Morgunblaðið - 02.02.1999, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 02.02.1999, Blaðsíða 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 2. FEBRÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT Fjárlagafrumvarp Bandai íkj astj órnar Gert ráð fyrir 117 milljarða dala afgangi Washington. Reuters. Reuters NOKKUR hundruð manna fóru í gær um götur Dili, höfuðborgar A-Tímors, til að leggja áherslu á kröfuna um sjálfstæði landsins. Andstæðingar þess eru hins vegar farnir að vopnast og segjast óttast borgarastyijöld. Mikil spenna og ótti við borgarastyrjöld í Austur-Tímor Andstæðingar að- skilnaðar vopnast Jakarta. Reuters. BILL Clinton Bandaríkjaforseti lagði í gær fram frumvarp til fjár- laga næsta árs þar sem gert er ráð fyrir því að útgjöldin til varnar-, mennta- og heilbrigðismála verði aukin. I frumvarpinu er því spáð að tekjuaf- gangurinn verði 117 milljarðar dala, and- virði 8.100 milljarða króna, á næsta ári. Stjóm Clintons spáir því að tekjuafgangur- inn aukist smám saman og verði 393 milljarðar dala, 27.500 milljarðar króna, árið 2009. Alls verði hagnaðurinn 2,41 billjón dala, 168 billjón- ir króna, á næsta ára- tug. Búist er við að fjár- lagafrumvarpið fyrir fjárhagsárið 2000, sem hefst 1. október, sé upphafíð að langri baráttu milli for- setans og meirihluta repbúblikana á þinginu um hvað gera eigi við þenn- an mikla tekjuafgang. Bandaríski al- ríkissjóðurinn var rekinn með halla í 28 ár þar til á síðasta ári, þegar tekjuafgangurinn var 69,2 milljarðar dala, og gert er ráð fyrir því að hann verði 79,3 milljarðar dala í ár. Þessi umskipti eru rakin til spamaðarað- gerða, sem vom samþykktai- á áran- um 1990, 1993 og 1997, mikils hag- vaxtar og aukinna skatttekna, sem hagfræðingar eiga erfitt með að skýra. Repúblikanar vilja meiri skattalækkanir Clinton leggur til að 62% af áætl- uðum tekjuafgangi næstu 15 ára verði notuð til að styrkja almanna- tryggingakerfíð, 15% til að efla sjúkratryggingar aldraðra og 11% verði notuð í forgangsmál eins og menntamál, vísindarannsóknir og landvamir. Repúblikanar era lítt hrifnir af frumvarpi Clintons, enda er þar' gert ráð fyrir mjög takmörkuðum skattalækkunum og auknum út- gjöldum til margra málaflokka. Margir repúblikanar era hlynntir þeirri hugmynd að megnið af tekju- afgangnum verði notað til að efla al- mannatryggingakerfið en leggja mikla áherslu á víðtækar skattalækk- anir. Repúblikaninn Dick Armey, leiðtogi meirihlutans í fulltrúa- deild Bandaríkjaþings, lagði til í vikunni sem leið að tekjuskattar, fjármagnstekjuskattar og eignaskattar verði lækkaðir um 10%. Útgjöldin til varnar- mála aukin f nýja fjárlagafram- varpinu er gert ráð fyr- ir því að útgjöldin til varnarmála verði aukin um 12 milljarða dala, andvirði 840 milljarða króna. For- setinn vill einnig fjölga lögreglu- mönnum, vernda þjóðgarða og sögu- lega vígvelli, efla starfsþjálfun, gera ráðstafanir til að auka öryggi banda- rískra sendiráða og efla varnir gegn hugsanlegum efna- og sýklavopna- árásum á Bandaríkin. Clinton gerir einnig ráð fyrir skattaafslætti handa ýmsum hópum, m.a. fólki sem annast aldraða eða sjúka ættingja sína og heimavinn- andi foreldram. Til að mæta auknum útgjöldum hyggst stjórnin m.a. fækka ýmsum smugum, sem stórfyrirtæki hafa not- að til að lækka skatta sína. Stjórnin hyggst einnig auka tekjur sínar um 8 milljarða dala, 560 milljarða króna, með því að hækka skatta á sígarett- ur um 55% á næstu áram og um 15% þegar á næsta ári í stað ársins 2002 eins og ráðgert hafði verið. Hagspár stjómarinnar era var- færnislegar og hún spáir því að hag- vöxturinn verði um 2% í ár og á næsta ári. Hagvöxturinn á síðasta ári var 3,9% og 5,6% á síðasta fjórð- ungi ársins. HUNDRUÐ manna komu saman í Dili, höfuðborg Austur-Tímors, í gær til að krefjast sjálfstæðis landsins en Indónesíustjórn til- kynnti í síðustu viku, að það kæmi til greina. Hópar manna, sem hlynntir era áframhaldandi yfírráð- um Indónesa, era farnir að vopnast, að sögn vegna ótta við borgara- styrjöld í landinu, en þeir hafa verið sakaðir um að skjóta unga menn, sem neita að fylgja þeim að málum. „Lengi lifi Austur-Tímor,“ hróp- aði fólkið, sem fór um borgina á vörubifreiðum og vélhjólum, en ekki vora fréttir um, að til átaka hefði komið. Indónesíustjórn, sem sendi her sinn til A-Tímor 1975 og innlimaði landið ári síðar, tilkynnti óvænt í síðustu viku, að til greina kæmi að veita landinu sjálfstæði. Ali Alatas, utanríkisráðherra Indónesíu, sagði hins vegar í gær, að Indónesar myndu ekki hverfa burt í skyndingu eins og Portúgalir hefðu gert á sínum tíma. Indónesar og Portúgalir hafa átt í viðræðum um A-Tímor fyrir milligöngu Sa- meinuðu þjóðanna og hefur þar verið rætt um sjálfstjóm en ekki fullt sjálfstæði í tilkynningu Indónesíustjómar sagði, að hugsanlegt væri, að A- Tímor fengi sjálfstæði að loknum kosningunum 7. júní nk. og þá að því tilskildu, að íbúamir hefðu hafnað tillögu um sjálfstjóm. Vopn frá hernum Hópar manna í A-Tímor, sem hlynntir era yfirráðum Indónesa, segjast óttast um líf sitt komi til fulls aðskilnaðar og sagði einn tals- manna þeirra í gær, að fulltrúar þeirra myndu fara til Jakarta, höf- uðborgar Indónesíu, og biðja stjórnvöld um vopn. Sjálfstæðis- sinnar saka þá hins vegar um vis- vitandi ögranir og segja, að þeir hafi skotið unga menn, sem hafi neitað að ganga til liðs við þá. Er það einnig haft eftir talsmönnum mannréttindasamtaka, að Ind- ónesíuher hafi komið vopnum til þeirra, sem andvigir era sjálfstæði landsins. Xanana Gusmao, leiðtogi upp- reisnarmanna í A-Tímor, segir í viðtali við vikuritið Tempo, að engin hætta sé á borgarastyrjöld í land- inu og hann segist viss um, að íbú- arnir muni velja sjálfstæði umfram sjálfstjóm með miklum meirihluta. Gusmao er nú í fangelsi í Jakarta en verður fljótlega fluttur í stofu- fangelsi. Reuters CLINTON Banda- ríkjaforseti á leið í Hvíta húsið í gær. Chee Soon Juan, leiðtoga Lýðræðisflokks Singapúr, skipað að koma fyrir rétt Singapúr. Reuters. DOMARI í Singapúr úrskurðaði í gær að Chee Soon Juan, leiðtogi Lýðræðisflokks Singapúr, skyldi koma fyrir rétt vegna ákæra um að hafa haldið ræðu í helsta fjármála- hverfi borgríkisins án leyfis. Hefur mál þetta valdið mikilli umræðu um þau höft sem era á málfrelsi í Singapúr. Hélt Chee því fram að hann hefði ekki brotið nein lög með ræðu sinni í fjármálahverfinu 29. desember síðastliðinn. Segir hann stjórnar- skrárbundin réttindi sín til mál- frelsis brotin með þeim kvöðum að sækja þurfi sérstaklega um leyfi til að flytja ræðu á opinberam vett- vangi. Dómarinn sem kvað upp úr- skurðinn í gær, See Kee Oon, sagð- ist hins vegar ekki geta dæmt eftir öðru en gildandi lögum og sam- kvæmt þeim væri ástæða til að efna til réttarhalda yfir Chee. „Við skul- um átta okkur á því, lögmaður," sagði See við J.B. Jeyaretnam, lög- fræðingur Chees, „að ég hef ekki völd til að fyrirskipa endurskoðun á lagabókstafnum." Gæti Chee átt yfir höfði sér sekt upp á 210 þúsund ísl. krónur ef hann verður fundinn sekur. Kveða lög í Singapúr á um að sé maður sektaður um meira en 80 þúsund krónur sé þeim ekki heimilt að Talar leyfislaust um lýðræði og málfrelsi bjóða sig fram við þingkosningar næstu fimm ár þar á eftir. Ong Teng Cheong, forseti Singapúr, hafnaði í síðustu viku óskum um að skotið verði á fundi stjómarskrárréttar til að fara yfir mál Chees. Sagði hann að Chee væru margar aðrar leiðir færar til að sækja mál sitt. Ber að sækja um Ieyfi Saksóknarar luku málflutningi sínum í gærmorgun og lögðu þá áherslu á þá staðreynd málsins að samkvæmt lögum um opinber fundahöld hefði Chee borið að sækja um leyfi til að flytja ræðuna. Jeyaretnam sagði hins vegar að engin ástæða hefði verið til að ætla að ræðan jafngilti „ógnun við öryggi Singapúr" og að lögreglumenn hefðu ekki „séð neitt sem hefði get- að orsakað að ríkisró yrði ógnað“. „En herra minn, slíkt getur gerst hvenær sem er,“ sagði Low Hui Hui Reuters CHEE Soon Juan (t.v.) gengur út úr réttarsal í Síngapúr í gær ásamt lögfræðingi sínum, J.B. Jeyaretnam. lögreglustjóri, sem var lykilvitni saksóknara. „Rétt eins og Marsbúar gætu hvenær sem er gert innrás í Singapúr?" spurði Jeyaretnam. „Þú reiknar varla með svari við þessari spurningu," sagði See dómari þá. Low hafði varað Chee við því að ef hann talaði án leyfis væri hann að brjóta lögin. Höfðu lögreglumenn ítrekað reynt að fá Chee ofan af áætlun sinni en þegar það mistókst áttu þeir einskis annars úrkosti en handtaka hann. Lögmaður Chees hélt því hins vegar fram að eina ástæða þess að Low hefði viljað koma í veg fyrir að Chee talaði op- inberlega væri sú að Chee er leið- togi stjómarandstöðuflokks. Stjórnarandstaðan á erfitt uppdráttar Chee hefur í ræðum sínum rætt um lýðræði, málfrelsi og önnur slík málefni. Er því litið á mál hans sem prófmál en lagabókstafur í Singa- púr þykir valda því að opinber um- ræða er af skomum skammti. Þykir augljóst af viðbrögðum stjómvalda að þau séu heldur leið yfir því að Chee skuli hafa ákveðið að þyrla upp óveðri nú vegna lýðréttinda í landinu. Flokkur alþýðunnar hefur farið með völdin í Singapúr allt síðan landið fékk sjálfstæði árið 1965 og hefur flokkurinn nú 81 þingsæti af 83. Lýðræðisflokkur Chees hefur hins vegar engin sæti á þjóðþinginu og á reyndar öll stjómarandstaða ansi erfitt uppdráttar í Singapúr. Heldur Chee því fram að afar erfitt og tímafrekt sé að fá leyfi fyrir því að tala á opinberum vettvangi og að kerfið sé byggt upp með þeim hætti að erfitt sé fyrir stjómarandstöð- una að koma sjónarmiðum sínum á framfæri. Þessu neita stjómvöld hins vegar og segja að stjómarandstæðingar hafi næg tækifæri til að koma sjón- armiðum sínum á framfæri. Sagði Khor Chor Huat, sem fyrir þeirri nefnd sem veitir leyfi til ræðuhalda á opinberum vettvangi, að það væri ekki rétt að ríkisstjórn hefði gefið fyrirskipun um að öllum umsóknum stjómarandstöðunnar um ræðuhöld yrði hafnað, né heldur að öllum slík- um óskum skyldi vísað til innanrík- isráðuneytisins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.