Morgunblaðið - 19.12.1998, Page 74
74 LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
GLUGGAGÆGIR og Hurðaskellir afhentu fjölskyldunni að Lynghæð 2
jólatré en þau eru Björn Hilmarsson, Guðrún B. Gunnarsdóttir, Gunn-
ar Bjarki Bjömsson, 3ja ára, og Davíð Bjarni Björnsson, 7 ára. Vakti
heimsókn þeirra greinilega mikinn fögnuð fjölskyldunnar, þótt börn-
unum hafi verið örlítið bmgðið.
Jólasveinar dreifa
jólatrjám fyrir skáta
Ljósmynd/Gunnar Gunnarsson
Athugasemd frá
Landssímanum
EFTIRFARANDI athugasemd
hefur borist Morgunblaðinu frá
Landssímanum:
„I grein Morgunblaðsins um
samkeppni í millilandasímtölum,
sem birtist síðastliðinn fimmtu-
dag, eru tvö atriði, sem þarfnast
leiðréttingar.
I fyrsta lagi er haft eftir Þórólfl
Árnasyni, forstjóra Tals, að í
gangi sé „ákveðið ferli til þess að
semja um aðgang fyrirtækisins að
dreifikerfi Landssímans, þ.e.
símalínunum sem liggja inn á
heimili og fyrirtæki í landinu."
Jafnframt er haft eftir Þórólfi að
ágreiningur sé milli Tals og
Landssímans um hve mikið þessi
aðgangur eigi að kosta, en málið
sé á viðræðustigi milli fyrirtækj-
anna og ekki hafi verið leitað til
samkeppnisyfirvalda.
HJÁLPARSVEIT skáta í Garða-
bæ hefur fengið vaska jólasveina
til liðs við sig til að dreifa jóla-
trjám heim til viðskiptavina sinna
á tröllauknum hjálparsveitarbíl-
um.
I fréttatilkynningu segir að
Hjálparsveit skáta í Garðabæ
fjármagni starfsemi sína með
sölu á jólatrjám og flugeldum.
Jólasveinarnir rauðklæddu taka
ekkert aukagjald fyrir að keyra
út jólatrén innan Garðabæjar og
vægt gjald fyrir að aka trjám til
viðskiptavina í öðrum bæjarfélög-
um innan höfuðborgarsvæðisins.
Hellir með átak í
kvennaskák
TAFLFÉLAGIÐ Hellir mun á
næstunni standa fyrir sérstöku
átaki tO að efla skákþátttöku
stúlkna og kvenna. Átakið hefst á
Jólapakkamóti Hellis, sem haldið
verður sunnudaginn 20. desem-
ber kl. 14 í Hellisheimilinu,
Þönglabakka 1.
Þar verður tekið á móti skrán-
ingu stúlkna og kvenna í félagið.
Ekki er nauðsynlegt að taka þátt
í mótinu til að skrá sig til þátt-
töku í þessari nýju starfsemi.
Einnig er hægt að skrá sig með
því að senda tölvupóst á hell-
irÉsimnet.is.
Verði viðbrögð við þessu átaki
góð mun félagið stofna sérstaka
skákdeild fyrir konur. Þar verður
boðið boðið upp á skákkennslu,
skákæfingar og skákmót. Auk
þess er boðið upp á fjölda ann-
arra skákviðburða á vegum
félagsins, þar sem þátttaka er öll-
um heimil, segir í fréttatilkynn-
ingu.
Landssíminn hefur ekkert er-
indi fengið frá Tali um aðgang að
hinu almenna símkerfi, símalín-
um til heimila og fyrirtækja.
Engar viðræður hafa þar af
leiðandi farið fram um slíkan að-
gang og ekkert verð verið rætt.
Hins vegar hefur verið samið við
Tal um samtengingu GSM-kerfis
fyrirtækisins við farsímakerfi og
almennt símkerfi Landssímans.
Framkvæmd þeirra samninga
hefur gengið vel og ekki þurft að
koma til atbeina opinberra eftir-
litsaðila.
I öðru lagi segir í grein Morg-
unblaðsins: „Þrátt fyrir að samn-
ingar um aðgang að dreifikerfinu
hafi ekki tekist milli Lands-
símans annars vegar og Tals og
Islandssíma hins vegar hafa
samningar tekist milli Lands-
símans og Skímu, sem er að öllu
leyti í eigu Landssímans, eins og
fyrr sagði.“
Hér er ekki alls kostar rétt
með farið. Þegar fjarskiptafyrir-
tæki hefur fengið úthlutað fjög-
urra stafa símanúmeri hjá Póst-
og fjarskiptastofnun ber Lands-
símanum skylda til að vísa hring-
ingum úr almenna símakerfinu í
það númer til viðkomandi fyrir-
tækis, án þess að nokkra sérstaka
samninga þurfi að gera. Þannig
vísar Landssíminn símtölum, sem
berast í útlandanúmer Skímu,
1100, inn á línur fyrirtækisins.
Nákvæmlega sama þjónusta
stendur Tali til boða og hefur fyr-
irtækið fengið tilkynningu um
slíkt. Það sama á við um aðra,
sem vilja fá sömu þjónustu."
— Q Ármúli 27 og Landssimahúsið
Mán. 21. desmber 9.00 -18.00
Þri. 22. desember 9.00 -20.00
AAið. 23. desember 9.00 - 23.00
Fim. 24. desember 9.00 -12.00
C Síminn Intemet )
Mán. 21. desember 10.00 -19.00
Þri. 22. desember 10.00-20.00
Mið. 23. desember 10.00 - 23.00
Fim. 24. desember 9.00-12.00
c Kringlan )
Sun. 20. desember 10.00 - 22.00
Mán. 21. desember 10.00 - 22.00
Þri. 22. desember 10.00 - 22.00
Mið. 23. desember 10.00 - 23.00
Fim. 24. desember 9.00-12.00
c Sauðárkróknr )
Mán. 21. desember 9.00-18.00
Þri. 22. desember 9.00-18.00
Mið. 23. desember 9.00-18.00
Fim. 24. desember 9.00 -12.00
C Akureyri ~)
Sun. 20. desember 13.00 -18.00
Mán. 21. desember 9.00 - 22.00
Þri. 22. desember 9.00 - 22.00
Mið. 23. desember 9.00 - 23.00
Fim. 24. desember 9.00-12.00
C Selfoss )
Mán. 21. desember 9.00-18.00
Þri. 22. desember 9.00-18.00
Mið. 23. desember 9.00 - 23.00
Fim. 24. desember 9.00 -12.00