styrki ykkur. Sigvaldi og Ragnheiður. Kveðja frá Hæstarétti íslands Bjarni Kristinn Bjarnason helgaði dómstörfum alla starfsævi sína. Hann iðkaði þau hátt í fjóra áratugi, lengst sem borgardómari í Reykja- vík en síðustu sex árin sem hæsta- réttardómari. Bjarni var varaforseti Hæstaréttar, þegar hann lét þar af störfum í árslok 1991. Jafnframt borgardómarastörfunum var Bjarni formaður Siglingadóms í ellefu ár og varadómari og dómari við Félags- dóm í tvo áratugi, þar af forseti dómsins í tvö ár. Þá gegndi hann trúnaðarstörfum fyrir dómarastétt- ina, bæði á vettvangi Dómarafélags Reykjavíkur og Dómarafélags Is- lands. Bjarni K. Bjarnason naut virðing- ar og trausts í hópi lögmanna og dómara og raunar langt út fyrir þeirra raðir. Hann gat sér það orð, að hann væri glöggskyggn og sann- sýnn dómari, vandvirkur og athug- ull. Hann lagði sig fram um að greiða úr málum, þannig að grund- völlur þeirra væri jafnan eins skýr og kostur var og ágreiningsefni ljós- lega mörkuð. Var það stundum jafn- vel haft á orði, að eftirgangssemi hans í embætti borgardómara við lögmenn og aðila mála væri í þess- um efnum úr hófi fram, svo að jaðr- aði við fullkomnunaráráttu. Hitt er þó ljóst, að dómar hans voru rök- fastir, skýrir og skipulegir og stóð- ust mæta vel endurskoðun i Hæsta- rétti, þótt niðurstaðan yrði þar stundum önnur, eins og verða vill. Það var Hæstarétti mikill fengur að fá í sínar raðir jafn reynslumik- inn og gjörhugulan dómara og Bjarni K. Bjarnason var. í fjölskip- uðum dómi eins og Hæstarétti, þar sem leiða þarf sérhvert mál til end- anlegra lykta, reynir mjög á æðru- leysi og staðfestu dómara, sem þurfa að kosta kapps um að ná sam- eiginlegri niðurstöðu og stuðla að réttareiningu, svo sem best má verða. Þótt Bjarni væri ákveðinn og sjálfstæður í skoðunum, eins og góð- um dómara sæmir, lagði hann sig engu að síður fram um að ná sam- stöðu og skynsamlegri niðurstöðu í hverju máli. Hann lagði ríka áherslu á, að dómar væru ritaðir á kjam- góðri íslensku. Hann var hollráður og sanngjarn og voru sjónarmið hans jafnan metin að verðleikum. Hæstiréttur Islands vottar minn- ingu Bjarna K. Bjamasonar virð- ingu sína og þakkir og sendir eigin- konu hans, frú Olöfu Pálsdóttur, og fjölskyldu hans allri einlægustu samúðarkveðjur. Pétur Kr. Hafstein Bjarni Kristinn Bjarnason var einn af borgardómumnum, sem störfuðu við embættið þegar ég hóf þar störf sem fulltrúi í ársbyrjun 1970. Það sópaði að honum, hann var ákveðinn og vann að málum sín- um af mikilli röggsemi. Ég kom í hóp fulltrúanna, sem þar vora fyrir, ráðnir af Hákoni Guðmundssyni yf- irborgardómara, en aðrir höfðu ver- ið ráðnir í tíð fyrirrennara hans, Einars Arnalds. Þetta var góður hópur, sem gott var að starfa með, og samstaða mikil og góð, eins og oft vill verða meðal þeirra sem vinna erfið og knýjandi störf. Dómararnir unnu þó störf sín hver á sinn hátt, þar sem hver fór með sín mál, þannig að dómararnir, fulltrúarnir og ritararnir hittust í raun ekki dag- lega nema í kaffítímanum. Hefð var því fyrir því að þar mættu allir og hver hafði sitt sæti við langt borð í kaffistofunni, og sat yfirborgardóm- arinn við borðsendann en Bjami við mitt borðið. Þar urðu samræður fjöragar, og lá Bjarni ekki á skoðun- um sínum og fékk oft sterk við- brögð, en hann eins og aðrir dómar- ar, naut góðs málflutnings og rök- færslu. Þetta gátu dómararnir gert í lokuðum hópi, þar sem einkaskoðan- ir þeirra koma helst ekki fram opin- berlega. Bjarna var ljóst, eins og öll- um dómurum, að störf dómai’ans eru að leysa deilur annarra með sér- stökum aðferðum lögfræðinnar, þar sem þeir fara eftir lögunum og engu öðra. Bjarni hafði tekið hátt stúd- entspróf frá Verslunarskólanum og hátt lagapróf. Hann var strax ráðinn til starfa hjá borgardómaranum í Reykjavík, og urðu dómstörf hans ævistarf. Hann hafði ungur orðið fyrir slysi og hlotið örorku og þurfti þess vegna að leggja meira á sig lík- amlega en aðrir. Hann vann öll störf af mikilli kostgæfni, afkastamikill og nákvæmur, réttsýnn og sanngjarn og vildi láta gott af sér leiða í öllu. Hann vandaði mál sitt og honum var annt um íslenska tungu, eins og dómar hans bera vott um. Honum t Ástkær móðir okkar, tengdamóðir og amma, KRISTMUNDA MARKÚSSON, Sólheimum 27, sem andaðist á Vífilsstaðaspítala laugar- daginn 28. nóvember, verður jarðsungin frá Fossvogskapellu föstudaginn 4. desember kl. 10.30. Óli Eysteinn Markússon, Barbara Markússon, Nína Markússon, Jón Magnús Gunnlaugsson og barnabörn. t Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, INGIGERÐUR HELGADÓTTIR, Garðbraut 49, Garði, sem lést á Garðvangi í Garði föstudaginn 27. nóvember, verður jarðsungin frá Útskála- kirkju föstudaginn 4. desember kl. 14.00. Sérstakar þakkir til starfsfólks Garðvangs fyrir góða umönnun. Ögmundur Jóhannesson, Kristín Ögmundsdóttir, Sigurjón Kristinsson, María Ögmundsdóttir, Sæmundur Einarsson, Alda Ögmundsdóttir, Erlendur Jónsson, Sigurður J. Ögmundsson, Guðrún J. Aradóttir, Jón J. Ögmundsson, Unnur G. Knútsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýju vegna andláts og útfarar systur okkar og mágkonu, SVANHVÍTAR EGILSDÓTTUR prófessors. Einar Egilsson, Margrét Thoroddsen, Gunnþórunn Egilsdóttir, Sigrún Þorleifsdóttir, Svava Júlíusdóttir og fjölskyldur. t Hjartans þakkir til allra þeirra, sem veittu okkur hjálp og sýndu okkur samúð og vináttu við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa okkar, GUNNARS SIGURÐSSONAR fyrrv. byggingarfulltrúa. Sérstakar þakkir til Sigurðar Björnssonar, læknis og starfsfólks Sjúkrahúss Reykjavíkur. Guð blessi ykkur öll. Ingibjörg Ólafsdóttir, Sigurður Bjarni Gunnarsson, Ásta Gunnarsdóttir, Björn Reynir Friðgeirsson, Ásthildur Kristín Björnsdóttir, Gunnar Ingi Björnsson. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý- hug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, SIGVALDA FANNDAL TORFASONAR fyrrverandi olíubilstjóra, Árbraut 14, Blönduósi. Sérstakar þakkir fær starfsfólk Héraðssjúkra- húss Blönduóss fyrir frábæra umönnun. Elísabet Finnsdóttir, Ingibjörg Sigvaldadóttir, Helgi Árnason, Guðrún Sigvaldadóttir, Jón Eiríksson, Torfhildur Sigvaldadóttir, Þorvaldur Ólafsson, Sjöfn Sigvaldadóttir, Guðmundur Ludvfgsson, Svala Sigvaldadóttir og barnabörn. I
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.