Morgunblaðið - 16.12.1998, Side 1

Morgunblaðið - 16.12.1998, Side 1
287. TBL. 86. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 16. DESEMBER 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS Mál Clintons Líkurnar á ákæru aukast Washington. Reuters. LÍKURNAR á að Bill Clinton Bandaríkjaforseta tækist að koma í veg fyrir málshöfðun til embættis- missis minnkuðu enn í gær þegar sjö repúblikanar í fulltrúadeildinni lýstu því yfír að þeir myndu greiða atkvæði með ákæru á hendur for- setanum þegar hún verður borin undir atkvæði á morgun. Einn þingmannanna sjö, Jaek Quinn, var á meðal fyrstu repúblik- ananna sem lýstu yfír andstöðu við málshöfðun á hendur forsetanum. Sinnaskipti hans eru mikið áfall fyrh' Clinton. Staða forsetans versnaði enn í gærkvöldi þegar Nancy Johnson, áhrifamikil þingkona úr röðum hóf- samra repúblikana, lýsti því yfir að hún væri hlynnt málshöfðun. John- son hefur farið fyrir 20 repúblikön- um, sem Clinton hefur lagt mikið kapp á að vinna á sitt band. ■ Syrtir í álinn/24 --------------- Bandaríkja- her í við- bragðsstöðu Washington. Reuters. BANDARÍSKAR hersveitir við Persaflóa hafa fengið fyrirmæli um að vera í viðbragðsstöðu vegna vís- bendinga um að hermdarverkamenn séu að undirbúa árásir á Banda- ríkjamenn á svæðinu, að sögn bandaríska varnarmálaráðuneytis- ins í gærkvöldi. Ráðuneytið segist hafa fengið upplýsingar frá leyni- þjónustunni um að hætta sé á til- ræðum gegn Bandaríkjamönnum á næstu 30 dögum í nokkrum Persaflóaríkjum. Netanyahu sakaður um að spilla fyrir friðarumleitunum Clintons Neitar að flytja herliðið á brott á tilsettum tíma Erez. Reuters. BILL Clinton, forseta Bandaríkj- anna, tókst ekki að telja Benjamin Netanyahu, forsætisráðherra Isra- els, á að standa á tilsettum tíma við samninginn um brottflutning ísrael- skra hersveita frá Vesturbakkanum á fundi þeirra með Yasser Arafat, leiðtoga Palestínumanna, í gær. Pal- estínumenn sökuðu Netanyahu um að hafa spillt fyi'ir tilraunum Clint- ons til að bjarga Wye-samningnum svokallaða, sem kveður á um að ísra- elar flytji herlið sitt frá 13% Vestur- bakkans í þremur áföngum gegn því að Palestínumenn skeri upp herör gegn hermdarverkum. „Þeir komu með það eitt að mark- miði að spilla leiðtogafundinum og tækifærinu til að bjarga friðarum- leitununum og gera Wye-samning- inn framkvæmanlegan," sagði palestínski samningamaðurinn Nabil Shaath. Clinton ræddi við Netanyahu og Arafat í tvær klukkustundir við landamæri Israels og Gaza-svæðis- ins og sagði að þeir hefðu samþykkt að leita leiða til að leysa deilur þeirra og flýta lokaviðræðum Isra- ela og Palestínumanna um varan- legan frið. Samkvæmt Wye-samningnum á öðrum áfanga brottflutnings ísra- elskra hermanna frá Vesturbakkan- um að ljúka á föstudaginn kemur en ekkert benti til þess í gær að Net- anyahu hygðist virða það ákvæði. Netanyahu áréttaði að Israelar myndu ekki láta fleiri landsvæði af hendi fyrr en Palestínumenn stæðu að fullu við skuldbindingar sínar. Hann lýsti því ennfremur yfir að hann myndi ekki falla frá skilyrðum sínum fyrir því að palestínskir fang- ar yrðu látnir lausir. Ráðgert er að þing Israels greiði Reuters BILL Clinton Bandaríkjaforseti kveikti á stóru jólatré á Manger-torginu í Betlehem áður en hann hélt aftur til Bandarikjanna í gær. Clinton og dóttir hans, Chelsea, skreyta hér jólatréð. atkvæði á mánudaginn kemur um til- lögur þess efnis að þingið lýsi yfir vantrausti á stjórn Netanyahus og að boðað verði til kosninga innan tveggja mánaða. David Bar-Illan, fjölmiðlafulltrúi Netanyahus, sagði í gær að forsætisráðherrann myndi líklega ákveða bráðlega hvort rjúfa ætti þing og boða til kosninga. Um- mæli hans voru túlkuð sem skýi'asta vísbendingin til þessa um að Net- anyahu teldi útséð um að hægt yrði að bjarga stjórninni, sem hefur riðað til falls vegna óeiningar um Wye- samninginn. Fjármálaráðherra segir af sér Talsmaður Netanyahus staðfesti í gærkvöldi að Yaacov Neeman, fjár- málaráðheira Israels, hefði ákveðið að segja af sér. Ekki var greint frá ástæðu afsagnarinnar. Neeman bauðst til að láta af emb- ættinu fyrr í mánuðinum ef það yrði til þess að Netanyahu gæti myndað stjórn með Verkamannaflokknum. Tilraunir Netanyahus til að fá David Levy, fyrrverandi utanríkisráðherra, til að ganga aftur í stjórnina fóru út um þúfur í vikunni sem leið þegar forsætisráðherrann hafnaði kröfu Levys um að hann yrði skipaður fjármálaráðherra. Reuters Solzhenítsyn hylltur Þing Líbýu ræðir Lockerbie-málið Vill réttarhöld í hlutlausu landi London. Reuters. Þiggja fjárstuðn- ing* Dana ÞRÁTT fyrir að færeyska landsstjórnin sé farin að vinna að sjálfstæði frá Dönum, sam- þykkti lögþing eyjanna einróma í gær að þiggja tæplega einn milljarð dkr. í fjárhagsaðstoð frá danska ríkinu eins og und- angengin ár. Danh' hafa sett það skilyrði að fjárhagsaðstoð þeirra við Færeyjar falli niður, kjósi Færeyingar sjálfstæði. Karsten Hansen, fjármálaráð- herra Færeyinga, lagði til að þeir þæðu 933 milljónir dkr., um 10 milljarða ísl. kr., árlega í rík- isstyi'k frá Dönum 1999-2001, eins og gert var ráð fyrir í samn- ingi þjóðanna um lok banka- málsins svokallaða. Seinni árin tvö verður upphæðin hækkuð með tilliti til almennra verð- og launahækkana. Málið verður tekið til þriðju umræðu í lögþinginu fljótlega og í dag greiðir danska þingið atkvæði um það. SELLÓLEIKARINN Mstislav Rostropovich (t.v.) ræðir við Nóbelsskáldið Aleksandr Solzhenítsyn á tónleikum í Moskvu. Rostropovich stjórn- aði tónleikunum, sem voru haldnir í gærkvöldi í tilefni af afmæli Solzhenítsyns, en hann varð áttræður á föstudaginn var. ÞING Líbýu samþykkti í gær álykt- un þar sem lýst er yfir stuðningi við áform um að tveir Líbýumenn, sem eru eftirlýstir vegna Lockerbie-til- ræðisins, verði sóttir til saka í hlut- lausu landi. Bresk og bandarísk stjórnvöld brugðust varfærnislega við þingsályktuninni, sögðu hana skref í rétta átt en vöruðu við of mik- illi bjartsýni á að mennirnir yi'ðu framseldir. „Þetta eru góð tíðindi, ef þetta er rétt. En sem stendur eru þetta að- eins fréttir í fjölmiðlum. Við verðum að vera varkár þar til við fáum form- leg svör,“ sagði talsmaður breska ut- anríkisráðuneytisins. Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, sagði að sam- þykkt líbýska þingsins væri skref í rétta átt og kvaðst ætla að leita eftir frekari upplýsingum um hana hjá sendiherra Líbýu. Líbýska sjónvai'pið sagði að þingið hefði einnig hvatt stjórnvöld í Líbýu, Bretlandi og Bandaríkjunum til að „fjarlægja eins fljótt og auðið er all- ar hindranir sem hafa komið í veg fyrir að mennh'nir verði leiddir fyrir rétt“. Deilt um hvar mennirnir eigi að afplána dómana Bretar og Bandaríkjamenn hafa fallist á að réttað verði yfir mönnun- um í Hollandi en krafist þess að þeir afpláni fangelsisdómana í Skotlandi, verði þeir fundnir sekh- um tilræðið. Líbýumenn hafa ekki fallist á þá kröfu. Líbýumennirnir tveir eru grunaðir um að hafa komið fyrir sprengju í bandarískri farþegaþotu sem sprakk í loft upp yfir skoska bænum Lockerbie fyrh' tæpum tíu árum. 270 manns biðu bana í tilræðinu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.