Morgunblaðið - 23.12.1998, Síða 29
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 23. DESEMBER 1998 29
LISTIR
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
MYNDVERK eftir nemendur úr
skúlptúrdeild Myndlista- og
handíðaskóla íslands eru til sýnis
í nokkrum fyrirtækjum í Reykja-
vík.
Verkin eru margvísleg að
efni og gerð og verða flest
þeirra til sýnis á viðkomandi
stöðum á afgreiðslutíma fyrir-
tækjanna sem taka þátt í verk-
efninu. Þau eru: Tal hf., Fálk-
inn hf., Islenska útvarpsfélagið,
Málningarverksmiðjan Harpa,
Vegagerðin, Tæknival hf.,
Hrafnista, Teitur Jónasson,
Skúlptúr
í fyrir-
tækjum
Sundhöll Reykjavíkur, Almenn-
ingsvagnar hf., Borgarbóka-
safnið við Þingholtsstræti,
Radíómiðlun hf. og Hallveigar-
staðir. Sýningarnar standa í
mislangan tíma og sumar allt
fram á vor.
Nokkur verkanna eru unnin í
samvinnu við fyrirtækin og
starfsfólk þeirra, en önnur eru
hugsuð og unnin fyrir ákveðið
rými. Á myndinni er verk eftir
Olöfu Helgu Guðmundsdóttur í
Málningaverksmiðjunni Hörpu,
sem unnið var samvinnu við
starfsfólkið. Kennari myndlist-
arnemanna og umsjónarmaður
með sýningunum er Halldór Ás-
geirsson.
ALLT ER LIFANDI
BÆKUR
Itarnalil jóðbók
KATA MANNSBARN
OG STELPA SEM EKKI SÉST
Eftir Kjartan Árnason. Hljóðbóka-
klúbburinn 1998 - um 4 og 2/3 klst.
ÞAÐ er óvenjuleg leið í frumút-
gáfu texta að gefa þá út á
hljóðsnældu. Kjartan Árnason
sendir frá sér um þessar mundir
frumútgáfu á hljóðbók barnasögu
sem hann nefnir Kötu mannsbarn
og stelpa sem ekki sést. Halla
Margrét Jóhannesdóttir, leikkona,
les söguna á skýran og aðlaðandi
hátt.
Þetta er skemmtileg saga af tíu
ára stelpu, Kötu að nafni, sem flyst
úr Kópavogi með foreldrum sínum
út á land og verður að takast á við
nýjan veruleika. Hún mætir honum
í fyrstu með nokkrum kvíða en
hægt og hægt lifnar landið og
náttúran fyrir henni, ekki síst þeg-
ar hún finnur töfrahring sem kem-
ur henni í samband við huldufólk.
Upp úr þeim fundi spretta mörg
ævintýri.
Hér er á ferðinni lipurlega
skrifuð barnabók uppfull af kímni
og ást á landinu og lífinu. Persónur
eru dregnar skýrum dráttum og
skoðaðar brosandi augum höfund-
Nýjar
hljómplötur
• Pétur Pan í Borgarleik-
húsinu er með lögum úr sýn-
ingu Leikfélags Reykjavíkur á
Pétri Pan sem frumsýnt verð-
ur á Stóra sviði Borgarleik-
hússins 2. í jólum.
Tónlist er eftir Kjartan
Ólafsson og söngverk Karl
Ágúst Úlfsson. Leikstjóri er
María Sigurðardóttir.
Útgefandi er Erkitónlist.
Japis sér um dreifingu.
Leiðbeinandi verð 1.990 kr.
ar. Kjartan beitir
þeirri aðferð að gefa
aðalpersónu sinni
djúpa innsýn í hugar-
heim og athafnir full-
orðna fólksins og af-
hjúpa það á sinn átt.
Kata sér nefnilega
mannlegan breyskleika
jafnvel og hver annar.
Þessi sýn hennar gerir
það að verkum að bók
Kjartans höfðar ágæt-
lega jafnt til full-
orðinna og barna.
Jafnframt hefur
Kata tveggja heima
sýn. Hún kynnist
huldufólki, ekki síst
vinkonu sinni Huldu, en þær stöllur
bralla ýmislegt saman. I því sam-
hengi notar Kjartan ýmis þjóð-
sagnaminni, jafnt úr sveit og þétt-
býli. Sagan berst m.a. til Kópavogs
þar sem reynt er að kanna álfa-
byggð þar. Kjartan fer hins vegar
þannig höndum um þessi þjóð-
sagnaminni að saga
hans er ótvírætt
nútímasaga. Huldu-
fólkið spilar rokktón-
list á þrettándakvöld
og ferðast um landið í
neðanjarðarlestum.
En umfram allt er
þetta þó saga um
vináttu og gildi lífsins
og blæbrigði. Töfrar
hringsins valda því að
aðalpersónan fær þá
sýn á heiminn að allt
sé lifandi. Ef til vill er
helgi lífsins og
náttúrunnar megin-
boðskapur þessa
verks.
Meginstyrkur þess er hins vegar
ískrandi kímni og sposk innsýn inn
í mannlegt eðli. Þetta er barnabók
sem höfðar jafnt til barna og full-
orðinna sem varðveita ennþá barn-
ið í brjósti sér.
Skafti Þ. Halldórsson
Kjartan
Árnason
Mannkynbætur
|SÍQUT®UR 5AMÚEtS50N"'
Siffþntður Gunnnrsdúttir
BÓKUCNKTArHÆSIITOPNUN HÁSKðlA ISlANOb
náskOlaotoacan
Pöli Skulason
B(J/
J?AU\ OG
WRÐIiR l'OIUÁKSSON
lýlSKUf' I SKÁIUOI'f I
I l.ll I K AStUllKSSON
Miiiniii^arrii