Morgunblaðið - 16.12.1998, Page 10

Morgunblaðið - 16.12.1998, Page 10
10 MIÐVIKUDAGUR 16. DESEMBER 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR „ Morgunblaðið/Sigurður Aðalsteinsson NYJA brúin á Jökulsá á Dal við Iflarðarhaga er glæsilegt mannvirki og mun hættuminna að fara yfir hana en gömlu brúna. Ný brú yfir Jökulsá á Dal tekin í notkun Vaðbrckku, Jökuldal. Morgunblaðið. NY brú yfir Jökulsá á Dal við bæinn Hjarðarhaga á Jökuldal var tekin í notkun viku af jólafostu. Þessi nýja brú er búin að vera í byggingu í nær tvo mánuði og vegurinn yfir Jökulsá hefur verið iokaður þann tíma vegna brúargerðarinnar. Það hefur valdið nokkru óhagræði. Aðallega hefur það komið niður á skólaakstri hér innansveitar og lengt verulega leið bama af Austur-Dal í skól- ann. Þessi bið er þó þess virði vegna þess að aðkoma að gömlu brúnni var mjög þröng og svellsækin og þess vegna hættuleg suma vetur. Nú er aðkoman mun víðari og nýja brúin er góðum tveim metram hærri en sú gamla og safnast þess vegna mun minni snjór í aðkeyrsluna að henni um vetur. N eytendasamtökin Breytingar til skoðunar BREYTINGAR eru íyrirhugaðar á starfsemi Neytendasamtakanna og á stjórnarfundi síðastliðinn laugardag var skipaður þriggja manna starfshópur til að skoða hvernig starf samtakanna verði best skipulagt þannig að það nýt- ist neytendum í landinu sem best. Starfshópurinn kemur saman til fyrsta fundar milli jóla og nýárs. Jóhannes Gunnarsson, fomað- ur Neytendasamtakanna, sagði í samtali við Morgunblaðið að hjá Neytendasamtökunum væri ákveðið sóknarfæri á næsta ári þar sem niðurskurður á starfsemi samtakanna á þessu ári hefði verið mikill. Jóhannes var kosinn for- maður Neytendasamtakanna síð- astliðið vor, en hann var áður framkvæmdastjóri samtakanna, og hefur hann í raun gegnt starfi framkvæmdastjóra síðan hann tók við formennskunni. „Það hefur ekki verið tekin ákvörðun um hvernig við skipu- leggjum okkur, en meginmálið er að við skipuleggjum okkur þannig að við nýtum þá fjármuni sem við höfum til ráðstöfunar sem best. Það var skorið mjög kröftugt nið- ur í starfseminni á þessu ári og sá niðurskurður er í raun meiri en við þurfum á næsta ári, þó svo að við höfum þurft þennan niður- skurð þetta árið. Sóknarfæri sam- takanna felast þess vegna í því að það er hægt að fara að byggja upp starfsemina á nýjan leik,“ sagði Jóhannes. Jakob Kristjánsson framkvæmdastjdri íslenskra hveraörvera Reynt að þvinga fram hlut í fyrirtækinu Morgunblaðið/Þorkell JAKOB Krisfjánsson, framkvæmdastjóri fslenskra hveraörvera, og starfs- menn Iíftæknideildar Iðntæknistofnunar sendu frá sér yfirlýsingu á blaða- mannafundi í gær. Við hlið Jakobs eru Guðmundur Óli Hreggviðsson, Sól- veig K. Pétursdóttir, Viggó Þór Marteinsson og Sigurlaug Skírnisdóttir. JAKOB Kristjánsson, framkvæmda- stjóri Islenskra hveraörvera segir að fyrirtækið sé í molum og framtíð þess sé óráðin, vegna ummæla Sindra Sindrasonar, stjómarfor- manns Genís hf., í fjölmiðlum, og til- kynningar iðnaðar- og viðskiptaráðu- neytisins um að ekki hafi staðið til að veita fyrirtækinu sérleyfi til rann- sókna. Jakob greindi frá stöðu íslenskra hveraörvera og sjónarmiði fyrirtæk- isins á þeim ágreiningi sem upp hef- ur komið milli ÍH og Genís á blaða- mannafundi í gær. Starfsmenn líf- tæknideildar Iðntæknistofnunar sendu einnig frá sér yfirlýsingu, þar sem þeir segjast telja að vegið sé gróflega að starfsheiðri þeirra og framtíðaratvinnumöguleikum. Genís hætt öllum hvera- örveruverkefnum Jakob greindi frá því að Genís hefði hætt hveraörverurannsóknum fyrir tveimur árum, og benti, máli sínu til stuðnings, á bréf frá Iðn- tæknistofnun dagsett 4.4. 1997, þar sem samningi Genís um einkarétt á nýtingu hveraörverurannsókna stofnunarinnar er sagt upp. Jakob sagði jafnframt að þau verk- efni sem Genís vinnur að væru ekki tengd hveraörverum. „Eina hveraör- veruverkefnið sem Genís hefur sjálft staðið fyrir er að vera leppur fyrir bandaríska fyrirtækið Diversa við að safna hér sýnum úr hverum _og senda óunnin úr landi. Markmið IH er að einmitt hindra slíka starfsemi," sagði Jakob. Sagðist hann telja athugavert að þrátt fyrir að iðnaðarráðuneytið hefði snemma á þessu ári unnið að reglu- gerðarsetningu um söfnun og nýt- ingu hveraörvera, þar sem Genís hefði verið meðal fjölmargra um- sagnaraðila um reglurnar, hefði fyr- irtækið ekki gert neinar athuga- semdir fyrr en skyndilega nú. Miklir fjármunir í húfi „Legið hefúr fyrir í u.þ.b. hálft ár að iðnaðarráðuneytið ynni að útgáfu leyfa til rannsókna og nýtingar á hveraör- verum og jafhiramt hefur það verið rækilega kynnt í fjölmiðlum að umsókn ÍH um slíkt leyfi lægi fyrir. Samt hefur Genís ekki sótt um slíkt leyfi né mót- mælt því á nokkum hátt, þar til nú.“ Jakob benti á að undirrituð sam- eiginleg skýrsla framkvæmdastjóra bæði IH og Genís, og útboðslýsing Genís fyrir hlutafjárútboð sl. vor, sýndu að starfsemi fyrirtækjanna skaraðist ekki. Auk þess sem Genís hefði hafnað samkomulagi við ÍH sem tryggði aðgang þess að hveraör- verum ef starfsemi fyrirtækisins krefðist þess í framtíðinni. „ÍH hafði frumkvæði að því að bjóða Genís þátttöku í félaginu. I þeim viðræðum hefur eina innlegg Genís verið að hóta IH að ef þeir fengju ekki gefins stóran hlut í ÍH myndu þeir bregða fæti fyrir starf- semi okkar með því að koma í veg fyrir að við fengjum umrætt sérleyfi. Þeirri hótun hefur Genís nú fylgt eft- ir,“ sagði Jakob í gær. Jakob sagði mikla fjármuni vera í húfi, en í umsókn sinni um sérleyfi á nýtingu hveraörvera skuldbindur ÍH sig til þes að verja sem nemur 350 milljónum króna til rannsókna- og þróunarstarfsemi á afurðum hvera- örvera næstu fimm ár. Sagði hann jafnframt að sérleyfi væri lykilatriði að fjármögnun slíkra verkefna og án þess myndu fjárfestar ekki hætta sér út í fjárfestingu í fyrirtækinu vegna mikillar áhættu. Sindri Sindrason stjórnarformaður Genís Genís ekki horfíð af sviði hveraör- verurannsókna SINDRI Sindrason, stjómarformaður Genís hf., segir það al- rangt hjá Jakobi Kri- stjánssyni, fram- kvæmdastjóra Is- lenskra hveraörvera, að Genís hafi hætt allri starfsemi með hveraörverur, en Jak- ob sagði á blaða- mannafundi í gær að eina hveraörveruverk- efnið sem Genís stæði fyrir væri að „vera leppur fyrir banda- ríska fyrirtækið Di- versa við að safna hér sýnum úr hverum og senda óunnin úr landi. Markmið ÍH er einmitt að hindra slíka starfsemi.“ Fótunum kippt undan starfsemi Genís Segir Sindri að Jakob hafi sjálf- ur komið þessu verkefni við Di- versa á fót og því hafi lokið snemma á þessu ári. Það sé því ótrúlegt að verða vitni að því hvemig Jakob breyti um skoðun eftir hentugleikum og sér finnist það heldur ósmekklegt. Sindri segir jafnframt að ef IH yrði veitt sérleyfi til hveraörvera- rannsókna yrði fótunum kippt und- an starfsemi Genís á þessum vett- vangi. „Við myndum ekki lengur hafa leyfi til að starfa á þessum vettvangi og við gætum ekki unnið að þeim verkefnum sem við höfum verið að vinna að og ætlum að vinna að,“ segir Sindri. Hann tekur þó undir með Jakobi að starf- semi fyrirtækjanna skarist að mjög litlu leyti, en fyrirtækið þui-fi engu að síður að hafa aðgang að þessum markaði. Segir hann að þótt Genís hafí breytt um áherslur undanfar- in ár hafi fyrirtækið ekki horfið af sviði hveraörverurann- sókna. Fjárkúgun út í hött „Genís hefur ein- göngu farið fram á að starfa á þessu sviði áfram eins og við höfum gert hingað til. Við höf- um aldrei haft neitt út á það að setja að Islenskar hveraörverur fengu að starfa á þessu sviði, en við viljum auðvitað ekki að þeir komi og eigni sér þetta svið og útiloki okkur. Aftur á móti kom til tals sam- starf og þátttaka okkar í Islensk- um hveraöiveram. ÍH fór fram á að við legðum fram öll okkar gögn, eins og stofnasöfn og stöðu á mark- aði, og í staðinn myndum við fá hlut í fyrirtækinu sem þeir myndu síðar ákveða hve stór hann yrði. Við vildum ekki sæta því að ákveð- ið yrði eftir á hver hlutur okkar yi-ði og vildum við að það yrði ákveðið fyi-irfram, eða þá að við myndum starfa áfram sjálfstætt á þessu sviði. Þar við sat og þetta er sú fjárkúgun sem Jakob er að tala um,“ segir Sindri. Sindri Sindrason

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.