Morgunblaðið - 23.12.1998, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 23.12.1998, Qupperneq 4
4 MIÐVIKUDAGUR 23. DESEMBER 1998 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ 10.00- loarlaksmessu stemmmng * * * hvernig sem viðrar! Opi& í dag 23.00 KRINGWN Gleðilega hátíð Eldurí sorpeyðing- arstöð ELDUR kom upp í gömlu sorpeyð- ingarstöðinni við Skarfasker á Isa- firði í gærmorgun klukkan tíu. Slökkviliðið á ísafirði fór á vettvang og slökkti eldinn á skömmum tíma. Að sögn lögreglunnar komst eld- ur upp úr olíuofni stöðvarinnar í rusl sem lá á gólfi stöðvarinnar og þaðan í veggi og loft húsnæðisins. Ný og háþróuð sorpeyðingarstöð er starfrækt á ísafirði, en þar sem verið er að sinna viðhaldi á henni var gefið út bráðabirgðaleyfi fyrir gömiu stöðinni á meðan. --------------- Bflaþjófur hand- tekinn á Selfossi LÖGREGLAN á Selfossi handtók 35 ára gamlan karlmann í gær- morgun nærri Selfossi. Maðurinn hafði brotist inn í bíla- sölu í Reykjavík aðfaranótt þriðju- dags, stolið þar lyklum og bfl og ek- ið á honum austur fyrir fjall. Hann var grunaður um ölvun og var rétt- indalaus. Málið var fyrst til rannsóknar hjá lögreglunni á Selfossi þar sem mað- urinn var geymdur í fangageymslu hennar, en lögreglan í Reykjavík mun taka við málinu. Orkumet slegið hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur NÝTT met var slegið mánudag- inn 14. desember hjá Raf- magsveitu Reykjavíkur þegar álag náði 143,4 MW. Fyrra met var frá 9. janúar, sl., 135,6 MW. Að sögn Gunnars Aðalsteinsson- ar rekstrarsjóra er ólíklegt að orkunotkun milli 18 og 19 á að- fangadag slái út nýja metið. „Álag á veituna hefur verið að stíga allt þetta ár þegar góðærið skilar sér í aukinni þörf fyrir- tækjanna fyrir orku,“ sagði Gunnar. Sem fyrr má búast við mikilli orkunotkun á aðfangadag milli kl. 18 og 19 þegar Reykvíkingar og aðrir landsmenn leggja síð- ustu hönd á jólamatinn. „Sú notk- un hagar sér öðruvísi þegar þörf- in beinist inn á sömu klukku- stundina,“ sagði Gunnar. „Á venjulegum degi dreifist orku- notkunin einnig út til fyrirtækj- anna en þennan dag er það heim- ilisnotkunin sem kemur snöggt inn á sömu klukkustund.“ Hjá Rafmagnsveitunni er mikill viðbúnaður vegna aðfangadags og eru vinnuflokkar í viðbragðs- stöu í hverfum borgarinnar til- búnir að leita uppi bilanir auk þess sem mönnuð vakt er í stjórn- stöðinni. „Þannig að þegar hringt er ef eitthvað kemur upp á erum við fljótir að bregðast við,“ sagði hann. „Það er talsvert í lagt til að hægt sé að veita sem mesta þjón- ustu á þessum degi. Tíminn milli 18 og 19 hefur oft verið hæsti toppur ársins en ég efast um að nýja metið verði slegið í ár.“ Jólasöfnun Hjálparstarfs kirkjunnar gengur betur en í fyrra Yfir 12 milljónir króna hafa safnast RÚMLEGA tólf milljónir króna höfðu í gær safnast í jólasöfnun Hjálparstarfs kirkjunnar sem nú stendur sem hæst og mun ljúka í næsta mánuði. Þá hafa um 800 um- sóknir borist vegna þurfandi Islend- inga og lætur nærri að hátt í þúsund manns njóti góðs af framlagi frá matarbúrinu sem rekið er í sam- vinnu við Reykjavíkurdeild Rauða krossins. Jónas Þórisson, framkvæmda- stjóri Hjálparstarfs kirkjunnar, seg- ir söfnunina í ár hafa gengið betur en tvö síðustu ár. Fleiri virðist taka þátt og nýta sér annaðhvort söfnun- arbaukana, heimsenda gíróseðla eða þá sem liggja frammi í bönkum og sparisjóðum til að koma framlögum sínum til skila. Þá söfnuðust rúm- lega þrjár milljónir króna á Rás 2 í byrjun mánaðarins og verður því fé ráðstafað til hjálparstarfs í Mið-Am- eríku. Auk framlaganna úr útvai-pssöfn- uninni sem fara til Mið-Ameríku verður bætt við þau af fé úr jóla- söfnun, en henni verður að öðru leyti ráðstafað til verkefna í Ind- landi og til annarra neyðarverkefna auk þess sem aðstoð er veitt bág- stöddum íslendingum. Alls hafa nú um 800 umsóknir borist vegna að- stoðar innanlands, sem er svipaður fjöldi og í fyrra. Eru að meðaltali þrír að baki hverri umsókn, sem þýðir að hátt í þrjú þúsund einstak- lingar njóta þessarar aðstoðar. Mjög vel hefur gengið að fá stuðning fyr- irtækja, sem lagt hafa matarbúrinu til matvæli. Þá verða seld friðarljós Hjálpar- starfs kirkjunnar í dag og á morgun í kirkjugörðunum í Reykjavík, en það er ein aðaltekjulindin á hverju ári. Stjórnir læknaráða Landspítala og SHR ræða saman Keiko fær jólakort frá útlöndum LÍÐAN Keikos er með ágætum, hann eyðir miklum tíma neðan- sjávar og er í fínu formi, að sögn Steve Clausen, eins af þjálfurum hans. Keiko fær sfld í jólamatinn og hann hefur fengið nokkur jóla- kort, að sögn Clausens. Kortin hafa borist frá Noregi og Finn- landi, en kort hafa hvorki borist frá Bandaríkjunum né frá íslend- ingum. Undirbúa samráð við starfsmannaráðin STJÓRNIR læknaráða Landspítal- ans og Sjúkrahúss Reykjavíkur hitt- ust í gær til að bera saman bækur sínar varðandi samning rfldsins og Reykjavíkurborgar um yfirtöku rík- isins á rekstri SHR um næstu ára- mót. Formenn læknaráðanna sögðu menn hafa fyrst og fremst verið að gera sér grein fyrir stöðu mála en ekki væri ætlunin að gefa út álykt- anir um gjörninginn að svo stöddu. Tryggvi Ásmundsson, formaður læknaráðs Landspítala, sagði frek- ari fundahöld læknaráðanna ekki fyrirhuguð. „Við ætlum að hugsa okkar gang vel og ræða við starfs- mannaráðin og hafa samflot,“ sagði Tryggvi og sagði engar yfirlýsingar gefnar út að svo stöddu. Ekki bugaðir Gestur Þorgeirsson, formaður læknaráðs Sjúkrahúss Reykjavíkur, sagði í samtali við Morgunblaðið að á fundinum í gær hefðu fulltrúar læknaráðanna farið yfir málin og væri ætlunin að þau hefðu samráð sín í milli svo og við starfsmannaráð spítalanna. Gestur sagði að lækna- ráð SHR hefði farið yfir samninginn til að átta sig á hvað það þýddi að við spítalana myndi starfa einn forstjóri og tvær stjórnir fyrst í stað en síðan ein í lok næsta árs. „Við höfum verið að gera okkur grein fyrir málunum og viljum ekki að svo stöddu koma fram með nein- ar ályktanir,“ sagði Gestur. „A þess- um málum eru bæði kostir og gallar en við stöndum frammi fyrir orðnum hlut. Okkur líst vel á forstjórann og væntum þess að hann hjálpi okkur í þessu máli,“ sagði formaðurinn einnig. Hann sagði aðspurður að sumir kynnu að bera þann ótta í brjósti að SHR yrði fremur litli bróðirinn í málinu en sagði menn ekkert bugaða yfir því. Morgunblaðið/Þorkell STJORNIR læknaráða Landspítala og Sjúkrahúss Reykjavíkur ræddu málin í gær. Frá vinstri: Halldór Kol- beinsson SHR, Jón Gunnlaugur Jónasson og Tryggvi Ásmundsson á Landspítala, Gestur Þorgeirsson og Eiríkur Jónsson frá SHR en auk þeirra sat fundinn Oddur Fjalldal frá Landspítala. Bilun í Múlastöð Landssimans 5-6.000 síma- númer sam- bandslaus HLUTI af tölvubúnaði Múla- stöðvar Landssímans hefur verið tekinn úr umferð og notast verð- ur við varabúnað meðan kannað- ar eru ástæður bilunar sem varð seint á mánudagskvöld og leiddi til þess að 5-6.000 símanúmer urðu sambandslaus í um þrjá stundarfjórðunga. Bilanir urðu einnig í símstöðvarkei-fi Lands- símans árið 1993, en ekki er talið að tengsl séu á milli þeirra og nú- verandi erfiðleika. „Tvær undirstjórntölvur sem stýra um það bil einum þriðja þeirra númera sem tengd eru Múlastöð hættu að virka,“ segir Ólafur Stephensen, talsmaður Landssímans. „Kerfið er þannig að önnur á að taka sjálfkrafa við ef hin bilar og hún gerði það til að byrja með en svo kom upp sama bilun í henni.“ Að sögn Ólafs kom bilunin upp fimm mínútum fyrir ellefu, en númerin voru aftur komin í sam- band upp úr hálftólf. Sérfræðingar yfírfara búnaðinn Búnaðurinn sem bilaði er frá sænska símafyrirtækinu Erics- son og munu sérfræðingar frá fyrirtækinu yfirfara hann á næstunni. Ólafur segir að Lands- síminn taki bilun af þessu tagi mjög alvarlega og að búnaðurinn verði ekki tekinn aftur í notkun fyrr en komist hefur verið að því hvað olli henni. Ekki var hægt að hringja í neyðarlínuna, 112, fremur en aðra síma úr þeim númerum sem sambandslaus urðu. Ólafur bend- ir mönnum á að reyna að komast í farsíma ef þessar aðstæður koma upp, því bilun sem þessi hafi engin áhrif á þá.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.