Morgunblaðið - 02.02.1999, Síða 68
...tannlæknar
mæla með því
Wrigim/'s
papgormlnt sugarfrao gum
Tiapawo
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 1999
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Isafoldarprentsmiðja kvartar til Eftirlitsstofnunar EFTA vegna Landssímans
Telur að bjóða eigi út
prentun símaskrárinnar
EFTIRLITSSTOFNUN EFTA
hefur samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins sent bréf til íslenskra yf-
irvalda vegna kvörtunar sem Isa-
foldarprentsmiðja hf. hefur lagt
fram gegn Landssíma íslands hf. út
af því að semja eigi við Odda hf. um
að prenta og binda inn símaskrána í
ár.
Kvörtunin barst ESA á föstudag
og var bréfíð sent samdægurs. Er
íslenskum yfirvöldum þar gefmn
J*Thálfur mánuður til að veita svör. I
kvörtuninni er vísað til reglugerðar
Evrópska efnahagssvæðisins,. sem
tekur til fjögurra geira, veitu vatns
og orku, samgangna og fjarskipta
og hefur verið sett í íslensk lög með
reglugerð um opinberar fram-
kvæmdir á Islandi. Samkvæmt
þessum reglum ber að bjóða út
verk, sem kosta meira en 600.000
ECU eða 50 milljónir króna. Samn-
ingsvirði prentunar og bands á
símaskránni er metið á 40 milljónir
króna.
Að auki kemur samkvæmt heim-
ildum fram í kærunni að Landssím-
inn hafi nýverið gert samning við
Skeljung hf. um kaup á pappír í
slmaskrána upp á rúmar 17 milljón-
ir króna. Samanlagt nemi kostnaður
við verkið því rúmum 50 milljónum
króna og sé það því útboðsskylt.
Ekki má skipta samningi
til að sniðganga reglur
Enn fremur mun þar vera tekið
fram að venja sé að prentsmiðja
leggi til pappír fyrir það, sem hún
tekur að sér að prenta, þótt þar geti
verið undantekningar á. Hins vegar
sé tekið fram í öllum reglugerðum
Evrópusambandsins að hver sá að-
ili, sem láti vinna verk, megi ekki
skipta samningi í því skyni einu að
sniðganga reglurnar. Að auki eigi
heildarupphæð allra samninga
varðandi einstakt verk að ráða við
mat á því hvort bjóða eigi verk út,
sé á annað borð hagkvæmt og rök-
rétt að skipta verkinu.
I kvörtuninni, sem Lögfræðistofa
Reykjavíkur leggur fram, en hún er
með skrifstofu í Brussel, er farið
fram á það að ESA gripi til viðeig-
andi ráðstafana til að tryggja að
farið sé eftir reglum Evrópska efna-
hagssvæðisins.
Hjá Eftirlitsstofnuninni fengust
þær upplýsingar þegar spurt var
um kvörtunina að ekki væri venja
að fjalla um mál sem væru á frum-
stigi.
Stefnir rík-
inu fyrir
ólögmæta
handtöku
FRANKLÍN Kristinn Steiner,
sem hlaut 20 mánaða fangelsis-
dóm íyiTr vopnaeign og fíkni-
efnamisferli í desembermánuði
1997, hefur höfðað skaðabótamál
á hendur ríkinu fyrir ólögmæta
handtöku þann 3. október 1997.
Stefnandi var handtekinn
fyrir framan heimili sitt án þess
að vera grunaður um ákveðna
refsiverða háttsemi og krefst
einnar milljónar króna í skaða-
bætur. Stefnandi var ásamt
þriggja ára gömium syni sínum
þegar handtakan fór fram og
segir í stefnunni að ekki hafi
verið hirt um að sinna baminu
þótt farið væri með fóðurinn
burt í járnum í lögreglubifreið.
Angi af stóru fjársvikamáli 1 Danmörku til rannsóknar hér
Viðskipti Norðmanns
á Islandi í rannsókn
EFNAHAGSBROTADEILD Ríkis-
lögreglustjóra vinnur nú að rann-
sókn á viðskiptum Norðmanns við ís-
lenskt fyrirtæki. Norðmaðurinn var
starfsmaður á skrifstofu Bamahjálp-
ar Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) í
Danmörku, en dönsk yfirvöld hafa
undanfarið rannsakað umfangsmikil
fjársvik og fjárdrátt hans.
Rannsóknin hér á landi beinist að
viðskiptum mannsins við íslenska
fyrirtækið í nafni UNICEF en í eig-
in þágu. Samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins mun maðurinn hafa
keypt loftpressur af íslenska fyrir-
/5tækinu sem fóru til Irak, en einnig
jeppa sem hann tók til eigin nota og
lét UNICEF greiða fyrir.
Jón Snorrason, saksóknari efna-
hagsbrotadeildar hjá embætti Ríkis-
lögreglustjóra, sagði að rannsókn á
málinu væri mjög langt komin en
engin ákæra hefði verið gefin út’í því.
„Þessi rannsókn var samkvæmt
beiðni frá dönskum yfirvöldum, sem
hafa verið að rannsaka í nokkur ár
fjárdrátt og fjársvik af hálfu norsks
manns sem var starfsmaður hjá
Bamahjálp Sameinuðu þjóðanna í
Danmörku. Hann hefur verið sakað-
ur um fjái'drátt íyrir hundruð millj-
óna íslenskra króna. Beiðnin sem
hingað kom varðaði viðskipti sem
voru við fyrirtæki hér á Islandi í
nafni UNICEF þar sem talið var að
UNICEF hefði verið látið greiða
fyrir það sem þeir voru ekki að
kaupa og féll í hlut þessa manns,“
sagði Jón.
Hann sagðist á þessu stigi ekki
geta sagt frá málinu í smáatriðum en
spurningin hlyti að vera um það
hvort einhver hér á landi væri með í
svikamyllu Norðmannsins, eða hvort
hann hefði átt viðskipti hér á landi til
að blekkja í samskiptum við hús-
bændur sína. Ef af ákæru yrði hér á
landi yrði hún fyrst og fremst gegn
persónum. Þá sagði hann að engin
ákæra hefði enn verið gefin út í öðr-
um Norðurlandanna.
Varaformannskjör 1 Sjálfstæðisflokknum
Geir og Sólveig í
GEIR H. Haai'de fjármálaráðherra
og Sólveig Pétursdóttir, varaformað-
ur þingflokks sjálfstæðismanna, hafa
lýst yfir framboði til embættis vara-
formanns Sjálfstæðisflokksins á
landsfundi flokksins sem haldinn
verður 11.-14. mars næstkomandi.
Þetta kemur fram í samtölum Morg-
Aunblaðsins við þau í dag.
Sólveig segir um hugmyndir
Bjöms Bjarnasonar menntamálai'áð-
herra um að leggja niður varafor-
mannsembættið í flokknum og skipa
fimm manna fi'amkvæmdastjóm að
þær séu of viðamiklar til að þær geti
tekið gildi á landsfundinum, þær
þurfi að ræða bæði þar og úti um
landið í kjölfarið. Hún tekur þó undir
þau orð Björns að átök og blokka-
Sólveig Geir H.
Pétursdóttir Ilaarde
myndun vegna varaformannskjörs
þjóni ekki hagsmunum sjálfstæðis-
manna.
Geir segist vera andvígur tillögum
Björns enda væri hann ekki að bjóða
sig fram til varaformanns ef hann
Stuttur fyrirvari til
skipulagsbreytinga
DAVÍÐ Oddsson forsætisráð-
herra, segir að hugmyndir Björns
Bjarnasonar menntamálaráð-
herra um að skipa fimm manna
framkvæmdastjórn í flokknum en
leggja niður embætti varafor-
manns hafi komið fram áður, en
þær séu athyglisverðar. „Hins
vegar er mjög stutt í landsfund
og það gæti orðið flókið að gera
breytingu af þessu tagi með svo
skömmum fyrirvara. Flokksfélög
myndu þurfa að fjalla um þessa
hugmynd," segir Davíð.
framboð
teldi embættið óþarft. Hann bendir á
að í flokknum starfi fimm manna
framkvæmdastjóm og virkni hennar
fari eftir ákvörðun flokksforystunnar
á hverjum tíma. Geir telur þó að þörf
sé á umræðu um skipulagsmál
flokksins, ekki síst vegna fyrirhug-
aðrar kjördæmabreytingar.
Geir segist hafa greint Davíð
Oddssyni forsætisráðherra frá
ákvörðun sinni um framboð til vara-
fonnannsembættis áður en hann hélt
til Mexíkó fyrir um tíu dögum en
vildi bíða með að greina frá henni til
að hafa ekki áhrif á kjör fulltrúa á
landsfundinn.
Sólveig segist hafa tekið ákvörðun
um fara í framboð vegna áskorana
sem borist hafi frá einstaklingum,
samtökum og hópum innan Sjálf-
stæðisflokksins. „Eg tel það fyllilega
tímabært og raunar nauðsynlegt að
Sjálfstæðisflokkurinn kalli eftir kon-
um til að gegna æðstu störfum á veg-
um flokksins og til þátttöku í ríkis-
stjórn," segir Sólveig.
Sigríður Anna Þórðai'dóttir al-
þingismaður hefur lýst því yfir að
vegna fjölda áskorana frá sjálfstæð-
ismönnum íhugi hún einnig framboð
til varaformannsembættisins.
■ Síðast/lö
Morgunblaðið/RAX
Dorgað í
FYRSTI febrúar er ágætis
dagur fyrir ákveðinn hóp
manna og Iyftist brúnin einna
helst á félögurn í Veiðifélagi
Mývetninga á þessum degi.
Þeir bíða eftir 1. febrúar með
eftirvæntingu ár hvert, en þá
inega þeir heíja veiðar í Mý-
vatni. Það eru einungis félagar
í Veiðifélaginu sem hafa leyfi
til að veiða í vatninu, en löng
hefð er fyrir veiðum í Mývatni,
jafnvel þótt það sé ísi lagt.
Mývetnsku veiðimennirnir
voru trúir hefðinni í gær og
skelltu sér út á ísinn, ýmist til
að dorga eða leggja net, þrátt
fyrir mikinn vind og slæma
færð á vatninu. Félagarnir Jón
Árni Sigfússon og Þorsteinn
Mývatni
Aðalsteinsson dorguðu í Geil-
inni í gær og höfðu þegar
fengið sína brönduna hvor.
Þeir segjast stunda dorgið
meira til gamans en af brýnni
nauðsyn, og hafa þeir báðir
dorgað í vatninu siðan þeir
muna eftir sér.
Þeir voru að vonum fegnir að
hafa nælt sér í silung í soðið og
röltu heim á leið um hádegisbilið
til að sjóða hann glænýjan. Það
þykir nefnilega ekki gott að
„vera með hann fastan í aftur-
endann“ eftir dag úti á ísnum,
að þeirra sögn, en það þýðir að
koma tómhentur heim. Á mynd-
inni situr Jón Árni á dorgar-
sknnunni sinni með „dorgina“
i höndinni.