Morgunblaðið - 02.02.1999, Blaðsíða 58
MORGUNBLAÐIÐ
j>8 ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 1999
KIRKJUSTARF
I DAG
Safnaðarstarf
Hjónanámskeið
Hafnarfj arðarkirkju
'FRÁ haustinu 1996 hefur verið hald-
ið námskeið í Hafnarfjarðarkirkju
um hjónaband og sambúð undir yfir-
skriftinni „Jákvætt námskeið um
hjónaband og sambúð".
Mai-kmið námskeiðanna er að veita
hjónum og sambýlisfólki tækifæri til
þess að skoða samband sitt í nýju
ljósi, styrkja það og efla og íhuga
hvemig hægt er að taka tíma frá fyrir
hvort annað á jákvæðan hátt. Nám-
skeiðin eru öllum opin og henta bæði
þeim er lengi hafa verið í sambúð eða
hjónabandi, og hinum er nýlega hafa
ruglað saman reytum. Leiðbeinendur
á námskeiðunum eru sr. Guðný Hall-
grímsdóttir starfandi sóknarprestur
við Seltjarnarneskirkju og sr. Þórhall-
ur Heimisson sem er prestur við
Hafnarfjarðarkirkju.
Öllum pörum sem taka þátt í nám-
skeiðunum býðst að koma í einkavið-
töl í framhaldi af námskeiðinu, telji
þau sig hafa þörf fyrir frekari hand-
leiðslu. Einnig er hjónum vísað til
annarra fagaðila og ieiðbeint um hvar
hægt er að leita sér stuðnings sé þess
þörf. Fullt er á námskeið vorsins. Enn
er hægt að skrá sig á biðlista. Allar
nánari upplýsingar er að fá hjá sr.
Þórhalh.
Áskirkja. Opið hús fyrir alla aldurs-
hópa kl. 10-14. Léttur hádegisverður.
m. Samverustund foreldra ungra barna
kl. 14-16. Fundur í æskulýðsfélaginu
kl. 20.
Bústaðakirkja. Æskulýðsstarf kl.
20.30.
Grensáskirkja. Kyrrðarstund kl.
12.10. Orgelleikur, ritningalestur, alt-
arisganga, fyrirbænir. Léttur máls-
verður í safnaðarheimilinu eftir stund-
ina.
Hallgrímskirkja. Fyrirbænaguðs-
þjónusta kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum.
Háteigskirkja. Starf fyrir 6^-9 ára
böm kl. 17.
Laugaraeskirkja. „Þriðjudagur með
Þorvaldi“ kl. 21. Ljúf lofgjörðarstund.
Seltjamarneskirkja. Foreldramorg-
unn kl. 10-12. Æskulýðsstarf fyrir 8.
og 9. bekk kl. 20-22.
Arbæjarkirkja. Foreldramorgnar í
safnaðarheimilinu kl. 10-12.
Breiðholtskirkja. Bænaguðsþjónusta
með altarisgöngu kl. 18.30. Bænaefn-
um má koma til sóknarprests í viðtals-
tímum hans.
Digraneskirkja. Æskulýðsstarf kl. 20
á vegum KFUM & K og Digranes-
kirkju.
Fella- og Hólakirkja. Starf fyrir 9-10
ára stúlkur kl. 17.30. Æskulýðsstarf
fyrir 8. bekk kl. 20.30.
Grafarvogskirkja. Eldri borgarar,
opið hús kl. 13.30-15.30. Helgistund,
spilað, sungið, handavinna og kaffi-
veitingar. Æskulýðsstarf fyrir 8. bekk
kl. 20-22 í kirkjunni. KFUM fyrir
drengi 9-12 ára kl. 17.30-18.30.
„Kirkjukrakkar“ í Rimaskóla fyrir
böm 7-9 ára kl. 17-18.
Hjallakirkja. Bæna- og kyrrðarstund
kl. 18.
Kópavogskirkja. Mæðramorgunn í
safnaðarheimilinu Borgum í dag kl.
10-12.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. Opið hús
fyrir 7-9 ára börn frá kl. 17-18.30 í
safnaðarheimilinu, Linnetsstíg 6.
Vídalínskirkja. „Sálgæsla meðal
syrgjenda" - sr. Tómas Guðmundsson
flytur erindi um sálgæslu í Kirkju-
hvoli kl. 9 í kvöld.
Víðistaðakirkja. Opið hús fyiir 8-9
ára böm kl. 17-18.30. Aftansöngur og
fyrirbænir kl. 18.30.
HafnarQarðarkirkja. TTT starf fyrir
10-12 ára kl. 17-18.30 í Vonarhöfn
Strandbergs. Kristin íhugun í Stafni,
Kapellu Strandbergs kl. 21.30-22.
Heimsborgin - Rómverjabréfið, lest>
ur í Vonarhöfh kl. 18.30-20.
Keflavíkurkirkja. Kirkjan opin kl.
14-16. Starfsfólk verður á sama tíma í
Kirkjulundi. Fermingamndirbúning-
ur kl. 14.30-15.55 í Kirkjulundi.
Grindavíkurkirkja. Foreldramorg-
unn kl. 10-12.
Borgarneskirkja. Mömmumorgunn í
safnaðarheimilinu milli kl. 10 og 12.
Helgistund í kirkjunni sömu daga kl.
18.30.
Hvammstangakirkja. Foreldramorg-
unn kl. 10-12 á prestssetrinu.
Landakirkja, Vestmannaeyjum. Kl.
16-17 kirkjuprakkarar (7-9 ára) í
safnaðarheimilinu.
Krossinn. Almenn samkoma kl. 20.30 í
Hlíðasmára 5. Allir velkomnir.
Hvítasunnukirlgan Ffladelfi'a. Sam-
vera á vegum systrafélagsins kl. 20.
Ester Jakobsen flytur hugleiðingu.
Allar konur hjartanlega velkomnar.
Lágafellskirkja. Æskulýðsstarf ferm-
ingarbama. á miðvikudögum kl. 20.
Umsjón Sigurður Rúnar Ragnarsson.
Draetír-buxur
blussur-píls
Míkíð úrval í lítlum stœrðum.
Nýkomíð míkíð úrval
ajstökum buxum.
Verðfrá kr. 1.690.
Nýbýlavegí 12, Kóp.,
stmís54 4433
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Bútasaumssýn-
ing í Hafnarborg
LISTGAGNRÝNANDI
Mbl. fór á sýninguna i
Hafnarborg og skrifar um
hana, en af takmarkaðri
þekkingu sém bendir til
að hann stundi ekki búta-
saum. Sýningin í Hafnar-
borg er skemmtileg og
yndislegt að sjá hana til
að skoða litasamsetningar
Fassett, sem er hreinn
snillingur í því að setja
saman liti og fá út sterk
áhrif. Hvað bútasauminn
sjálfan varðar er þessi
sýning hins vegar ekkert
framúrskarandi, því það
er einfaldlega ekki það
sem Fassett er að setja
fram. Hann notar einfóld
form og býr til úr þeim oft
á tíðum bráðskemmtileg
mynstur með litunum og
mikiu fremur ætti að
flokka teppi hans sern list
en nokkuð annað. Á bak
við hann er hið góða fyrir-
tæki Rowan, sem fram-
leiðir í kössum kit eftir
hugmyndum Fassett sem
seld era um allan heim.
Hvað varðar athuga-
semdina um „stjömu-
mynstrað teppi á jarðhæð
sem gert er úr rifnu og
götóttu efni“ þá er við-
komandi teppi eitt af
þremur antik-teppum á
sýningunni og var ekki
gert úr rifnu efni, heldur
hefur tíminn farið svo með
það. Teppið er sem sagt
rúmlega hundrað ára
gamalt listaverk sem hef-
ur varðveist ákaflega vel
til þess að gera og má
hverjum sem skoðar sýn-
inguna vera það dagljóst
að hvorki stfll þess né lita-
val er í neinu samræmi við
verk listamannsins.
En rétt er það, að Fas-
sett kemst upp með „hæp-
inn“ frágang á verkum
sínum (aðeins eitt teppi,
röndóttar stjömur, stung-
ið á óhefðbundinn hátt
með grófu bródegami er
saumað af honum sjálfum,
hitt er saumað af Lizu) og
hugsanlega er ástæðan sú
að á þeim stutta tíma sem
hann hefur stundað þessa
list hefur honum einfald-
lega ekki gefist tími til að
tileinka sér þau sjónarmið
að horn eigi að standast á
og að vattstungan sé eins
stór hluti af teppinu og
sjálfur saumaskapurinn
við efri hlutann, toppinn.
Það má heldur ekki
gleyma því að Fassett er
ekki bútasaumari sjálfur
heldur. (Það er yfirleitt
talað um stungin teppi,
ekki vatteruð.) Svo er
hann jú listamaður og
hönnuður fyrst og fremst
og vinnur sem slíkur eftir
öðram lögmálum en
venjulegt fólk. (Skoðun
bréfritara.)
En Storkurinn á heiður
skilinn fyrir að koma með
þessa sýningu sem vafalít-
ið á eftir að hafa mikil
áhrif á litaval og hug-
myndir þefrra fjölmörgu
Islendinga sem stunda
bútasaum í dag sér til
ánægju.
Vigdís Stefánsdóttir,
ritstjóri Islenska búta-
saumsblaðsins og
áhugamanneskja um
bútasaum.
Fyrirspurn til RUV
HEFUR einhvern timann
verið athugað að koma af-
notagjöldum ríkisútvarps
og sjónvarps inn í skatta-
kerfið?
Notandi.
Tapað/fundið
Talstöð í óskilum
TALSTÖÐ Morotorola
Radius SP-300 fannst á
Dvergshöfða. Uppl. í síma
552 8201 eftir kl. 17.
GSM-sími týndist
GSM-sími týndist á
Laugavegi eða við JL-hús-
ið sl. föstudag. Skflvís finn-
andi hafi samband í síma
565 6229.
Dýrahald
Svartur labrador
SVARTUR labrador
blendingur týndist fyrir jól
frá Hverfisgötu í Reykja-
vík. Hann var með hvítar
málningarslettur á rófu og
víðar. Þeir sem hafa orðið
hans varir hafi samband í
síma 562 5262.
Stór, brúnn hestur
týndist í Kjós
BRÚNN, frekar stór 8
vetra hestur týndist í
haust frá Möðravöllum í
Kjós. Mark: boðbfldur aft-
an hægra. Þeir sem hafa
orðið hans varir hafi sam-
band í síma 566 6472 eða
566 7977.
Læða í óskilum
í Þingholtunum
LÍTIL þrílit læða,
(hálfstálpaður kettlingur)
er í óskilum á Urðarstíg í
Þingholtunum. Þeir sem
kannast við kisu hafi sam-
band í síma 552 5104.
SKAK
llmsjóii Margeir
Pétursson
HVÍTUR leikur og vinnur.
ÞETTA hróksendatafl kom upp á
Hoogovens stórmótinu í Hollandi sem
lauk á sunnudaginn. Jan Timman
(2.649) hafði hvítt og átti leik gegn
Alexander Yermolinsky (2.597) frá
Bandaríkjunum.
39. He8! og svartur gafst upp, því
bæði 39. - Kxe8 40. h7 og 39. - Kg6
40. Hxe6+ er alveg voniaust. Gaiy
Kasparov tryggði sér sigur á mótinu
með jafntefli við Kramnik í síðustu
umferð. Lokastaðan: 1. Kasparov 10
v. af 13 mögulegum, 2. Anand %Vz v.,
3. Kramnik 8 v., 4.-7. Ivan Sokolov,
Piket, Shirov og Timman 7 v., 8.-9.
Ivantsjúk og Svidler 6V4 v., 10. Topa-
lov 6 v., 11. Kasimdsjanov 5 v., 12.
Van Wely 4'A v., 13. Yermolinsky 4 v.
14. Reindermann 3 v.
Bermúda mótið: Frakkinn Bacrot er
efstur með 714 vinning af 9 möguleg-
um, en Helgi Áss Grétarsson er í öðru
sæti með 6V2 v. Waitzkin frá Banda-
ríkjunum er þriðji með 6 v. Þröstur
Þórhallsson er í miðjum hópi kepp-
enda með 4!4 v.
Skákþing Reylgavíkur: Jón Viktor
Gunnarsson er efstur með 6V2 v. af 7
mögulegum. Bragi Þorfinnsson og
Kristján Eðvarðsson koma næstir
með 5V4 v.
HVERNIG finnst þér að vera
búinn að fá eigin skrifstofu?
UTSALAN
hefst í dag kl. 8.00
Litir: Svartir og brúnir
Stærðir: 41-46
Tegund: A.M.
Verö 2.995
Mikið úrval á utsölunni
Póstsendum samdægurs
r ~oppskórinn - VELTUSUNDI V/INGÓLFSTORG SÍMI 552 1 21 2
Víkverji skrifar...
TÍMI Jóhönnu Sigurðardóttur
virðist vera runninn upp eftir
prófkjör Samfylkingarinnar í
Reykjavík en hún er ótvíræður sig-
urvegari prófkjörsins. Hið sama má
segja um aðra fulltrúa Þjóðvaka
sem tóku þátt í prófkjörinu en þrjú
af sex efstu sætum listans eru skip-
uð þingmönnum og varaþingmönn-
um Þjóðvaka frá síðustu Alþingis-
kosningum. Einnig vekur athygli
hver hlutur kvenna er á lista Sam-
fylkingarinnar en fjórar konur eru í
fimm efstu sætum listans. Virðist
því vera Ijóst að sú skoðun sem oft
hefur heyrst að konur komi illa út
úr prófkjörum eigi ekki við rök að
styðjast líkt og konur í prófkjöri
Samfylkingarinnar í Reykjavík og
Sjálfstæðisflokksins í Reykjanes-
kjördæmi hafa sýnt og sannað.
Kunningi Víkverja, sem aldrei
hefur fundið sig innan neins flokks
á vinstri vængnum en hefur stutt
sameiningu vinstri manna, tók þátt í
prófkjörinu líkt og ríflega 11 þús-
und Reykvíkingar. Hann var hins
vegar mjög ósáttur við að þurfa að
merkja við ákveðinn flokk í próf-
kjörinu og velja fjóra einstaklinga
sem buðu sig fram í nafni þess
flokks. Þótti honum lítið fara fyrir
samfylkingu og þeim sameiningar-
vilja með því að skikka kjósendur til
að velja einstaklinga eyrnamerkta
ákveðnum flokki. Lenti hann í tölu-
verðum vandræðum með að velja
fjóra í því hólfi sem hann valdi, en
hann hefði gjarnan viljað velja fólk
úr öðrum hólfum. Einstaklinga sem
hann taldi hæfa til þess að skipa
fjögur efstu sæti lista Samfylking-
arinnar hvort sem þeir buðu fram í
hólfi Alþýðuflokks, Alþýðubanda-
lags eða Kvennalistans.
XXX
VÍKVERJI brá sér á dögunum í
leikhús til þess að sjá leikritið
Hinn fullkomni jafningi eftir Felix
Bergsson sem jafnframt er eini
leikarinn í sýningunni. í leikritinu
er sögð saga fimm íslenskra karl-
manna sem eiga það sameiginlegt
að vera samkynhneigðir.
í Ieikritinu er komið inn á ýmsa
viðkvæma hluti eins og þegar sam-
kynhneigðir koma „út úr skápnum",
hvernig fjölskyldur þeima taka
þeim tíðindum, annað hvort með
þögninni eða sem eðlilegum hlut,
feluhomma og þar fram eftir götun-
um. Inn í textann fléttast ljóð
bandaríska ljóðskáldsins Walt
Whitman sem Jón Ásgeir Sigur-
vinsson hefur þýtt á snilldarlegan
hátt fyrir uppfærsluna.
Það er óhætt að segja að leikhús-
ferðin hafi staðið fyrir sínu. Fór þar
saman frábær leikur, góður texti
þar sem írónían skín í gegn og mál-
efni sem þarft er að vekja umræður
um á fordómalausan hátt, það er
samkynhneigð.
Mikil þorri fólks telur sig vera
lausan við fordóma en þegar á reyn-
ir er raunin önnur. Oll eigum við
einhverja fordóma við að glíma
þrátt fyrir allt. Fordómar geta verið
af ólíkum toga en fordómar gagn-
vart samkynhneigðum og fólki af
öðrum litarhætti og kyni eru þeir
sem hafa verið mest áberandi í um-
ræðunni. Því er leiksýningin Hinn
fullkomni jafningi þörf áminning til
fólks um að líta í eigin barm varð-
andi fordóma og hverjar afleiðingar
þeirra geta orðið fyrir þann hóp
sem verður fyrir fordómum í þjóð-
félaginu.