Morgunblaðið - 19.12.1998, Síða 79
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1998 79 f'
BREF TIL BLAÐSINS
Afskræming Mannréttinda-
yfírlýsingar SÞ
Frá Ástþóri Magnússyni:
Á FIMMTÍU ára afmæli Mannrétt-
indayfirlýsingar Sameinuðu þjóð-
anna hinn 10. des. var haldinn stofn-
fundur Félags til varnar mannrétt-
indum í Ráðhúsi Reykjavíkur.
Hvatamenn þessa voru Gréta Gunn-
arsdóttir, lögfræðingur í utanríkis-
ráðuneytinu, og Bjöm Friðfinnsson,
fv. ráðuneytisstjóri, en markmið fé-
lagsins er m.a. að vinna að jafnrétti
og stuðla að umburðarlyndi manna
á meðal.
Hins vegar var stofnfundur þessa
félags í engu samræmi við stefnu-
skrána. Undirbúningsaðilar félags-
ins ætluðu almennum borgurum fá-
einar mínútur til að ganga frá stofn-
un félagsins, lögum þess og kosn-
ingu félagsstjórnar. Eftir örstutta
framsögu Björns Friðfinnssonar
um tilgang félagsins, las hann lög
félagsins (sem fundarmenn fengu
eintak aí') og bað um athugasemdir.
Það kom hins vegar í ljós að fundar-
gestum var alls ekki ætlað að koma
með athugasemdir. Þegar einn
fundargesta, Elías Davíðsson, bað
um orðið og vildi koma á framfæri
tveimur efnislegum athugasemdum,
synjaði fundarstjóri Elíasi um mál-
frelsi til að bera fram athugasemd-
irnar. Það er aðeins eftir að aðrir
fundarmenn lýstu furðu sinni á
þessum fundarsköpum, og eftir
töluvert þjark, sem Elíasi var loks
veitt málfrelsi.
Elías bað fundarstjóra að biðjast
afsökunar en því var neitað. Elíasi
var gefið örstutt tækifæri til að lesa
upp tillögu sína en frekari rökstuðn-
ingur var ekki leyfður af fundar-
stjóra. Fundarstjóri las ekki upp
breytingartillögurnar heldur bar
þær strax, áður en nokkur maður
áttaði sig á þeim, til atkvæða með
þeim hætti að fólk rétti upp hendur
eins og sjálfvirkar vélar sem unnu
eftir skipun fundarstjóra. Minnti
óþyrmilega á sovéskt þing.
Þegar gengið var til kosninga um
stjórn félagsins, voru lesin upp nöfn
stjórnarmanna sem undirbúnings-
nefndin „hafði skipað". Listinn var
borinn til atkvæða án þess að kynna
þetta fólk eða leita eftir öðrum
frambjóðendum. Það var aðeins eft-
ir margítrekuð mótmæli fjölda
fundargesta, að samþykkt var að
stjórnarmennirnir stæðu upp og
kynntu sig. Að lokum var lagt til að
Björn Friðfinnsson og Gréta Gunn-
arsdóttir yrðu endurskoðendur fé-
lagsins, og vai- það eins og annað
samþykkt að sovéskum sið.
Stofnun félags um mannréttindi
með þessum hætti er raunverulegri
5j ávardýr
feykirófa
Skólavörðustíg 1a
mannréttindabaráttu til háborinnar
skammar. Hér var gerð tilraun til
að sýsla með fólk, hugmyndir og
hugsjónir eins og peð á skákborði.
Það er mjög óviðeigandi að utan-
ríkisráðuneytið reyni að slá sig til
riddara í samvinnu við ýmis félaga-
samtök og breiða þannig yfir mann-
réttindabrot ráðuneytisins með há-
tíðardagskrá á 50 ára afmæli Mann-
réttindaryfirlýsingar SÞ. Eftir hina
„sovésku“ stofnun mannréttindafé-
lagsins, setti Halldór Ásgrímsson
málþing um mannréttindi með
makalausum fagurgala, en það kom
glögglega í ljós í svörum hans við
fyiirspurnum úr sal, að engin alvara
býr að baki hinum fögru orðum um
mannréttindi.
Af hverju heldur ráðherrann
áfram að lýsa yfir stuðningi við ein-
hverja ómannúðlegustu og grimmi-
legustu aðför þessarar aldar gegn
saklausum börnum? Þorir ráðherr-
ann ekki að hafa sjálfstæðar skoð-
anir? Um ein milljón barna hefur
þegar látist á sársaukafullan hátt úr
hungri og sjúkdómum af völdum
viðskiptabannsins á írak sem ís-
lenska utanríkisráðuneytið heldur
áfram að styðja, eftir að öllum eru
ljósar afleiðingarnar. Yfirmaður
mannúðarhjálpar Sameinuðu þjóð-
anna hætti nýlega störfum í mót-
mælaskyni og hefur lýst því yfír að
viðskiptabannið sé að murka lífið úr
saklausum almenningi en hafi lítil
áhrif á stjórnarlið og fjölskyldu
Saddam Hussein sem lifa í vellyst-
ingum.
Það vakti athygli að Mannrétt-
indaskrifstofa Islands lét nota sig í
því lágkúrulega hlutverki að hylja
tvískinnungshátt ráðuneytisins og
tók við peningum frá utanríkisráðu-
neytinu til að standa fyrir þessari
uppákomu í samvinnu við ýmis fé-
lagasamtök sem kenna sig við
mannúð og mannréttindi. Meðal
þeirra samtaka sem létu glepjast
eru íslandsdeild Amnesty
International, Barnaheill, Hjálpar-
starf kirkjunnar, Rauði kross ís-
lands, Öryrkjabandalagið, Félag
heyrnarlausra, Þroskahjálp, Lög-
mannafélag Islands og Bahai sam-
félagið á Islandi. Rétt er að geta
þess að alþjóða Rauði krossinn hef-
ur mótmælt viðskiptabanninu.
Þessir aðilar létu sem vind um
eyru þjóta áskoranir Friðar 2000 að
þeir krefjast þess að ísland aflýsi
umsvifalaust viðskiptabanni á írak,
þrátt fyrir að viðskiptabannið í nú-
verandi mynd sé alvarlegt brot á
þeirri Mannréttindayfirlýsingu SÞ
sem hátíðin snerist um. Trúverðug-
leiki Amnesty og annarra þeirra
sem að þessu stóðu hefur beðið
verulegt álitshnekki við þetta.
Vel á þriðja hundrað íslendingar
hafa ki-afist þess að Halldór As-
grímsson verði ákærður fyrir aðild
að stríðsglæp og þjóðarmorði gegn
óbreyttum borgurum í Irak. Friður
2000 hefur ítrekað skorað á ráð-
herrann að hætta stuðningi við við-
skiptabannið. Þar sem enn er skellt
skollaeyrum við slíkum áskorunum
mun Friður 2000 nú leggja þeim
kröfu lið að íslenskir ráðamenn
svari til saka fyrir aðild að þjóðar-
morði.
Það dó lítið barn í dag,
og fleiri deyja á morgun.
Sólin er svört í Bagdad í dag,
á mannréttindadegi Sameinuðu þjóðanna.
Barnið átti sér líf og von um glæsta framtíð,
sem nú er frá því tekin.
Engill Ijóss og friðar kom þú oss til.
Berðu á örmum þínum hina litlu sál.
Tökum höndum saman og stöðvum þessa vá,
vargar vilja ráða, og raska heimsins ró.
ÁSTÞÓR MAGNÚSSON,
stofnandi Friðar 2000.
ANTIK
Nýkomið frá Danmörku úrval af
húsgögnum og gömlum munum.
Tilvalið til jólagjafa.
Bókamarkaður
Úrval af nýjum og gömlum bókum.
Hverfisgötu 39 sími 869 1669 - Opið frá kl. 12.00 til 18.00
IIOYII
SKÓR FYRIR KARLMENN
Litir: Svarfir og vínrauðir • Stærðir: 40-46
Tegund: Padua • Verð kr. 12.990
Mikið úrval af glæsilegum Lloyd-skóm
Lloyd-beltum og Lloyd-sokkum
DOMUS MEDICA
við Snofiobrout • Reykjovík
Sími 551 8519
STEINAR WAAGE
SKÓVERSLUN
KRINGLAN
Kringlunni 8-12 • Reykjovík
Sími 5689212
PÓST5ENDUM SAMDÆGURS • 5% STAÐGREIÐSLUAFSLÁTTUR
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fyigir fyrirvari hér að lútandi.
Stjörnuspá á Netinu
igimbl.is
Þorláksmessuskata^^J
Hjá okkur færöu góöa vestfirska skötu og hákarl frá Óskari í Hnífsdal
Einnig stór humar, rækja og hörpuskel
Tilboð:
Laxaflök kr. 740
Graflax kr. 980
Reyktur lax
kr. 1.080
Hafberg fiskbúð
Gnoðarvogi 44, sími 588 8686
Opið í dag frá kl. 9-18
w
Betri veitingahús borgarinnar bjóða skötu frá okkur