Morgunblaðið - 19.12.1998, Blaðsíða 82
^ 82 LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
íii ÞJÓÐLEIKHÚSIÐ sími 551 1200
Sýnt á Stóra sóiði kl. 20.00:
BRÚÐUHEIMILI — Henrik Ibsen
Frumsýning 26/12 kl. 20 uppselt — 2. sýn. 27/12 uppselt — 3. sýn. sun. 3/1
uppselt — 4. sýn. fim. 7/1 örfá sæti laus — 5. sýn. sun. 10/1 nokkur sæti laus.
TVEIR TVÖFALDIR — RayCooney
9. sýn. mið. 30/12 uppselt — 10. sýn. lau. 2/1 nokkur sæti laus — 11. sýn.
lau. 9/1.
SOLVEIG — Ragnar Arnalds
Fös. 8/1 - fös. 15/1.
BRÓÐIR MINN LJÓNSHJARTA — Astrid Lindgren
Þri. 29/12 kl. 17 nokkur sæti laus — sun. 3/1 kl. 14 — sun. 10/1 kl. 14.
Sýnt á Litla sáiði:
ABEL SNORKO BÝR EINN — Eric Emmanuel-Schmitt
Mið. 30/12 kl. 20 uppselt — lau. 2/1 — fös. 8/1 — lau. 9/1. Ath. ekki er hægt
að hleypa gestum inn í salinn eftir að sýning hefst
Sýnt á SmíðaUerkstceði kt. 20.30:
MAÐUR í MISLITUM SOKKUM
Þri. 29/12 uppselt — ,mið. 30/12 uppselt — lau. 2/1 uppselt — sun. 3/1 — fim.
7/1 -fös. 8/1 — sun. 10/1.
Mlðasalan er opin mánud.—þriðjud. kl. 13—18, miðvikud.—sunnud. kl. 13—20.
Símapantanir frá fd. 10 virka daga. Sími 551 1200.
Gjafakort i Þjóðteikhúsið — gjöfin sem tifnar Við!
tS LEIKFÉLAG K
REYKJAVÍKURJ®
' ' 181)7- 1997
BORGARLEIKHÚSIÐ
GJAFAKORT LEIKFELAGSINS
KÆRKOMIN JÓLAGJÖF
Ath. gjafakortasala einnig
í Kringlunni 1. hæð
A SIÐUSTU STUNDU:
Síðustu klukkustund fyrir sýningu
eru miðar seldir á hálfvirði.
Stóra svið:
eftir Sir J.M. Barrie
Frimsýning 26. des. kl. 14.00,
uppselt,
sun. 27/12, kl. 14.00, uppselt,
lau. 2/1, kl. 13.00,
sun. 3/1, kl. 13.00,
lau. 9/1, kl. 13.00,
sun. 10/1, kl. 13.00, nokkursæti
laus.
ATH: PÉTUR PAN GJAFAKORT
TILVAUN JÓLAGJÖF
TIL ALLRA KRAKKA
Stóra svið kl. 20.00: ,
MAVAHLATUR
eftir Kristínu Marju Baldursdóttur
í leikgerð Jóns J. Hjartarsonar
Lau. 9/1.
Stóra svið:
eftir Jim Jacobs og Warren Casey.
Aukasýning sun. 27/12, kl. 20.00,
örfá sæti laus.
Lokasýn. þri. 29/12, kl. 20.00,
uppselt.
Ósóttar pantanir seldar daglega.
Stóra svið kl. 20.00
u í sven
eftir Marc Camoletti.
60. sýning mið. 30/12, örfá sæti
iaus,
fös. 8/1, laus sæti.
Miðasalan er opin daglega
frá kl. 13—18 og fram að
sýningu sýningardaga.
Símapantanir virka daga frá kl. 10.
Greiðslukortaþjónusta.
Sími 568 8000 fax 568 0383.
/esturgotu
iffi
RUSSIBANA-
ÖANSLEIKUR!
GAMLÁRSKVÖLD
KL. 00.30
Sata hafinU
MIÐAPANTANIR ALLAN SOLAR-
HRINGINN I SÍMA 551 9055.
ISLENSKA OPERAN
|£WI
Gamanleikrit í leikstjórn
Sigurðar Sigurjónssonar
mán. 28/12 kl. 20 uppselt
þri. 29/12 kl. 20 uppselt
mið. 30/12 kl. 20 uppselt
Miðaverð kr. 1100 fyrir karla
kr. 1300 fyrir konur
(pjtváxtaJkjtr/ai?
^ JLEikr»t fvrir *
sun. 27/12 kl. 14 örfá sæti laus
sun. 10/1 kl. 14,-sun 17/1 kl. 14
Leikhúsmiði í jólapakkann!
Ósóttar pantanir seldar í dag!
Georgfélagar fá 30% afslátt
Miðasala alla daga frá kl 15-19, s. 551 1475
Gjafakort á allar sýningar
Miðasala opin kl. 12-18 og
Iram að sýningu sýningardaga
Ösóttar pantanlr seldar daglega
Sími: 5 30 30 30
Gjafakort í leikhúsið
Tih/alin jólaqjöf!
KL. 20.30
sun 27/12 (3. dag jóla) örfá sæti laus
sun 3/1 (1999) laus sæti
ÞJONN
í s t p u Mn í
þri 29/12 kl. 20 síðasta sýning ársins
lau 2/1 1999, kl. 20
mÁRSbANSLEIKm
Uppselt - Ósóttar pantanir í sölu!
Tónleikaröð Iðnó
í kvöld 19/12 kl. 21 Súkkat
mið 23/12 kl. 23 Magga Stína
Tílboð til leikhúsgesta
20% afsláttur af mat fyrir
leikhúsgesti í Iðnú
Borðapöntun í síma 562 9700
Titbod
30% afsláttur mán.-mið. kl. 9-13
Andlitsbal L.980
Litun oq plokkun 1.690
Handsnyrting 2.690
Samt. 9.160
30% afsl. 6.612
SNYRTI & NUDDSTOFA
Hönnu Kristínðr Didriksrn
Laugavegi 40, sími 561 8677
FÓLK í FRÉTTUM
BJÖRN Baldvinsson með félögum sínum í Lux. F.v.: Sheperd Stevenson, Björn, Brian Snall og Eric Troop.
Tónlistin togar
SNEMMA á þessum áratug var
mikið að gerast í íslensku rokki.
Meðal þeirra hljómsveita sem
duglegastar voru við tónleikahald
var rokksveit úr Reykjavík sem
kallaðist Bleiku bastarnir og þótti
söngspíra sveitarinnar, Björn
Baldvinsson, venju fremur spræk
á sviði og lífleg. Eftir að sveitin
lagði upp laupana voru liðsmenn
hennar áberandi í tónlistarlífinu
áður en þeir hurfu til annarra
starfa; sumir fluttu úr landi og
þar á meðal Björn, sem fluttist
búferlum til Bandaríkjanna. Fyrir
skemmstu bárust svo fréttir af því
að hann væri byrjaður í tónlist-
inni aftur vestan hafs.
Björn Baldvinsson fór utan á
sínum tíma til að leita fyrir sér í
kvikmyndaiðnaðinum vestan hafs
og segir að það hafi gengið bæri-
lega, hann hefur meðal annars
gert eina kvikmynd sjálfur og
unnið við margar, en tónlistin hafi
alltaf togað í hann. „Mér fór að
leiðast að vera í kvikmyndastúss-
inu og langa að fást við tónlist aft-
ur,“ segir hann en Bleiku bastarn-
ir fengu á sínum tíma heldur
snubbóttan endi, því trymbill
sveitarinnar hellti kóki yfir frum-
eintak breiðskífu sem sveitin
hafði rétt lokið við er þeir félagar
voru þá að fagna því að platan
væri tilbúin. Upp úr þessu nenntu
þeir félagar ekki að halda áfram
og Björn segir að þetta hafi setið í
honum að segja síðan.
„Eg kynntist síðan náunga úti,
Eric Troop, og við urðum perlu-
vinir með það sama. Hann er
tónlistarmaður, gítarleikari og
lagasmiður, og bað mig um að
syngja nokkur lög sem hann
hafði samið inn á band. Eg þrá-
aðist við en lét loks undan, enda
þdttu mér lögin frábær. Þar með
var ég kominn af stað og eftir
þriggja daga æfingar fórum við í
hljóðver og tókum upp prufur
undir nafninu Lux. Með þær
prufur í farteskinu fórum við
síðan að leita okkur að
trommara og bassaleikara og
kynntumst gítarleikara og
söngvara í hljómsveitinni Hang-
man, Brian Snall, sem var á
samningi hjá Geffen. Honum
leist svo bráðvel á upptökurnar
að hann krafðist þess að fá að
leika á trommur og benti okkur
á bassaleikara, Sheperd Steven-
son. Með bandið þannig skipað
höfum við síðan spilað á nokkr-
um tónleikum."
Björn segir að þeir félagar hafi
fengið góðar viðtökur og ýmis fyr-
irtæki sýnt þeim áhuga, en ekki
segir hann tímabært að leggja of
mikla vinnu í kynningu á sveitinni
sem stendur. „Það má segja að það
sé allt í upplausn hjá útgáfufyrir-
tækjum á vesturströndinni, því það
er búið að reka nánast alla stjóra
fyrirtækjanna og við bíðum nú eft-
ir að nýir taki við. Þannig höfum
við bókað okkur í tónleikahald á
einum helsta staðnum í Los Angel-
es í febrúar og það verður fyrsta
skrefið.11
Björg segir að nokkuð séu
skiptar skoðanir innan sveitarinn-
ar hvaða Ieið eigi að fara, þeir
Troop vilji byrja á spilamennsku
af fullum kraftí en hinir liðsmenn
sveitarinnar séu svo sjóaðir í tón-
listarheiminum vestan hafs að
þeir vilji helst ekkert gera fyrr en
sveitin sé komin á samning sem
þeir teljá víst að verði. Björn seg-
ist þó taka hlutunum með ró,
hann sé fyrst og fremst kominn í
músíkina aftur vegna þess að
hann hafi gaman af henni, en ekki
til að slá í gegn.
Draumurinn rætist
TÓNLIST
Geisladiskur
ÞAÐ SEM MÉR ER KÆRAST
Gúndi Gunnarsson syngur eigin lög
við texta eftir sig og föður sinn,
Gunnar B. Jónsson. Gúndi syngur.
Vilhjálmur Guðjónsson sá um útsetn-
ingar, upptöku, upptökustjórn og
hljóðblöndun, lék á gítar, hljómborð,
klarinett, Dobro-gítar, buzuki, forrit-
aði bassa og trommur og söng bak-
raddir. Aðrir sem koma við sögu eru:
Ásgeir Óskarsson trommur og slag-
verk, Bergur Birgisson og Finnbogi
Kjartansson léku á bassa, Magnús
Kjartansson á píanó og rafpíanó, Dan
Cassidy á fiðlur, Sigurður Sigurðsson
á munnhörpu en bakraddir sungu
Magnús Þór Sigmundsson og Jóhann
Helgason. GG gefur út. Japís dreifir.
DRAUMAR eru mönnum nauð-
synlegir og ávallt er ánægjulegt
þegar þeir rætast. Gúndi Gunnars-
son, óþekktur tónlistarmaður sem
mun hafa verið búsettur í Vestur-
heimi um árabil, hefur nú bæst í
hóp þeirra sem láta drauma sína
rætast og hefur sent frá sér sína
fyrstu hljómplötu „Það sem mér er
kærast" en á ensku nefnist hún
„What I Hold Dear“. Á hljómdiski
þessum er að finna 14 lög og eru tíu
þeirra sungin á íslensku en íjögur á
ensku.
Lögin á þessum diski Gúnda eru
mörg hver í „country“-stíl og platan
hefst einmitt á einu slíku sem er í
hressari kantinum og nefnist „Mar-
ía“. Onnur stílbrigði má raunar
finna á þessum diski enda hefur Vil-
hjálmur Guðjónsson
flestar ef ekki allar teg-
undir Jónlistar á valdi
sínu. Útsetningar hans
eru yfirleitt smekklegar
og nær hann að lyfta
lögum Gúnda Gunnars-
sonar verulega. Gott
dæmi um það er lagið
„Krummi“ þar sem fiðl-
ur og klarinett leika
grípandi stef. Nokkuð
langt er seilst í laginu
„Huldukarl" þar sem
Vilhjálmur Guðjónsson
leikur á buzuki og
dimmar karlaraddir
skapa draugalegar stemmningar.
Rokkútsetning megnar á hinn bóg-
inn ekki að gera lagið „Hangover"
áhugavert. Best tekst þeim Vil-
hjálmi og Gúnda upp í „country"-
lögunum og sá stíll virðist henta
tónlistannanninum einna best.
Lög Gúnda eru misjöfn að gæð-
um. Þau eru einföld og hljómaskipt-
ingar jafnan prýðilega „fyrir-heyr-
anlegar". Gúndi getur samið dæg-
urlög og sum þessara laga eru vel
frambærileg, má þar nefna „María“,
„Horfinn dagur“ og „Af hverju“,
sem er besta lag plötunnar að mati
undirritaðs, vel samið lag og smekk-
lega útsett. „What I Hold Dear“ líð-
ur fyrir óhóflega væmni en laglínan
er ágæt. Almennt eru lögin úr hófi
fram keimlík og ris skortir víða.
Gúndi Gunnarsson er sömuleiðis
frambærilegur söngvari. Hann hef-
ur ágæta rödd en takmarkaða og
raddbeitingu er ábótavant á köflum.
„Country“-söngur er honum greini-
lega ekki framandi og
þeirri tegund tónlistar
virðist rödd hans best
koma til skila.
Textar við sex lag-
anna eru eftir föður
tónlistarmannsins en
honum er diskurinn
tileinkaður. Textar
Gunnars B. Jónssonar
eru flestir mjög þokka-
lega ortir og lausir við
rembing. Textar
Gúnda eru síðri og
víða hefði meiri sjálfs-
gagnrýni komið í góð-
ar þarfir. Á þetta m.a.
við um lögin „F-ið“, „Hangover"
sem hefðu þarfnast nánari skoðun-
ar.
Gúndi þakkar Vilhjálmi Guðjóns-
syni samstarfið á plötunni og er það
ekki að ástæðulausu. Vilhjálmur sér
í raun um alla vinnslu disksins og
ber uppi hljóðfæraleik. Án framlags
hans hefðu lög Gúnda Gunnarsson-
ar ekki náð því risi sem þau þó gera.
Vilhjálmur skilar hér prýðilegu
verki eins og vænta mátti.
Á umslagi getur Gúndi Gunnars-
son þess að með því að gera þennan
disk hafi draumur hans orðið að
veruleika. Þannig ber að taka þessu
verki og Gúndi getur verið ánægður
með þessa frumraun sína. Ávallt er
virðingarvert þegar tónlistarmenn
láta drauma sína um útgáfu rætast
og láta ekki áhyggjur af viðbrögð-
um umhverfisins, markaðar og mis-
viturra gagni'ýnenda stöðva sig.
Ásgeir Sverrisson