Morgunblaðið - 16.12.1998, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
MIÐVIKUDAGUR 16. DESEMBER 1998 25
Rætt um
framsal
• •
Ocalans
HAFT var eftir Mesut Yilmaz,
forsætisráðherra Tyrklands, í
gær, að stjórnvöld í Tyrkiandi
og á Italíu væru að semja um
að senda kúrdíska skæruliða-
foringjann Abdullah Öcalan til
þríðja ríkis, hugsanlega Alban-
íu. Hafa NATO-ríkin tvö deilt
hart um þetta mál, en ítalska
stjórnarskráin bannar að menn
séu framseldir til ríkja sem
beita dauðarefsingu. Yilmaz
segir, að Tyrkir hafí stungið
upp á Pakistan, en ítalir hafnað
því, en lagt til, að N-Kórea yrði
fyrir valinu. Það vildu Tyrkir
ekki. Nú væri rætt um Albaníu
og hefðu Tyrkir ekkert á móti
því. Albönsk stjórnvöld gáfu til
kynna í gær að ekki hefði verið
leitað til þeirra um framsal á
Öcalan þangað, en ef slík beiðni
bærist yrði henni hafnað.
Lávarðadóm-
ari vanhæfur?
EINN lögfræðinga Augustos
Pinochets, fyiTverandi einræð-
isherra í Chile, reyndi í gær að
fá æðsta dómstól Bretlands til
að falla frá dómsúrskurði sín-
um í máli Pinochets, þar sem
einn dómaranna hefði ekki get-
að hreinsað sig af ásökun um
vanhæfi. Lávarðadeild brezka
þingsins úrskurðaði hinn 25.
nóvember með þremur atkvæð-
um gegn tveimur að Pinochet
nyti ekki friðhelgi frá saksókn.
Lögmaðurinn, Clare Montgom-
ery, bar upp mótmæli vegna
þess að einn þeirra þriggja sem
úrskurðuðu gegn Pinoehet,
Hoffmann lávarður, er yfirmað-
ur mannúðarsamtaka á vegum
Amnesty International. Hún
sagði í gær að lávarðurinn hefði
átt að gera kunnug tengsl sín
við mannréttindasamtökin áður
en hann tók sæti í dómstólnum
sem fjallaði um Pinochet-málið.
Fyrst hann gerði það ekki yrði
hann að teljast vanhæfur og úr-
skurðurinn ógildur.
Jeltsín lofar
áframhaldandi
umbótum
BORÍS Jeltsín, forseti Rúss-
lands, sagði í gær að umbótum
yrði haldið til streitu í Rúss-
landi og stjórn þess myndi
halda áfram uppi virkri utan-
ríkisstefnu þrátt fyrir hina al-
varlegu fjármálakreppu sem
landið á við að etja. Skrifaði
Jevgení Prímakov forsætisráð-
herra undir fyrirskipun í gær
um breytingu á fyrirkomulagi
greiðslu skulda Rússlands.
fierm
GARÐURINN
-klæðirþigvel
Myrtum írönskum skáldum og rithöfundum fylgt til grafar í Teheran
Fregnum um
handtökur tekið
með fyrirvara
Teheran. Reuters.
UM TVÖ þúsund íranskir rithöf-
undar og stuðningsmenn þeirra
söfnuðust saman í Teheran í gær til
að fylgja til grafar Mohammad
Mokhtari, einu þeirra skálda og rit-
höfunda sem hafa verið myrt á dul-
arfullan hátt í íran að undanförnu.
Fregnir bárust af því í gær, að
nokkrir menn hefðu verið hand-
teknir í tengslum við rannsókn
morðanna.
Mahmoud Dolatabadi skoraði á
þátttakendur í útförinni, sem gerð
var frá Al-Nabi-moskunni í Teheran
að viðstöddum mörgum rithöfund-
um sem höfðu verið í felum síðustu
daga, að halda ró sinni og gera ekki
pólitíska mótmælagöngu úr lík-
fylgdinni. Hætta væri á að slíkt yrði
„mistúlkað" í því þrúgandi and-
rúmslofti spennu sem nú ríkti.
En margir virtust fullir efasemda
um að handtökur þær sem tilkynnt
var um síðla mánudags byndu enda
á morðölduna, sem hefur kostað að
minnsta kosti þrjá frjálslynda rit-
höfunda og tvo virka andófsmenn
klerkastjórnarinnar lífið.
„Þeir hafa byrjað á því að ráðast
gegn [veraldarhyggjusinnuðum]
andófsmönnum sem ógna kerfinu
alls ekki og bjóða ekki upp á raun-
hæfan valkost í pólitísku tilliti,"
sagði rithöfundur sem ekki vildi láta
nafns síns getið. „En þeir munu
snúa sér næst að íslömskum
menntamönnum sem hafa alvarlega
gagnrýnt lögmæti kerfisins,“ sagði
hann.
Næstu fórnarlömb?
Hófsöm írönsk dagblöð endur-
spegluðu hinn almenna ótta í þjóð-
félaginu með því að velta vöngum
opinberlega yfir næstu líklegu fórn-
arlömbum morðöldunnar, en efst á
þeim lista tróna þekktustu gagn-
í-ýnendur stjórnmálaástandsins í
landinu úr röðum íslamskra
menntamanna og blaðamenn sem
hafa gagnrýnt valdakerfi klerka-
stjórnarinnar. Harðlínublöð vöruðu
við samsæri zíonista og CIA,
bandarísku leyniþjónustunnar; slík
erlend öfl stæðu að baki morðunum
í því skyni að koma höggi á Irans-
stjórn.
Ilantar þig nýtt atuinnuteki?
Fjárfeslu fyrír áramót!
Ford sendibílarnir, þessir af minni gerðinni, sameina
gott flutningsrými og mikla burðargetu og eru einkar
hagkvæmir í rekstri.
Margir kostir í útfærslu og fjármögnun, þar á meðal
rekstrarleiga. Komdu og reynsluaktu og nýttu þér
þjónustu sölumanna okkar við að finna rétta bílinn.
Eigum nokkra til afgreiðslu strax!
Ford Fiesta Courier
Verð 998.000 kr. án vsk.
Brimborg-Þórshamar
Tryggvabraut 5, Akureyri
sími 462 2700
Bíley Betri bílasalan Bilasala Keflavíkur
Búðareyri 33, Reyðarfirði Hrísmýri 2a, Selfossi Hafnargötu 90, Keflavik
sími 474 1453 sími 482 3100 sími 421 4444
Tvisturinn
Faxastíg 36, Vestmannaeyjum
BRIMBORG
FAXAFENI 8 • SÍMI 515 7010