Morgunblaðið - 02.02.1999, Blaðsíða 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Kosið var um efstu sæti á framboðslista sjálfstæðismanna á Norðurlandi eystra
HALLDÓR Blöndal samgönguráð-
herra hlaut kosningu í fyrsta sæti á
framboðslista sjálfstæðismanna á
Norðurlandi eystra á þingi kjör-
dæmisráðsins sem fram fór um
helgina. Tómas Ingi Olrich alþingis-
maður hlaut kosningu í annað sætið,
Soffía Gísladóttir, félagsmálafulltrúi
á Húsavík, hlaut kosningu í þriðja
sætið og Asgeir Logi Asgeirsson, út-
gerðarmaður á Ólafsfirði, hlaut
kosningu í fjórða sætið.
Uppstillingarnefnd flokksins lagði
fram lista á þingi kjördæmisráðsins
og var hann sjálfkjörinn að öðru
leyti en því að mótframboð komu
fram í fjögur efstu sætin.
Sigurjón Benediktsson, tannlækn-
ir á Húsavík, bauð sig fram í fyrsta
sætið á móti Halldóri Blöndal og
hlaut Halldór tæp 80% atkvæða í
kosningunni. Asgeir Logi Asgeirs-
son bauð sig fram í annað sæti list-
ans á móti Tómasi Inga Olrich og í
kosningu á milli þeirra hlaut Tómas
Ingi tæp 70% atkvæða.
Þær Soffía Gísladóttir og Elín
Hallgrímsdóttir á Akureyri tókust á
um þriðja sæti framboðslistans og
hlaut Soffía tæp 60% atkvæða í
kosningunni. Þá var kosið milli
þeirra Asgeirs Loga Ásgeirssonar,
Ónnu Þóru Baldursdóttur og Krist-
jáns Ingvarssonar í fjórða sætið. Til
að fá meirihluta atkvæða var kosin
önnur umferð um fjórða sætið milli
þeirra Asgeirs og Önnu og hlaut As-
geir þá um 55% atkvæðanna.
Gott jafnvægi
á listanum
Halldór Blöndal bendir á að engin
tillaga hafi komið fram fyrir þingið
um það að halda prófkjör en segir að
framboð Sigurjóns Benediktssonar
hafi þó ekki komið sér á óvart. „Það
hafði legið fyrir að Sigurjón legði
mikið upp úr því að ná þriðja sæt-
inu. Sá róður var erfiður og kannski
ekki mjög sanngjarn því það sjónar-
mið var víða uppi að kona skyldi
skipa þriðja sætið, eins og raunin
varð á.“
Halldór tekur ekki undir áhyggj-
ur af kynjaskiptingu á lista sjálf-
stæðismanna eftir að Anna Þóra
Baldursdóttir varð undir í barátt-
unni um fjórða sætið. Hann bendir á
að einn af þremur efstu frambjóð-
endum sé kona og segir að gott jafn-
vægi sé á listanum.
Halldór segir að enginn klofning-
ur sé kominn upp meðal sjálfstæðis-
manna eftir þingið og kosningarnar,
engin persónuleg átök hafi átt sér
stað þar.
„Mér finnst þetta ágætis niður-
staða. Það kemur þarna inn nýtt
fólk, sem er ungt og hefur breiðan
bakgrunn," sagði Tómas Ingi í sam-
tali við Morgunblaðið. „Þessir tveir
nýju aðilar á listanum ná mjög vel
yfir þau tvö svið sem eru mjög mik-
ilvæg á þessu svæði, þ.e. annars
vegar þjónustusviðið og hins vegar
atvinnulífið, útveginn og fiskvinnsl-
una.“
Tómas Ingi sagðist telja fram-
boðslistann vera mjög sterkan og
mikil eining væri 1 flokknum eftir
þing kjördæmisráðsins.
„Það kom fram hjá þeim sem
buðu sig þarna fram í 1. og 2. sætið
að þeir myndu starfa af heilum hug
með okkur, þannig að það er engin
Halldór Blöndal
hlaut tæp 80% at-
kvæða í fyrsta sætið
Morgunblaðið/Benjamín Baldursson
EFSTU menn á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Norðurlandskjördæmi eystra.
FULLTRÚAR Akureyringa á kjördæmisþingi Sjálfstæðisflokksins í Norðurlandskjördæmi eystra sem haldið
var um helgina.
óeining í hópnum eftir þessi mál. Við
horfum því með ánægju til fram-
haldsins," sagði hann.
Ekki staðið við
samþykktir
Sigurjón Benediktsson sagði að
hann væri mjög ánægður með að
hafa fengið 22% atkvæða þegar
hann bauð sig óundirbúið fram gegn
Halldóri Blöndal sem uppstillingar-
nefnd hafði gert tillögu um í 1. sæti
framboðslistans.
„Ég hafði ætlað mér að gefa kost
á mér í þriðja sætið og hafði reiknað
með að það yrði fylgt þeim sam-
þykktum sem var búið að gera á
kjördæmisþingi um að kosið yrði um
hvert sæti. Menn gátu ekki staðið
við það og ég ákvað að taka ekki
þátt í því nema á þennan hátt,“ sagði
Sigurjón.
Hefði viljað sjá
fleiri konur
Soffía Gísladóttir sagðist vera
mjög ánægð með niðurstöðuna og
hún liti á sig fyrst og fremst sem
fulltrúa unga fólksins í kjördæminu
og kvenna.
„Þetta sæti gefur mestu mögu-
leikana af þeim sætum sem í boði
voru á því að komast að minnsta
kosti inn sem varaþingmaður og það
er mikilvægt að það sé kona,“ sagði
Soffía. „Ég hef trú á þessum lista
og þrátt fyrir að hann hafi breyst frá
því sem frá uppstillinganefnd kom
þá held ég að þetta sé sterkur listi.
Ég hefði þó viljað sjá fleiri konur í
sex efstu sætunum og helst jafna
skiptingu.“
Vill aukna áherslu á byggða-
og sjávarútvegsmál
Ásgeir Logi Ásgeirsson sagði að
tekist hefði verið á á drengilegan
hátt á þingi kjördæmisráðsins.
Hann sagði að framboð sitt í annað
sæti hefði snúist um það að dreifbýl-
isfólk í kjördæminu vildi leggja
aukna áherslu á byggða- og sjávar-
útvegsmál.
„Það er málaflokkur sem okkur
finnst að hafi kannski orðið frekar
útundan hjá flokknum. Við komumst
í rauninni frá síðustu kosningum án
þess að hafa kannski neina beina út-
listun á því hvernig við ætluðum að
taka á ákveðnum málaflokkum. Við
vildum fá upp umræðuna á þinginu
um þessi mál, og ég mat það þannig
að þetta væi;i besta leiðin til að gera
það,“ sagði Ásgeir.
Hann sagði það bæði óvænt og
ánægjulegt að þingfulltrúar skyldu
sýna sér það traust að styðja hann í
fjórða sætið, og sagðist hann telja að
þeir sem skipa framboðslistann ættu
að geta náð vel saman.
I 5. sæti á framboðslistanum er
Baldvin Kr. Baldvinsson bóndi, Suð-
ur-Þingeyjarsýslu, í 6. sæti er Anna
María Élíasdóttir bæjarfulltrúi,
Ólafsfirði, í 7. sæti er Helga Rún
Traustadóttir nemi, Akureyri, í 8.
sæti er Rúnar Þórarinsson sölu-
stjóri, Öxarfirði, í 9. sæti Sigfríð
Valdimarsdóttir fiskvinnslukona,
Dalvík, í 10. sæti er Bergur Guð-
mundsson nemi, Raufarhöfn, í 11.
sæti er Jóhanna Ragnarsdóttir hár-
greiðslumeistari, Akureyri og í 12.
sæti Magnús Stefánsson bóndi,
Eyjafirði.
Skipulagsnefnd
Akureyrarbæjar
Kynningarfundur um tillögu að skipulagi fyrir fjöl-
býlishús vestan Mýrarvegar, norðan Hamarsstígs.
Skipulagsnefnd boðar til almenns kynningarfundar miðvikudaginn
3. febrúar nk. kl. 20.30 í félagsmiðstöðinni í Víðilundi 24, þar sem
tillaga að skipulagi lóðar á svæði milli Mýrarvegar (norðan Hamars-
stígs) og lóða við Kotárgerði verður kynnt. í tillögunni er gert ráð
fyrir tveim 5 hæða fjölbýlishúsum fyrir aldraða með samtals 30
íbúðum.
Fundurinn er bæði ætlaður þeim sem vilja kynna sér hugmyndir um
íbúðabyggingar fyrir aldraða og þeim sem búa eða eiga húseignir í
næsta nágrenni skipulagssvæðisins. Þeir sem áhuga hafa á málinu
eða eiga hugsmuna að gæta er bent á að mæta á fundinn og taka
þátt í umræðum um tillöguna.
Skipulagsstjóri Akureyrar.
Prófkjör Samfylkingarinnar
á Norðurlandi eystra
Kristín Sigursveinsdóttir
meðal frambjóðenda
Eyjafjarðar-
prdfastsdæmi
Prófastur
settur í
embætti
BISKUP íslands, herra Karl
Sigurbjömsson, setur sr. Hann-
es Öm Blandon, sóknarprest í
Laugalandsprestakalli, inn í
embætti prófasts í Eyjafjarðar-
prófastsdæmi við messu í Grund-
arkirkju, Eyjafirði, þriðjudaginn
2. febrúar kl. 20:30.
Sr. Birgir Snæbjörnsson lét af
því embætti um síðustu áramót
að eigin ósk.
KRISTÍN Sigursveinsdóttir, iðju-
þjálfi á Akureyri, mun taka þátt í
prófkjöri Samfylkingarinnar á
Norðurlandi eystra. Kristín tekur
þátt í prófkjörinu á vegum Alþýðu-
bandalagsins. Þetta var ákveðið á
fundi kjörstjórnar Samfylkingar-
innar á Norðurlandi eystra og er
með þessu verið að jafna nokkuð
hlutföll flokka og kynja í prófkjör-
inu. Frestur til að tilkynna þátt-
töku rann út í síðustu viku og lá þá
fyrir að fimm manns myndu taka
þátt, Svanfríður Jónasdóttir al-
þingismaður, Finnur Birgisson
arkitekt, Sigbjörn Gunnarsson
sveitarstjóri og Pétur Bjamason
framkvæmdastjóri, allir fyrir Al-
þýðuflokk en Örlygur Hnefill Jóns-
son lögfræðingur á Húsavík var sá
eini sem bauð sig fram fyrir Al-
þýðubandalagið. Frambjóðendur
gera ekki athugasemdir við að
Kristín bætist í hópinn nú.