Morgunblaðið - 19.12.1998, Page 8
8 LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
rEru mennirnir læsir?
Á annað hundrað pr6-
fessorar vlö Háskðla ís-
7T/“ lands hafa sent frá sér yf-
r'~' irlýslngu 1 KJöifariö “
dómi Hæstaréttar
/\/£>
DÓRI litli þyrfti líka að komast í athvarfíð til þín hr. forsætisráðherra. Hann bæði heyrir
illa og stamar á stautinu.
sýnishorn
AEG 1—1
Vöfflujárn we 100
. Hárbláíllri Figaro 1600
aec Expresso og kaffikvél KFEA100 , Expressokaffivél EA100
iðukanna i,sl
AEG 'W '
Kaffikanna KF1000
Brauðrist AT 250
Brauðrlst AT340
Hraðsuðukanna 1L
SWA10101L
ORMSSONHF
Lágmúla 8 • Sími 533 2800
E< Gufustraujárn DB 4040
\i:<> Matvinnsluvél KM 21
Vesturtand: Málningarpjónustan Akranesi, Kf. Borgfirðinga, Borgarnesi. Blómsturvellir, Hellissandi. Guðni Hallgrimsson, Grundarfirði. Ásubúö, Búöardal.
Vestfirðin Geirseyrarbúðin, Patreksfiröi. Rafverk, Bolungarvik. Straumur, Isafirði. Norðurland: Kf. Steingrimsfjarðac Hólmavlk. Kf. V-Hún„ Vvammstanga. Kf.
Húnvetninga, Blðnduósi. Skagfiróingabúð, Sauðárkróki. KEA Lónsbakka, Akureyri KEA, Dalvik. KEA, Siglufirði. KEA, Olafsfirði. Kf. Þingeyinga, Húsavlk. Urð,
Raufarhöfn, Lónið Þórshöfn. Austuriand: Sveinn Guðmundsson, Egilsstöðum. Kf. Vopnafirðinga, Vopnafirði. Kf. Stöðfirðinga. Verslunin Bakki, Kópaskeri.
Verslunin Vik, Neskaupstað. Kf. Fáskrúðsfirðinga, Fáskrúðsfirði. KASK, Höfn, KASK Djúpavogi. Suðuriand: Mosfell, Hellu. Arvirkinn, Selfossi. Rás, Þoriákshöfn.
Brimnes, Ves’tmannaeyjum. Reykjanea: Stapafell, Keflavík. Rafborg, Grindavík.
Fjórðungsfundir Almannavarna ríkisins
Forvarnastarf-
ið mikilvægt
Sólveig Þorvaldsdóttir
NDANFARNA
haustmánuði hafa
Almannavarnir
ríksins staðið fyrir fjórð-
ungsfundum m.a. til þess
að kynna nýtt innra
skipulag stofnunarinnar.
Almannavamir ríksins
hafa starfað síðan árið
1962. Fyrst var starf
þeirra eingöngu í sam-
bandi við hernaðarvá, en
árið 1985 var lögunum
breytt þannig að nú taka
Almannavarnir ríkisins
einnig til náttúruhamfara
og á annarri vá. Sam-
kvæmt lögum er hlutverk
Almannavarna ríkisins að
skipuleggja og fram-
kvæma ráðstafanir sem
miða að því að koma í veg
fyrir, eftir því sem unnt
er, að almenningur verði fyrir
líkams- eða eignatjóni af völdum
hernaðaraðgerða, náttúruham-
fara eða af annarri vá og veita
líkn og aðstoð vegna tjóns sem
orðið hefur. Sólveig Porvalds-
dóttir er framkvæmdastjóri
stofnunarinnar, hvernig er hið
nýja innra skipulag Almanna-
varna ríkisins nú?
Stofnuninni hefur verið skipt
upp í sex svið og lýsa þau áhersl-
um í verkefnum stofnunarinnar í
ákveðinni tímaröð. Hvert svið
reynir að svara einni megin
spurningu. Fyrsta spurningin
er: Hver er áhættan? Þá er það
svið nefnt Ahættugreining.
Næsta spurning er: Hvernig má
draga úr áhættunni? Það svið
heitir Forvarnir. Þriðja sviðið
glímir við spuminguna: Hveijir
skulu bregðast við hættunni og
hvernig? Það svið kallast Sam-
hæfmg. Fjórða spurningin er:
Hvernig er og var brugðist við
hættunni? Það svið heitir Að-
gerðir. Fimmta spurningin er:
Hvaða þekkingu má læra og
miðla milli þjóða? Það svið heitir
Alþjóðatengsl. Sjötta og síðasta
spumingin er: Hvemig á að
halda utan um og reka stofnun-
ina? Það svið heitir Rekstur.
- Einfaldar þetta starfsemi
stofnunarinnar?
Verkefnin sem Almannavarnir
ríkisins hafa með höndum em
afar fjölbreytt og snerta marga
þætti þjóðfélagsins og því er
nauðsynlegt fyrir okkur að hafa
tiltölulega einfalt keríl til þess
að geta flokkað verkefnin. Og
það má segja að það séu fyrstu
fjögur sviðin sem séu almanna-
varnaverkefni.
- Hefur starfsemi Almanna-
varna ríkisins fengið aukna þýð-
ingu meðárunum?
Eg held að kröfur almennings
til þessa málaflokks hafí aukist í
takt við það að þjóðfélagið er sí-
fellt að verða sérhæfð-
ara og gerir auknar
kröfur til þess að fag-
lega sé unnið að skil-
greiningum, vörnum
og aðgerðum við ým-
iskonar hættum.
- Hefur forvarnastarf aukist í
tengslum við hið nýja skipulag?
Já. Með nýju skipulagi leggj-
um við aukna áherslu á fræðslu
til almennings og höfum meðal
annars ráðið starfsmann í það
starf sérstaklega. Það eru ýmsar
nýjar hugmyndir í burðarliðnum
í þessum efnum. Nauðsynlegt er
að gera greinarmun á mismun-
andi hópum í þjóðfélaginu, t.d.
börnum og gömlu fólki, fötluð-
um, útlendingum og svo fram-
vegis. Þessir hópar þurfa allir að
fá fræðslu sem hentar þeim og
► Sólveig Þorvaldsdóttir
fæddist 1. júní 1961 á Húsavík.
Hún lauk stúdentsprófí frá
Menntaskólanum i Kópavogi
1981 og prófi í byggingaverk-
fræði frá Háskóla Islands árið
1987. Að loknu námi starfaði
Sólveig sem verkfræðingur
hjá Istaki í tvö ár en fór þá í
framhaldsnám í jarðskjálfta-
verkfræði sem hún lauk árið
1991. Þá tók við timabil eigin
rannsókna og skrifta, hún
skrifaði m.a. Handbók um
rústahjörgun sem út kom hjá
Landsbjörg, á þessu timabil
lagði hún og sérstaka áherslu
á að æfa fallhlífarstökk. Árið
1994 hóf Sólveig störf hjá
verkfræðifyrirtækinu EQE í
Kaliforníu en hefur verið
framkvæmdasljóri Almanna
varna ríkisins frá árinu 1996.
Sólveig er ógift og barnlaus.
við þurfum að bregðast við því.
Þetta er ákaflega vandasamt
svið vegna þess að það getur
verið mjótt á munum milli þess
að fræða fólk og hræða. Á þess-
um fundum höfum við kynnt
hina nýja sviðskiptingu stofnun-
arinnar og þar á meðal á for-
varnasviðinu, sem snertir al-
menning mjög mikið.
- Hverjar eru helstu breyt-
ingar hvað forvarnastarf snert-
ir?
Mjög margar nýjar hugmynd-
ir eru í burðarliðnum, svo sem
fyrr gat, en það er of snemmt að
kynna þær nú. Eina nýjung get
ég þó nefnt og það er að við höf-
um komið upp heimasíðu Al-
mannavarna ríkisins
(www.avrik.IS). Þar er gert ráð
fyrir að hafa tvenns konar upp-
lýsingar, annars vegar staðlaðar
upplýsingar um stofnunina og
uppbyggingu almannavarna í
landinu og hins vegar lifandi
upplýsingar til almennings um
ýmis fræðslumál.
- Hvað með aðrar
nýjungar hjá Al-
mannavörnum ríks-
ins?
Við vorum til dæm-
is að afhenda fyrir
skömmu lokaskýrslu vegna æf-
ingarinnar Samvörður ‘97, sem
er um 150 blaðsíður og er það í
fyrsta skipti sem svo ítarleg
skýrsla hefur verið skrifuð um
æfíngu. Af þessari æfíngu má
fjölmargt læra og þótt skýrslan
sjálf sé fyrst að koma úr prentun
nú þá erum við farin að vinna að
verkefnum sem beinast að því að
nýta okkur þann lærdóm sem
við drógum af æfingunni. Þessi
verkefni hafa verið kynnt á
fjórðungsfundunum fimm sem
við höfðum í haust.
„Forvarnasvið
snertir al-
menning mjög
mikið.“