Morgunblaðið - 13.12.1998, Side 8

Morgunblaðið - 13.12.1998, Side 8
8 SUNNUDAGUR 13. DESEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR AEG Vöfflujárn WE100 AEG Hárbláslri Figaro 1600 I.G Expressokaffivél EA100 AriG ‘V Kaffikanna KF1000 aeg Expresso og kaffikvél KFEA100 Bráuðrisl at 250 Brauðrist AT 340 Hraðsuðukanna1L SWA10101L ORMSSONHF Lágmúla 8 • Sími 533 2800 AEG Gufustraujárn DB 4040 aeg Matvinnsluvél KM 21 3, szz. sssaia 1 * ÉnjH iK fpH Vesturland: Máiningarþjónustan Akranesi, Kf. Borgfirðinga, Borgarnesí. Blómsturvellir, Hellissandi. Guðni Hallgrímsson, Grundarfirði. Ásubúð, Búðardal. VestfirðiR Geirseyrarbúðin, Patreksfirði. Rafverk, Bolungarvík. Straumur, Isafirði. Norðurland: Kf. Steingrlmsfjarðar Hólmavik. Kf. V-Hún., Vvammstanga. Kf. Húnvetninga, Blönduósi. Skagfirðingabúð, Sauðárkróki. KEA Lónsbakka, Akureyri KEA, Dalvík. KEA, Siglufirði. KEA, Olafsfirði. Kf. Pingeyinga, Húsavík. Urð, Raufartröfn, Lónið Pórshöfn. Austurland: Sveinn Guðmundsson, Egilsstöðum. Kf. Vopnafirðinga, Vopnafirði. Kf. Stöðfirðinga. Verslunin Bakki, Kópaskeri. Verslunin Vfk, Neskaupstað. Kf. Fáskrúðsfirðlnga, Fáskrúðsfirði. KASK, Höfn, KASK Djúpavogi. Suðurtand: Mosfell, Hellu. Árvirkinn, Selfossl. Rás, Poriákshöfn. Brimnes. Vestmannaeyjum. Reykjanes: Stapafell. Keflavik. Rafborg, Grindavík. Úthlutun Mæðrastyrksnefndar Marg*ir leita aðstoðar Unnur Jónasdóttir THLUTUN Mæðra- styrksnefndar hefst næsta mánudag. Reglur nefndarinnar hafa breyst í þá veru að nú verð- ur fólk sem vill njóta að- stoðar hennar að sækja um á umsóknareyðublöðum fyrir 12. desember. Áður þurfti fólk ekki að sækja um úthlutun á eyðublöðum. Ut- hlutun stendur yfir til 23. desember. En hvað skyldu margir hafa sótt um úthlut- un í fyrra? Um ellefu hundruð manns sóttu þá um aðstoð, fiest af því fólki er einstæð- ar mæður og öryrkjar. Allir fengu einhverja úrlausn. - Eru margir sem styðja starf Mæðrastyrksnefndar? Já, það eru margir sem hafa stutt okkur í gegnum árum, viss hópur gerir þetta ár eftir ár og við erum ákaflega þakklátar því fólki. Við gætum ekki starfað við þetta nema að við ættum svona góða að. - í hverju er stuðningurinn fólginn? - Þetta fólk gefur okkur alls konar gjafír, bæði matvæli, gjafa- pakka fyrir börn, fatnað og pen- inga. Bæði einstaklingar og fyrir- tæki gefa okkur þetta. Fyrirtæki gefa okkur allt mögulegt en eink- um þó peninga og matvæli og í gær fengum við t.d. gefins mikið af kertum svo eitthvað sé nefnt. Einstaklingar gefa meira af fatn- aði og þá oft notuðum, einstaka fyrirtæki hefur gefíð okkur nýjan fatnað. - Hvenær takið þið á móti gjöf- um? Skrifstofan á Njálsgötu 3 er opin alla virka daga frá klukkan 14-18 í desembermánuði. Alltaf er þó starfsmaður nefndarinnar við tvo tíma í viku allt árið um kring. Fataúthlutun og flóamark- aður er á Sólvallagötu 48 og er opið þar einu sinni í viku, það er á miðvikudögum klukkan 14-18. En í desembermánuði er opið frá 15- 18 á miðvikudögum og föstudög- um. - Er meira sótt um aðstoð núna en verið hefur? - Það er ekki komið í ljós, en í dag, fimmtudaginn 10. des., hefur verið stanslaus straumur fólks hingað með beiðni um aðstoð, svo það sýnist vera mikil þörf á að- stoð þrátt fyrir góðærið margum- talaða. - Hverju úthlutiðþið einkum? Við úthlutum matarmiðum í verslanir og svo úthlutum við einnig allskonar matvælum og öðrum nauðsynjum. Okkur hefur verið gefið heilmikið af jóla- gjöfum fyrir börn, margvísleg leikföng. Þessu er úthlutað á Njálsgötu 3 en öllum fatnaði er úthlutað á Sólvallagötu 48. - Er þetta ungt fólk sem leitar til ykkai■ mest? Þessar barnakonur sem koma til okkar eru ekkert frekar ung- ar, margar eiga mörg böm sem þær framfæra og eru einstæðar. Margar þessar konur eru öryrkj- ar og geta ekki farið út á vinnu- markaðinn. Svo er líka einn hóp- ur sem hefur komið til okkar og það eru nemar með börn. Tölu- vert af háskólastúlkum sem em einstæðar með börn, hafa leitað aðstoðar okkar. Þær hafa lítið handa á milli og húsaleigan er há hjá þeim og bæturnar eru lágar. ► Unnur Jónasdóttir er fædd í Reykjavík árið 1923. Hún út- skrifaðist frá Verzlunarskóla íslands 1942. Hún starfaði á skrifstofu bæjarsímans í _ Reykjavík og síðar hjá SIBS og loks við miðasölu hjá Leikfé- lagi Reykjavíkur. Hún er for- maður Mæðrastyrksnefndar og hefur verið það frá árinu 1981 en var kosin í nefndina 1978. Unnur var gift Her- manni Hermannssyni forsfjóra Sundhallarinnar en maður hennar er látinn. Þau eignuð- ust eitt barn. -En aldraðar konur, fá þær aðstoð hjá ykkur? Já, þær fá aðstoð. Þær aldrað- ar konur sem til okkar leita eru einstæðingar sem hafa bara sín ellilaun og geta ekki lifað af þeim, þær þurfa oftast að borga háa húsaleigu. - Leitar veikt fólk til ykkar til þess að fá hjálp til að borga lyf? Já, en okkar hjálp er öll fólgin í mat og fatnaði. Ápótekin hafa aldrei stutt okkur neitt. Sum fyr- irtæki hafa gefið okkur fría út- tekt en apótekin hafa aldrei verið í þeim hópi. -Er algengt að félagasamtök styrki ykkur? Já, það eru þó nokkuð mörg fé- lög sem hafa styrkt okkur, einnig félagasamtök og starfsmannafé- lög. Þess má geta að í mörgum tilvikum era það sömu fyrirtækin og einstaklingamir sem hafa styrkt okkur ár eftir ár. - Hvað er besti stuðningurinn sem þið fáið? Það er erfitt að segja til um hvernig stuðningur er bestur, allt er vel þegið og kemur að notum. -Fáið þið opinber- an stuðning? Reykjavíkurborg og einnig félagsmála- ráðuneytið hafa stutt okkur. Borgin reynd- ar meira þar til í fyrra. Eigi að síður getum við enn borgað einum starfsmanni laun. Við höfðum einnig til skamms tíma lögfræðing á okkar snærum til að aðstoða konur. En nú er sá lögfræðingur farinn í nám erlendis og óvíst um fram- hald þeirrar starfsemi. Fyrir þennan stuðning, eina milljón kónur á ári frá Reykjavíkurborg og 400 þúsund krónur frá félags- málaráðuneytinu, getum við haldið skrifstofunni og fataút- hlutunni gangandi allt árið um kring. Konurnar sem eru kosnar í nefndina af kvenfélögunum í Reykjavík vinna endurgjalds- laust allt árið. „Borgin studdi okkur meira þar til í fyrra"

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.