Morgunblaðið - 19.12.1998, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1998 43
m
„Á BÖRNUNUM valt það hvað Grýla átti gott...“ Teikning Tryggva
Magnússonar frá 1932 við Grýlukvæði Jóhannesar úr Kötlum.
hlusta eftir börnum sem hrína, ærsl-
ast og angra móður sína. Og hún
býðst til að losa móðurina við þau,
„en ef þau iðni stunda/ og eru þekk
og hlýðin/ fælist fula Grýla/ fær hún
aldrei góð börn“.
Grýla átti þrjá eiginmenn, að því er
sagt var. Sá fyrsti, Boli, andaðist fjör-
gamall úr elli og hafði þá lengi legið í
kör. Af öðrum manni hennar, Gusti,
fara litlar sögur nema hvað Grýla á að
hafa étið hann, þegar hann drapst. Og
síðast skal frægan telja Leppalúða,
sem vai- í hjónabandi með Grýlu í
fimm þúsund ár og eignaðist með
henni tuttugu böm, en alls eru nafn-
greind milli 70 og 80 böm Grýlu í
ýmsum þulum, sem oftast hefjast á
orðunum: Grýla kallar á börnin sín/
þegar hún fer að sjóða/ til jóla...
Öll er þessi illskuþjóðin
ungbömum skæð
HEIMASMIÐAÐ jólatré á borði og börnin sitja hjá.
Myndin er tekin í Þingeyjarsýslu um 1910.
höfnum okkar nútíma íslendinga á
aðfangadag og svo fara menn í hrein
nærföt og klæðast sparifótunum í tO-
efni hátíðarinnar. Flestfr gera hýbýli
sín hrein fyrir jólin, ryksuga, bóna
og þurrka af og sumir ganga svo
langt að mála allt hátt og lágt. Þrifn-
aðaráráttan fyrir jólin er vissulega af
hinu góða og engin ástæða til að
bregða út af þeim góða sið.
Laufabrauð
og jólamatur
Kökubakstur og gerð laufabrauða
er fastur liður í undfrbúningi jól-
anna. Laufabrauð virðist vera sérís-
lenkt fyrirbrigði og mun upphaflega
hafa komið til vegna skorts á mjöli.
Er það líklegast orsökin fyrir því
hversu næfurþunn brauðin eru, en
þau vom svo skorin út til að gera
þau gimilegri og hátíðlegri. Elsta
heimild um laufabrauð er talin vera
frá 1772, er Bjarni Pálsson land-
læknir hélt Sir Joseph Banks veislu
á heimili sínu að Nesi við Seltjörn.
Ekki sést aftur getið um laufabrauð
fyrr en um miðja 19. öld og virðist
það þá einkum bundið við Norðaust-
urland. Eftir miðja þessa öld hefur
sá siður færst í vöxt, sem liður í jóla-
undirbúningnum, að skera út laufa-
brauð, og þá fremur til gamans en
hitt, að brauðin þyki svo mikið lost-
æti. Gerð þeirra og útskurður hafa
haldist lítið breytt, þótt ekki stafi
það af komskorti.
Nokkuð hefur dregið úr köku-
bakstri hér á landi fyrir jól, en upp
úr 1920, þegar eldavélar með bökun-
arofni mddu sér til rúms, flæddi
mikið kökubakstursæði yfir landið. A
tímabili var það metnaðarmál hús-
mæðra að baka sem flestar tegundir
fyrir jól og sátu mörg heimili uppi
með birgðir af jólabakstri langt fram
á sumar. Sætabrauð og kökur hafa
nú þokað fyrir fjölbreyttu úrvali af
sælgæti, auk þess sem meiri áhersla
er lögð á staðgóðan veislumat.
I greinarkorni þessu eru ekki tök
á að fara náið ofan í saumana á þeim
jólamat, sem þjóðin hefur lagt sér til
munns í gegnum aldirnar og nú til
dags gætir sífellt meiri fjölbreytni á
því sviði. Þó skal hér nefnt hangiket,
sem var lengst af aðalhátíðarmatur-
inn, og oftast borðað á jóladag, og
mun svo enn vera víðast hvar. Rjúp-
ur eru víða borðaðar á aðfangadags-
kvöld og þykja mikið lostæti, en
voru áður einkum á borðum fátæk-
linga, sem ekki höfðu efni á að slátra
grip til jólanna.
Nú til dags fer
það eftir árferði
og viðkomu
rjúpnastofnsins
hversu dýr
jólasteikin er
hverju sinni.
Hnausþykkur
grjónagrautur
með rúsínum þótti
herramannsmatur
hér áður fyrr og
er enn ómissandi
á flestum borðum
á aðfangadag.
Mun það þó frem-
ur vera vegna
hins útlenda siðar,
að hafa eina
möndlu í grautn-
um og verðlauna
þann sem hana
hlýtur, en að
grauturinn þyki
svo sérstaklega
bragðgóður.
Grýla kallar
á börnin sín
Því fer fjarri að hugsanir lands-
manna á jólum hafi eingöngu verið
bundnar helgisögninni um fæðingu
frelsarans. Þvert á móti hefur jóla-
fóstutíðin, þegar skammdegið er
svartast, ýtt undir hjátrú og hindur-
vitni, enda sá árstími sem illþýði og
óvættir fara helst á stjá. Grýla er án
efa frægasta flagðið af þessu tagi,
enda merkir nafnið „ógn, hótun, eða
hryllingur". Grýla kemur fyrst fram
á 13. öld og er nefnd meðal tröll-
kvenna í Snorra-Eddu og í Sturl-
ungu er slitur af þulu sem greinir frá
því að Grýla „hafi á sér hala fimmt-
án“.
Margar lýsingar eru til á Grýlu og
allar ófagrar. Hún er ýmist sögð með
„þrjú höfuð eða þrjú hundruð og
þrenn augu á hverju höfði. Hún hef-
ur kartnögl á hverjum fingri og horn
eins og geit. Eyrun lafa ofan á axlir
og eru áföst við nefið að framan.
Hún er skeggjuð og tennur hennar
eru eins og ofnbrunnið grjót,“ svo
tekin séu örfá dæmi af lýsingum á
óvætt þessari. Grýla virðist hafa
gegnt mikilvægu hlutverki í barna-
uppeldi og notuð sem „grýla“ til að
aga þau og siða til. Eftirlætismatur
hennar er kjöt af óþægum börnum
og í ýmsum kvæðum kemur fram, að
hún sé einkum á ferli fyrir jólin að
í Grýlukvæði
séra Stefáns
Ólafssonar í
Vallanesi, frá 17.
öld, er jólasveina
fyrst getið í rit-
uðu máli og þar
eru þeir taldir
synir Grýlu og
Leppalúða: „Af
þeim eru jóla-
sveinar/ jötnar á
hæð./ Öll er þessi
illskuþjóðin/ ung-
börnum skæð.“
Reyndar ber
ekki
saman um ætt-
emi jólasvein-
anna og í Þjóð-
Jóns
er
þess getið, að það
sé sumra manna
mál, að Grýla hafi
átt þá áður en
hún giftist
Leppalúða og þá
væntanlega með
Bola eða Gusti,
nema hún hafi átt
þá utan hjóna-
bands með Loðin-
barða nokkrum,
sem einhverjar
heimildir greina
frá. I öðrum var
því haldið fram að
jólasveinarnir
ættu ekkert skylt
við Grýlu og
hennar hyski.
Hvemig svo sem
þessum ættar-
tengslum var
háttað má ráða af
frásögnum þess-
um að Grýla hafi
ekki verið við
eina fjölina felld í
ástamálum.
íslensku jóla-
sveinamir voru
sem sagt upphaf-
lega af allt öðrum toga en heilagur
Nikulás, sem er fyrirmynd hins al-
þjóðlega jólasveins, er færir börn-
um gjafir á jólunum. Þarna var
hvorki góðmennskunni né gjafmild-
inni fyrir að fara, eins og hjá jóla-
sveinum okkar nútímamanna, held-
ur þvert á móti. íslensku jólasvein-
arnir voru hið mesta illþýði, þjófótt-
ir, hrekkjóttir og jafnvel lífshættu-
legir ef því var að skipta. Upp úr
síðustu aldamótum fara þeir þó
smám saman að taka meiri svip af
hinum alþjóðlega jólasveini hvað
varðai- útlit, klæðaburð og innræti.
Þeir verða vinir barnanna, færa
þeim gjafir, syngja fyrir þau og
segja þeim sögur, en eru þó eftir
sem áður smáskrítnir, eða „létt-
geggjaðir“ eins og sagt er á nútíma-
máli. Og þótt ímynd íslensku jóla-
sveinanna nálgist stöðugt gamla
góða karlinn í rauða búningnum
munu þeir þó ávallt halda sérstöðu
sinni. Þeir eru og verða þrettán,
hver með sitt sérkenni, eins og nöfn
þeirra gefa til kynna.
Fagurrauður búningur hins al-
þjóðlega jólasveins er runninn frá
biskupsskrúða heilags Nikulásar,
sem lifði og starfaði í borgunum
Mýra og Patara í Litlu-Asíu á fjórðu
SJÁ NÆSTU SÍÐU
FYRSTA auglýsing með jóla-
sveini í íslensku blaði birtist í
Morgunblaðinu árið 1924.
Reyndar er hér danskur
, jól-anissi“ á ferð.
um
Café Gourmet kaffivél •
• glaesifeg kaffivél sem sýður vatnið
10.980,- stgr.
Lanco útvarpsklukka
meó klósettrúlíustandi
3.490,-
fiiur Excei guíustraujárn
6.990,- stgr.
Ptiíiíps handryksuga
3.990,- stgr.
Philips Filterline hraðsuðuketíll
tekur 1,7 Iftra
.990,
>Mobilo 1400W ryksuga
1 1 .900,- stgr.
Munið jólabónusinn
Ef þú kaupir fyrir 7.000 krónur eða meira, fer nafn þitt í
lukkupott þar sem dregið er í hverri viku um
100.000 krónur l
Heimilistæki hf
SÆTÚNI 8 SlMI 569 15 OO
http.//www.ht.ls
umboðsmenn um land allt