Morgunblaðið - 02.02.1999, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 02.02.1999, Blaðsíða 6
6 ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR Þjóðhagsstofnun kannar tekjur og eignir landsmanna samkvæmt skattframtölum 1996 og 1997 Atvinnutekjur hæstar í Reykjaneskjördæmi Meðalatvinnutekjur landsmanna á árínu 1997 voru 1.486 þúsund kr. sem svarar til 124 þúsund kr. að jafnaði á mánuði sam- kvæmt athugun Þj óðhagsstofnunar á skatt- framtölum. Stofnunin bendir á að þegar lit- ið sé yfír nokkurt árabil hafí dreifing at- vinnutekna hneigst í átt til meiri tekjumun- ar en á undanförnum tveimur árum hefur þessi þróun stöðvast og dreiiing atvinnu- tekna haldist lítt breytt eða jafnvel orðið jafnari, einkum vegna minna atvinnuleysis. MEÐALATVTNNUTEKJUR lands- manna á árinu 1997 voru 1.486 þús- und kr. sem svarar til 124 þúsund kr. að jafnaði á mánuði, samkvæmt frétt frá Þjóðhagsstofnun þar sem gerð er grein fyrir samanburði á tekjum og eignum landsmanna á árunum 1996 og 1997 samkvæmt skattframtölum. Kaupmáttur atvinnutekna lands- manna batnaði um 5,5% milli áranna 1996 og 1997 en á árunum 1993-1997 jókst kaupmáttur atvinnutekna á mann um 4% til jafnaðar á ári. Á árinu 1997 voru meðalráðstöfun- artekjur hjóna 2.730 þús. króna, eða 227,5 þús. kr. á mánuði að jafnaði. Hækkuðu meðalráðstöfunartekjur hjóna frá fyrra ári um 7,6%. Skatt- byrði hjóna hækkaði um 1 prósentu- stig og fór í 20,3% af heildartekjum, skv. athugun stofnunarinnar. „Athugun á dreifingu ráðstöfun- artekna hjóna sýnir að hún var ójafnari 1997 en 1996. Þá þróun má annars vegar rekja til hækkunar fjármagnstekna og hins vegar til breytinga á sköttum og bótum. Að hluta stafa auknar tekjur af fjár- magni af breytingum á skattalegri meðferð þeirra. Sennilega er að hluta um að ræða uppsöfnuð áhrif, einkum vegna söluhagnaðar, sem líklega eru skammvinn," segir í yfir- liti Þjóðhagsstofnunar. Fram kemur í samanburði Þjóð- hagsstofnunar að hlutfall atvinnu- tekna kvenna af tekjum karla hafi hækkað nokkuð frá 1980 eða úr 46,6% í 52,2% árið 1997. Litlar breytingar hafi hins vegar orðið á þessum hlutföllum síðustu árin. 70,5% greiða tekjuskatt og eða útsvar Fram kemur í samanburði á tekjuskattsstofni framteljenda að 28,4% eða um 58 þúsund manns voru með tekjur undir 58.466 kr. á mánuði, sem voru skattleysismörk í staðgreiðslu á þeim tíma. Við álagn- ingu 1996 voru 34% framteljenda með tekjur undir skattleysismörk- um. Hér þarf hins vegar að taka til- lit til þess að vegna millifærslu per- sónuafsláttar milli hjóna, greiðslu sjómannaafsláttar o.fl. atriða eru mun fleiri sem ekki greiða tekju- skatta en þeir sem eru undir skatt- leysismörkum. Einnig bendir Þjóð- hagsstofnun á að taka verði tillit til skatt- tengdra bóta, þ.e. vaxta- og bamabóta í þessu samhengi. Fram kemur á yfirliti Þjóðhagsstofnun- ar að 70,5% framteljenda greiða tekjuskatta og eða útsvar en þegar tekið hefur verið tillit til skattabóta lækk- ar hlutfallið í 65%. „Sérstakur skattur á háar tekjur var lagður á tekjur ársins 1997. Skatturinn lagðist á tekjur ein- hleypra yfir 233,8 þúsund krónur á mánuði og samanlagðar tekjur hjóna yfir 467,6 þúsund krónum. Alls greiddu tæplega 9 þús. manns hátekjuskatt, eða 3,5% framtelj- enda. Meðaltekjuskattsstofn þeiiTa var 4,7 milljónir kr.,“ segii' í frétt Þjóðhagsstofnunar. Meðalatvinnutekjur hærri á höfuðborgarsvæðinu Meðaltekjur á mann samkvæmt Skuldir vegna í Fjöldi framt. með skuldir v. íbúða búðarkaupa 1997 Meðaltöl í þús. kr. Tekju- skattsstofn Eignir Skuldir Skuldir v. ibúða Vaxta- gjöld Einhleypir án barna 15.816 1.660 6.502 3.632 3.017 179 Einstæðir foreldrar 4.260 1.356 6.367 5.380 4.567 227 Hjón 37.081 3.487 5.597 4.124 274 Hjón með börn 23.398 3.573 6.379 4.769 310 Barnlaus hjón 13.683 3.341 4.260 3.020 214 Telguskattar og ské hlutfall framteljenda (%) ittgreiðendur við Ógiftir álagningu 1998 Hjón Allir framt. Ógiftir alls Barnlausir Einstæðir foreldrar Hjón alls Karlar Konur Undir skattleysismörkum 15.816 1.660 1.660 6.502 3.632 3.017 179 Greiðendur tekjuskatts 4.260 1.356 1.356 6.367 5.380 4.567 227 Greiðendur tekjuskatts og/eða útsvars 37.081 3.487 3.487 5.597 4.124 274 Greiðendur hátekjuskatts 23.398 3.573 3.573 6.379 4.769 310 Greiðendur tekjuskatta eftir bætur 13.683 3.341 3.341 4.260 3.020 214 28,4% eða um 58 þús. manns með tekjur undir skattleysis- mörkum skattframtölum hafa oftast nær á undanfömum áram verið hæstar á Vestfjörðum en undanfarin tvö ár hafa tekjur þar hækkað minna en í öðrum kjördæmum. Á árinu 1997 era Vestfirðingar hins vegar komn- ir í annað sætið en meðaltekjur vora hæstar í Reykjaneskjördæmi eða 1.897 þús. kr., sem er tæplega 5% yfir landsmeðaltali. Meðalat- vinnutekjur á Vestfjörðum vora 1.835 þúsund kr. 1997 og næstir í röðinni komu Austfirðingar en þar vora meðalatvinnutekjur 1.828 þús. kr. Atvinnutekjur á mann að meðal- tali vora lægstar á Norðurlandi vestra eða 1.698 þús. kr. Á árinu 1997 voru meðalatvinnutekjur á höfuðborgarsvæðinu talsvert hærri en á landsbyggðinni eða 1.834 þús. kr. á móti 1.775 þús. kr. á mann og hækkuðu um 7,6% á milli ára sam- anborið við 6,6% aukningu á lands- byggðinni. Auknar eignir Þjóðhagsstofhun vekur athygli á að eignarskattsstofninn hækkaði veralega á árinu 1997 eða um 2,67% að raunvirði en frá 1990-1996 lækk- aði eignarskattstofninn um 8,8%. „Að baki þeirri þróun liggur að skuldh' heimila hafa vaxið mun hrað- ar en skattskyldar eignir. Þessi þróun hefur leitt til þess að framteljendum með neikvæðan eignar- skattstofn hefur fjölgað mjög hratt eða rúmlega tvöfaldast frá 1988. Fjölgunin undanfarin ár —— hefur verið 5-7%, en nú fjölgar óveralega í þessum hópi,“ segir í frétt Þjóðhagsstofnunar. Arður af hlutabréfum jókst um 203% Fram kemur í tölulegum saman- Atvinnutelgur eftir kjördæmum 26-65 ára framteljendur « . . . .. . J Meðalvinnutekjur, þus. kr. Breirtjng 1996 1997 milliára Vísitala, landsmeðal- tal = 100 Reykjavík 1.671 1.797 7,5% 99,2 Reykjanes 1.760 1.897 7,8% 104,7 Þ.a. sveitarfélög á höfuðb. svæði 1.767 1.901 7,6% 104,9 Vesturland 1.672 1.790 7,0% 98,8 Vestfirðir 1.802 1.835 1,8% 101,3 Norðurland vestra 1.575 1.698 7,8% 93,7 Norðurland eystra 1.613 1.723 6,8% 95,1 Austurland 1.722 1.828 6,2% 100,9 Suðurland 1.612 1.720 6,7% 94,9 Höfuðborgarsvæðið 1.705 1.834 7,6% 101,3 Landsbyggðin 1.664 1.775 6,6% 98,0 Landið allt, vegið meðaltal 1.689 1.811 7,2% 100,0 burði stofnunarinnar að framtalinn arður af hlutabréfum hefur marg- faldast á árinu 1997 samanborið við árin á undan. 1996 nam hann 1.389 millj. kr. en á árinu 1997 nam hann 4.208 millj. kr. skv. framtölum og hafði aukist um 203%. Á sama tíma fjölgaði þeim sem töldu fram arð af hlutabréfum um 12,3%. Þá töldu rúmlega 5.900 manns fram tekjur af fasteignum, sem námu um 1,5 millj- örðum kr. og var það 174,5% vöxtur frá árinu á undan. Hagnaður af sölu hlutabréfa var 3.383 millj. kr. á árinu 1997 en 962 millj. kr. á árinu á undan og var þar um 251% aukningu að ræða milli ára. Á sama tíma fjölgði framtelj- endum sem töldu fram hagnað af sölu hlutabréfa um 175%. Á árinu 1997 fjölgaði einnig þeim sem notfærðu sér skattafrádrátt vegna dagpeninga eða um 8,7%. Alls nam frádráttur vegna dagpeninga um 3,2 milljörðum kr. og jókst sú fjárhæð um 11% frá árinu á undan. Eru eigin Iaun lækkuð og greiddur hærri arður? í frétt Þjóðhagsstofnunar er bent á að eitt megineinkenni skattfram- tala 1998 megi rekja til breytinga á skattkerfinu og ber þai’ hæst breyt- ing á skattlagningu fjár- magnstekna. „At.hygli vekur mikil hækkun tekna af fasteignum og arðs af hlutabréfum. Ástæðan fyrir hækkun tekna af fasteignum er breyting sem verður á skattlagningu þeirra við “ upptöku fjármagnstekjuskatts. Nú era leigutekjur taldar fram brúttó og þær skattlagðar sem fjár- magnstekjur, bera 10% skatt, en ár- ið áður mátti draga frá rekstrar- kostnað og leigutekjur sem eftir Ráðstöfunar- tekjur hjóna hækkuðu um 7,6% og skatt- byrði um 1 prósentustig stóðu voru skattlagðar sem hverjar aðrar tekjur. Þótt almenn hluta- bréfaeign hafi aukist mikið á síð- ustu áram skýrir hún ekki nema að hluta til þá miklu hækkun sem verð- ur á arðgreiðslum og ýmislegt bendfr til þess að skýringanna sé frekar að leita til breytinga á skatt- lagningu arðs. Allm- arður ber nú 10% skatt en var áður skattfrjáls upp að ákveðnu marki en arður um- fram þau mörk var skattlagður sem hverjar aðrar tekjur. Arður sem hlutfall af nafnverði hlutabréfa hækkar mikið en getur skýrst af því að fyrirtæki hafi frestað arðgreiðsl- um um eitt ár og einnig að í einstak- lingshlutafélögum hafi menn lækk- að launin sín en á móti greitt sér hærri arð. Líklegt er einnig að mörgum einstaklingsfyrirtækjum hafi verið breytt í hlutafélög og hagnaður tekinn út sem arður frem- ur en sem hreinar tekjur af atvinnu- rekstri. Mikla aukningu söluhagn- aðar hlutabréfa má vafalaust rekja til þess að margir hafa beðið með að selja bréfin og vegna fyrirhugaðra breytinga á skattalegri meðferð söluhagnaðar. Því er hér um um- talsverð uppsöfnunaráhrif að ræða,“ segir í frétt Þjóðhagsstofn- unar. Meðalatvinnutekjur rúmar 5 millj. í hæsta tekjuhópnum Stofnunin gerir einnig tilraun til að kanna dreifingu atvinnutekna og ráðstöfunartekna framteljenda skv. skattframtölum. Bent er á að þegar litið sé yfir nokkurt árabil hafi dreifing atvinnutekna hneigst í átt til meiri tekjumunar. „Undanfarin tvö ár hefur hins vegar dreifingin haldist lítt breytt eða jafnvel orðið jafnari. Sköpum virðist skipta að dregið hefur út atvinnuleysi," segir í samantekt Þjóðhagsstofnunar. Stofnunin hefur þann fyrirvara á samanburði sínum að takmarkaðar vísbendingar sé að fá um launaþró- un úr skattframtölum þvi upplýs- ingar um atvinnuþátttöku og vinnu- tíma vanti. Við samanburð á dreifingu tekna raðar Þjóðhagsstofnun framteljend- um eftir tekjubilum í tíu jafn stóra hópa, frá þeim tekjulægsta til þess tekjuhæsta. Þar kemur m.a. í ljós að meðalatvinnutekjur þeirra 10% karla sem era í hæsta tekjuhópnum voru 5.031 þúsund kr. 1997. Meðal- atvinnutekjur allra karla voru 1.961 þús. kr., en aðeins 10% kvenna voru með tekjur yfir 1.949 þús. kr. á því ári. Einnig er lagt mat á dreifingu ráðstöfunartekna og skattbyrði hjóna og sambýlisfólks. Yfírlitið leiðir m.a. í ljós að 21,8% heildar- tekna á árinu 1997 féllu í skaut tekjuhæsta hópnum (10% hjóna með hæstu ráðstöfunartekjur) og þessi hópur greiðir jafnframt 29,1% af heildartekjuskatti hjóna. Hópur- inn fær hins vegar 6,5% af barna- bótum og 7,2% af vaxtabótum og þegar upp er staðið er hlutur hans í ráðstöfunartekjum 19,2%. 10.300 hjón eignalaus eða með skuldir umfram eignir Athugun Þjóðhagsstofnunar leið- ir einnig í Ijós að meðaleignar- skattsstofn hækkaði úr 3.600 þús. kr. í árslok 1996 í 3.741 þús. kr. í lok árs 1997. Hækkaði eignarskatts- stofninn að raungildi um 1,7%. Framtaldar skuldir heimilanna í heild námu um 331 milljarði kr., aukning frá árinu á undan var 27,8 milljarðar. Upplýsingar um skuldir framteljenda vegna íbúðarkaupa leiða m.a. í ljós að íbúðaskuldir ein- stæðra foreldra námu að jafnaði um 3,4 földum tekjum þeirra, saman- borið við 1,26 hjá hjónum og 1,82 hjá einhleypum. „Um 10.300 hjón voru annaðhvort eignalaus eða með skuldir umfram ....... eignir. Meðaleignar- skattstofn þeirra hjóna sem töldu fram jákvæðan stofn reyndist um 7,6 milljónir króna og vora tæplega 11.000 hjón með eignarskattsstofn yfir 10 milljónum króna,“ segir í yf- irliti Þjóðhagsstofnunar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.