Morgunblaðið - 20.02.1999, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 20.02.1999, Qupperneq 6
6 LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR •• Orn Sigurðsson arkitekt um nýjan flugvöll í Skerjafírði Engar uppfyll- ingar meðfram strandlengj unni ORN Sigurðsson, arkitekt og einn stofnenda samtaka um betri byggð, segir að tillögur um að flytja Reykja- víkurflugvöll út á Skeijafjörð feli ekki í sér uppfyllingar meðfram strandlengju fjarðarins. Minnsta fjarlægð uppfyllingar sé um kíló- metra frá ströndinni og þessar fram- kvæmdii- snerti strandlengjuna ein- ungis á einum stað á móts við Suður- götu við vesturenda núverandi aust- ur-vestur flugbrautarinnar. I Morgunblaðinu í gær var rætt við Ólaf K. Nielsen fuglafræðing um hugmyndir um færslu flugvallarins og uppfyllingar á Skerjafirði og áhrif þess á lífríkið. Öm sagði að búið væri að bjóða út framkvæmdir við endurnýjun flug- vallarins og þar myndi eiga sér stað einhver mesta jarðvegstilfærsla í Is- landssögunni. Mýrinni yrði mokað burt undan brautunum og skipt um jarðveg og þar yrði að gera cinhverj- ar ráðstafanir varðandi vatnsbúskap Tjamarinnai'. Ef farið yrði í að byggja þarna miðborgarbyggð þá þyrfti líka að skipta um jarðveg, en þá yrði vatnsbúskapur og vemd Tjarnar og umhverfís gmndvallar- viðmið í öllum framkvæmdum. Slík byggð færi miklu betur saman við fuglalif en flugvallarstarfsemi. Gerð af mannahöndum Örn sagði að það gleymdist líka að ströndin við Ægisíðu og Foss- voginn væri gerð af mannahöndum og væri mjög nýleg framkvæmd og fuglalíf hefði lagað sig mætavel að því. Það væri vel þekkt víða um land að fuglar löguðu sig að aðstæðum þótt hróflað hefði verið við strand- lengju. Hins vegar væri hægt að gera miklu betur við fuglana en gert hefði verið við framkvæmdir á Ægi- síðunni. Ef hreyft væri við strönd- inni aftur væri hægt að taka tillit til fuglanna með því til dæmis að byggja nes og voga. Örn bætti því við að ef menn skoð- uðu hugmyndir um flugvöllinn eins og hann væri settur út á Löngusker, þá myndaði hann tvær stórar víkur sem myndu veita aukið skjól og það myndi örugglega koma öllu fuglalífí mjög vel. Það yrði bara að gæta þess að nægilegur hluti af þessari strönd yrði aflíðandi og passaði fuglunum, auk þess sem um átta kílómetra löng ný strönd skapaðist með tilkomu nýja flugvallarins. Athuga umhverfís- áhrif snjóflóðavarna HJA Skipulagsstofnun er hafín at- hugun á umhverfísáhrifum snjóflóða- vama á Seljalandssvæði á Isafirði. Tilgangur framkvæmdarinnar er að verja núverandi byggð í Seljalands- hverfi íyrir snjóflóðum sem fallið geta úr innri hluta Seljalandshlíðar. Isafjarðarbær sér um framkvæmd verksins, en Tækniþjónusta Vest- fjarða ehf. vann skýrslu úm mat á umhverfisáhrifum. Byggja á leiði- garð á Seljalandsmúla skammt neð- an bílastæða við Skíðheima og niður að Seljalandsbænum. Lengd garðs- ins er um 700 metrar og hæðin 13,5 til 16 metrar. Til hliðar við hann koma níu snjóflóðakeilur. Ráðgert er að jarðvinna við garðinn standi árin 1999 til 2000 og að uppgræðslu Ijúki árið 2001. Um 370 þúsund rúmmetrar af jarðefnum fara í garðinn og verður allt efnið fengið við hlið garðsins að norðanverðu, að mestu sprengt berg. Við það skapast farvegur fyrir flóðin og vegna þess hve djúp snjóflóðarás- in verður mun nýr farvegur myndast fyrir Seljalandsána. Frekari nýting óbyggðra lóða í Seljalandshverfi verður óviss samkvæmt frummats- skýrslunni en fyrirhugað íbúðahverfi á Tunguskeið verður öruggt með til- komu garðsins. Hann mun ekki verja Seljalandsbæinn og er ráðgert að flytja húsin sem þar eru. Endi garðsins undir fornminjar Endi garðsins fer að líkindum yfir fornminjar ofan við Seljalandsbæinn en talið er að þar hafi verið búið frá miðöldum. Þá segir um umhverfisá- hrif að nánasta umhverfi muni breyt- ast mikið, hann verði áberandi og hafí áhrif á útsýni i firðinum. Búast megi við staðbundnum áhrifum af snjósöfnun og veðurfari í nágrenni leiðigarðsins. í frummatsskýrslu segir að helstu mótvægisaðgerðir séu að takmarka umfang vinnusvæð- is, markviss uppgræðsla, gróður- setning og frágangur lands. Frummatsskýrslan liggrn- frammi á bæjarskrifstofunni á ísafirði, í Þjóðarbókhlöðunni og hjá Skipulags- stofnun. Gefst almenningi tækifæri til að kynna sér hana til 26. mars. Leitað verður umsagna ýmissa aðila um framkvæmdina. Morgunblaðið/Golli INGIBJORG Sólrún Gísladóttir, borgarstjóri Reykjavíkur, tekur við und- irskriftalista um 2.000 íbúa í Háaleitis- og Hvassaleitishverfi, en þeir vilja að reist verði göngubrú yfir Miklubraut, vestan Háaleitisbrautar. Borgarstjóra afhentar undir- skriftir um 2.000 íbúa Háaleitis- og Hvassaleitishverfís Vilja göngubrú yfír Miklubraut INGIBJÖRGU Sólrúnu Gísla- dóttur, borgarstjóra Reykja- víkur, voru í gær aflhentar um 2.000 undirskriftir íbúa í Háa- leitis- og Hvassaleitishverfi, þar sem þess er óskað að byggð verði göngubrú yfir Miklubraut, vestan Háaleitis- braútar. I fréttatilkynnigu frá íbúum hverfisins, segir að Miklabraut- in sé nú sex akreinar og ein umferðarþyngsta gata borgar- innar og að mikið sé um að fólk fari yfir götuna á móts við Framheimilið, en því fylgi mik- il hætta. Þar segir ennfremur að að- gengi að undirgöngum á móts við Kringluna sé slæmt og mikill umferðarþungi sé á gatnamótum Háaleitisbrautar og Miklubrautar. Þrátt fyrir að þar séu umferðarljós, sé erfitt fyrir gangandi fólk að komast þar yfir. Út af þessu, og vegna þess hversu aðgengi barna að íþróttasvæði Fram og Grensáskirkju er slæmt, óska íbúarnir þess að reist verði göngubrú yfir Miklu- brautina vestan Háaleitis- brautar. Þá er einnig tekið fram, í tilkynningunni, að með slíkri brú myndi skapast æski- leg tenging við útivistarsvæði borgarinnar í Laugardal og Fossvogsdal. Undiskriftasöfnunin hófst í desember, nokkru eftir að 8 ára drengur lenti í alvarlegu umferðarslysi á Miklubraut. Foreldrafélög Hvassaleitis- og Álftamýrarskóla stóðu að söfn- uninni ásamt. Knattspyrnufé- laginu Fram. Samtökin Mannvernd Landsmenn skrái sig úr gagna- grunninum SAMTÖKIN Mannvemd hvetja landsmenn til þess að óska eftir því við landlækni að verða ekki skráðir í miðlægan gagnagrunn á heilbrigðis- sviði meðan ekki hefur verið gengið að kröfum um upplýst samþykki sjúklinga í samræmi við lög um rétt- indi sjúklinga, um samþykki óháðrar siðanefndar fyrir rannsóknarverkeín- um áður en rannsóknir hefjast og um samþykki tölvunefndar fyrir sérhvert verkefni. Sigmundur Guðbjarnason, for- maður Mannverndar, gekk á fund Davíðs Oddssonar forsætisráðherra í gærmorgun og óskaði eftir því að lögunum yrði breytt í samræmi við þessar kröfur svo sátt næðist um málið. „Hann benti meðal annars á að ekki væri unnt að breyta lögun- um á sama þingi og þau hafa verið afgreidd á en í annan stað væri ekki unnt að mæta þessum kröfum vegna þess að þær myndu gera það að verkum að ekki væri hægt að byggja þennan gagnagrunn. Þar er- um við einfaldlega á annarri skoð- un.“ Sigmundur bendii' á að hægt sé að skrá sig aftur í gagnagrunninn þegar gengið hefur verið að kröfunum. Hann segir að Mannvernd sé tilbúin til að leita sátta í málinu. ASI og Efling mótmæla harðlega frumvarpi til skaðabótalaga Launafólki hegnt fyrir sparnað sinn ALÞÝÐUSAMBAND íslands og stjóm Eflingar-stéttarfélags gagn- rýna þann þátt í frumvarpi til breytinga á skaðabótalögum sem lýtur að því að lífeyrisréttur launa- fólks og greiðslur úr sjúkrasjóðum verkalýðshreyfingarinnar skerði bætur þeirra frá tryggingafélögun- um. I ályktun stjómar Eflingai- segir að hegna eigi launafólki íyrir spamað í samtryggingarsjóðum sínum. Ríkisstjómin lagði framvarpið fram í lok síðasta árs. í Upplýs- ingariti Alþýðusambandsins segir að þar sé að finna leiðréttingu sem eigi að fela í sér að tjónþolar fái fullar bætur fyrir tjón sín. Sá böggull fylgi þó skammrifi að í framvarpinu sé tryggingafélögun- um bættur hluti hækkunarinnar með því að láta lífeyrisrétt launa- fólks og greiðslur úr sjúkrasjóðum verkalýðshreyfingarinnar skerða bætur þeirra frá tryggingafélögun- um. Fyrir spamað launafólks í þessum sjóðum eigi að hegna og forsjálni þess vegna hugsanlegra slysa og heilsubrests eigi að koma tryggingafélögunum til góða. Þessu hafi ASI mótmælt harðlega. Tryggingafélögum bætt „tjónið" í Upplýsingariti ASÍ segir Magnús Nordahl, lögfræðingur samtakanna, að ætla mætti að hækkun á margfeldisstuðli skaða- bótalaganna hefði slegið á þann milljarðahagnað sem ríkisstjórnin hafi fært tryggingafélögunum með upphaflegri gerð laganna. Því sé ekki að heilsa því lífeyrissjóðum launafólks sé nú ætlað að bæta tryggingafélögunum hluta þess „tjóns“ sem þau verða fyrir við hækkun skaðabótanna. Magnús segir að í framvarpi til breytinga á skaðabótalögum sé gert ráð fyrir að launafólk, sem verði fyrir varanlegu tekjutapi vegna slysa og öðlast rétt til ör- orkubóta úr lífeyrissjóði sínum, þurfi að sæta lækkun skaðabóta úr hendi tryggingafélaganna sem nemur 40% af reiknuðu ein- greiðsluverðmæti örorkubótanna úr lífeyrissjóðum sínum. Þá eigi að draga 60% af greiðslum frá lífeyr- issjóði og allar bætur úr sjúkra- sjóðum verkalýðsfélaganna vegna tímabundinnar örorku. Magnús segir að svo virðist sem fulltrúar stjómarflokkanna í allsherjamefnd Alþingis hafi ekki lágmarksskiln- ing á eðli og gerð lífeyrissjóða launafólks. Iðgjöld til þeirra sé hluti umsaminna launa samkvæmt kjarasamningum og afrakstur langrar og harðrar kjarabaráttu. Fyrir iðgjöldin hafi launafólk selt umtalsverðar launahækkanir í gegnum árin. Til þessa sparnaðar eigi enginn rétt nema íaunafólk, makar þess og börn og allra síst eigi að leyfa tryggingafélögunum að láta þar greipar sópa. I ályktun stjórnar Eflingar- stéttarfélags segir að réttur launafólks í samtryggingarsjóðum séu uppsöfnuð laun, lögð til hliðar af forsjálni til þess að mæta alvar- legum áfóllum sem launafólk get- ur orðið fyrir. Sá réttur sem þar verði til sé oftar en ekki eini var- anlegi sparnaður launafólks. Fyrir þennan sparnað eigi nú að hegna launafólki og nota hann til þess að spara tryggingafélögunum bóta- greiðslur og skerða kjör launa- fólks sem verði fyrir alvarlegum áföllum.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.