Morgunblaðið - 28.01.1999, Page 36

Morgunblaðið - 28.01.1999, Page 36
36 FIMMTUDAGUR 28. JANÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ é STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI: Árvakur hf., Reykjavík. FRAMKVÆMDASTJÓRI: Hallgrímur B. Geirsson. RITSTJÓRAR: Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. BARATTAN GEGN TÓBAKSREYKINGUM BARÁTTAN gegn tóbaksreykingum er nú háð af vax- andi hörku um heim allan. Þar fer fremst í flokki ríkisstjórn Clintons, Bandaríkjaforseta, sem á undanförn- um árum hefur hvað eftir annað tekið nýtt frumkvæði í þeirri baráttu. Tóbaksframleiðendur hafa brugðizt hart við og oft náð umtalsverðum árangri eins og t.d. á síðasta ári, þegar þeim tókst að koma í veg fyrir, að sett yrði tímamótalöggjöf á Bandaríkjaþingi. Þeir Clinton og Gore, en varaforseti Bandaríkjanna hefur haft ákveðna forystu í þessu máli vestan hafs, hafa þó ekki látið deigan síga og í stefnuræðu sinni í þinginu fyrir skömmu vék forsetinn enn einu sinni að tóbaksreykingum og taldi sjálfsagt, að tóbaksframleiðendur greiddu þann kostnað, sem heil- brigðiskerfið hefði af framleiðslu þeirra. Framlag band- arískra stjórnvalda til baráttunnar gegn tóbaksreyking- um er það mikilvægasta, sem gerzt hefur á þessum vett- vangi á þessum áratug og hefur haft hvetjandi áhrif á fólk um víða veröld. Hér á Islandi hefur orðið gjörbreyting á viðhorfi manna til reykinga og þar hafa margir lagt hönd á plóginn. I ræðu, sem forseti íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, flutti sl. föstudag á ráðstefnu Tannlæknafélags íslands, gerði hann baráttuna gegn tóbaksreykingum að umtalsefni á þann veg, að eftir var tekið og sagði m.a.: „Islendingar sýndu fyrr á öldinni hvaða árangri var hægt að ná í baráttunni gegn berklum, sem áður fyrr orsökuðu dauða þúsunda landsmanna... Sams konar vakning þarf að verða gagnvart reykingum, helzta sjúkdómavaldi sam- tímans, sem árlega leggur að velli hundruð Islendinga og milljónir manna um heim allan.“ Og forsetinn sagði ennfremur: „Hvernig stendur þá á því, að í þessum gróðursæla ræktunargarði skynsemi, vís- inda og rökhyggju skuli reykingar, afleiðingar tóbaks- notkunar á unga og aldraða, áhrif þeirra á börn í móður- kviði, á aukna eiturlyfjaneyzlu unglinga og útbreiðslu krabbameins og hjartasjúkdóma vera nánust vernduð fyr- ir herskárri gagnrýni og fordæmingu?“ Þessa afstöðu staðfestu forsetinn og Guðrún heitin Katrín í verki, þegar þau, að hennar frumkvæði, gerðu Bessastaði að reyklaus- um stað. Skaðsemi reykinga hefur verið sönnuð með svo ótvíræðum og afdráttarlausum hætti, að ekki þarf um að deila. Reykingum fylgir líka óþrifnaður, sem á að heyra sögunni til. Öll rök standa því til þess, að baráttan gegn reykingum verði hert svo um munar. Óhikað má fullyrða, að ræða forsetans sl. föstudag verður til þess að hleypa nýju lífi í þá baráttu. I þessum efnum eins og á svo mörgum öðrum sviðum er fámennið hér á íslandi kostur. Við eigum tiltölulega auðvelt með að ná til hvers einasta Islendings, sem rey- kir, með rök, upplýsingar og aðstoð við að hætta að reykja. Þótt sjálfsagt finnist mörgum fráleitt í dag að staðhæfa, að við gætum orðið reyklaus þjóð er það ekki eins fjarstæðukennt og það kannski hljómar. Við eigum að gera nýtt átak, með skipulegum upplýs- ingum um skaðsemi reykinga og skipulegri aðstoð við alla þá, sem vilja hætta að reykja. Það er líka tímabært að hefjast handa um að útrýma reykingum á vinnustöðum. Umburðarlyndi á ekki lengur við að þessu leyti. Þessa baráttu er hægt að taka upp víða annars staðar en á heimilum og vinnustöðum. Veitingahús hljóta að gera kröfu til þess, að ekki sé reykt vegna þess, að það veldur öðrum gestum óþægindum. Hótel eru byrjuð að leigja út reyklaus herbergi enda ættu gestir að eiga kröfu á af- slætti, ef þeim er ætlað að búa í herbergjum, þar sem reykt hefur verið. Reykingalykt getur setzt með þeim hætti í bíla, sem mikið hefur verið reykt í, að þeir hljóta að falla enn meira í verði í endursölu. Þeir, sem vilja reykja í bílum annarra, ættu að hafa hugfast, að með því eru þeir að verðfella bílana. Eru þeir hinir sömu tilbúnir að greiða kostnaðinn af því? Þeir, sem enn reykja, eiga ekki að líta á baráttu sem þessa í því ljósi, að þar séu öfgamenn á ferð. Þeir eiga þvert á móti að taka opnum örmum tilboði um aðstoð við að losna úr þeirri ánauð, sem reykingar eru. Mjög hörð barátta er milli manna um efsta sætið í prófkjöri Sam- fylkingarinnar í Reykja- vík sem fram fer um helgina. Verulegar líkur eru taldar á því að Alþýðuflokkurinn fái flest atkvæði í prófkjör- inu og þar með fyrsta sæti listans. Innan Alþýðubandalagsins ótt- ast menn að þetta raski jafnvæginu innan Sam- fylkingarinnar og hafi áhrif á gengi hennar í kosningunum. Egill --7-------------------- Olafsson fylgdist með baráttu Samfylkingar- innar 1 borginni. FLESTIR viðmælendur Morgunblaðsins eru þeirrai' skoðunar að Alþýðuflokkurinn fái fleiri atkvæði í prófkjöri Samfylkingar í Reykjavík en Alþýðubandalagið og það verði því alþýðuflokksmaður sem verði í forystu- sæti í prófkjörinu. Gangi þetta eftir verður Alþýðuflokkurinn í forystu í báðum stærstu kjördæmum landsins, en gengið er út frá því að alþýðuflokks- maður skipi efsta sæti framboðslista Samfylkingar á Reykjanesi. Að auki eru talsverðar líkur á að alþýðuflokks- maður verði í forystu lista Samfylking- ar á Norðmlandi eystra, þriðja fjöl- mennasta kjördæmi landsins. Sem kunnugt er urðu harðar deilur um fyrii'komulag prófkjörsins í Reykjavík, en niðurstaðan varð sú að halda svokallað ílokkaprófkjör með girðingum við fjórða og áttunda sætið. Með öðrum orðum geta kjósendur ein- ungis kosið frambjóðendur eins flokks öfugt við það sem var í prófkjöri R-lisU ans, sem haldið var fyrir borgarstjórn- ai'kosningaimar í vor. Tekist á um ,jafnvægi“ í Samfylkingunni Alþýðubandalagið fékk fleiri atkvæði í Reykjavík en Alþýðuflokkurinn í síð- ustu alþingiskosningum og fram- bjóðendur Alþýðubandalagsins komu sömuleiðis mun betur út úr prófkjöri R-listans en frambjóðendur Alþýðu- flokksins. Engu að síður ei-u flestir viðmælendur blaðsins á þeirri skoðun að Alþýðuflokkurinn muni koma betur út úr væntanlegu prófkjöri en Alþýðu- bandalagið. Meginskýiingin á þessu er sú að baráttan milli frambjóðenda Alþýðuflokksins virðist vekja meiri áhuga kjósenda en keppnin milli fram- bjóðenda Alþýðubandalagsins. Undir merkjum Alþýðuflokksins bjóða sig fram þrír þekktir og áberandi þingmenn, Ásta Ragnheiður Jóhannes- dóttir, Jóhanna Sigurðardóttir og Öss- ur Skarphéðinsson. Einnig eru í fram- boði Magnús Ámi Magnússon, sem ný- lega tók sæti á Alþingi, Stefán Bene- diktsson, fyrrverandi alþingismaður, og tveir velþekktir menn, Mörður Arnason varaþingmaður og Jakob Frí- mann Magnússon tónlistarmaður. Undh’ merkjum Alþýðubandalagsins býður sig fram einungis einn núver- andi þingmaður, Bryndís Hlöðvers- dóttir, og svo einn fyi-rverandi borgar- fulltrúi, Árni Þór Sigurðsson. Aðrh- frambjóðendur flokksins eru minna þekktir eða hafa starfað í pólitík í fremur skamman tíma. Auk þess virðast frambjóðendur Alþýðuflokksins leggja talsvert meiri fjármuni í prófkjörsbaráttuna en fram- bjóðendur Alþýðubandalagsins. Sömu- leiðis er fullyrt að frambjóðendur Alþýðuflokksins séu mun duglegri að hafa samband við kjósendur. Utan- kjörfundaatkvæðagreiðslan er sögð einkennast af smölun af hálfu Alþýðu- flokksins. Þá má ekki gleyma því að sterk hefð er íýrir prófkjörum hjá Alþýðuflokknum, en Alþýðubandalagið SLAGURINN um fyrsta sætið á lista Samfylkingarinnar í Reykjavík stendur dóttir og Össur Skarphéðinsson á fyrsta sætið og af hálfu Alþýðubandalags FRÁ fundinum þegar þau Guðni A-flokkari hart um fy hefur aldrei viðhaft prófkjör í Reykja- vík. Greinilegt er að innan Alþýðubanda- lagsins hafa menn nokki'ar áhyggjur af sterkri stöðu Alþýðuflokksins í próf- kjörinu. Þannig skrifar Svavar Gests- son alþingismaðm' pistil á heimasíðu sinni þar sem hann leggur mikla áherslu á að Alþýðubandalagið verði að sigra í prófkjörinu í Reykja- ______ vík. Ef flokkurinn tapar verði Samfylkingin „ekki lengur í jafnvægi11. Hann rökstyður þá hættu sem hann sér fyrir Samfylking- una í þessu jafnvægisleysi .......— og segir síðan: „Við kjó- sendur og stuðningsmenn Alþýðu- bandalagsins munum taka mark á þeim skilaboðum sem við sjáum í próf- kjörinu." Prófkjörsregl- urnar koma illa við suma frambjóðendur í Alþýðubandalagsfélagið í Reykjavík. Bryndís fær öflugan stuðning frá Birt- ingu-Framsýn, sem er eitt af alþýðu- bandalagsfélögunum í Reykjavík. Bryndís treystir ekki síst á að hún fái stuðning frá óflokksbundnu fólki sem stutt hefur Alþýðubandalagið, en Árni er sagður eiga meiri stuðning ft-á flokksbundnum alþýðubandalagsmönn- _________ um. Þó ber að hafa í huga að allstór hópur úr Alþýðu- bandalagsfélaginu í Reykja- vík sagði sig úr flokknum á síðasta ári vegna óánægju með ákvörðun flokksins um .. að efna til sameiginlegs framboðs með Alþýðu- flokknum og Kvennalista og gekk til liðs við framboð Steingríms J. Sigfús- sonar. Þetta fólk studdi flest Svavar Gestsson og hefði sjálfsagt stutt Árna Hörð barátta Árna Þórs og Bryndísar Reiknað er með að baráttan milli Árna Þórs og Bryndísar verði mjög hörð. Þau eru fulltrúar andstæðra fylk- inga innan Alþýðubandalagsins sem hafa eldað saman grátt silfur í mörg ár. Árni Þór er náinn samstarfsmaður Svavars Gestssonai' og sækir stuðning Þór í prófkjörinu. Þetta veikir framboð hans því eitthvað. Bryndís er eini núverandi þingmaður Alþýðubandalagsins sem tekur þátt í prófkjörinu og hefur því nokkuð sterka stöðu. Hún er auk þess einn af fáum þingmönnum flokksins sem hafa ein- dregið stutt sameiginlegt framboð. Vandi Bryndísar er sá að hún sækir ekki síst stuðning til óflokksbundins

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.