Morgunblaðið - 02.02.1999, Blaðsíða 62

Morgunblaðið - 02.02.1999, Blaðsíða 62
62 ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM Myndbandalisti vikunnar Efstu myndirnar þaul- sætnar á listanum GWYNETH Paltrow og John Hannah fara með aðalhlutverkin í Rennihurðum eða „Sliding Doors“ sem er í 5. sæti þessa vikuna. MYNDBANDALISTI vikunnar er nú í fyrsta skipti birtur í Morgun- blaðinu. Af því tilefni var hringt í Stefán Unnarsson, framkvæmda- stjóra Myndmarks sem eru samtök myndbandaútgefenda og mynd- bandaleigna og hafa umsjón með ' listanum. - Hvernig er listinn unninn ? „Hringt er í útvaldar mynd- bandaleigur um allt land og leigu- tölurnar teknar, lagðar saman og útkoman fengin." - Ræður slembilukka vali á leig- um, eða við hvað er miðað? „Við veljum þær leigur sem við vitum að kaupa allar myndir. Við tökum púlsinn á mörgum leigum en segja má að útleiga mynda á einni leigu endurspegli nokkuð vel allan markaðinn. Það eru lítil frávik á milli myndbandaleiga." - Hvað hefurðu að segja um lista vikunnar? „Það eru litlar hræringar á listan- *- um frá fyrri viku og efstu myndir listans hafa verið nokkuð þaulsætn- ar og gengið mjög vel. Efsta mynd- in þessa vikuna, „Six Days Seven Nights“, heldur toppsætinu frá fyrri tveimur vikum, en hún er nátt- úrlega með leikara aldarinnar í að- alhlutverki, sjálfum Harrison Ford. í öðru sæti er myndin „Sensel- ess“ sem er lauflétt grínmynd með Marlon Wayans, en hann er mjög vinsæll hérlendis. Efstu myndimar á listanum eru allar tiltölulega nýjar myndir og eins og sjá má er ein af stórmyndum sumarsins, Godzilla, í fjórða sætinu. Einnig má benda á myndina með Bruee Willis, Merc- ury Rising, sem hefur gengið mjög vel en hún er búin að vera sjö vikur á listanum. Ný mynd á listanum er „Hope Floats“ með Söndm Bullock, en myndir með henni hafa yfirleitt náð miklum vinsældum hérlendis. Önn- ur ný mynd á listanum er danska myndin „Vildspor" sem tekin er á íslandi og skartar íslenskum leikur- um.“ - Hvernig er myndbandamarkað- urinn á þessum árstíma? „Það er erfitt að segja hvort þessi árstími er betri fyrir grín-, spennu eða dramatískar myndir en annar árstími. Myndbandamarkaðurinn er mjög jafn allt árið, þótt það leigan sé aðeins meiri á sumrin. Þá hefur fólk meiri tíma,“ segir Stefán að lokum. THE MASK O F ZOR.RO ANTOMO ANTHONY BANDERAS HOPKINS > VINSÆLUSTU MYNDBÖNDIN1 AISLANDI ...b Nr. var vikur Mynd Útgefandi Tegund 1. 1. 3 Six Days Seven Nights SAM myndbönd Gaman 2. 4. 2 Senseiess Skífan Gaman 3. 3. 2 Wrongfully Accused SAM myndbönd Gaman 4. 2. 3 Godzilla Skífan Spenna 5. 5. 4 Sliding Doors Myndform Gaman 6. 6. 7 Mercury Rising CIC myndbönd Spenna 7. 7. 5 Red Corner Warner myndir Spenna 8. 8. 6 Lethal Weapon 4 Warner myndir Spenna 9. NÝ 1 Hope Floats Skifan Drama 10. 10. 5 Object Of My Affection, The Skífan Gaman 11. 9. 4 He Got Game Bergvík Drama 12. 11. 4 Phantoms Skífan Spenna 13. 12. 7 Big Hit, The Skífan Spenna 14. 14. 8 City Of Angels Warner myndir Drama 15, NÝ 1 Substitute 2 SAM myndbönd Gaman 16. NÝ 1 Vild Spor Hóskólabió Spenna 17. 15. 8 Hush Skífan Spenna 18. 13. 9 Mon Who Knew Too Little Warner myndir Gaman 19. 19. 10 Wild Things Skífan Spenna 20. NÝ 1 Paulie CIC myndbönd Gaman irtTtrrti II m ■»i ■ nnniD ítti iirriTOi Á TÖKUSTAÐ. Góð saman þrátt fyrir hrakspár EFSTA myndin á myndbandalist- anum þessa vikuna er Sex dagar og sex nætur með þeim Harrison Ford og Anne Heehe í aðalhlut- verki en leikstjóri er Ivan Reit- man. Meirihluti myndarinnar er tekinn upp á Kau- ai, einni eyju Hawaii, en sú eyja er Harrison Ford ekki með öllu ókunnug því fyrir sautján árum var myndin um Indi- ana Jones, „Raiders of the Lost Ark“, tekin upp á svipuðum slóðum. Ford er ánægð- ur að vera kominn á gamalkunnar slóðir og ekki síð- ur yfir því að hann fær að fljúga í inyndinni. Ford er reyndur flugmað- ur og á nokkrar flugvélar sjálfur. Þess vegna kom annað aldrei til greina en hann sæi um flugatriðin og gátu því staðgenglar haft það náðugt á meðan. Heche segist hafa verið yfir sig hrifin af því að taka þátt í róman- tískri gamanmynd. „Ég vildi endi- lega vera ástfangin," segir hún hlæjandi. „Reyndar verður per- sónan ástfangin gegn vilja sínum, því hún er meira upptekin af því sem henni ber skylda til að gera en því sem hana langar til að gera. Myndin ætti því að höfða til þeirra sem eru óragir við sinn innri mann.“ Leikstjórinn Ivan Reitman segir að mikið hafi oltið á því að það til- finningahitinn í sambandi aðalleik- aranna skilaði sér til áhorfenda. Mikill aldursmunur er á þeim Ford og Heche, eða 27 ár, en Ford hefur ítrekað verið valinn einn kyn- þokkafyllsti leikari Hollywood. Hins vegar setti yfirlýsing Anne Heche um sam- kynhneigð sína og samband við Ellen DeGeneres stuttu fyrir tökur mynd- arinnar dálítið strik í reikninginn. Margir töldu að samleikur Heche og Fords væri dauðadæmdur því enginn myndi geta samþykkt þau sem ástfangið par eftir þessa yfirlýsingu. „í fyrstu hélt ég að þetta yrði auð- velt,“ segir leik- sljórinn. „Þarna eru karlmaður og kona strandaglóp- ar á eyju. En í rauninni liefur þetta verið erfið- asta mynd sem ég hef gert á ferl- inum.“ Reitman segir að hann og Harrison Ford hafi hist þegar Heche kom út úr skápnum og rætt hvort það hefði áhrif á val hennar í myndina. Þeir hefðu komist að þeirri niðurstöðu að hún væri rétta manneskjan í hlutverkið, enda upphaflega valin úr 100 um- sækjenda hópi. Okkur fannst að einkalíf hennar ætti ekki að skipta máli í þessu samhengi. Reitman viðurkennir þó að öll fjölmiðlaum- ræðan í kjölfar ákvörðunar Heche hafi skotið honum skelk í bringu. „En ég vissi að það neistaði á milli hennar og Ford í myndinni, og það var það sem skipti máli.“ ANNE Heche og Harrison Ford.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.