Morgunblaðið - 28.01.1999, Side 26

Morgunblaðið - 28.01.1999, Side 26
26 FIMMTUDAGUR 28. JANÚAR 1999 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ Páfí gegn St. Louis. Reuters. JÓHANNES Páll páfi ávarpaði þúsundir bandarískra ungmenna í St. Louis í Missouri í fyrrakvöld og hvatti þau til að nota trúna á Kiist til að berjast gegn því sem hann kallaði „dauðamenningu“. Hann brýndi einnig fyrir Bandaríkja- mönnum að spoma við ofbeldi, kyn- þáttahatri og skorti á virðingu fyrir mannslífinu. Páfi ræddi við Bill Clinton Bandaríkjaforseta skömmu eftir komuna til St. Louis í fyrrakvöld eftir fjögurra daga ferð til Mexíkó þar sem hundruð þúsunda manna Páfagarður Fyrsta sær- ingabókin frá 1614 Páfagarði. Reuters. PÁFAGARÐUR hefur gefið út fyrstu helgisiðabókina um andasæringar frá árinu 1614 og varað við því að djöfullinn hafi ekki enn lagt upp laupana. Jorge Arturo Medina Estevez kardináli sagði þegar hann kynnti bókina í fyrradag að þótt til væru kaþólikkar sem efuðust um tilvist djöfulsins væru aldagamlar kenningar kirkjunnar enn í fullu gildi og enginn vafi léki á því að djöfull- inn væri til. Bókin er 84 síður og á latínu. Textanum frá 1614 hefur verið breytt með tilliti til nútímavís- inda og særingamönnum kirkj- unnar er þar nú sagt í fyrsta sinn að ráðfæra sig við lækna áður en þeir hefja særingar ef vafi leikur á því að menn séu haldnir illum öndum. Sagt er að Jóhannes Páll páfi hafi eitt sinn sært burt ill- an anda úr manni í Páfagarði og hann hefur sagt nokkrum sinnum að hann trúi á tilvist djöfulsins. Hann sagði t.a.m. í Þýskalandi árið 1987 að hryll- ingur síðari heimsstyrjaldar- innar, m.a. útrýmingarbúðir nasista, væri sönnun þess að djöfullinn væri enn til. Gott hiilukerfi tryggir hámarks nýtingu á plássi hvort sem er í bílskúr eða vörugeymslu. Bjóðum allskonar lager- og hillukerii sem henta þinum þöríum. Mjög gott verð! Lyftitæki og trillur færðu einnig hjá okkur. Lagerlausnir eru okkar sérgrein MECALUX - gæði fyrir gott verð . UMBOÐS- OG HEILDVERSLUN gail SUNDABORG 1 • SÍMI568-3300 hvetur til baráttu „dauðamenning-u “ Reuters JÓHANNES Páll páfi ávarpar 20.000 banda- rísk ungmenni í St. Louis. komu saman til að fagna honum. Clinton lauk lofsorði á páfa fyrir trúarlega og andlega leiðsögn hans ó þeim 20 árum sem liðin eru frá því hann varð æðsti maður kaþólsku kirkjunnar. „Fólk þarf enn að heyra boðskap þinn, að allir séu börn guðs ... að allt óréttlæti fortíðar- innar réttlæti aldrei óréttlæti sam- tímans," sagði forsetinn. Páfi ávarpaði um 500 fjölskyldur sem tóku á móti honum í St. Louis og sagði að Bandaríkjamenn þyrftu að spoma við skorti á virðingu fyrir mannslífinu, hvort sem hann birtist í fóstureyðingum, líknardrápum eða hernaði. „Baráttan stendur núna milli menningar, sem virðir, hlúir að og fagnar gjöf lífsins, og menningar sem leitast við að lýsa því yfir að hópar manna - hinir ófæddu, þeir sem eru haldnir ólæknandi sjúk- dómum, lama menn og aðrir sem taldir eru „gagnslausir" - njóti ekki lagalegrar verndar." Páfi hvatti Bandaríkjamenn til að berjast gegn „dauðamenningunni“ og nefndi sem dæmi fátækt og hungur, vopnuð átök, eiturlyfja- smygl og kynþáttahatur. „Aðeins háleitari siðferðishugsýn getur örv- að menn til að velja lífið.“ Páfi ávarpaði einnig um 20.000 ungmenni á íþróttaleikvangi í St. Louis og sagði að þau þyrftu að nota ljós trúarinnar til að sjá í gegn- um myrkrið, sem einkenndist oft af ofbeldi glæpaflokka, kynferðislegri misnotkun, eiturlyfjum, vonleysi og örvæntingu. Páfi flutti síðan ávarp við messu í St. Louis í gær þar sem hvatti Bandaríkjamenn til þess að binda enda á dauða- refsingar, sem hann sagði bæði grimmdar- legar og ónauðsynlegar. Um 100.000 manns sóttu messuna. Rætt um Irak og Kúbu Clinton og páfi rædd- ust við í 20 mínútur í flugskýli Bandaríkja- hers íyrir orrustuþotur af gerðinni F-15 á flug- vellinum í St. Louis. Talsmaður páfa, Joaquin Navarro-Valls, sagði að þeir hefðu meðal annars rætt íraksmálið og bætti við að afstaða þeirra beggja til þess væri þeg- ar kunn. Páfagarður hef- ur gagnrýnt loftárásir Bandaríkjamanna á írak og sagt að hernaðarað- gerðir leysi ekki vanda- málin, heldur torveldi úrlausn þeirra. Þeir ræddu einnig þá ákvörðun Bandaríkja- stjórnar að slaka á viðskiptabann- inu á Kúbu tæpu ári eftir að páfí gagnrýndi bannið í sögulegri heim- sókn til landsins. „Það hafa orðið nokkrar breytingar en meira þarf til,“ sagði Navarro-Valls. Clinton sagði að páfi, sem er 78 ára, hefði verið „skýr, kröftugur og skarpur" á fundinum. „Heilsa hans er góð, þótt hreyfingarnar gefi það ekki til kynna. Hann er undraverð- ur maður." fhaldsmenn reiðast vegna fréttar um „hreinsanir“ Haffue seerir enera upp- stokkun á döfínni London. The Daily Telcgraph, Reuters. WILLIAM Hague, leiðtogi íhalds- flokksins breska, sagði í fyrrakvöld ekkert hæft í þeim fréttum að hann hygðist „hreinsa til“ í skuggaráðu- neyti sínu. „Það eru allir öruggir í sínu starfi í skuggaráðuneyti mínu,“ sagði Hague í samtali við frétta- mann BBC. „Það er engin upp- stokkun íyrirsjáanleg í nánustu framtíð.“ Mun Gillian Shephard, talsmaður flokksins í umhverfismálum, hafa gengið á fund Hagues allt annað en kát í bragði og krafið hann skýringa á frétt dagblaðsins The Daily Tel- egi-aph á þriðjudag þar sem hún var sögð eiga á hættu að verða rekin, auk nokkurra annarra af reyndustu liðsmönnum skuggaráðuneytisins. Mun Hague hafa fullvissað hana um að hún þyrfti engu að kvíða en að sögn vina Shepards hefði hún sagt af sér ella. Á þriðjudag hafði því verið hald- ið fram að ráðgjöfum Hagues þætti sýnt að flokknum hefði ekki tekist að bæta stöðu sína svo nokkru næmi undanfarnar vikur þrátt fyr- ir að ríkisstjórn Verkamanna- flokksins hefði lent í hverju hneykslismálinu á fætur öðru. Fyndist mörgum ráðgjöfum Hagu- es því nauðsynlet að hreinsa til í framvarðarsveit flokksins en þar er enn að finna marga þeirra sem aðild áttu að síðustu ríkisstjórn íhaldsmanna. Auk Shephards voru nefndir þeir Michael Howard og John Redwood. Þá var Norman Fowler, talsmaður í innanríkismálum, einnig sagður valtur í sessi. Mun Hague vera allt annað en ánægður því þetta tjaðrafok nú bindur í raun hendur hans, hafi hann á annað borð hugleitt upp- stokkun, þar sem hann hefur orðið að fullvissa þá sem helst voru nefndir til sögunnar um að þeir séu ekki á förum. Þá er bent á að of snemmt sé að ræða uppstokkun því Hague hefði hvort eð er aldrei látið til skarar skríða fyrr en að afloknum kosning- um til nýrra þjóðþinga í Skotlandi og Wales í maí og Evrópuþings- kosninga í júní. Er ekki heldur talið alveg víst að Hague hefði látið allt „gamla liðið“ fjúka á einu bretti, lík- legra væri að hann hefði reynt að framkvæma breytingarnar í tveim- ur skrefum á þeim tíma sem eftir lifir fram að næstu þingkosningum, árið 2002. Vilja taka upp „mýkri“ íhaldssemi Mesta athygli vöktu á þriðjudag þær staðhæfingar að John Redwood og Michael Howard yrðu látnir fjúka. Redwood, sem verið hefur talsmaður flokksins í viðskipta- og iðnaðarmálum, þykir hafa skotið föstum skotum á ríkisstjórnina og Howard, fyrrverandi innanríkisráð- herra sem nú sinnir utanríkismálum í skuggaráðuneyti Hagues, er sagð- ur samviskusamur og tryggur flokksformanninum. Þrátt fyrir að kunnugir segi þá hafa unnið gott starf í stjórnarandstöðu eru þeir hins vegar umdeildir og þykja ekki höfða til almennings. Ráðgjafar Hagues vilja nefnilega að hann reyni að skapa flokknum al- veg nýja og mannlegri ímynd, helst í anda þeirrar „mjúku íhaldssemi" sem repúblikaninn George Bush yngri hefur kynnt í ríkisstjóratíð sinni í Texas í Bandaríkjunum. Mun Hague einmitt hitta Bush að máli í næsta mánuði er hann fer vestur um haf. Leigubílstjórar óttaslegnir Ósló. Reuters. Sárefnisvörur Karin Herzog Kynning í dag kl. 15-18 í Fjarðarkaups Apóteki 09 R<ma Apóteki. NORSKIR leigubílstjórar lögðu í gær niður vinnu til að minnast fé- laga síns sem myrtur var í fyrri- nótt. Er þetta í annað sinn á tveim- ur mánuðum sem leigubílstjóri er skotinn í bíl sínum og eru bifreiða- stjórarnir afar slegnir vegna þessa. Talsmenn þeirra segja hættu á ófremdarástandi, þar sem hætta sé á að enginn vilji keyra að nætur- lagi. Umræðan um ofbeldi hefur tekið á sig nýja mynd á undanförnum mánuðum í Noregi vegna aukning- ar ofbeldisverka, mikilli fjölgun dauðsfalla vegna eiturlyfjaneyslu og árása á leigubílstjóra. Á þriðju- dag réðist ungur farþegi á bílstjóra með hníf en sá slapp lítið meiddur. Ekki er vitað hver ástæða morð- anna á leigubílstjórunum er en báðir voru skotnir undir stýri. Fleiri mannrán í Jemen ÞRÍR Þjóðverjar eru lentir í höndum mannræningja í Jemen, eftir því sem talsmaður stjómvalda greindi frá í gær. Sagði hann þýzka konu, bróður hennar og móður hafa verið numin á brott í Amran-héraði í norðurhluta landsins, senni- lega síðdegis á þriðjudag. Á sama svæði hafa brezk hjón og fjögurra manna hollenzk fjöl- skylda verið í haldi mannræn- ingja frá 17. janúar. Einnig var greint frá því í gær að fimm menn hefðu verið handteknir sem sagðir eru tengjast fimm Bretum og manni með franskt vegabréf sem réttarhöld hófust yfir í Jemen í gær, ákærðir um að hafa áformað morð og hermdarverk. Bardagar í Angóla TALSMAÐUR uppreisnar- hreyfingarinnar UNITA í Angóla sagði í gær að borgin Mbanza Congo hefði fallið í hendur hennar, en sá sem hef- ur borgina á valdi sínu mun geta stýrt samgöngum til og fró olíubænum Soyo. Þá sagði talsmaðurinn UNITA-skæru- liða einnig hafa hrundið sókn stjómarhermanna við borgina Malanje í norðurhluta landsins. Lahnstein tek- ur við olíu- málunum ANNE Enger Lahnstein, menningarmálaráðherra Nor- egs, mun taka við ráðuneyti Marit Arnstad olíumálaráð- herra þegar hún fer í barneign- arleyfí frá marzlokum, að því er Aftenposten greindi frá í gær. Búizt er við að Lahnstein segi af sér formennsku í Mið- flokknum í marz til að gefast tími til að sinna báðum ráðu- neytum. Línuþjófar í Kasakstan SKIPULAGÐIR hópar þjófa í Kasakstan stunda það nú að stela rafmagnslínum út um allt hið risavaxna fyrrum sovétlýð- veldi til að selja í brotajárn. Talsmaður orkuveitu landsins, KEGOC, skýrði frá þessu í gær. KEGOC hefur lagt inn kæru gegn mönnum sem voru gripnir við að hlaða leiðslum á vörubíl og stjórn veitunnar er að íhuga að ráða menn til að gæta hinna verðmætu orku- leiðslna. Georgía í Evr- ópuráðið UMSÓKN Kákasuslýðveldis- ins Georgíu um aðild að Evr- ópuráðinu, sem m.a. hefur eft- irlit með mannréttindum og lýðræði í Evrópu, fékk í gær skilyrta blessun Ewópuráðs- þingsins. Heimildarmenn inn- an þingsins sögðu í gær að lík- ur bentu til að hið fyrrverandi sovétlýðveldi gæti orðið 41. að- ildarríkið á næstu þremur til sex mánuðum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.