Morgunblaðið - 19.12.1998, Qupperneq 86
86 LAUGARDAGUR 19. DESEMBER 1998
MORGUNBLAÐIÐ
>
FÓLK í FRÉTTUM
Lewinsky
með sambönd
►MONICA Lewinsky hefur
sambönd í kvikmyndaiðnað-
inum ef marka má jólahátíð
sem kvikmyndafyrirtækið
Shooting Gallei-y hélt í New
York. Þar mætti hún í fylgd
Jonathans Marshalls lög-
fræðings fyrirtækisins sem
framleiddi m.a. myndina „Sl-
ing Blade“. „Hún er ljúfasta
og vingjarnlegasta mann-
eskja í heiminum," sagði
hann í samtali við New York
Daily News, „og hún er mik-
ill stuðningsmaður fyrirtæk-
isins.“ Þegar hún var spurð
hvernig henni liði svaraði
lærlingurinn fyrrverandi í
Hvíta húsinu: „Mjög vel.“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
LIÐSMENN Botnleðju, Kristinn Gunnar Blöndal orgelleikari, Heiðar
Örn Kristjánsson gítarleikari og söngvari, Haraldur Freyr Gíslason
trymbill, Ragnar Páll Steinsson bassaleikari.
gnnan
BIIHlllHHii
m
1
s«i
Fordrykkur
Bragðyndi
Smásnittur með völdu ofanáleggi i
Jf +
Forréttur *
Rjúpa og kalkúnareitir með þúrtvínshlaupi
Aðalrettur
czkPéii'-' Nautaturn og humarhali með "Bordelaise o;
Bearnaisesosum
Eftirréttur ~
Glóðaðir kanilflautir"Créme Brulée"
Hljómsveitin ,, * 'iL
Vp œ Kaffi et sætmdi "
iillll \* ** *
sér um fjörið. Veislustjóri (r** *
Ósóttir miðar verða seldir 28 des.'98
Magnað
samansafn
TONLIST
Geisladiskur
MAGNYL
Magnyl, breiðskífa rokksveitarinnar
Botnleðju. Botnleðju skipa þeir Heiðar
Örn Kristjánsson gítarleikari og
söngvari, Haraldur Freyr Gfslason
trymbill, Ragnar Páll Steinsson bassa-
leikari og Kristinn Gunnar Blöndal
orgelleikari. Lög og textar eftir þá fé-
laga. Rafn Jónsson stýrði upptökum,
Ken Thomas sá um upptökur að öðru
leyti og hljóðblöndun. Strengjaútsetn-
ingar eru eftir Ólaf Gauk. Error
Music gefur út. 53,47 mín.
HLJÓMSVEITIN Botnleðja
sendi fyrir skemmstu frá sér sína
þriðju breiðskífu og með henni
skipar sveitin sér í fremstu röð ís-
lenskra rokksveita; platan er magn-
að samansafn gn'pandi kraftmikilla
rokklaga sem eru vel til þess fallin
að koma blóðinu á hreyfíngu og
heilanum í gang; til þess að hrista
upp gruggið í rokkpollinum ís-
lenska.
Á fyrri skífum Botnleðju hefur
ungæðislegur krafturinn verið að-
al sveitarinnar, galgopahátturinn
á stundum keyrt úr hófi, en á
Magnyli er allt aftur á móti á sín-
um stað til þess fallið að miða lög-
unum áfram og þeir drengir hætt-
ir að vera eins og galsafengið
trippastóð. Ekki má þó skilja þessi
orð sem svo að þeir hafi týnt niður
gamanseminni, hún er á sínum
stað, en einnig er meiri alvara á
ferðum, ekki síst í textum.
Upphaf plötunnar, hrár bjögun-
arhljómur, gefur góð fyrirheit um
það sem framundan er og upphaf-
slagið allt, Rassgata 51, er einmitt
dæmi um það sem Botnleðja gerir
best, hráslagaleg keyrsla þar sem
þeir félagar Ragnar og Haraldur
fara á kostum í mögnuðum samleik.
Eitt af helstu einkennum Botnleðju
er einmitt hrynparið horska og sér-
staklega á Ragnar stjörnuleik á
plötunni, heyr til að mynda frábær-
ar bassafléttur hans í upphafslagi
plötunnar, Rassgötu 51, og laginu
Ég drukkna hér. Heiðar er og alltaf
jafn hugmyndaríkur gítarfrasa-
smiður en leggur nú ekki bara
áherslu á hamagang og hávaða.
Þannig má heyra frá honum ný-
bylgjulega rómantík, til að mynda í
Ólyst, Rophynoli, sem er „botn-
leðjulegasta" lag sem sveitin hefur
sent frá sér, og laginu frábæra
Sónn, þó þar sé fljótlega gefið í.
Magnyl er sannkölluð gítarveisla,
ekki að verið sé að eyða tíma í
skalaæfingar og fléttur, heldur er
viðfangið hamraður bitur gítar,
sem glefsar og geltir. Á skífunni má
reyndar heyra að sveitin er í örri
þróun, sum laganna flokkast undir
það sem kallast myndu hefðbundin
Botnleðjulög, en önnur eru nýstár-
legri, sem gefur góð fyrirheit um
næstu skref.
Botnleðju hefur bæst nýr með-
limur, Kristinn Gunnar Blöndal
orgelleikari, sem gefur tónlistinni
nýja dýpt og gefur ýmsa möguleika
sem þeir félagar nýta sér af kappi.
Kristinn sýnir ekki af sér mikla
fingrafimi á plötunni, en fer þess
betur með hljóð og hljóma og kem-
ur iðulega á óvart, til að mynda í
Rassgötu 51, svo dæmi sé tekið.
Heiðar Örn hefur yfirleitt samið
texta sveitarinnar og þar hefur
naumhyggjan ráðið ríkjum. Þó enn
séu textarnir gangorðir og hnitmið-
aðir eru einnig inn á milli lengri
textar og flóknari og ádeilubroddur
víða, til að mynda í Flugi 666, sem
fer sem leið liggur til niflheims með
viðlaginu Ég fæ allt sem að ég vil /
samt vil ég fá meira til.
Óhætt er fyrir rokkunendur að
dusta af skífunum í safninu, henda
þeim kannski flestum, og rýma til
fyrir Magnyli Botnleðju sem lækn-
ar, skammdegisþunglyndi og rokk-
skort; Magnyl sýnir á sér nýjar
hliðar við hverja hlustun, óhemju
fjölbreytt og skemmtileg rokkskífa
hljómsveitar sem er á hátindi ferils
síns hingað til og á örugglega eftir
að ná lengra. Einfaldlega besta
plata ársins.
Árni Matthíasson
Landsins mesta úrval af
„original" Manchester United-
vörum beint frá Old Trafford.
Manchester United-búningar
m.a. nýi svarti búningurinn og
Schmeichel-markmannstreyjur.
Einnig mikið úrval af Liverpool-, Arsenal-
Leeds-, Derby- og Bolton-vörum.
fatnaður
fótboltaskór
SPORTVORUVERSLUN
Háaleitisbraut 68 • Austurver • sími 568 4240