Morgunblaðið - 11.02.1999, Blaðsíða 60
-í 60 FIMMTUDAGUR 11. FEBRÚAR 1999
AFMÆLI
MORGUNBLAÐIÐ
í DAG
ELLEN
SIGHVATSSON
Kynni mín af Ellen
hófust á fyrri hluta átt-
unda áratugarins. Á
þeim árum stundaði ég
skíðaíþróttina af miklu
kappi. I flestum mót-
um sem haldin voru á
þessum árum minnist
ég eldri konu, á óskil-
* greindum aldri, en þó
vel fullorðin sem fylgd-
ist með af miklum
! áhuga. Áhugi hennar
var ekki minni en
! margra keppendanna,
svo vel lifði hún sig inn
í hverja keppni. Hún
var miklu frekar þátttakandi en
■ áhorfandi. Ég minnist lítillar konu
sem var ótrúlega snögg í hreyfing-
um og talaði jafnvel enn hraðar.
Mér er jafnframt minnisstætt að
1 skíðaíþróttin og framganga hennar
í átti hug hennar allan. Mér var
kunnugt að Ellen hafði starfað í
marga áratugi að eflingu skíðaí-
■ þróttarinnar, setið í stjórn Skíðafé-
lags Reykjavíkur i marga áratugi,
löngum formaður þess og einnig í
i stjórnum Skíðaráðs Reykjavíkur og
! Skíðafélags kvenna. Mikið meira
. vissi ég ekki um þessa ágætu konu
á þessum árum. Pað hefur líklega
verið svo að Ellen hefur heldur vilj-
’ að ræða við fólkið í kringum sig um
I þeirra eigið ágæti en hennar eigin
! sigra á lífsleiðinni sem flestum okk-
j ar hlotnast ekki.
Tæplega tuttugu ár líða, það er
i árið 1996 og sá sem þetta skrifar
situr á skólabekk í námi til lög-
gildingar í vátryggingamiðlun á
' vegum Endurmenntunardeildar
I Háskóla Islands. Námsefnið er
' saga trygginga á Islandi. Kennari
‘ er Hilmar Pálsson, fyrrverandi for-
j stjóri Brunabótafélags íslands og
Vátryggingafélags íslands og nú-
* verandi forstjóri Eignarhaldsfélags
' BI. Þar kemur í frásögn Hilmars að
hann segir nemendum frá Vátrygg-
* ingaskrifstofu Sigfúsar Sighvats-
i sonar hf. sem rekin var af Sigfúsi
! og konu hans, Ellen Sighvatsson,
að Amtmannsstíg 2 frá 1930 til
\ 1975. Sigfús lést 1958 og rak Ellen
* fyrirtækið til ársins 1975 er hún
seldi það til Tryggingamiðstöðvar-
innar. Það þurfti ekki mikla athygli
til að taka eftir hversu Hilmar mat
Ellen mikils. Ég þurfti ekki að
heyra meira, Amtmannsstígur var
annað heimili margra skíðamanna í
marga áratugi. Hilmar var að tala
j um sömu konuna sem hafði hvatt
i mig til dáða og dælt í mig þrúgu-
| sykri tuttugu árum fyrr. Um leið og
færi gafst spurði ég Hilmar hvort
Ellen væri enn á lífi. Hilmar hélt nú
það, talaði við hana síðast í gær,
svaraði hann. Tveimur tímum síðar
bankaði ég upp á hjá Ellen og Ás-
geiri Úlfarssyni að Amtmannsstíg
6, en þá var hún nýflutt af Amt-
mannsstíg 2 eftir að
Menntaskólinn í
Reykjavík hafði falast
eftir kaupum á húsinu.
Ekki þurfti ég að
kynna mig, Ellen
þekkti mig á auga-
bragði.
Tryggingakonan El-
len Sighvatsson á fáa
sína líka. Hún skipaði
sér til sætis á fyrri
hluta þessarar aldar í
slíkum karlaheimi að
enn í dag hafa konur
látið þetta svið nær af-
skiptalaust. Ellen tókst
á hendur mörg erfið trygginga-
verkefni á langri starfsævi sinni.
Það verkefni sem hæst stendur er
líklega þegar henni var falið að
flytja allar endurtryggingar ís-
lensku tryggingafélaganna frá Nor-
egi, eftir að Þjóðverjar höfðu
hernumið Noreg, yfír til Lloyd’s í
London. Þetta verkefni þurfti hún
að leysa meira og minna á táknmáli
og dulmáli og þótti einstakt afrek. í
upphafí reksturs vátryggingaskrif-
stofunnar var Sigfús með umboð
fyrir danskt líftryggingafélag en
mjög fljótlega snerist reksturinn
um alhliða vátryggingastarfsemi.
Vátryggingaskrifstofan starfaði í
fjölda ára náið með Brunabótafé-
laginu og Tryggingamiðstöðinni.
Ég fæ Ellen seint þakkað það
traust sem hún sýndi mér þegar
hún kom mér í samband við og
kynnti mig fyrir fyrrverandi sam-
starfsmanni og miklum vini sínum,
Dudley Staines, vátryggingamiðl-
ara hjá Lloyd’s í London.
Ellen Sighvatsson er merkis-
kona. Frumkvöðull á flestum svið-
um sem hún hefur látið sig varða.
Auk starfa hennar fyrir skíðaíþrótt-
ina sem áður er vikið að, starfaði
hún mikið í Ferðafélagi Islands, en
íþróttir, ferðalög og útivist voru
helstu áhugamál hennar. Fyrrver-
andi forseti ÍSÍ, Gísli Halldórsson,
sæmdi hana gullmerki ÍSÍ árið
1968. Hún var formaður Zonta-
klúbbsins árið 1953-54 og vann
ötult starf fyrir Anglíu og var í
stjórn þess félags. Árið 1977 var
hún sæmd einni mestu viðurkenn-
ingu sem Bretar veita útlendingum,
þ.e. MBE-orðunni,fyrir framgöngu
sína í tryggingamálum á stríðsár-
unum og störf sín fyrir Anglíu. El-
len er eina konan á Islandi sem
fengið hefur þessa viðurkenningu.
Henni hefur á langri ævi verið mun
auðveldara að gefa en þiggja.
Þannig hefur fjöldi manns notið
velgjörðar hennar og er í mikilli
þakkarskuld við hana. Mér er sómi
að eiga Ellen Sighvatsson að vini.
Til hamingju með níræðisafmælið,
- Guð gefi þér góða heilsu.
Kristinn R. Sigurðsson
vátr yggingamiðlari.
Ný sending
Kjólar - Dragtir - Blússur
VESTURBÆR
Mjög falleg og sérstök 2ja-3ja herbergja íbúð 59 fm á 1. hæð í þrí-
býli á góðum stað. íbúðin er mikið endurnýjuð að innan; upppússuð
gólfborð, flísalagt baðherbergi. Sérinngangur. Áhv. byggsj. 3,7
millj. Verð 6,3 millj. Upplýsingar gefur:
Skeifan fasteignamiðlun ehf.,
Suðurlandsbraut 46,
sími 568 5556.
VELVAKAMH
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudegi til föstudags
Sorphirðugjald
FYRIR nokkrum dögum
skrifaði ÞDJ í Velvakanda
um sorphirðugjaldið i
Reykjavík. ÞDJ heldur
því fram, að í þeim hverf-
um þar sem tekin verður
upp sorphirða á 10 daga
fresti í stað 7 daga, jafn-
gildi það hækkun á sorp-
hirðugjaldi þótt gjaldið sé
þar lægra en annars stað-
ar.
I þessu sambandi er
rétt að árétta að kostnað-
ur við sorphirðu var áður
greiddur sem hluti af fast-
eignasköttum. Samhliða
upptöku sorphirðugjalds
um síðustu áramót var
fasteignaskatturinn lækk-
aður úr 0,421% í 0,375% af
fasteignamati húss og lóð-
ar. Breytingin hefur því
ekki í för með sér tekju-
aukningu fyrir borgar-
sjóð. Kostnaður við sorp-
hirðu er fyrst og fremst
gerður mun sýnilegri en
áður og gjaldið felur í sér
hvatningu til þess að
draga úr sorpmagni.
Með því að deila áætl-
uðum fjölda tæminga upp
í árgjald fyrir sorphirðu
kemst bréfritari (ÞDJ) að
þvi að gjald fyrir hverja
tæmingu er lítillega
hærra við 10 daga hirð-
ingu en þegar vikulega er
tæmt eins og nú er. Þetta
er ekki fyllilega réttmætt
þar sem aðeins hluti af
kostnaði við söfnun og
förgun sorps er kostnaður
við sjálfa hirðinguna (um
50%) og það er aðeins sá
kostnaður sem lækkar við
10 daga hirðingu. Eftir
stendur kostnaðurinn við
að farga sorpinu. Hvað
sem öllum reikningsdæm-
um líður verður því ekki á
móti mælt að árlegur
kostnaður íbúðareiganda
mun óneitanlega lækka
við 10 daga hirðingu frá
því sem nú er.
Þá er rétt að minna á að
hér er um tímabundna til-
raun að ræða í hluta borg-
arinnar og verða niður-
stöður hennar notaðar til
að taka ákvörðun til lengri
tíma um tíðni sorphirðu
og gjaldtöku fyrir hana.
Með upptöku sorphirðu-
gjalds er í raun verið að
fylgja stefnumörkun borg-
arinnar í umhverfísmál-
um, því með því að gera
gjaldið sýnilegt en lækka
fasteignaskattinn á móti
eru borgarbúar hvattir til
að fækka sorpílátum,
draga úr heimilissorpi,
nota pappírsgáma, endur-
nýta umbúðir o.fl. I fram-
haldinu er fyrirhugað að
vigta sorp, líklega frá og
með næstu áramótum, og
mun sorpmagnið þá end-
urspeglast í sorphirðu-
gjaldinu. Þannig getur
hver og einn haft áhrif á
gjaldið hjá sér bæði til
lækkunar og hækkunar.
Árni Þór Sigurðsson,
aðstoðarmaður
borgarstjóra.
Fjölgum konum
ÞAÐ er brýnt pólitískt
hagsmunamál fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn að fjölga
konum i forystusveit sinni.
Annað býður þeirri hættu
heim að flokkurinn tapi
flugi í þeim hörðu átökum
sem framundan eru í al-
þingiskosningunum í vor.
Rökin fyrir þessu eru
ekki flókin og rúmast raun-
ar í einfaldri spurningu:
Hvernig kemur Sjálfstæð-
isflokkurinn út í saman-
burði við aðra flokka með
hliðsjón af hlut kvenna?
Hreint ekki vel. Það mun
íþyngja kosningabarátt-
unni í vor auk þess að virka
letjandi á konur til að kjósa
flokkinn. Þetta munu póli-
tískii' andstæðingar að
sjálfsögðu notfæra sér út í
ystu æsar.
Það er af þessum sökum
fagnaðarefni að Sólveig
Pétursdóttir skuli hafa gef-
ið kost á sér í embætti
varaformanns Sjálfstæðis-
flokksins. Loksins gefst
mönnum þá kostur á að
kjósa um eitthvað annað en
karla í þetta annað valda-
mesta embætti flokksins.
Sólveig kemur, eins og
mótframbjóðandinn Geir
Haarde, úr reyndasta
kjarna þingflokksins.
Þarna takast því á mjög
hæfir einstaklingar, sem
eru báðir vel að embættinu
komnir, nema hvað að það
hlýtur óneitanlega að telj-
ast Sólveigu til tekna að
þessu sinni, að hún hefur
kvenkynið framyfh' Geir!
Elías Jónasson.
Einmana
ÓLAFUR Þór skrifar
pistil í Velvakanda sl.
þriðjudag og fjallar hann
þar um leit einstæðra/frá-
skildra að félaga. Vil ég
benda Ólafi á, að í stað
þess að stunda öldurhúsin
ætti hann að stunda útivist
og fara í gönguhópa, þar
finnur hann skemmtilegri
félaga en eru á öldurhús-
um. Ég á uppkomin og frá-
skilin böm sem hafa fund-
ið sér aftur yndislega
maka og þau fundu þá ekki
á öldurhúsum.
Móðir.
Tapað/fundið
tír í óskilum
UR fannst skömmu eftir
áramót rétt við Myndlista-
og handíðaskólann. Upp-
lýsingar í síma 551 6894.
Veski týndist í
miðbænum
ÞÓRUNN týndi veski með
skilríkjum í sl. laugardag í
miðbænum. Finnandi hafi
samband í síma 588 7318.
Dýrahald
Smáhundur óskast
ÓSKUM eftir hundi af smá-
hundakyni, þarf ekki að
vera hreinræktaður. Upp-
lýsingar í síma 421-2157.
SKAK
IJmsjón Margeir
[’étursson
STAÐAN kom upp á minning-
armóti um Vince Toth sem er
nýlokið í Ríó de Janeiro í Bras-
ilíu. Marcio Miranda (2.285)
var með hvítt, en Felix Izeta
(2.515), hafði svart og átti leik í
stöðunni:
26. - Bh3+I! 27. Khl (Hvítur
lendir í mátneti ef hann þiggur
biskupsfómina: 27. Kxh3 f3 28.
g4 - d5! og síðan fer svarti
biskupinn til e7 og hjálpar til
við mátið) 27. - f3 28. b4 -
Bg2+ 29. Kgl - Hxg3! og hvít-
ur gafst upp. Brasilíumaðurinn
Sunye-Neto sigraði á mótinu.
SVARTUR leikur
og vinnur.
Víkverji skrifar...
VÍKVERJI þurfti á dögunum að
eiga ofurlítil samskipti við
Landmælingar íslands, nánar til-
tekið að panta hjá stofnuninni loft-
mynd. Þjónustan sem Víkverji fékk
var í alla staði til fyrirmyndar, allt
þar til kom að þeirri spurningu
hvernig ætti að nálgast umrædda
mynd. Þá vandaðist málið vegna
þess að Landmælingar Islands eru
nú komnar upp á Akranes og orðin
vík milli vina. Víkverji stakk óðar
upp á því að stofnunin skannaði inn
myndina og sendi hana þjappaða í
tölvutæku formi og tölvupósti inn
til myndvinnslu blaðsins.
Þá kom nokkurt hik á starfs-
manninn og hann varð að upplýsa
að það gengi ekki. Stofnunin réði
einungis yfír einum litlum
borðskanna, svona áþekkum þeim
og til eru á allmörgum heimilum
núorðið, en frummyndin væri svo
stór að skanninn sá arna réði ekki
við hana. Niðurstaðan varð því sú
að Landmælingar sendu myndina
með rútu frá Akranesi á BSÍ, þar
sem Víkverji gat nálgast hana
vandkvæðalaust, þótt tafsamara og
fyrirhafnarmeira væri.
Alkunna er að flutningur Land-
mælinga frá Reykjavík til Akra-
ness hefur verið afar umdeildur,
svo ekki sé meira sagt, og þótt
grímulausasta pólitíska geðþóttaá-
kvörðun seinni ára. Samt hefði nú
einhver haldið að þjónustustofnun
sem flutt er af aðalmarkaðssvæði
sínu til jaðarsvæðis yrði þá a.m.k.
séð fyrir nútímalegum tækjabúnaði
til að geta sinnt þessum helsta
markaði sínum með sómasamleg-
um hætti. Þetta dæmi sýnir að fyr-
ir því hefur ekki einu sinni verið
hugsað.
XXX
FTIR að Marzsteinninn úr Suð-
urskautslandinu hleypti nýju
kappi í umræðurnar um líf á Marz
og í kjölfar allra kvikmyndanna um
loftsteinaregn og halastjörnufár eru
geimsteinar nú í miklum metum;
þykja vænleg fjárfesting og seljast
eins og heitar lummur á uppboðum.
Bandaríska fréttatímaritið U.S.
News & World Report segir, að fyr-
ir dyrum standi uppboð í Los Ang-
eles og San Francisco, þar sem fal-
boðnir verða fast að sextíu loftstein-
um.
Sem dæmi um verðþróunina er
sagt frá 20 kg loftsteini, sem fannst
í Nígeríu 1962. í fyrstu fékkst
gramm af honum fyrir um 7.000
krónur, en þegar staðfest hafði ver-
ið að steinninn væri frá Marz þús-
undfaldaðist verðið á gramminu.
Og nú slást söfn og einstaklingar
um að eignast grjót úr geimnum.
Eftir loftsteinaregn í Nýju-Mexíkó í
júní sl. urður margir ríkir á loft-
steinasölu; kona nokkur fann stein á
stærð við keilukúlu í garði sínum.
Hún fór með hann í háskólann, þar
sem rannsóknir leiddu í ljós mikið
fágæti grjótsins. Tilboðunum rigndi
yfír konuna, m.a. buðu menn 100
dollara fyrir það eitt að fá að berja
steininn augum. Á endanum skutu
nokkrar stofnanir undir forystu
Kalifomíuháskólans í Los Angeles
saman og tókst að klófesta steininn
fyrir verð sem er einhvers staðar á
bilinu 3,5 til 7 milljónir króna.
Það fylgir svo, að bragðarefirnir
mæta til leiks með fimlegar falsanir
og svarti markaðurinn blómstrar.
En stundum leynist geimsteinn í
sorpinu! Bandarískum tollverði var
boðið upp á sýnishorn, sem reyndist
ófalsað. Og þegar betur var að gáð
var seljandinn eftirlaunahershöfð-
ingi frá Hondúras sem hafði undir
höndum geimgi'jót, sem Richard
Nixon hafði gefið ríkisstjórn
Hondúras á sínum tíma. Og steinn-
inn var falur fyrir litlar 350 milljón-
ir króna!