Morgunblaðið - 19.12.1998, Qupperneq 83
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1998 8S»
FÓLK í FRÉTTUM
Læt stemmn-
inguna ráða
Breski tónlistarmaðurinn Edward Upton sem
gengur einnig undir nafninu DMX Krew hyggst
troða upp á Akureyri í kvöld, en annað kvöld verð-
ur hann fyrir sunnan. Gagnrýnendur hafa lofað
hann í hástert fyrir tónlist hans, en hann segist
koma hingað til að spila uppáhaldstónlist sína.
agni'ýnendui-
víða um heim eru
þegar farnir að
tína saman markverð-
ustu plötur ársins að
þeirra mati og þá er oft
nefnd til sögunnar Nu
Romantix með breska
tónlistarmanninum Ed-
ward Upton. Lista-
mannsnafn hans, sem er
meðal annars notað á
plötunni, er DMX Krew
og undir því nafni treð-
ur hann upp á Akureyri
í kvöld og Kaffi Thom-
sen í Reykjavík annað
kvöld.
Þrátt fyrir nafnið er
DMX Krew eins manns hljómsveit ef
svo má segja, aðeins skipuð Upton,
en hann hefur einnig troðið upp við
annan mann undh- nafninu, síðast á
Benicasim-tónlistarhátíðinni á Spáni
í sumar. í samtali við blaðamann seg-
ist Upton hafa reynt það fjónim sinn-
um að leika á tónleikum með gítar-
leikara sem hann segir vera með-
leigjanda sinn sem heitir Matt. „Það
var gaman að prófa það en ég held að
ég eigi ekki eftir að gera það aftur í
bráð. Það er svo mikið umstang að
vera að troða upp með
öðrum; mér finnst
miklu betra að vera
einn á ferð og þurfa
ekki að hugsa um annað
en tölvur og segulbönd.
Þannig hef ég líka oftast
troðið upp, með undir-
leikinn á bandi og sung-
ið með.“
Upton kemur hingað
til lands sem plötusnúð-
m- og segist eins leika
eigin tónlist þegar svo
ber við, það fari allt eftir
stemmningunni. „Ég
hef yfírleitt ekki hug-
mynd um það hvemig
tónlist ég eigi eftir að
spila hvert kvöld, læt það bara ráðast
af stemmningunni. Þannig er ég ekk-
ert farinn að spá í hvaða tónlist ég
muni leika á íslandi, það verður ef-
laust blanda af hörðu techno og raf-
poppi - hmmm,“ segir hann og heyra
má að hann er að róta í plötubunka -
„ætli ég tíni ekki eitthvað saman rétt
áður en ég fer að heiman."
Á það til að sofa í hljóðverinu
Eins og getið er hefur plötu
Uptons undir nafninu DMX Krew
Edward
Upton
verið afskaplega vel tekið, en það
var þriðja plata hans. ,Á plötunni á
undan var ég að pæla í raftónlist, en
svo fóru allir að gera það líka og þá
langaði mig til að gera eitthvað ann-
að og fór út í popp. Mér finnst það
síðan svo gaman að á næstu plötu
sem ég er að fara að taka upp eftir
áramót, ætla ég að fara enn lengra í
þá átt og er búinn að semja lög í þá
veru. Á plötunum mínum má heyra
að ég er að læra á hljóðverið smám
saman,“ segir hann og kímir, „enda
eyði ég öllum stundum í það þegar
ég er ekki á ferðinni. Reyndar á ég
það til að sofa í hljóðverinu, ekki
síst nú um stundir því ég hef ekki
lengur almennilega aðstöðu heima,
var að flytja í nýja íbúð.“
DMX Krew er eins manns sveit
og Upton segist kunna því best að
vera einn. „Eg hef kjmnst því að
vera í hljómsveit, lék einu sinni á
hljómborð fyrir félaga minn en mér
fannst það ekki gaman, ég vil helst
ráða öllu,“ segir hann og hlær við.
„Ég gæti hugsað mér að ráða ein-
hverja til að flytja mína tónlist, að
koma mér upp hljómsveit til að
spila á tónleikum, en það er svo dýrt
að ég hef ekki viljað fara út í það
enn sem komið er, kannski síðar.
Hvað varðar að vinna með öðrum
hef ég líka reynt það en mér fannst
það ekki skila neinu af viti. Ég hef
aftur á móti gert nokkuð af því að
hljóðblanda fyrir aðra og það getur
verið gaman. Best er ef lögin eru lé-
leg því þá get ég fundið eitthvað
smálegt í þeim sem hljómar þokka-
lega, hent öllu öðru og síðan gert
það sem mér sýnist. Það er verra ef
lagið er gott og þannig þótti mér til
að mynda erfitt að hljóðblanda Her-
bie Hancock lag sem ég var að
vinna um daginn."
Upton segist hafa gaman af að
leika á tónleikum, en finnst líka
gaman að troða upp sem plötusnúð-
ur. „Það er alltaf gaman að fá borg-
að fyrir að spila skemmtilega tón-
list.“
Verslunin Nína, Akranesi
Jón og Gunna, ísafirði
Skagfirðingabúð, Sauðárkróki
Style, Akureyri
KÞ. Esar, Húsavík
Sentrum, Egilsstöðum
Flamingó, Vestmannaeyjum
Töff, Keflavík
i
I
Stones í stað
Streisand?
►BARBRA Streisand ætlar ekki
að hætta á neitt um áramótin. New
York Daily News greinir frá því
að hún hafi ákveðið að troða ekki
upp í Madison Square Garden á
gamlárskvöld, að hluta til vegna
þess að hún hefur áhyggjur af því
hvernig tölvur muni pluma sig
þegar ný öld gengur í garð. Emj-
fremur segir að hún muni líklega
koma fram á aldamótatónleikum á
MGM Grand í Las Vegas þar sem
liún kom tvisvar fram árið 1994
vegna þess að „salurinn er kunn-
uglegri og nær heimili hennar í
Los Angeles". Hefur New York
Daily News eftir heimildarmanni
nákomnum Streisand að hún vilji
ferðast sem minnst um aldamótin
„af ótta við hvaða áhrif það hefur
á tölvur þegar ný öld gengur í
garð“. Þá segir að Rolling Stones >'—
muni nú ef til vill leika í Madison
Square Garden um aldamótin. Ef
rokkaramir grjóthörðu verða þá
ekki Islandi?
SKERJABRAUT 1
útifatnaði
fleecepeysur verð frá kr. 5.490
öndunarja kkar verð frá kr. 7.990
öndunarbuxur verð frá kr. 3.490
Skerjabraut 1
Iðunnarhúsinu við Nesveg • Sími 551 5020
Opið laugardag 10-22
sunnudag 13-17