Morgunblaðið - 20.02.1999, Síða 62
.7, 62 LAUGARDAGUR 20. FEBRÚAR 1999
MORGUNBLAÐIÐ
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík • Sími 569 1100 • Símbréf 569 1329
Lækka á tekju-
skattinn og hækka
persónuafsláttinn
Ljóska
Þú lofaðir að hjálpa mér með Hvenær lofaði ég því?
heimaverkefnin svo lengi sem við
bæði lifum ...
Einmitt núna.
Frá Sigurbjarti Jóhannessyni:
NÚ A haustdögum hefur undirrit-
aður skrifað tvö bréf í Mbl. þar sem
lýst er þeirri skoðun að taka eigi
upp gjald af sjávarnytjum, auðlind-
um, í stað tekjuskatts. Nú hefur
brugðið svo við að nokkrir af þeim
sem telja sig til þess fallna að leiða
þjóðina til bættra kjara á næstu öld
hafa lýst svipuðum skoðunum.
Það er mikið fagnaðarefni að svo
er komið. En getur fólk treyst því,
af reynslu fyrri ára, að þeir verði
sömu skoðunar eftir næstu kosning-
ar? Er það traustvekjandi þegar
frambjóðandi eins aðalskattaflokks
landsins gengur fram fyrir skjöldu
og segir „kjósið mig því ég ætla að
lækka tekjuskattinn niður í 25% á
einstaklinga og 20% á smáfyrir-
tæki“? Er það traustvekjandi, þeg-
ar frambjóðandinn býðm- sig fram
undir merkjum sömu fylkingar sem
sagði fyrir síðustu borgarstjórnar-
kostningar „við ætlum að lækka út-
gjöld á borgarbúa"? Á sama ári og
þetta var sagt, lagði samfylkingin
verulegar auknar álögur á borgar-
búa áður en árið var liðið, og heldur
því áfram á þessu ári.
Það er rétt að lækka tekjuskatts-
prósentuna, en er það rétt að lækka
presónuafsláttinn? Þeir sem núna
ákveða hvað þeir greiða í tekjuskatt
verða ánægðir með það. Alþingi
gerði þetta á þennan hátt nú um
áramótin. Lækkaði með annarri
hendinni en hækkaði með hinni.
Borgarstjóm bætti um betur og
hækkaði tekjuskattinn meira en
sem nam lækkun ríkisins. Þetta er
skrípaleikur til þess gerður að slá
ryki í augu almennings. Ég hef
haldið því fram að hækka eigi per-
sónuafsláttinn eða afnema tekju-
skatt með öllu. Byrja mætti að af-
nema hann af ákveðnum hópum.
Þar hafa verið nefndar bætur ör-
yrkja og ellilífeyrisþega, tekjur sjó-
manna, opinberra starfsmanna og
síðast annama launamanna. En að
líkindum væri einfaldast að hækka
persónuafsláttinn, það virkaði strax
á þá sem hafa lægstu tekjurnar og
telja fram tekjur sínar. Það er
reyndar furðulegt að þeir sem alltaf
eru að skreyta sig með félags-
hyggju og segjast vinna fyrir þá
sem lægstar hafa tekjurnar, skuli
ekki berjast fyrir því að persónuaf-
slátturinn sé hækkaður og tekju-
skattur aflagður. Ekki væri óeðli-
legt að persónuafsláttir væri sem
næst framfærslukostnaði og fylgdi
honum.
Hvers vegna á að lækka tekju-
skattinn? spyr sjálfsagt einhver. Því
er fljótsvarað. Það er vegna þess að
aldrei hefur tekist að framfylgja
tekjuskattslögunum um álagningu
tekjuskatts eða réttláta innheimtu.
Tekjuskatturinn er þjóðarskömm
eins og gjafakvótinn.
SIGURBJARTUR JÓHANNESSON,
Víghólastíg 24, Kópavogi.
Spölur hf.
Frá Halldóri Finnssyni:
SPÖLUR er stutt og skemmtilegt
nafh og merking þess er auðskilin og
alíslensk og er það gott að svona fyr-
irtæki þurfi ekki að skreyta sig með
löngu og jafnvel erlendu nafni.
En það vai' nú ekki fyrir nafnið,
sem ég vildi hæla þeim sem að þessu
félagi standa - heldur því þrekvirki,
bjaitsýni og ódrepandi dugnaði við
framkvæmd á þessu stærsta sam-
göngumannvirki á Islandi eins og er.
Já, það er undravert hvemig þeim
tókst að fjármagna þessa fram-
kvæmd, sem er mjög stórbrotin bæði
að frágangi og einnig aðkomu beggja
megin frá, sem á þó eflaust eftir að
verða fallegri þegar búið er að græða
upp það sem nú er ógróið.
Én svona er það, að sumu leyti
saknar maður Akraborgarinnar
gömlu og góðu. Það var ósköp gott að
fá hvíld á sjó í klukkutíma á leiðinni á
milli Grundarfjarðar og Reykjavíkur,
og áhöfnin alltaf hjálpleg og lipur.
Ekki spillti það að Akraborgin gaf
eldri borgurum 50% afslátt af far-
gjaldi, og munaði það þónokkru fyrir
okkur eldra fólkið. - Sama er um aðr-
ar ferjur við landið, svo og flugfélög-
in, sem gefa eldra fólki afslátt, þó sé
svolítið mismunandi.
Nú kostar hver ferð um Hvalfjarð-
argöng kr. 1.000,- en ef keyptur er
veglykill með 20 ferðum fæst 20% af-
sláttur, og ef keyptm- er veglykill
með 40 ferðum fæst 40% afsláttur.
Það er nú svo að við eldra fólkið
fórum varla meira en 10 til 20 ferðir á
ári í gegnum göngin, því finnst okkur
ekki ósangjarnt - miðað við hvað
Akraborgin var almennileg við okk-
ur, að Spölur geri undantekningu,
þannig að þeir gæfu eldri borgurum
kost á að kaupa veglykil með ca. 10
til 20 ferðum í, og væri þeim gefinn
40% afsláttur - eða svipað og þeim
sem keyra mun meira.
Því er nú þessu máli hreyft nú, að í
sjónvarpsviðtölum fyrir nokkru, kom
fram að umferð um göngin væru um
þriðjungi meiri en reiknað hafi verið
með - (og tekjurnar því einnig) - svo
nú í maí nk. yrði gjaldskráin endur-
skoðuð, og sennilega lækkuð, með
samkomulagi við þá sem fjármögn-
uðu framkvæmdina.
Upplýst er að tæknilega er þetta
mjög auðvelt, þ.e. að selja veglykla
með 10 eða 20 ferðum, og þá með
þeim afslætti sem stjómin ákvæði,
gegn framvísun persónuskilríkja t.d.
eldri borgara.
Vonandi treystir stjómin sér til
þess að skoða þetta í alvöru, við end-
urskoðun á gjaldskrá nú á vori kom-
anda.
HALLDÓR FINNSSON,
Hrannarstíg 5, Grundai-firði.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.