Morgunblaðið - 02.02.1999, Blaðsíða 24
24 ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 1999
NEYTENDUR
MORGUNBLAÐIÐ
Hvert eiga neytendur að leita með kvartanir?
Ymsar stofnanir taka
við ábendingum
ÞAÐ eru mismunandi leiðir farnar
ef neytendur telja sig hlunnfarna í
viðskiptum eða álíta að þeir þurfl að
koma ábendingum á framfæri um
vafasama vöru eða viðskiptahætti.
Gallaðar vörur
Neytendasamtökin aðstoða neyt-
endur við að ná fram réttmætum
kröfum sínum hafi seljandi hafnað
kröfum neytandans. Jóhannes
Gunnarsson formaður Neytenda-
samtakanna segir að samtökin reki
kvörtunarþjónustu sem hægt er að
leita til sé gengið á rétt neytenda í
viðskiptum. „Til að tryggja betur að
neytendur geti náð fram rétti sínum
á fljótvirkan og ódýran hátt hafa
NS stuðlað að stofnun sex úrskurð-
arnefnda sem ná til fjármálafyrir-
tækja, vátryggingarfyrirtækja,
efnalauga og þvottahúsa, þjónustu
iðnaðarmanna og iðnaðarfyrirtækja
innan Samtaka iðnaðarins, ferða-
skrifstofa og verslana innan vé-
banda Kaupmannasamtakanna og
Samtaka samvinnuverslana."
Varasamar vörur
Abendingar um almennt vöruör-
yggi falla undir markaðsgæsludeild
Löggildingarstofu. Þangað getur
fólk komið með ábendingar sem
snerta almennar neytendavörur
eins og barnavörur, textflvörur,
húsgögn og verkfæri. Ennfremur
fellur undir þessa deild önnur vara
sem ekki er á ábyrgð annarra.
Deildin ber ábyrgð á eftirliti með
öryggi leikfanga og hættulegra eft-
irlíkinga. Finnist hættuleg vara á
markaði er almenningi bent á að
hafa samband við markaðsgæslu-
deild Löggildingarstofu.
Raftæki
Undir rafmagnsöryggisdeild
Löggildingarstofu falla öll mál sem
snerta öryggi raffanga og raflagna.
Ef fólk vill fá upplýsingar um hvort
rafvirki er löggiltur eða það er ósátt
við vinnu rafvirkja leitar það til
þessarar deildar Löggildingarstofu.
Ennfremur geta neytendur haft
samband ef þeir eru með gölluð raf-
föng á við lampa, brauðrist, þvotta-
vél eða eldavél.,
Matvæli
Öll matvæli sem era aðfinnslu-
verð falla undir Heilbrigðiseftirlit
sveitarfélaga. Sé meðferð matvæla
ábótavant, þau sóðalega meðhöndl-
uð á sölustað eða seld eftir síðasta
söludag er rétt að snúa sér til heil-
brigðiseftirlitsins. Séu innihaldslýs-
ingar á pakkningum ekki viðunandi,
merkingar rangar eða óleyfileg
aukefni í mat tekur heilbrigðiseftir-
litið við slíkum ábendingum.
Það er síðan heilbrigðissvið Heil-
brigðiseftirlitsins sem tekur við
ábendingum sem snerta reykingar
á reyklausum stöðum.
Villandi auglýsingar
Samkeppnisstofnun hefur eftirlit
með að farið sé að lögum í sambandi
við verðmerkingar á vörum og þjón-
ustu. Neytendur geta til dæmis leit-
að til Samkeppnisstofnunar ef vara
er ekki verðmerkt sem skyldi.
Að sögn Önnu Birnu Halldórs-
dóttur hjá Samkeppnisstofnun
geta neytendur leitað til stofnunar-
innar með efni sem snertir rangar
eða villandi auglýsingar og eins ef
auglýsingar misbjóða börnum og
unglingum. Þá segir hún að neyt-
endur eigi að fá upplýsingar um af-
borgunarkaup þegar um slíkt er að
ræða til að geta borið saman mis-
munandi lánakjör. Ákveðnar upp-
lýsingar eiga að tryggja réttindi
neytenda í pakkaferðum og þær
eiga að liggja frammi hjá ferða-
skrifstofum. Sé misbrestur þar á er
hægt að hafa samband við Sam-
keppnisstofnun.
Engin kvittun
Fái viðskiptavinir ekki kvittun
þegar þeir era að kaupa vöra eða
þeir verða varir við að söluverð er
ekki stimplað inn í kassa geta þeir
leitað til eftirlitsskrifstofu rílds-
skattstjóra með ábendingar sínar.
„Hafi einhver gi'un um að tekju-
skráningu sé ábótavant, ekki gefnir
út reikningar og ekki skráð í sjóðvél
geta viðkomandi komið með slíkar
ábendingar til okkar,“ segir Björg
Gunnlaugsdóttir starfsmaður ríkis-
skattstjóra. Hún segir nokkuð um
að leitað sé til eftirlitsstofunnar
með mál af þessum toga og bætir
við að reynt sé að skoða þær upp-
lýsingar sem berast og gera ráð-
stafanir til að koma þeim á fram-
færi við viðkomandi skattstofu.
ALOE VERA
*Creme Xtreme*
70% hr eint Aloe
§i |§ /f % ..
Útsölú^t'aðir:
Stella, Bankastra'ti 3, Lauga 111“. Apótek,
Kirkjuteigi 21, Snyrtivöiuversii iii Glæsibæ,
Álfheiraum 74, Hyge.t, t'iinglunni,
Vestmannaeyja Apót ok, Kaupí. Skagíirðinga,
Skagfírðingabúó, Siji rnu Ajiotuk , Ákureyri. j
tsímu^Tl 3635
1969-1999
30 ára reynsla
Einangnmargler
GLERVERKSMIÐJAN
Samvehk
Eyjasandur 2 • 850 Hella
® 487 5888 • Fax 487 5907
L- Gœðavara
Gjaídvara — inatar- og kaffislell. He
Allir verðflokkar. ^ m'(
VERSLUNIN
Laugavegi 52, s. 562 4244.
Heimsfrægir liönnuðir
in.a. Gianni Versace.
SMOKKNUM er stungið upp í
leggöngin og hringnum á smokkn-
um ýtt eins langt inn og
hægt er.
ÞEGAR innri hringurinn er kom-
inn inn fyrir lífbeinið er smokkur-
inn kominn á sinn stað.
Kvensmokkar
komnir á markað
Góð vörn
ef smokk-
arnir eru
notaðir rétt
NÝLEGA komu á markað hérlendis
smokkar fyrir konur en erlendis
hafa þeir verið fáanlegir um tíma.
„Þessir nýju smokkar gefa konum
aukið val í sambandi við notkun á
getnaðai'vörnum og sumum konum
finnst gott að nota þessa tegund
smokks þar sem þær axla þá
ábyrgðina sjálfar á að nota getnað-
aivörn," segir Sóley Bender, lektor í
hjúkrunarfræði við Háskóla Islands
og formaður fræðslusamtaka um
kynlíf og barneignir.
Hún segir að bæði sé hægt að
setja smokkinn upp fyrir samfarir
og þegar að þeim kemur. „Þetta
aukna val skiptir konur miklu máli
því hér á landi hefur úrval getnaðar-
varna verið takmarkað. „I sumum
tilvikum hafa karlmenn neitað að
nota smokk en með því að stjórna
sjálfar getnaðarvörninni geta konur
varið sig gegn smitsjúkdómum og
þungun."
Sóley bendir á að annað efni sé í
kvensmokkum en þeim smokkum
sem framleiddir era fyrir karla. „I
þessum smokkum er polyurethane
sem er þynnra efni en latex og mun
dýrara í framleiðslu. Færri tilvik
eru um ertingu af völdum þessa efn-
is.“
Aðspurð segir Sóley að smokk-
arnir hafi verið rannsakaðir erlendis
og bæði jákvæðir og neikvæðir eig-
inleikar hafi komið fram.
„Kostirnir era þeir að smokkarnir
auka kynferðislega ertingu hjá sum-
um konum og þær hafa bent á að
innri hringur smokksins veiti þeim
kynfullnægju fyrr en ella. Þá er
smokkurinn vel smurður sem hefur
dregið úr særindum við samfarir.
Auk þess hefur verið bent á að
kvensmokkurinn renni síður af en
karlasmokkurinn sem þýðir að and-
rúmsloftið verður afslappaðra.
Gallarnir eru hins vegar þeir að
sumum konum finnst smokkarnir
ekki auka örvunina og þær tala um
að kynferðisleg ánægja sé ekki eins
mikil og ef hann er ekki notaður.
Sumum finnst smokkurinn of stór
um sig og tala um að hann skerði
kynferðislega svöran.
Þá hafna sumir karlmenn hug-
mynd um að nota kvensmokk og
kvartað hefur verið undan að erfitt
sé að koma smokknum fyrir í
leggöngunum. Þá hafa borist kvart-
anir yfir því að það heyrist of mikið í
smokknum meðan á samföram
stendur."
- Er kvensmokkurinn örugg
getnaðai’vörn?
„Séu smokkarnir notaðir staðfast-
lega er talað um þungun í 5% tilvika
miðað við ársnotkun. Ef notkunin er
ekki stöðug geta um 15-25% kvenna
orðið þunguð yfir árið.“