Morgunblaðið - 28.01.1999, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 28.01.1999, Qupperneq 4
4 FIMMTUDAGUR 28. JANÚAR 1999 FRETTIR MORGUNBLAÐIÐ Milljóna- þjófnaður í rafeinda- tækjaverslun BROTIST var inn í rafeindatækja- verslunina Rafeindatæki í Suður- veri í fyrrinótt og þaðan stolið verðmætum munum, auk þess sem talsverðar skemmdir voru unnar. Jón Sen eigandi verslunarinnar segir erfitt að meta tjónið en það sé að minnsta kosti vel á aðra millj- ón króna. Uppvíst varð um þjófnaðinn þeg- ar starfsmenn komu til vinnu í gærmorgun og kom þá í ljós að þjófarnir höfðu haft á brott með sér talsvert magn af talstöðvum, eða um fimmtíu stykki, og fjölda svokallaðra skanna. Málið er í rannsókn. -------------- • • Olvaður á kostnað vákorts LÖGREGLAN í Reykjavík hand- tók ölvaðan ökumann í gærmorg- un, eftir að ábendingar höfðu borist um að ekki væri allt með felldu varðandi manninn. Gerðu víðreist Hann reyndist hafa gert víðreist um höfuðborgarsvæðið og greitt fyrir ýmsar veitingar með vákorti, auk þess að greiða gistingu á hóteli og leigu á bílaleigubíl sem hann var á þegar lögreglan stöðvaði hann. Árvökulir starfsmenn hótelsins til- kynntu lögreglu að maðurinn væri ekki með traustan gjaldmiðil í fór- um sínum. Maðurinn hafði engar skýringar á þessu athæfi sínu að sögn lög- reglu, en hann mun ekki hafa kom- ið áður við sögu lögreglu Kostnaður vegna rúðubrota í grunnskólum tæpar 20 milljónir Kannað hvort koma eigi upp eftirlitsmyndavélum HJÁ Fræðsluráði Reykjavíkur er verið að kanna hvort koma eigi upp eftirlitsmyndavélum við grunnskóla borgarinnar til að fyrirbyggja rúðu- brot og önnur skemmdarverk, en á síðasta ári var kostnaður vegna ráðubrota í skólum tæpar 20 milljónir. Að sögn Ólafs Darra Andrasonar, forstöðumanns fjármálasviðs Fræðslumiðstöðvar Reykjavíkur, var síðasta ár óvenju slæmt, en eldri dæmi væru um rúðubrot fyrir 800-900 þús- und í einum skóla yfir eina helgi. Eftirlitsmynda- vélar hafa verið settar upp við tvo skóla í til- raunaskyni og segir Sigrán Magnúsdóttir, for- maðui’ Fræðsluráðs, að myndavélarnar sem sett- ar voru upp við Rimaskóla hafi gefið góða raun. Sigrán segir að skemmdarverk og ráðubrot í skólum hafi átt sér stað svo lengi sem elstu menn muna og ástandið að undanfómu sé ekki verra en oft áður. „Þar sem öryggismyndavélar hafa verið settar upp eins og í Rimaskóla hefur ástandið stórlagast,“ sagði hún. „Skólinn er nýr og fjöl- mennur og eftir að myndavélar voru settar upp á síðasta ári kom nánast ekkert fyrir. Það styður ákvörðun um að öryggismyndavélum verði komið upp, en við höfum verið feimin við það vegna um- ræðna sem spunnust í kjölfar myndavélanna sem settar voru upp í miðbænum. Reynslan sýnii- þó að þetta er nokkuð sem á að setja upp við skólana." f eftirlit á nýársnótt Sigrún sagði að skólastjóri Foldaskóla hefði greint frá reynslu sinni á fundi Fræðsluráðs, en á nýársnótt hefði hann, eins og reyndar margir aðrir skólastjórar í Reykjavík, farið eftirlitsferðir um skólann. Síðast kom hann þar klukkan tvö að nóttu án þess að verða var við umgang en starfs- maður skólans, sem átti leið um undir morgun, náði að mynda eldri unglinga og nemendur skól- ans, sem stóðu fyrir ráðubroti af ásetningi með því að hengja sprengjur á rúðurnar. „Það var því strax vitað hverjir voru skemmdarvargarnir í Foldaskóla og það mál er í rannsókn," sagði hún. „Það var því ekki eingöngu í Hagaskóla sem nemendur voru teknir með sprenejur. Sem for- manni Fræðsluráðs fannst mér þtetta erfitt, því það var eins og mál Hagaskóla væri sértækt - eins og svona gerðist ekki - en þetta er það sem skólastjórar hafa verið vakandi yfir undanfarin ár frá áramótum og fram yfir þrettándann en síð- an dregur úr skemmdarverkunum á öðrum árs- tíma.“ Sóun á fé Ólafur Darri sagði að kostnaður vegna ráðu- brota í grunnskólum á síðasta ári hefði verðið tæp- ar 20 milljónir. Sagði hann að það ár hefði verið óvenju slæmt og líklega það versta sem starfs- menn Fræðslumiðstöðvarinnar þekktu til. Nefndi hann dæmi sem að vísu væri eldra um að á einni helgi hefðu ráður verið brotnar fju-ir 800-900 þús. í einum skólanna. Sagði hann erfitt að segja til um hvaða árstími væri verstur. „Við viljum leggja áherslu á að skoða hvort við getum með fyrir- byggjandi hætti komið í veg fyrir skemmdar- verk,“ sagði hann. „Þetta er gífurleg sóun á fé og við sjáum fram á hvað við gætum gert margt fyrir þessar fjárhæðir, sem eru tugir milljóna." VÍÐA urðu ökumenn á höfuðborgarsvæðinu að leita ásjár lijálpfúsra samborgara til að bjarga sér af stað í snjónum í gærmorgun. Morgunblaðið/Árni Sæberg BYRJAÐ var að ryðja snjó af helstu leiðum snemma morguns og var þessi mynd tekin í Árbæjarhverfi. Miklar tafir en engin slys Vörubíll ók á dráttarvél ÖKUMAÐUR dráttarvélar sem var við snjómokstur á Austurvegi um miðjan dag í gær var fluttur með lítilsháttar meiðsli á heilsu- gæslustöðina á Selfossi eftir að vörubíll ók á dráttarvélina. Öku- maður vörabílsins slapp ómeidd- ur._ Ágætt veður var þegar slysið varð en talið er að hraðinn á vöra- bílnum hafi verið of mikill eða hálka með þeim hætti að erfiðlega hafi gengið að stöðva farartækið, samkvæmt upplýsingum frá lög- reglunni á Selfossi. TALSVERÐAR tafir urðu í um- ferðinni á höfuðborgarsvæðinu í gærmorgun eftir að snjóað hafði fyrr um morguninn en hvassviðri með snjókomu gekk niður þegar leið að birtingu. Lögreglan sagði umferð hafa gengið hægt, sér- staklega úr Grafarvogs-, Árbæjar og Breiðholtshverfum en ekki var vitað um slys og óhöpp voru að- eins minni háttar. Snjóruðningstæki Reykjavíkur- borgar voru gerð út af örkinni í býtið og náðu þau að ryðja flestar aðalleiðir þegar umferðarþunginn tók að aukast uppúr 7. Umferð gekk hægt og mynduðust langar bflaraðir til dæmis á Kringlumýr- arbraut og Miklubraut og fóru þær ekki nema fetið þegar hæg- ast gekk. Urn 10 leytið var um- ferðin að miklu leyti komin í samt lag og þá voru snjóruðningsmenn einnig farnir að sinna úthverfum og íbúðahverfum víðast hvar í borginni. Vilberg Ágústsson, yfirverk- stjóri hjá gatnamálastjóra, sagði síðdegis að þokkalega hefði geng- ið að ryðja húsagötur en kvað ljóst að verkinu lyki ekki fyrr en fyrri partinn í dag. Hann sagði borgarstarfsmenn jafnan hefja ruðning og saitburð á sjö bflum klukkan 4 að morgni og væri unn- ið á tvískiptri vakt. Stendur seinni vaktin frá 12.30 til 23. Auk þess væru síðan kallaðir út verktakar með margs konar gröfur og snjó- ruðningstæki til viðbótar. Voru 16 slíkir á ferð í gær frá 4 í 19 í gær- kvöld. Andlát VALDIMAR JÓHANNSSON Verk að vinna í dag, fimmtudag, kl. 17:00 Fundur um málefni heyrnarlausra og heyrnardaufra í Hafnarstræti 1. Táknmálstúlkur verður á fundinum. Á morgun, föstudag Opið í prófkjörsmiðstöðinni, Hafnarstræti 1, kl. 10-22. Heitt á könnunni. Prófkjörsmiöstöð Ástu R. Hafnarstræti 1-3 stmi 552 4333 Góðœtið til cillra! Ásta R. Jóhannesdóttir þingmaður Reykvíkinga VALDIMAR Jóhanns- son bókaútgefandi er látinn, 83 ára að aldri. Valdimai' fæddist 28. júní 1915 að Skriðu- landi í Arnameshreppi í Eyjafirði. Hann var sonur hjónanna Jó- hanns Páls Jónssonar bónda að Skriðulandi og Önnu Jónsdóttur húsfreyju. Valdimar lauk kenn- araprófi frá Kennara- skóla íslands árið 1937 og starfaði sem kennari við Samvinnuskólann næstu þrjú ár- in, en jafnframt blaðamaður á Nýja dagblaðinu. Auk þess sótti hann fýr- irlestra um íslenskar bókmenntir í Háskóla íslands í tvo vetur. Hann var ritstjóri tímaritsins Vöku frá 1938-39 og tók við starfi ritstjóra vikublaðsins Þjóðólfs árið 1940. Árið 1943-44 var hann blaðamaður við Al- þýðublaðið og árið 1945 stofnaði hann bókaútgáfuna Iðunni sem síðar varð stærsta útgáfufyr- irtæki landsins undir hans stjórn. Var hann forstjóri Iðunnar frá 1945-1988. Valdimai' var formað- ur Félags íslenskra bókaútgefenda um margra ára bil. Hann var einnig formaður Þjóðvarnarflokksins þegar hann var stofnað- ur árið 1953 og gegndi því embætti til 1960. Auk þess átti hann sæti í Fræðsluráði Reykja- víkur frá 1954-58. Gylfi Gröndal skráði endurminn- ingar Valdimars og komu þær út ár- ið 1997. Valdimar kvæntist Ingunni Ás- geirsdóttur og eignuðust þau þrjú börn: Ásgeir Má, Önnu og Jóhann Pál. Útför Valdimars verður gerð frá Dómkirkjunni miðvikudaginn 3. febrúar klukkan 15. Samkeppni um íbúðir á Grænlandi íslenskir arkitektar taka þátt TVEIMUR hópum íslenski'a arkitekta hefur nýlega verið boðið að taka þátt í norrænni samkeppni á vegum Grpn- landsbankens Erhevsfond um skipulag og hönnun íbúða á Grænlandi. Auk þeirra er boð- ið til þátttöku hópum arkitekta frá Grænlandi, Danmörku, Svíþóð, Færeyjum og Noregi. Islensku hóparnir eru: Batteríið ehf. - arkitektar. I þessum hópi era m.a. arki- tektarnir Arnór Skúlason, Gunnar Ottósson, Jón Ólafur Ólafsson, Kári Eiríksson og Sigurður Einarsson. Framkvæmdastjóri Batter- ísins er Sigurður Einarsson arkitekt. Skipulags,- arkitekta- og verkfrfræðistofan ehf. í sam- vinnu við Architecten en In- genieursburau Kristinsson B.v. í þessum hópi era m.a. arki- tektarnir Alena Anderlova, Gestur Ólafsson, Haukur Viktorsson, Guðrún Jónsdótt- ir, Jón Kristinsson, Knútur Jeppesen og Pétur Örn Björnsson. Áætlað er að á næstu árum sé nauðsynlegt að byggja 1.500 íbúðir á Grænlandi og þar af 1.200 íbúðir í höfuðborg Grænlands, Nuuk.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.