Morgunblaðið - 16.12.1998, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
MIÐVIKUDAGUR 16. DESEMBER 1998 23
„Svörtu kassarnir“ úr taflensku Airbus A310-200-þotunni sendir til rannsóknar
Flugmennirnir
sagðir hafa farið
að reglum
Jólakveðjur
lögreglu til
glæpamanna
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
INNBROT um jólin eru vandi í
Danmörku eins og víðar, en nú
hefur lögreglan í Glostrup, út-
borg Kaupmannahafnar, látið
krók koma á móti bragði. Eftir
að hafa tekið saman lista yfir
þrjátíu ötulustu þjófa staðarins,
fengu þeir sem á listanum lentu
bréf frá lögreglunni, þar sem
þeim var sagt að þeir væru á list-
anum. Um leið voru þeir vinsam-
legast beðnir um að halda að sér
höndunum um jólin. Sumir hafa
tekið kveðjunni vel, aðrir hafa
sent bréfið til lögfræðinga sinna.
Bréfið til glæpamannanna er
liður í herferð lögreglunnar til
að draga úr innbrotum og þjófn-
uðum um jólin. Verður listinn
notaður af lögreglumönnum,
sem hafa bæði hann og myndir
af þeim 30 ötulustu í bílum sín-
um.
Viðbrögðin hafa ekki látið á
sér standa, að sögn lögreglunn-
ar. Sumir náunganna á vinsælda-
listanum hafa lýst hrifningu
sinni, aðrir hafa verið reiðir og
nokkrir í efstu sætunum hafa
látið lögfræðinga sína hafa bréf-
ið til að athuga hvort lögreglan
sé með því að troða á lagalegum
rétti þeirra.
-----------------
Jospin gagn-
rýnir Chirac
og boðar
aðgerðir
París. Reuters.
LIONEL Jospin, forsætisráðherra
Frakklands, blés í gær til pólitískr-
ar stórsóknar með því að tilkynna
um aðgerðir ríkisstjórnarinnar til
að binda enda á mótmælaaðgerðir
atvinnulausra og saka Jacques
Chh-ac forseta um að reyna að
skerða verkfallsréttindi launþega.
Jospin vísaði ennfremur á bug
orðrómi um að Chirac hefði í
hyggju að flýta forsetakosningum
og boða til þeirra strax á næsta ári í
því skyni að nýta sér misklíð í röð-
um vinstrimanna og klofningsá-
stand meðal róttækra hægrimanna.
Jospin lýsti því yfír í útvarpsvið-
tali að tvenns konar félagslegir
styrkir til hinna örsnauðu yrðu
hækkaðir um 3%, afturvirkt til jan-
úar á þessu ári, í samræmi við hag-
vöxt ársins í ár, sem reiknað er með
að verði 3,0-3,1%.
Þessari tilkynningu var ætlað að
binda enda á síendurteknar mót-
mælaaðgerðir atvinnuleysingja, en
þeir hafa m.a. verið að krefjast
hækkunar félagslegra styrkja og
jólauppbótar á atvinnuleysisstyrk-
inn.
Minni mótmæli
en í fyrra
Jospin sagði að mótmælin væru
minni en í fyrra, þegar hreyfingin
óx og vatt upp á sig og færði honum
heim fyrsta kreppuástandið sem
hann þurfti að glíma við frá því
hann tók við embætti í maí 1997.
Jospin andmælti Chirac forseta
harðlega, en hann hefur látið svo
um mælt að réttast væri að starfs-
menn hins ríkisrekna járnbrautar-
fyrirtækis SNCF, sem færu í verk-
fall, yrðu skuldbundnir til að veita
lágmarksþjónustu til að borgararn-
ir kæmust hjá stórfelldum óþæg-
indum vegna verkfallsaðgerða
þeirra.
„Ég tel að ekki sé hægt að skil-
greina nákvæmlega lágmarksþjón-
ustu hjá almenningssamgöngufyr-
irtækjum," sagði Jospin. „Það er
ekki hægt. Og því er tillagan í raun
ætluð til að skerða verkfallsrétt-
indi. Það geri ég ekki,“ sagði hann.
Bangkok. Reuters.
TALSMADUR taflenska flugfélags-
ins Thai Airways sagði í gær, að far-
þegaþotan, sem fórst í Suður-Ta-
ílandi í síðustu viku, hefði verið í
góðu lagi og flugmennirnir farið að
settum reglum. 101 maður beið
bana í slysinu en 45 komust lífs af.
Thamnoon Wanglee, einn af
æðstu yfirmönnum Thai Airways,
sagði, að flugvélin, Airbus A310-
+200, hefði farið í allsherjai’skoðun
í júlí sl. og fyrstu athuganir bentu
til, að flugmennimir hefðu fylgt öll-
um öryggisreglum. Kvað hann það
stefnu félagsins að taka aldrei neina
áhættu þegar öryggismálin væru
annars vegar.
Flugmennirnir voru að reyna
lendingu í þriðja sinn á flugvellinum
í Surat Thani þegar vélin brotlenti á
akri skammt frá vellinum. Var veðr-
ið mjög slæmt, úrhellisrigning og
hvasst. Þeir, sem vinna að rannsókn
slyssins, sögðu í fyrradag, að bún-
aður á flugvellinum, sem hjálpar
flugmönnum við að lenda í slæmu
veðri, hefði verið fjarlægður fyrir
hálfu ári þegar unnið var við að
lengja flugbrautina. Síðan hefði ver-
ið notast við annað leiðbeiningar-
kerfi en það krefðist betra skyggnis
en var er vélin fórst.
Sa-ard Sattrasorn, varaforseti
Thai Ainvays, sagði, að leyfilegt
væri að reyna lendingu oftar en
tvisvar en þá því aðeins, að skilyrðin
hefðu batnað. Kvaðst hann ekki vita
hvaða mat flugstjórinn hefði lagt á
það en það kæmi vonandi í ljós við
rannsókn á „svörtu kössunum".
Hafa þeir fundist og verða sendir til
Kanada og Hollands til rannsóknar.
Segja öryggis-
ferilinn góðan
Talsmenn Thai Airways segja, að
flugöryggisferill félagsins sé góður.
Séu flugslysin aðeins tvö, það í síð-
ustu viku og í júlí 1982 er Airbus
A310-300 lenti á fjallshrygg í
Himalajafjöllum er reynt var að
lenda í Kathmandu í Nepal.
Thamnoon vísaði á bug fréttum í
taílenskum fjölmiðlum þess efnis,
að flugfélagið ætlaði ekki að greiða
ættingjum hinna látnu sjö milljónir
ísl. kr. eins og heitið var. Sagði
hann, að staðið yrði við það.
sem þú ætlar að gleðja fyrir jólin? Það
er ekki of seint, þvíTNT Hraðflutningar
bjarga málunum og bjóða sérstakt
tilboðsverð á sendingum til útlanda
í desember. fást hjá TNT Hraðflutning
Láttu TNT koma jólapökkunum til skila Suðurlandsbraut 26,108 Reykjavík
hratt og örugglega. Við komum og sækjum og á pósthúsum um land allt.
sendinguna til þfn og sendum hana heim Sími 580 1010.
WiSM
Þyngd Evrópa Bandaríkin og Kanada Önnur lönd
1 kg 2.700 kr. 2.900 kr. 3.100 kr.
2 - 3.300 - 3.600 - 3.900 -
3 - 3.800 - 4.200 - 4.600 -
4 - 4.200 - 4.900 - 5.300 -
5 - 4.500 - 5.300 - 5.900 -
Hraðflutningar
Sími 580 1010* www.tnt.com