Morgunblaðið - 19.12.1998, Side 69
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1998 69
AÐSENDAR GREINAR
Rauði krossinn
beitir sér í
mannúðarmálum
í Morgunblaðinu 16.
desember sl. birtist
grein eftir Bjöm Jóns-
son þar sem gagnrýnt
er að Rauða kross
hreyfingin hefur beitt
sér fyrir að sett verði
alþjóðlegt bann við
jarðsprengjum.
Af hveiju bann?
Björn telur að jarð-
sprengjur gegni mikil-
vægu hlutverki í land-
vörnum fátækra ríkja,
t.d. þegar íbúar á
átakasvæðum þurfa að
verjast árásum því
þeir eigi ekki kost á
dýrari eða fullkomnari vopnum.
Herferð Alþjóða Rauða krossins
til að fá ríki heims til að samþykkja
alþjóðlegt bann við jarðsprengjum
er einkum byggð á þremur höfuð-
röksemdum. Fyrir það fyrsta eru
jarðsprengjur ósiðleg vopn sem
brjóta í bága við alþjóðleg mannúð-
arlög vegna þess að sá skaði sem
þær valda er í engu samræmi við
hemaðarlegt gildi þeirra. í öðru
lagi er talið afar flókið og árangurs-
lítið að reyna að takmarka á ein-
hvem hátt notkun jarðsprengna og
því er nauðsynlegt að banna algjör-
lega framleiðslu þeirra, notkun,
flutninga og geymslu. Síðast en ekki
síst em flest fórnarlömb jarð-
sprengna óbreyttir borgarar sem
ekki taka þátt í stríðsátökum en
talið er að á hverjum degi verði um
hundrað manns fyrir jarðsprengju
og þar af týni þriðjungur þeirra lífi.
Sprengjumar deyða og limlesta
saklaust fólk árum og áratugum eft-
ir að átökum lýkur og til marks um
hversu geigvænlegt þetta vandamál
er má nefna að nú er áætlað að um
120 milljónir jarðsprengna liggi í
jörðu í tæplega sjötíu löndum.
Björn bendir á að þær aðstæður
eru til þar sem jarðsprengjur koma
að gagni við landvamir og eflaust
má færa fyrir því rök. Rannsóknir
Alþjóða Rauða krossins, sem unnar
hafa verið í samvinnu við hemaðar-
sérfræðinga víða um heim, benda
hins vegar til að hernaðarlegt gildi
þeirra sé takmarkað. Athugað var
m.a. hvaða þýðingu jarðsprengjur
hefðu haft í 26 stríðsátökum frá lok-
um síðari heimsstyrjaldarinnar og
var niðurstaðan sú að í engu tilviki
hefðu þær haft úrslitaáhrif. Til fróð-
leiks má geta þess að m.a. hinn
þekkti bandaríski hershöfðingi
Norman Schwarzkopf hefur lýst yf-
ir að algjört bann við jarðsprengj-
um sé réttmætt bæði af hemaðar-
og mannúðarástæðum.
Þær röksemdir sem þó vega
þyngst fyrir algjöru
banni eru að jarð-
sprengjur bitna mest á
saklausu fólki, almenn-
um borgurum, og að
mjög dýrt og seinlegt
er að hreinsa þær úr
jörðu. Sem dæmi má
nefna að sprengjurnar
kosta allt niður í um 70
kr. en kostnaðurinn við
að fjarlægja hverja og
eina getur verið allt að
þrjú hundrað sinnum
meiri.
Mannúð og hlutleysi
í grein Bjöms kem-
ur fram að herferð
Rauða ki-oss hreyfinginnar gegn
jarðsprengjum geti stangast á við
grundvallarmarkmið hreyfingarinn-
ar um hlutleysi í pólitískum og
hernaðarlegum málefnum. Jafn-
framt er getum leitt að því að
starfsmenn Rauða krossins á átaka-
svæðum verði æ oftar fyrir áreitni
eða ofbeldi vegna þess að hreyfing-
in gætir ekki hlutleysis.
Starf Rauða krossins byggist á
grundvallarmarkmiðum um mann-
úð og hlutleysi og eins og Björn
bendir á er hlutleysi lykillinn að því
að Rauði krossinn njóti trúnaðar-
Þær röksemdir sem þó
vega þyngst fyrir al-
gjöru banni, segir
Sigrún Árnaddttir, eru
að jarðsprengjur bitna
mest á saklausu fólki,
og að mjög dýrt og
seinlegt er að hreinsa
þær úr jörðu.
trausts stríðandi fylkinga og geti
starfað óhindrað á átakasvæðum.
Mannúðarhugsjónin felur í sér að
hreyfingin vinnur að því að létta
þjáningar manna - eða að koma í
veg fyrir þær - án tillits til hverjir
eiga í hlut eða hvai' þeir eru. Þess
vegna skipar Rauði krossinn sér
ávallt við hlið fórnarlambanna, þ.e.
þeirra sem búa við þjáningar, hvort
sem það er vegna stríðsátaka, nátt-
úruhamfara, mannréttindabrota eða
af öðmm ástæðum.
Hlutleysi felur ekki í sér afstöðu-
eða skoðanaleysi í mannúðar- og
mannréttindamálum heldur þýðir
að hreyfingin tekur ekki afstöðu
með einni stjórnmálaskoðun eða
gegn annarri. Rauði krossinn getur
_ Sigrún
Ámadóttir
því beitt sér í mannúðar- pg mann-
réttindamálum eins og t.d. til að
komið sé á alþjóðlegu banni við
jarðsprengjum. Fleiri dæmi mætti
nefna, m.a. að hreyfingin vinnur
stöðugt að því að tryggja að
óbreyttir borgarar njóti verndar í
stríðsátökum og að stríðsfangar fái
mannúðlega meðferð. Að þessu er
unnið með því að upplýsa og knýja á
stjórnvöld einstakra ríkja en án
þess að nokkur dómur sé lagður á
stjórnmálastefnu þeirra eða stjórn-
sýslu að öðra leyti.
Öi’yggi starfsmanna Rauða kross-
ins og annarra alþjóðlegra hjálpar-
stofnana á átakasvæðum er oftar
ógnað nú en áður var. Ein helsta
ástæða þess er sú aukna ringulreið
sem víða ríkir á átakasvæðum þegar
lítt skipulagðir hópar berjast inn-
byrðis sem hvorki þekkja né lúta
þeim alþjóðlegu mannúðarlögum
sem þó gilda í stríði. Mörkin á milli
hermanna og óbreyttra borgara
hafa tilhneigingu til að verða óljós í
þjóðemis- og borgarastyrjöldum svo
og mörkin á milli hemaðar og
hreinnar glæpastarfsemi. Við þessar
aðstæður er starfsfólki hjálparstofn-
ana mehi hætta búin, hlutleysi þess
er síður virt og hlutverki þess jafn-
vel ruglað saman við aðra stríðsaðila
eða friðargæslusveitir Sameinuðu
þjóðanna. Mörgum og tiltölulega
litlum hjálparstofnunum á stríðs-
svæðum hefur einnig fjölgað og því
era fleiri ólíkir aðilar sem starfa á
hverjum stað. Staifsfólki Rauða
krossins stafar því ekki hætta af því
að hreyfingin vinni nú að alþjóðlegu
banni við jarðsprengjum enda hefur
hún beitt sér fyrir slíkum mannúð-
ar- og mannréttindamálum frá upp-
hafi.
Höfundur er framkvæmdastjóri
Kauða kross Islands.
íslenskir listmunir
sílkíslæður
englabjöllur
ul lartref lar
smámyndir
textíltöskur
leirvasar
myndvefnaður
silkimyndir
GRETTISGÖTU 7 V/KLftPPflRSTÍG, S. 562 0426
Ég er skínandi sól
Bók um kœrleika, jákvœðni ogfyrirgefningu.
Andleg bók um Ijós og engla, þar sem höfundur
lýsir leit sinni að kœrleika og trú á sjálfan sig.
Höfundur miðlar leiðbeinanda sínum Dívu.
Elías Hauktir
Snorrason
„Hið Ijósa og skýra mál bókarinnar
og stórbrotnar lýsingarnar á verun-
um innra með höfundinum gera
bókina vel þess virði að lesa hana. “
Útdráttur úr Morgunblaðinu
Bókin er
komin í búðir
www.hagkaup.uisir.is
Dreifing;
Ævar s: 892 3334
Ég er skínandi sól
Soffía Sæmundsdóttir
.
*
I*
■./kBÉfifcfcsk'
,
. . sá
ART CALLERY
Listin göfgar
manninn
Rauðarárstíg 14, sími 551 0400,
Kringlunni, sími 568 0400.
fold@artgalleryfold.com