Morgunblaðið - 20.02.1999, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 20.02.1999, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 1999 43 MARGMIÐLUN Risastökk staf- rænna myndavéla STAFRÆNAR myndavélai- hafa smám saman sótt í sig veðrið og aukið markaðshlutdeild sína á kostnað hefð- bundinna véla. Eðli málsins sam- kvæmt hafa þær verið talsvert lakari, enda upplausn mun minni en á venju- legri silfuroxíð fílmu, en undanfarið hafa framleiðendur kynnt miklar framfaiTr í þeim efhum. Gæði stafi’ænna myndavéla byggjast á því hversu margar ljós- næmar díóður eru í vélinni og lengi framan af var upplausn þeirra 640*480 myndeiningar eða pixel, sem miðaðist við VGA-skjáupplausn. Svo fáir punktar, ríflega 300.000, voru miklu færri en á hefðbundinni filmu og gerðu að verkum að ekki var hægt að stækka slíkar myndir af neinu viti. Þegar tóku að koma á markað myndavélar með meiri upp- lausn voru þær síðan svo dýrar að ekki var nema fyrir stórblöð eða ljósmyndastofur að kaupa slíkar vél- ar. A síðasta ári fjölgaði verulega svo- nefndum megapixel-vélum á almenn- um mai’kaði, en það eru vélar sem eru með yfir milljón myndeininga skynjara. Nýjasta nýtt í þessum efn- um er svo að framleiðendur keppast við að setja á markað tveggja megapixela vélar, þ.e. myndavélar sem eru með meira en tvær milljónir myndeininga. Fyrir vikið má segja að nú fyrst séu stafrænar vélar teknar að ógna hefðbundnum vélum, því tveggja megapixela vélar era nógu góðar fyrir alla almenna notkun og blaðaljós- myndai-a. Verð á slíkum vélum hefiu’ reyndar verið ansi hátt, en nýju vél- arnar kosta álíka mildð og milljón myndeiningavélai’ á síðasta ári. Þannig kynnti Olympus vél sem kall- ast C-2000 Zoom og er með 2,1 milljón myndeininingar, innrauða fjarstýr- ingu, 3X aðdrátt, 5 sm kristalsskjá og disklingadrif. Með fylgir 8MB SmartMedia minniskort sem kallast stafræn fílma. Ytra mun vélin kosta um 60.000 kr. Nikon kynnti einnig fyrir skemmstu slíka vél, tvær reyndar, sem báðar eru 2,11 milljónir myndein- inga, CoolPix 950 og 700. 950-gerðin mun kosta álíka og Olympus-vélin, en hægt er að fá við hana gleiðlinsu og fiskauga, enda er hún ætluð atvinnu- mönnum. 700-gerðin mun kosta mun minna, líklega í kringum 40.000 kr., en hún er ætluð amatörum og hefur færri stillingarmöguleika. Toshiba hefur ekki verið áberandi á myndavélamarkaði, en kynnti nýja 2,14 milljóna myndeininga vél, PDR- M4, sem er meðal annars með USB tengi og 16 MB innra minni. Hún er með 5 sm kristalsslgá og 2X stafræn- an aðdrátt. PUlf O6 gfABAB Spurt: Það er eitt sem mig langar að vita. Það er hvort eitthvert DVD-drif og kort sé til fyrir iMac- tölvuna (Rev. A og B en ekld C, þar sem engin rauf er í C-útgáf- unni af töivunni). Lesandi Morgunblaðsins, hmr@simnet.is Svar: Ekki er til sérstakt DVD-drif fyiir iMakkann. I iMakkanum er geisladrif fyiir ferðatölvur en hægt er að fá ferðatölvugerð af DVD- drifum sem er þó talsvert dýraii en hefðbundin gerð. Líklega er hægt að skipta á drifum, en þar sem engar rásir eru fyrir stýrispjald þyrfti að nota SoftDVD-hugbúnað til að stýra drifinu sem myndi ekki skila miklum gæðum. Hugsanlega mætti notast við utanáliggjandi DVD-drif, til að mynda frá Hitachi, með SCSI-tengi og tengja við USB-tengi á tölvunni með viðeig- andi millistykki sem breytti SCSI í USB. Slík tengi eru að vísu ekki á markaði enn en samkvæmt iMacin- touch eru þau væntanleg í næsta mánuði. Sjá http^/www.imacin- touch.conVimacusb.html#scsi. Spurt: Ég keypti mér Final Fanta- sy VII fyrir nokkrum mánuðum en það er eitt stórt vandamál sem fer mjög í taugamar á mér. Ég er kominn á þriðja disk (þann síðasta) og alveg frá því að ég byrjaði í leiknum hefur tölvan frosið. Ég er með ágæta 200 MHz tölvu með góðu 3D-skjákorti. Ég hef reynt alla grafíkmöguleika en tölvan frýs alltaf. í öllum tilfellum þá frýs tölv- an þegar ég er í bardögum. Svar: Talsvert er um vandamál vegna skrárinnar mmsystem.dll í ýmsum margmiðlunarforritum. Mmsystem.dll er til hljóðstýringar og ái-ekstrar verða þegar er í við- komandi tölvu hljóðkort sem ekki er fyllilega SoundBlaster-samhæft. Hugsanlega þarf að skipta út rekl- um vegna hljóðkortsins; nýja rekla má væntanlega finna á vefslóð framleiðandans. Einnig getur verið að villa sé í uppsetningu DirectX á vélinni. Á slóðinni http://www.microsoft.eom/direetx/d efault.asp er að finna nýjustu gerð DirectX. Undir [boot] í system.ini, sem er skrá í Windows-skráasafninu á tölvunni, á að vera línan dri- vers=mmsystem.dll. Hugsanlega er ; fyrir framan línuna. Ski’ánni má breyta með ritvinnsluforriti sem vinnur með text-only skrár. Farið varlega því ef system.ini er spillt er ekki hægt að ræsa Windows. Ef mmsystem.dll-skráin er skemmd má ftnna hana í win95_08.cab skránni sem er á Windows 95 geisladisknum. í Windows 98 er skráin í win98_33.cab. Henni má ná út með því að keyra skipunina extract /A /L Cnwindowsisystem win95_08.cab mmsysteem.dll (eða win98_33.cab). APPELSÍNUGULA Dreamcast merkið sem notað er í Japan breytir um lit á leiðinni vestur, því markaðsfræðingar segja að blátt sé vinsælli litur á Vesturlöndum. 9. 9. 1999 MARGUR bíður með eftirvæntingu eftir Dreamcast tölvu Sega, enda fer þar öflugasta leikjatölva á mai’kaði nú um stundir og næstu árin. Dreamcast kom á markað austur í Japan seint á síðasta ári, en Evrópu- og Bandaríkja- útgáfa verður í haust. Fyrii’ skemmstu skýrði blaðafull- trúi Sega í Þýskalandi frá því að tölv- an kæmi á markað í Evrópu 9. sept- ember næstkomandi. Varla er það til- viljun að 9. 9. ‘99 varð fyrir valinu, enda hafa Sega-menn áður tengt kynningar á leikjum og tölvum ákveðnum dögum eða dagsetningum. Þegar Dreamcast-vélin kemur á mai’kað á Vesturlöndum verður til fyrir hana eitthvað á annað hundrað leikja; 76 eru þegar komnir út eða rétt ókomnir. Má nefna Sonic Adventure, Sega Rally 2, Biohazard, magnaður leikur frá Capcom, Cool Boarders, Daytona USA 2: Battle on the Edge, Dead or Alive 2, Ecco the Dolphin 3D, Flight Shooting frá Konami, Get Bass, veiðileikur sem hægt er að nota sérstaka veiðistöng við, Marvel vs. Capeom frá Capcom, MDK 2, Mortal Kombat 4, NBÁ Action 200Ó, Rayman 2, Street Fighter III, Um-eal, Virtual Fighter 3: Team Battle, Warzone 2100 og Zombie Zone, sem hét áður House of the Dead: Side Story og er víst venju fremur ógeðfelldur. BarnaskóútsÖlunnÍ er að Ijúka SMASKOR i bláu húsi v/Fákafen, s. 568 3919 spara ojbara... en það er gaman að spara i BT! m\*\ Hl 1 Ippuuaa. E88£ * bamaíeiktton. 1 $ táttu ekki verðið hefta þig notaðu afsláttar- _ Meiri ^ afsláttur... þetta híjóta þá að vera pöddugóð heftið! Afsláttarhefti hvað... ég er buinn að missa leikir. heftiö! i’iiiýaáiaB’ Motaðu afsláttarheftið... það ____borgar sig! ^ Opið laugardag 10:00-16:00 • sunnudagur 13:00-17:00 '©Disney / Pixar itilboö í BT BT • Reykjavíkurvegi 64 • 220 Hafnarf. • Sími 550 4020 BT • Skeifunni 11 • 108 Rvk hugsaðulengra..
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.