Morgunblaðið - 02.12.1998, Page 57
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 2. DESEMBER 1998 57
Ný sjúkraþjálfunar-
stöð í Kjarna
NÝVERIÐ var opnuð ný sjúkra-
þjálfunarstöð í Kjarna inn af
Heilsugæslustöð Mosfellsbæjar.
Stofan er vel búin ýmsum tækj-
um til æfinga og meðhöiidlunar á
stoðkerfiseinkennum.
Eigendur stofunnar eru þeir
Magnús Örn Friðjónsson, B.Sc. í
sjúkraþjálfun frá Háskóla íslands
og Musculoskeletal Disorders
sem sérgi-ein frá Ástralíu. Á stof-
unni starfar einnig Guðmundur
Þór Brynjólfsson, B.Sc í sjúkra-
þjálfun frá Háskóla íslands.
Á stofunni er veitt meðferð við
hvers kyns kvillum frá stoðkerfi,
s.s. bak- og hálsverkjum, vöðva-
bólgum, afleiðingum íþrótta- og
bílslysa ásamt fræðslu um rétta
líkamsbeitingu og almenna upp-
byggingu Iíkamans.
Þjónustusamn-
ingur við Huldu-
hlíð á Eskifírði
INGIBJÖRG Pálmadóttir, heil-
brigðis- og ti’yggingamálaráðheiTa,
og Árni Helgason, framkvæmda-
stjóri Dvalar- og hjúkrunarheimilis-
ins Hulduhlíðar á Eskifirði, hafa
undimtað þjónustusamning vegna
starfsemi stofnunarinnar.
Samningurinn felur í sér að heil-
brigðis- og tryggingamálaráðuneyt-
ið kaupir fyrir hönd ríkissjóðs þjón-
ustu af stofnuninni en hún selur 17
hjúkrunarrými og 1 MS-dagvistun-
arrými og eru ákvæði í samningnum
um að nýting rýma verði ekki minni
en 98 af hundraði á ári hverju. Að
auki leggur stofnunin til 7 dvalar-
rými sem lífeyristryggingadeild
Tryggingastofnunar ríkisins greiðir
fyrir.
Skilgreindar eru í samningnum
kröfur heilbrigðis- og trygginga-
málaráðuneytjs vegna aðbúnaðar og
þjónustu við vistmenn, markmið
með því að veita þjónustuna, um
hjúkrunarþátt þjónustunnar, og eft-
irlit með framkvæmd samningsins.
Ríkissjóður gi-eiðir Dvalar- og
hjúkrunarheimilinu Hulduhlíð á
Eskifirði 51 milljón og 9 hundruð
þúsund krónur fyi'ir þjónustuna sem
vistmönnum er veitt á stofnuninni.
■ VERKAKVENNAFÉLAGIÐ
Aldan á Sauðárkróki fundaði sl.
föstudagskvöld og var þessi ályktun
samþykkt samhljóða: „Fundur í
stjórn og trúnaðarráði Verka-
kvennafélagsins Öldunnar 27. nóv-
ember 1998 bendir á það misgengi
sem átt hefur sér stað í launaþróun
á landinu.
Ýmsir hópar sem starfa hjá ríki og
sveitarfélögum hafa fengið launa-
hækkanir í skjóli fjöldauppsagna,
þó að viðkomandi hópar séu með
samninga í gildi. Nú er svo komið
að ófaglært launafólk hefur dregist
verulega aftur úr og við það verður
ekki unað. I síðustu samningum var
talið að svigrúm til launahækkana
væri það lítið að ekki væri hægt að
semja um meira en 14,5% hækkanir
til verkafólks. Þegar aðrir hópar
semja er skyndilega komið annað
hljóð í strokkinn og nú er svo komið
að sumir hópar hafa fengið allt að
50% hækkun á samningsatímabil-
inu. í næstu kjarasamningum er
brýnt að leiðrétta þetta misgengi og
skorar fundurinn á forystu verka-
lýðshreyfingarinnar að vinna að
þeirri leiðréttingu. Fundurinn hvet-
ur forystu Verkamannasambands-
ins til áframhaldandi viðræðna við
stjórnvöld og foi-ystu vinnuveitenda
um þessa stöðu og hvetur ennfrem-
ur til þess að undirbúningur að
næstu kjarasamningum verði vand-
aður.“
VANTAR EIGNIR
Höfum verið beðnir um að leita að eftirfarandi eignum
fyrir fjársterka aðila, engin skipti:
• Einbýlishús í Hafnarfirði. Helst á einni hæð með þrem svefnher-
bergjum.
• Raðhús í Garðabæ eða lítið einbýli, ca 140—200 fm.
Fasteignasala,
Strandgötu 25, Hfj.
Árni Grétar Finnsson, hrl.
Stefán Bj. Gunnlaugsson, hdl.
Sími 555 1500, bréfsimi 565 2644
LYNGVIK
Fasteignasala - Síðumúla 33
Fclag ®i Fastcignasala
Sími: 588 9490
BERJARIMI
Ármann H. Benediktss., lögg. fastsali.
Geir Sigurðsson, lögg. fastsali.
2JA og 3JA HERB. ÍBÚÐIR
MEÐ SÉRINNGANGI. STÆÐI í BÍLGEYMSLU.
63 fm 2ja herb. íbúð á 1. hæð. V. 6,5 m.
85 fm - 90 fm 3ja herb. íbúðir á 1. og 2. hæð. V. 7,7 m. - 8,1 m.
íbúðirnar eru tilbúnar til afhendingar fullfrágengnar án gólfefna og
tækja í eldhúsi. Stæði í bílgeymslu fylgir hverri íbúð.
Verið velkomin í hlýjuna, næs bOastæði
Munið handverksmarkaðinn alla laugardaga í desember
FjÖRÐUR
- miöbœ HafnarJjaröar