Morgunblaðið - 20.02.1999, Blaðsíða 34
MORGUNB LAÐIÐ
34 LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 1999
Fyrir tæpum áratug útskrifaðist Elva
Ósk Ólafsdóttir úr fjórða bekk Leiklistar-
/
skóla Islands. Með gömlu bekkjarmynd-
inni rifjar hún upp liðna tíma í samtali
við Olaf Ormsson.
MYNDIN var tekin vorið
1989 á útskriftardegmum.
Hún var tekin fyrir utan
Seðlabankann. Það var rok og frem-
ur kalt þennan dag. Við vorum að
reyna að finna einhvem skemmtileg-
an stað þar sem við gátum verið í
skjóli, við stelpumar vomm dálítið
léttklæddar. Við útskrifuðumst í
Nemendaleikhúsinu við Lindarbæ
og það var ekkert sérstaklega
skemmtilegt umhverfi þar í kring og
ljósmyndarinn var dáh'tinn tíma að
finna góðan stað fyrir myndatöku.
Jóhanna Ólafsdóttir Ijósmyndari tók
myndina. Þetta er útskriftarbekkur-
inn á fjórða ári í leiklistarskólanum
og þann vetur vorum við aðallega í
Nemendaleikhúsinu í Lindarbæ.
Fyrsta ár okkar í skólanum var skól-
inn til húsa við Tjörnina. Síðan
misstum við það húsnæði og okkar
bekkur var fyrsti bekkurinn sem
byrjaði í skólanum þegar hann flutt-
ist yfir á Sölvhólsgötuna og þar vor-
um við í þrjú ár,“ segir Elva Ósk
Ólafsdótth- leikkona og brosir þegar
hún virðir íyrir sér bekkjarmyndina
af fjórða bekk í Leiklistarskóla ís-
Iands veturinn 1988-89 og rifjar upp
liðna daga í eldhúsinu heima hjá sér í
Hlégerði í Kópavogi. Elva Ósk minn-
ist með ánægju bekkjarsystkina
sinna úr Leiklistarskóla Islands.
Kynntist leiklistinni snemma
„Eg er fædd og uppalin í Vest-
mannaeyjum. Eg varð snemma
heilluð af leikhúsinu og vann með
Leikfélagi Vestmannaeyja í mörg
ár. Ég lék strax í gagnfræðaskóla
og á kvöldvökum hjá skátunum. Ég
fluttist til Reykjavíkur tvítug og hóf
þá nám í Leiklistarskóla íslands.
Hverjir voru helstu kennarar skól-
ans?
„Helga Hjörvar var skólastjóri
Leiklistarskóla Islands þau ár þeg-
ar ég var í skólanum. A fyrsta árinu
4. BEKKUR Leiklistarskóla íslands veturinn 1988-89. Aftari röð frá vinstri: Ólafur Guðnmndsson, Sigur-
þór Heimir Albertsson og Steinn Ármann Magnússon. Fremri röð frá vinstri: Helga Braga Jónsdóttir,
Christine Carr, Bára Lyngdal Magnúsdóttir, Elva Ósk Ólafsdóttir og Steinunn Olafsdóttir.
kenndu okkur Pétur Einarsson og
Helga Hjörvar. Fastir kennarar
voru einnig Hilde Helgason og Kári
Halldór. Hilde Helgason var mjög
minnisstæður kennari, hún var svo
góð manneskja, ljúf og indæl. Þeir
sem kenndu fræðigreinarnar voru
Hafliði Hallgrímsson, Halldór B.
Runólfsson og Sveinn Einarsson.
Fjóla Ólafsdóttir kenndi okkur söng
og Margrét Pálsdóttir hljóðmótun.
Það var þá svona tilraunastarfsemi
sem var að byrja, að fá inn hljóð-
mótunarkennara til að laga linmæl-
ið og kenna okkur að bera rétt fram
ELVA Ósk skoðar gömlu útskriftarbekkjarmyndir úr
Leiklistarskólanum
sérhljóðana og mállýskudæmi. Mar-
grét kenndi okkur í gegnum öll ár-
in. Hún er íslenskufræðingur og
hefur verið málfarsráðunautur hjá
Ríkisútvarpinu á liðnum árum en er
nú flutt til útlanda.
Fyrsta árið voru nemendur að
kynnast og við vorum mikið í spuna-
verkefnum og þá var verið að búa
okkur undir alla tæknivinnuna sem
við vorum að byrja að læra og það
var verið að þreifa á textameðferð
og farið fremur rólega af stað. Þá
var lagt mikið upp líkamsþjálfun.
Það var leikfimi á hverjum einasta
degi, fimleikar og skylmingar og
mikill dans, við lærðum alla sam-
kvæmisdansa. Hafdís í Ki’ámhúsinu
kenndi okkur leikfimi og dans.
Helga heitin Gunnarsdóttir kór-
stjórnandi kenndi tónfræði og tón-
listarsögu. Annað árið í skólanum
var mikil tæknivinna og þá fengum
við að taka verkefni og æfðum leik-
rit. Þá var farið í gegn um grískar
leikbókmenntir og Shakespeare,
það var tekið klassík og léttmeti og
við fengum að spreyta okkur á sem
flestu. I gegnum öll árin eru einka-
tímar í söng. Þá var leiklistarsagan
tekin fyrir tvö fyrstu árin, bæði inn-
lend og erlend og íslenska. Árni
heitinn Böðvarsson kenndi íslensku
við skólann. Sveinn Einarsson
kenndi innlenda leiklistarsögu og
Halldór B. Runólfsson erlenda lista-
sögu og Hafliði Hallgrímsson
kenndi erlenda leiklistarsögu.
Þriðja árið var farið meira út í verk-
legt nám. Þá vorum við á námskeið-
um í kvikmyndaleik og útvarpsleik.
A fyi’sta og öðru ári í skólanum vor-
um við vel nýtt til að aðstoða og
hjálpa nemendaleikhúsi sem þá var
í gangi og við komum þá nálægt
tæknivinnu, ljósavinnu og hljóð-
vinnu. Á fjórða vetri fengum við að
vinna með leikstjórum í Nemenda-
leikhúsinu, t.d. Stefáni Baldurssyni,
Pétri Einarssyni og Bríeti Héðins-
dóttur, sem leikstýrði tveim ein-
þáttungum, Sköllóttu söngkonunni
eftir Eugene Ionesco og Smáborg-
arabrúðkaupi eftir Bertolt Brecht.
Stefán leikstýrði Mærin fór í dans-
inn eftir Debbie Horsfield og út-
skriftarverkefni okkar var Hund-
heppinn eftir Ólaf Hauk og því leik-
stýrði Pétur Einarsson.
Þetta var heilmikið nám, mikil
viðvera og mikið álag og t.d. í Nem-
endaleikhúsinu gerum við sjálf leik-
myndina. Allan veturinn var varla
nokkur frídagur. Skólinn byrjaði
um mánaðamótin ágúst-september
og lauk í maímánuði á vorin. Við töl-
uðum oft um skólann líkt og hjóna-
band. Þetta voru átta einstaklingar
sem voru öllum stundum saman, en
allir með miklar og ólíkar skoðanir.
Þessi fjögur ár voru tímar gleðinn-
ar, margi’a svitadropa og tára.
Hvert ár skiptist í þrjár annir og þá
var sýndur afrakstur annarinnar og
Hvernig hafa litir áhrif á fólk?
GYLFI ÁSMUNDSSON SÁLFRÆDINGUR SVARAR SPURNINGUM LESENDA
Spurning: Er eitthvað til í því að
litir hafi áhrif á fólk, t.d. litir á
herbergjum, veggjum, lofti, gólfi,
jafnvel húsgögnum? Er hægt að
segja eitthvað til um heppilegt
litaval þegar mála skal? Getur
styrkleiki lita eða blæbrigði e.t.v.
skipt máli?
Svar: Skynjun er eitt meginvið-
fangsefni sálarfræðinnar.
Reynsluheimur okkar er fólginn í
því sem við skynjum og sumir
fræðimenn halda því fram að við
séum fyrst og fremst mótuð af
umhverfisáhrifum. Við erum það
sem við skynjum, eins og breski
heimspekingurinn John Locke
orðaði það. Það segir því heilmikið
um okkur sem persónur hvernig
við skynjum eða öllu heldur túlk-
um umhverfi okkar. Litir eru mik-
ilvægur þáttur í skynheimi okkur.
Þeir glæða hann lífi og gefa hon-
um tilfinningalegt gildi. Upplifun
fólks á litum og viðbrögð við þeim
er því oft notað sem mælikvarði á
tilfinningalíf fólks. Einstaklingar
eiga sér mismunandi uppáhaldsliti
eða finnst ákveðnir litir ljótir eða
fráhrindandi og samsetning lita
höfðar mismunandi til fólks. Við
getum kallað þetta smekk, en
hann endurspeglar þá gjarnan
mismunandi tilfinningalegar
áherslur og getur veitt nokkra
innsýn í blæbrigði sálarlífsins.
Þegar við veljum okkur liti á
herbergin, húsið eða nýja bílinn
kemur margt fleira til en persónu-
leg afstaða okkar til lita. Á sama
hátt og við getum átt í erfiðleikum
með að láta tilfinningar okkar í
Ijósi eigum við í vandræðum með
litina. Þá kjósum við fremur að
fylgja almennum smekk eða tísku
á hverjum tíma. Tískan hefur mikil
áhrif á aðlögun flestra í samfélag-
inu og er vegvísir um það hvaða
mynd er óhætt að gefa af sér án
þess að skera sig úr eða verða sér
til skammar. Þetta á ekki síst við
þegar fólk hefur náð vissum aldri
Mælikvarði á
tilfinningalíf
og er búið að koma sér í ákveðinn
farveg í lífinu. Unglingar hafa jafn-
vel enn ríkari þörf fyrir að vera
eins og jafnaldrar sínir. En tíska
þeirra er önnur. Oft kjósa þeir
einmitt skæra liti í samræmi við
tilfinningar eins og uppreisn og
nýjungagimi. Eldra fólkið heldur
sig við fölari eða hvíta liti á veggi
og tískulitinn á bílum í ár eða leitar
til þeirra sem hafa sérhæft sig í
litaráðgjöf. Samsetning lita byggist
á smekkvísi og listrænu auga, sem
ekki er öllum gefið, og litasérfræð-
ingar sækja þekkingu sína að veru-
legu leyti í það sem sálfræðin
kennir okkur um eiginleika lita og
áhrif þeirra á fólk við mismunandi
kringumstæður. Við tölum um
heita liti og kalda liti, æsandi lit-
andi og róandi. Það er mismunandi
hvaða litir skapa æskilegast tilfinn-
ingalegt andrúmsloft á hverjum
stað. I baðherbergið velja flestir
Ijósa og „hreina" liti, í stofuna
kannski hlutlausa liti sem geta ver-
ið bakgrunnur fyrir myndir eða
annað skraut í ýmsum litum. í
svefnherbergið kjósa margir „ró-
andi“ liti eins og ljósblátt eða
grænt, nema kannske piparsveinn-
inn sem velur sér rautt.
Þetta litaval þarf ekki nema að
litlu leyti að endurspegla tilfinn-
ingalegt landslag viðkomandi ein-
staklinga. Til að fá betri innsýn í
það er betra að fá fram aðstöðu til
lita án tillits til þess umhverfis eða
kringumstæðna sem þeim er ætl-
að að taka þátt í. Til eru sálfræði-
leg próf sem leiða líkur að tilfinn-
ingalífi og persónugerð fólks eftir
því hverjir eru uppáhaldslitir þess
og hvaða litir eru því ógeðfelldir.
Þeir sem kjósa sér blátt sækjast
eftir ró og jafnvægi og þeir sem
kjósa fremur rautt eru virkir og
tilfinningaríkir og vilja takast á
við metnaðarfull verkefni. Aðrir
litir endurspegla á sama hátt önn-
ur persónueinkenni og tilfinninga-
lega afstöðu, og samspil í vali og
röðun lita gefur færi á ítarlegri
túlkun á því hvern mann viðkom-
andi hefur að geyma. Tilgátur um
tengsl lita við persónugerð og til-
finningalíf hafa verið prófaðar og
færðar að þeim góðar líkur, en ein
sér eru þau mikil einföldun á þeim
flókna vef sem persónuleiki
manna er og skoða þarf hann frá
mörgum öðrum sjónarhomum til
þess að fá áreiðanlega og heillega
mynd.
• Lesendur Morgunblaðsins geta
spurt sálfræðinginn um það sem
þeim liggur á bjarta. Tekið er á
móti spurningum á virkum dögum
milli klukkan 10 og 17 í síma
5691100 og bréfum cða símbréfum
merkt: Vikulok, fax: 5691222.
Ennfremur sfmbréf merkt: Gylfi
Ásmundsson, fax: 5601720.