Morgunblaðið - 23.12.1998, Page 11

Morgunblaðið - 23.12.1998, Page 11
MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR MIÐVIKUDAGUR 23. DESEMBER 1998 11 Islandsheimsókn landkönnuðarins Thors Heyerdahls Kominn hingað til að læra Morgunblaðið/Þorkell THOR Heyerdahl stundar enn rannsóknir þótt kominn sé á níræðisaldur. Hann sótti forseta íslands, Olaf Ragnar Grímsson, heim á Bessastaði í gær. „ÉG ER hingað kominn til að læra, ekki kenna,“ segir norski landkönn- uðurinn Thor Heyerdahl sem mun dvelja hér á landi yfír jólin. Kom Heyerdahl til að kynna sér Islend- ingasögumar og ræða við íslenska fræðimenn en hann hefur unnið að rannsóknum á siglingum norrænna manna og hvítra löngu fyrir landa- fundina miklu. Hefur hann einnig rætt við forseta Islands, Olaf Ragn- ar Grímsson, um undirbúning há- tíðahaldanna um næstu aldamót í tilefni landafunda víkinga í Vestur- heimi fyrir þúsund árum. Heyer- dahl mun dvelja hér í viku. Tilefni komu Heyerdahls tii Is- lands má rekja til sýningar í tengsl- um við nomæna landkönnuði sem var sett upp víða í Evrópu, m.a. í Haag, þar sem Olafur Ragnar hitti Heyerdahl. Sýndi Heyerdahl þá áhuga á ís- lenskri sögu og menningararfi og siglingum þeirra vestur á bóginn. Ekki spilltþ iyrir að þar hitti Olafur mestu hetju æsku sinnar, en Heyer- dahl öðlaðist heimsfrægð árið 1947 er hann sigldi við sjötta mann frá Suður- Ameríku yfír Kyrrahaf á flek- anum Kon-Tiki til að sanna að íbúar Kyrrahafseyja hefðu getað kom- ið frá Suður-Am- eríku. Það varð úr að forsetinn bauð Heyerdahl og eig- inkonu hans, Jacqueline, að koma hingað um jólin og gaf hon- um enska útgáfu íslendingasagn- anna við komuna. Heyerdahl er orðinn 84 ára en stundar enn rannsóknir af fullum krafti. Hann hefur hitt ís- lenska fræðimenn að máli en held- ur í dag í Hrunamannahrepp þar sem þau hjónin dvelja yfu- jólin. Næstkomandi mánudag heldur Heyerdahl svo fyrirlestur í Há- skóla Islands um rannsóknir sínar. Er hann að vinna að bók um ferðir og uppruna hvítra manna og hyggst flétta efni úr Islendinga- sögunum og öðru sem kann að reka á fjörur hans hér á landi, í bókina. Tengsl Kólumbusar og norrænna manna Heyerdahl segist vera kominn til Islands til að læra en ekki kenna en ekki þarf að hlýða lengi á land- könnuðinn til að heyra að hann hef- ur jafnmikið að segja Islendingum og þeir honum. Heyerdahl segir að fomleifaupp- gröftur og ferðh’ á borð við þá sem hann fór á Kon-Tiki hafi fært mönn- um heim sanninn um að endur- hugsa þurfí margt sem menn tejji sig vita um landafundi. T.d. hafi DNA-rannsóknh’ nú staðfest tengsl fólks í Suður-Ameríku og á Kyrra- hafseyjunum, eins og Kon-Tiki ferð- in var farin til að sýna fram á. Nú segist Heyerdahl m.a. vera að velta fyrir sér landafundum Kristófers Kólumbusar, sem hann telur fullvíst að hafi vitað af landa- fundum norrænna manna í vestri. Hann hafi tekið stefnuna suðvest- ur á bóginn í leit sinni að Asíu sem hann taldi sig á leið til, svo að hann kæmist fyrir landið í vestri. „Ég tel ísland hafa leikið stórt hlutverk í sögu heimsins og þá ekki aðeins vegna þess að Grænland var numið héðan. Ég er sannfærður um að framlag ykkar Islendinga er mun meira en stendur í sögunni og ég vonast til að komast að ein- hverju um það með því að lesa sög- urnar og ræða við fræðimenn á þessu sviði. Mér leikur til dæmis foi’vitni á að vita hvort einhver tengsl eru á milli ferða Kólumbus- ar sem fann Ameríku árið 1492 og eyðingar byggðar norrænna manna á Grænlandi sem varð um svipað leyti. í bréfum íbúanna til íslendinga segir það frá ránsferð- um til Grænlands í leit að þrælum.“ Leifur heppni kom frá íslandi Heyerdahl segist viðm’kenna að Leifur heppni hafi komið frá íslandi en að foreldrar hans og aðrir sem settust að á íslandi hafi komið frá Noregi þaðan sem þeir voru að flýja ofríki konungs. „Það gleður mig að heyra að forsetinn skuli hafa fengið menn í Vesturheimi og hér til að kanna landafundina betur, kanna raunveruleikann að baki Islendinga- sögunum. Eru þær sannar? Þær segja fallega sögu en segja þær sannleikann? Hins vegar má ekki gleyma í umfjöll- un um Leif að geta þess að hann var kaþ- ólskur trúboði, hafði með sér prest tU að boða kristna trú. Hér og á Norðurlönd- um var mikU menning, víking- amir voru ekki bara grimmir ruddai’, heldur kristin menning- arþjóð.“ Heyerdahl segir vangavelt- ur um frekari landafundi og ferðir norrænna manna forvitni- legar en að fara verði varlega í að draga ályktanir af vísbendingum sem vissulega veki undnm. T.d. hafi fundist múmíui’ í norð- urhluta Kína af fólki sem hafi verið uppi tæp- um 2.000 árum fyrir Krist og hafi verið ljós- hært og bláeygt. Myndir af vík- ingaskipum séu til í Aserbaídsjan og ýmislegt bendi tii þess að víkingar hafi siglt til Kanaríeyja, þar séu grafir og húsa- rústir sem minni mun meira á vík- ingabyggð en spænsk hús. En ekki megi hrapa að niður- stöðum, þetta verði að rannsaka betur og velta fyrir sér spurning- um um hvaðan við komum. „Svona vísbendingar eru hins vegar sönn- un þess að hvítir menn bjuggu yfir mun meiri þekkingu á umheimin- um, fyrr en menn höfðu talið. Sjáið til dæmis Heimskringlu Snorra St- urlusonar þar sem er fjallað um Miðjarðarhaf og Svartahaf. Þetta eru landfræðilegar lýsingar, ekki skáldskapur.“ Börn hafi framvegis sérstök vegabréf Vestfírðir Sr. Karl í annað sætið UPPSTILLINGARNEFND Alþýðubandalagsins á Vest- fjörðum hefur samþykkt að gera tillögu um að séra Karl V. Matthíasson, prestur í Grund- arfírði, verði fiilltrúi flokksins í 2. sæti samfylkingar vestra. Þegar er afráðið að Sighvatur Björgvinsson, formaður Al- þýðuflokksins, skipi 1. sætið. Séra Karl hefur verið prest- ur í Grundarfirði undanfarin ári, en hann var áður prestur á Vestfjörðum í níu ár. Samþykkt var í haust að Al- þýðuflokkurinn fengi 1. sæti samfylkingarinnar, Alþýðu- bandalagið 2. sætið og Kvennalistinn þriðja. Ekki er ákveðið hver skipar það sæti. ALÞINGI samþykkti um helgina ný lög um vegabréf sem kveða m.a. á um að vegabréf skuli fram- vegis einungis gilda fyrir einn ein- stakling. Eftir gildistöku laganna hinn 1. júní nk. verður því ekki hægt að skrá barn yngra en 15 ára í vegabréf náins aðstandanda held- ur verður hvert barn að hafa sér- stakt vegabréf með mynd. Þá er í lögunum kveðið á um að útgáfa vegabréfa verði í höndum ríkislögreglustjóra sem skuli meta hvort umsækjandi uppfylli skilyrði til að fá útgefið vegabréf. Áfram verður þó unnt að sækja um vega- bréf hjá öllum lögreglustjórum sem senda umsóknirnar áfram til ríkis- lögreglustjóra. Markmið laganna er m.a. að gera útgáfu vegabréf- anna öruggari og íslensku vega- bréfin þar með tryggari. Þá er með þeim reynt að fyrii’byggja að böm verði numin á brott úr landi ásamt foreldri sem ekki hefur forsjá bams en hefur nafn þess í vegabréfi sínu. Með samþykkt laganna hefur jafnframt verið ákveðið að dóms- málaráðuneytið láti hanna nýja gerð véllesanlegra vegabréfa. Slík vegabréf eiga m.a. að auka öryggi vegabréfanna almennt en einnig að stuðla að greiðari afgreiðslu far- þega við vegabréfaskoðun. „Þá býður þetta upp á ýmsar tæknileg- ar lausnir á öðmm sviðum, svo sem við skráningu farþega í flug,“ segh’ m.a. í athugasemdum laganna. Að sögn Kolbeins Arnasonar, deildarstjóra hjá dómsmálaráðu- neytinu, verða nýju vegabréfin, áþekk þeim sem nú eru í gildi, nema hvað við þau bætist tölvules- anleg rönd sem geymir þær upp- lýsingar sem nauðsynlegar eru í hverju vegabréfi. Aðspurður segir Kolbeinn að ekki sé ástæða til þess að sækja um nýtt vegabréf fyrr en gildistími þess „gamla“ rennur út. „Það ætti því enginn að taka eftir þessum breytingum yfir í véllesan- leg vegabréf nema þegar hann sækir um nýtt vegabréf,“ segir Kolbeinn. Framsóknarflokk- urinn í Reykjavík Alfreð sækist eftir öðru sæti ALFREÐ Þorsteinsson borg- arfulltrúi R-listans hefur ákveðið að gefa kost á sér í prófkjöri Framsóknarflokks- ins í Reykjavík sem fram fer um miðjan næsta mánuð vegna alþingiskosninganna næsta vor. Alfreð sækist eftir kjöri í 2. sæti á lista Framsóknar- flokksins en Ólafur Örn Har- aldsson alþingismaður hefur einnig lýst því yfir að hann sækist eftir 2. sætinu sem hann skipaði á listanum við síðustu kosningar. Alfreð sagði í samtali við Morgunblaðið að á fundi flokksbundinna framsóknar- manna sem haldinn var síð- astliðinn sunnudag hefði verið skorað á hann að gefa kost á sér í prófkjörinu og hefði hann tekið þeirri áskorun og lýst því yfir að hann sæktist eftir 2. sæti á framboðslistan- um. Aðspurður sagði Alfreð að hann myndi áfram gegna störfum sínum sem borgar- fulltrúi ef hann næði kjöri á Alþingi. Sex ára dreng- ur fyrir olíu- flutningabil SEX ára gamall drengur slas- aðist töluvert er hann varð fyrir olíuflutningabíl á Aust- urvegi á Reyðarfirði í gær- morgun klukkan 11. Drengurinn var fluttur á sjúkrahúsið í Neskaupstað með sjúkrabifreið, en þaðan var hann fluttur með flugvél Landhelgisgæslunnar á Landspítalann. Slysið vildi til með þeim hætti að drengurinn, sem var að renna sér á sleða ásamt öðrum bömum í brekku norð- an megin götunnar, renndi sér út á götuna þar sem olíuflutn- ingabíll kom aðvífandi. Flug- hált var á veginum, svo öku- manni bifreiðarinnar tókst ekki að afstýra slysinu þótt hann hefði verið á hægri ferð og vel útbúinn til vetrarakst- m's. Hross felld í Skagafirði vegna van- fóðrunar FJÖGUR hross frá bæ í Skagafirði voru nýlega felld vegna vanfóðrunar. Er þetta í fyrsta skipti sem beita hefur þurft viðbótai’á- kvæði frá síðastliðnu vori við lög um búfjárhald sem heimil- ar tafarlausai’ aðgerðir ef ástæður þykja til að taka búfé úr vörslu umsjónarmanns og ráðstafa því með þeim hætti sem nauðsynlegt þykir. Áður þurfti að leita til dómstóla í slíkum tilvikum. Samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins á málið í Skagafírði sér nokkurn að- draganda, en ástand hross- anna sem um ræðir var orðið mjög slæmt vegna vanfóðrun- ar og því þótti ekki hægt ann- að en að fella þau.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.