Morgunblaðið - 19.12.1998, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1998 13
FRETTIR
Hæstiráttur fslands dæmir flutning Landmælinga til Akraness ólögmætan
Umhverfísráðherra skorti
lagaheimild til ákvörðunar
HÆSTIRÉTTUR dæmdi í gær að
ákvörðun Guðmundar Bjarnasonar
umhverfisráðheira frá 3. júlí árið
1996 um að flytja starfsemi Land-
mælinga íslands til Akraness um
næstu áramót væri ólögmæt. María
G. Hafsteinsdóttir, starfsmaður
Landmælinga, sem sætti sig ekki
flutninginn, höfðaði málið en það
hefur verið rekið af Bandalagi há-
skólamanna. Ragnar H. Hall, hæsta-
réttarlögmaður, flutti málið.
I dómsforsendum Hæstaréttar
segir að ekki verði um það deilt að
ráðherra hafi verið heimilt án at-
beina Alþingis að láta kanna og und-
irbúa ákvörðun um flutning Land-
mælinga og verja til þess fjármunum
af ráðstöfunarfé umhverfísráðuneyt-
isins. Hins vegar fellst Hæstiréttur á
það sjónarmið áfrýjanda (Maríu) að
það hafí ekki samrýmst góðum
stjórnarháttum að gera ekki ráð fyr-
ir fjárveitingum til flutningsins fjár-
hagsárið 1998, þegar löngu hafí verið
ráðið að hann skyldi miðast við ára-
mótin 1998/1999 og ljóst að til tals-
verðra útgjalda kæmi á því ári vegna
flutningsins, sbr. 42. grein stjórnar-
skrárinnai'. Hæstiréttur taldi að
þetta atriði yrði þó ekki látið ráða
úrslitum málsins.
Ráðuneytið hafi aðsetur í
Reykjavík
„Ekki nýtur almennra lagafyiir-
mæla um heimildir ft-amkvæmda-
valdsins til að gera breytingar á
staðsetningu ríkisstofnana,“ segir í
forsendum dóms Hæstaréttar. „Að-
ur er um það getið að engin lagafyr-
h'mæli séu um aðsetur Landmælinga
Islands frekar en fjölda annarra rík-
isfyrirtækja. Stefndi hefur þó ekki
getað nefnt ríkisfyrirtæki, sem aðal-
stöðvar hafði frá upphafi utan
Reykjavíkur, þai- sem þeirrar stað-
setningar var ekki getið í lögum. í 2.
mgr. 13. gr. stjórnarskrárinnar segir
að ráðuneytið hafi aðsetur í Reykja-
vík. Misjafnt hefur verið hvort mál-
efnum, sem undir ráðuneytið heyra,
hefur verið skipað í ráðuneytið sjálft
eða til undirstofnana þess. Fer það
nokkuð eftir eðli málefnanna. Ríkis-
stjórnir hafa um nokkra hríð sett sér
það markmið að koma stjórnsýslu-
stofnunum fyrir utan Reykjavíkui-
en framkvæmdir við flutning þeirra
eru þó nýlega til komnar. Þótt ekki
séu bein fyrirmæli um það í lögum
að ríkisstofnun skuli staðsett í
Reykjavík verður ekki talið að það
eitt gefi ráðhen-a frjálst val um hvar
hún skuli vera. Vöntun á ákvæðum
um þetta í lögum má helst skýra með
því að fyrirmæli eru í stjórnarskrá
um staðsetningu ráðuneyta. Hafi það
verið talið svo sjálfsagt fram í hin
síðari ár að stofnanir, sem undir þau
heyrðu, hefðu einnig aðsetur í höfuð-
borginni, að ekki þyrfti að taka það
fram í lögum.
Ákvörðun um heimili stofnunar og
varnai'þing er meðal grundvallarat-
riða í skipulagi hennar. Ljóst er að
miklu skiptir fyrir starfrækslu stofn-
unar hvar henni er komið fyrir strax
í upphafi og ekki skipta minna máli
breytingar á aðsetri hennar. Koma í
báðum tilvikum við sögu kostnaður
við reksturínn, tekjumöguleikar,
starfsmannamálefni og hagsmunir
þeirra sem sækja þurfa þjónustu til
stofnunar eða Mn á viðskipti við auk
fleiri atriða. Á síðari árum hafa þó
ýmis þessara atriða breyst vegna
bættra samgangna og samskipta-
tækni. Við flutning stofnunar koma
jafnframt til sögunnar kostnaður við
flutninginn sjálfan og röskun sú sem
óhjákvæmilega verður á starfrækslu
stofnunarinnar við hann, sérstaklega
á málefnum starfsmanna hennar,"
segir í dómsforsendum.
Ráðherra verði að leita sér
skýrrar heiniildar
,Að fi'amangreindum sjónarmiðum
virtum verður að telja ákvörðun um
aðsetur ríkisstofnunar þess eðlis að
um hana skuli mælt í lögum. Af því
þykii' leiða að ráðherra verði að leita
sér skýrrar heimildar í almennum
lögum fyrir flutningi stofnunai' frá
Reykjavík. Meðan umhverfisráðhen-a
heftir ekki aflað sér lagaheimildar um
flutning Landmælinga Islands frá
Reykjavík til Akraness verður að fall-
ast á það með áfrýjanda að hann sé
ólögmætur. Ber að taka kröfu áfrýj-
anda til greina af þessari ástæðu,"
segir í niðurstöðum Hæstaréttar.
Er ríkið dæmt til að greiða áfrýj-
anda 500 þúsund kr. málskostnað í
héraði og fyrir Hæstarétti. Málið
dæmdu hæstaréttardómararnir Pét-
ur Kr. Hafstein, Guðrún Erlends-
dóttir, Haraldur Henrysson, Hjörtur
Torfason og Hrafn Bragason.
Félög í BSRB vegna
samnings um SHR
Staðið
verði við
kjara-
samninga
BSRB og nokkur stéttarfélög innan
vébanda þess vilja árétta að staðið
verði í hvívetna við þá kjarasamn-
inga sem í gildi eru og að réttindi
starfsfólks og atvinnuöryggi verði
tryggð, segir í frétt frá þeim í fram-
haldi af samningum um yfirtöku
ríkisins á rekstri Sjúkrahúss
Reykjavíkur.
I fréttinni er vitnað til ummæla
fjármálaráðherra og borgarstjóra
þess efnis að staðið verði við kjara-
samninga og „munu stéttarfélögin
og BSRB fylgjast grannt með því
að við þær yfirlýsingar verði staðið
og krefjast þess að fullt samráð
verði haft við þau um allar breyting-
ar sem koma til með að varða hags-
muni félagsmanna sinna,“ segir í
fréttinni.
Að þessari áréttingu standa St-
arfsmannafélag Reykjavíkurborgar,
Starfsmannafélag ríkisstofnana,
Sjúkraliðafélag Islands, Félag is-
lenskra leikskólakennara, Þroska-
þjálfafélag íslands og BSRB.
Ragnar H. Hall hæstaréttarlögmaður
Hvað um flutning
annarra stofnana?
Scan-foto
JÖRÐIN hreinlega hljóp undan teinunum þegar lestarslysið varð í Noregi á fimmtudag.
Fer heldur fótgangandi
til Danmerkur en í lest
Dómurinn setur
flutning Landmæl-
inga í uppnám
RAGNAR H. Hall
hæstaréttarlög-
maður, sem flutti
mál starfsmanns
Landmælinga fyr-
ir Hæstarétti, seg-
ir að nú liggi fyrir
dómur Hæstarétt-
ar um að ákvörð-
unin um fiutning Landmælinga til
Akraness sé ólögmæt og þar af
leiðandi eigi umhverfisráðherra
næsta leik í stöðunni.
„Þeir hafa verið nokkuð hug-
myndaríkir upp á síðkastið um
viðbrögð við niðurstöðum úr
dómsmálum, svo ég veit ekki við
hverju má búast, en það verður
bara að koma í ljós. Þetta hlýtur
að setja þennan flutning í upp-
nám, vegna þess að ráðherrann
hefur í kynningu sinni á málinu
frá upphafí kynnt ákvörðunina
sem pólitíska ákvörðun sína um
að flytja þessa stofnun og að hann
hafi ekki þurft að spyrja nokkurn
mann um leyfi til þess. Þá hljóta
menn að staldra við og velta því
fyrir sér hverjir það eru sem eiga
að taka ákvörðunina. Samkvæmt
dóminum er það án vafa Alþingi
sem á að ákveða þetta. Ef á að
halda sig við það að flytja stofn-
unina hlýtur að verða að leggja
málið fyrir Alþingi," segir Ragn-
ar.
Ýmsar ríkisstofnanir
á færibandinu
Aðspurður hvaða þýðingu þessi
dómur gæti haft varðandi flutning
annarra ríkisstofnana út á land
sagði Ragnar að ýmsar ríkisstofn-
anir væru á færibandinu um þess-
ar mundir. „Það hlýtur að koma til
skoðunar hjá viðkomandi aðilum
hvort þeir þurfi ekki að endur-
skoða þær ákvarðanir í ljósi þessa
dóms. Hann snýst um nákvæm-
lega sama hlutinn.
Þetta er mjög merkilegur dóm-
ur. Það má nefna í þessu samhengi
að ákveðið var á sínum tíma að
flytja embætti Veiðistjóra til
Akureyrar. Starfsmenn neituðu að
flytja með og var gert við þá sam-
komulag um að þeir hættu og nýir
starfsmenn tóku til starfa. I fyrri
tilvikum um svona flutning ríkis-
stofnana hefúr í rauninni enginn
starfsmaður flutt með þeim,“ sagði
Ragnar. Hann vísaði til þess að
meðal stofnana sem fluttar hafa
verið út á land eða til stendur að
flytja frá Reykjavík væru þróunar-
svið Byggðastofnunar, Lánastofn-
un landbúnaðarins og deild úr
íbúðalánasjóði. „Málefni allra
þessara stofnana, sem ekki eru
þegar fluttar, hljóta að koma til
skoðunar í þessu sambandi," sagði
Ragnar.
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
„DAGURINN hefur verið bölvan-
legur,“ segir Sveinn Guðmunds-
son, sem í fyrradag lenti í lestar-
slysi í Noregi ásamt þremur börn-
um sínum. Enn hefur ekki verið
ákveðið hvenær hann heldur ferð-
inni áfram en tveggja ára sonur
hans er harðákveðinn í að labba
til Danmerkur, þangað sem ferð-
inni er heitið, því upp í lest fari
hann ekki aftur.
Þegar innt er eftir Iíðan feðgin-
anna segir Sveinn að líkamlega
séu þau blá og marin, en sem bet-
ur fer án alvarlegra áverka. And-
lega sveiflist þau fram og til baka
eftir óhugnanlega lífsreynslu. „Á
forsíðu Verdens Gnng er mynd af
járnbrautarvagni, sem hangir í
lausu lofti, þar sem jörðin skreið
undan honum. Þar sem dýpst er
er fallið 7-8 metrar," segir
Sveinn. „Þarna söfnuðumst við öll
saman eftir slysið, þar til einhver
kom til okkar og sagði okkur að
færa okkur út, því vagninn væri
hálfótryggur. Við fórum þá út í
ausandi rigninguna og kolniða-
myrkur. Það er óneitanlega
svakalegt að sjá þessa mynd.“
Jörðin hljóp undan teinunum
Orsök lestarslyssins eru gríðar-
legar rigningar og þíða undanfar-
ið, sem hefur orðið til þess að
jarðvegurinn fór af stað er lestin
fór þarna um, svo jörðin hrein-
lega hljóp undan teinunum. Við
það slitnuðu tveir vagnar frá eim-
reiðinni, endasentust út í móa og
ientu á þakinu.
Sveinn segir að starfsmenn
norsku járnbrautanna, NSB, hafi
tekið á aðstæðum af mikilli festu
og öryggi. Rútur voru sendar á
bóndabæ rétt við slysstað, þar
sem hinir 150 farþegar höfðu
safnast saman. Keyrt var með
fólkið á hótel í nágrenninu og því
komið fyrir þar. Farþegunum var
sagt að nota óspart símana á her-
bergjunum til að hafa samband
við_ ættingja og vini.
I gær var svo farið með farþeg-
ana í læknisskoðun og þegar
Morgunblaðið hafði tal af Sveini
var læknisskoðunin yfirstaðin og
hópurinn nýkominn úr verslunar-
ferð, þar sem keypt voru föt á
börnin í boði NSB. Einnig sagði
Sveinn að menn væru spurðir
hvort þeim væri fjár vant til að
halda áfram ferðinni.
Síðdegis í gær var enn óljóst
hvenær Sveinn kæmist af stað aft-
ur, því enn hafði ekki verið hægt að
nálgast farangur þeirra í lestinni.
Því gista þau á hótelinu áfram.
Lestarferðin frá heimili þeirra nið-
ur til Helsingjaeyrar í Danmörku,
þangað sem ferðinni var heitið, tek-
ur 28 klukkutúna. Slysið varð eftir
tæplega fimm klukkustunda ferð.
Sveinn sagði það ekki leggjast vel í
sig að fara í um sólarhringsferð
með börnin í lest og því hefði hann
farið fram á að þau fengju öll að
fljúga á áfangastað, sem vonandi
gæti orðið á morgun, en annars á
sunnudaginn. Tveggja ára sonur
hans styður hann eindregið í þeim
áformum, því hann segist heldur
vilja labba til Daimierkur en fara
þangað í lest.
A-flokkarnir og Kvennalistinn
Þreifíngar yfír helgina
FULLTRÚAR Kvennalistans í
viðræðunefnd Alþýðuflokks, AJ-
þýðubandalags og Kvennalista um
sameiginlegt framboð í Reykjavík
gengu á fund formanna A-flokk-
anna í gær. Á fundinum gerðu
kvennalistakonur grein fyrir stöð-
unni og ástæðum þess að þær
gengu af fundi í kjörnefndinni sl.
miðvikudagskvöld þegar viðræð-
urnar runnu út í sandinn. Sam-
kvæmt upplýsingum Morgun-
blaðsins hefur ekki verið tekin
ákvörðun um að hefja formlegar
viðræður á nýjan leik en gert er
ráð fyrir þreifingum milli A-flokk-
anna og Kvennalistans yfir helgina
til að kanna hvort einhverjir
möguleikar séu á að ná samkomu-
lagi.