Morgunblaðið - 23.12.1998, Side 25
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 23. DESEMBER 1998 25
ERLENT
Viðskiptaráðherra Bretlands fékk lánað stórfé hjá samráðherra sem sætir rannsókn
Mandelson segir
hagsmuni ekki
rekast á
London. Reuters.
PETER Mandelson, einn af valda-
mestu ráðamönnum í ríkisstjórn
Verkamannaflokksins í Bretlandi,
reyndi í gær að verjast árásum
fjölmiðla eftir að því hafði verið
ljóstrað upp að fyrir tveimur áram
fékk Mandelson stóra fjárhæð að
láni frá samráðherra sínum, Geof-
frey Robinson. Viðskipti Robin-
sons hafa undanfarið verið til
rannsóknar í viðskiptaráðuneyt-
inu.
Neyddist Mandelson, sem jafn-
an er nefndur sem einn af for-
sprökkum „nýja Verkamanna-
flokksins" sem komst aftur til
valda í Bretlandi á síðasta ári eftir
átján ára stjórnarandstöðu, í gær
til að viðurkenna að fyrir tveimur
áram fékk hann 373.000 pund, um
45 milljónir íslenskra króna, að
láni hjá milljónamær-
ingnum Geoffrey Robin-
son til húsakaupa, en
Robinson er aðstoðar-
ráðherra í fjármálaráðu-
neytinu.
Það flækir hins vegar
málið að Robinson sætir __________
nú rannsókn viðskipta-
ráðuneytisins vegha hugsanlegra
árekstra á milli pólitískra og við-
skiptalegra hagsmuna hans en
Mandelson er einmitt ráðherra
viðskipta- og iðnaðarmála.
„Hér var um að ræða algerlega
ópólitískt einkamál tveggja vina,“
sagði Mandelson í gær. Neitar
Mandelson, sem er einn af helstu
bandamönnum forsætisráðherrans
Tonys Blairs, því að um augljósan
hagsmunaárekstur sé að ræða nú
þegar viðskiptaráðuneytið rann-
sakar lánveitanda Mandelsons.
„Þetta var ekki gjöf. Ég þarf að
borga vexti af láninu. Hann vildi
rétta mér hjálparhönd [...] Ég held
ekki að hjálpfysi Robinsons hafi
átt sér einhverjar pólitískar for-
sendur. Hann er mjög auðugur
maður. Það var engin ástæða þá,
né nokkurn tíma síðan, fyrir mig
að finnast rangt að fá lánað fé hjá
honum.“
Sá til þess að málinu væri ekki
vísað inn á sitt borð
Kveðst Mandelson engan þátt
eiga í rannsókn ráðuneytis síns á
málum Robinsons því opinberir
starfsmenn þess sjái alfarið um
hana. Akvað Mandelson sam-
kvæmt ráðleggingum lögmanna að
hafa engin afskipti af rannsókninni
og segist hann hafa
tryggt að málinu yrði
ekki vísað til sín.
Uppljóstranir þessar
era engu að síður hið
mesta vandræðamál
fyrir ríkisstjóm Blairs
_________ því Verkamannaflokk-
urinn hefur reynt að
láta svo líta út sem stjórn hans sé
mun „siðpráðari“ en ríkisstjóm
íhaldsflokksins, sem tapaði völd-
um í maí í fyrra eftir að hafa lent í
hverju hneykslismálinu á fætur
öðra.
Krafðist John Redwood, ráð-
herra viðskiptamála í skuggaráðu-
neyti íhaldsmanna, þess í gær að
vita hvers vegna Mandelson hefði
ekki greint frá því að hann hefði
þegið „svo ótrúlega háa fjárhæð“
frá Robinson. „Hvemig getur
Hið mesta
vandræðamál
fyrir
ríkisstjórn
Verkamanna-
fiokksins
herra hefur einnig verið nefndur
sem líklegur frambjóðandi gegn
Netanyahu. Mordechai er. hlynntur
friðarsamningunum við Palestínu-
menn og kvaðst í gær ætla að ræða
við Netanyahu til að reyna að
tryggja að kosningabaráttan skað-
aði ekki friðarumleitanirnar.
Á meðal annarra hugsanlegra
frambjóðenda eru harðlínumenn
eins og Benjamin Begin, sonur
Menachems Begins fyrrverandi
forsætisráðherra, og Uzi Landau,
formaður utanríkis- og varnar-
málanefndar þingsins. Þá er líklegt
að Limor Livnat fjarskiptaráð-
herra verði fyrsta konan í Likud-
flokknum til að bjóða sig fram
gegn Netanyahu.
„Tveggjaflokkakerfíð
að leysast upp“
Sérfræðingar í stjórnmálum
ísraels sögðu að flokkakerfið í Isr-
ael væri nú að taka meiri breyting-
um en nokkru sinni fyrr. „Gamla
tveggjaflokkakerfið er að leysast
upp og ástandið getur aðeins orðið
enn öfgakenndara,“ sagði Chemi
Shalev, stjórnmálaskýrandi ísra-
elska dagblaðsins Maariv.
Fréttaskýrendur sögðu að
hægrimenn jafnt sem vinstrimenn
kepptust nú við að höfða til miðju-
manna, sem hafa oft ráðið úrslitum
í kosningum í Israel.
Gerald Steinberg, virtur stjórn-
málafræðingur, sagði þó að kjarni
flokkakerfisins myndi haldast
óbreyttur og spáði því að flokkar
heittrúaðra gyðinga héldu áhrifum
sínum að mestu eftir kosningarnar.
Shalev sagði hins vegar að ef nýr
miðflokkur, hvort sem hann væri
undir stjórn Meridors eða
Shahaks, fengi mikið fylgi yrði
hægt að mynda samsteypustjórn
sem þyrfti ekki að reiða sig á
stuðning flokka heittrúargyðinga.
Of snemmt að afskrifa
Netanyahu
Þótt ekki blási byrlega fyrir Net-
anyahu er of snemmt að afskrifa for-
sætisráðherrann því hann stendur
að ýmsu leyti betur að vígi en
Shahak og aðrir keppinautar hans.
Netanyahu verður áfram við völd
fram að kosningunum og getur not-
að þann tíma til að snúa vöm í sókn.
Hann gegnir til að mynda embætti
fjármálaráðherra, sem þýðir að hann
ræður yfir sjóðum ríkisins síðustu
mánuðina fyrir kosningamar.
Framboð Shahaks er einnig lík-
legt til að kljúfa kjósendur vinstri-
og miðflokkanna og það gæti komið
forsætisráðherranum til góða þótt
hann standi frammi fyrir keppinaut-
um á hægrivængnum.
Netanyahu sýndi einnig í síðustu
kosningum að fáir standast honum
snúning þegar barist er um atkvæði
kjósenda. Fæstir bjuggust við því að
hann yrði kjörinn forsætisráðherra í
nóvember 1995 þegar hægrisinnaður
gyðingur myrti Yitzhak Rabin.
Shimon Peres, eftimaður Rabins
sem forsætisráðhema og leiðtogi
Verkamannaflokksins, var þá álitinn
nánast öruggur um sigur og sam-
kvæmt skoðanakönnunum var fylgi
hans 54% en Netanyahus aðeins
23%. Herskáir Palestínumenn hófu
þá sprengjutilræði, sem kostuðu 57
Israela lífið, og hálfu ári eftir morðið
á Rabin var Netanyahu kjörinn for-
sætisráðherra.
„Þótt Netanyahu hafl ekki haldið
velli út kjörtímabilið er hann engum
líkur í kosningabaráttu," skiifaði
Nahum Bamea, stjómmálaskýrandi
ísraelska dagblaðsins Yedioth Ahar-
onoth. „Það væru mikil mistök að
gera lítið úr sigurlíkum hans.
Reuters
Peter Mandelson
Mandelson verið æðsti ráðamaður
Bretlands í málefnum verslunar og
viðskipta þegar hann á svona náin
tengsl við fólk sem nú sætir rann-
sókn ráðuneytis hans?“
Blair trúir ekki á
hagsmunaárekstur
Gaf Tony Blair frá sér yfhiýsingu
í gær þar sem lýst var stuðningi
við Mandelson. Kvaðst forsætis-
ráðherrann þess fullviss að Mand-
elson hefði séð til þess að ekki
væri um hagsmunaárekstur að
ræða.
Bresk dagblöð gáfu Mandelson
þó engin grið í gær og The Sun
sagði málið allt saman „lykta,
lykta, lykta“.
Gena-
meðferð
gegn elli
NÝ genameðferð sem hamlar
gegn því að tilraunamýs
hrörni með aldri gæti hugsan-
lega hjálpað mannfólki að
vinna gegn hrörnunareinkenn-
um öldrunar, að því er vísinda-
menn við Pennsylvaníuháskóla
greindu frá á dögunum. Munu
eldri mýs, sem gengust undir
meðferðina, hafa bætt með því
vöðvastyrk sinn um 27%.
Pakkaðu inn þinni eigin hátíðardagskrá.
Þú getur valið úr 21 sjónvarpsstöð og 17 útvarpsrásum
Þú færð hvergi betra yfirlit yfir dagskrá sjónvarps og
útvarps nú um jólin en í sérblaði Morgunblaðsins,
Dagskrá. Þar getur þú á auðveldan hátt raðað saman
þinni hátíðar-og skemmtidagskrá. f blaðinu eru einnig
fréttir, myndir og umfjöllun um þættina, kvikmyndirnar
og fólkið sem kemur við sögu. Hafðu Dagskrána við
hendina um hátíðarnar.
/' allri sinni mynd!
GOTT fólK • SlA • 3931