Morgunblaðið - 20.02.1999, Qupperneq 76
Morgunblaðið/Kristinn
LITIÐ var flogið innanlands síðdegis í gær og samkvæmt veðurspá er ólíklegt að mikið verði hægt að fljúga í dag.
Stöðug snjóflóðavakt og hús rýmd áfram í Bolungarvík og Siglufírði
r * Spáð snjökomu á Norður-
landi og roki um allt land
STÖÐUG snjóflóðavakt er nú á Veð-
urstofu íslands þar sem metin er
snjóflóðahætta í Bolungarvík og
Siglufirði þar sem nokkur hús voru
rýmd áfram í gær. Spáð er norðan-
roki víða um landið með snjókomu,
mestri á Norðurlandi en engri á
Austurlandi. I gærkvöld og nótt
kyngdi snjó víða niður um vestan- og
norðanvert landið.
jk I Siglufirði voru 20 hús rýmd um
hádegisbil í gær og var talið rétt að
hafa þau áfram mannlaus þar til veðr-
ið skánaði. Mikið snjóaði þai- síðdegis
í gær eins og víða á Norðurlandi en í
gærkvöld dró heldur úr snjókomunni
í Siglufirði. í Bolungarvík voru átta
hús rýmd áfram eins og í fyrrinótt og
sömuleiðis bönnuð áfram umferð í
hesthúsahverfi bæjarins. Ekki var
talin ástæða til að rýma aftur hús í
Súðavík eða á Isafirði. Almanna-
varnanefndir voru í sambandi við
snjóflóðavakt Veðurstofunnar til að
geta gripið til ráðstafana ef breyting-
ar yrðu til hins verra.
Innanlandsflug lagðist niður síð-
degis í gær vegna dimmviðris og
roks og færð var orðin þung í út-
hverfum á höfuðborgarsvæðinu í
gærkvöld en snjóruðningstæki voru
að fram yfir miðnætti og áttu að
hefjast handa aftur um klukkan 5 í
morgun. Þá var erfið færð í bæjum
víða á Vestfjörðum og Norðurlandi
og hafa lögregla og björgunarsveitir
verið fólki til aðstoðar.
Einar Sveinbjömsson veðurfræð-
ingur sagði lægð enn norður af Mel-
rakkasléttu og myndi hún þokast
suður með Austurlandi. Því yrði
norðanstrengur yfir landinu á morg-
un með talsverðri snjókomu á Norð-
urlandi en lítilli á Vesturlandi og úr-
komulaust yrði á Suður- og Austur-
landi. Hann taldi ólíklegt að gæfi til
flugs í dag vegna veðurhæðar og
snjókomu.
Atlantsskip
sigla áfram
DÓMSTÓLL í Washington gaf í
gær Bandaríkjaher leyfi til að
láta Atlantsskip ehf. halda áfram
siglingum fyrir vamarliðið á
Keflavíkurflugvelli milli Banda-
ríkjanna og Islands þar til nýtt
útboð hefur farið fram. Var
þetta tilkynnt stjóm Atlants-
skipa í gær og sagði Guðmundur
Kjæmested, framkvæmdastjóri
skipafélagsins, að dómarinn
hefði sagt að fresturinn gilti þar
til nýtt útboð hefði farið fram.
Þegar síðasta útboð var haldið
leið ár frá því útboðsgögn vom
lögð fram og siglingar hófust.
Dómstóllinn dæmdi í byrjun
febrúar að það útboð hefði ekki
verið reglum samkvæmt. Atl-
antsskip og bandarísk yfirvöld
hafa 45 daga til að áffýja þeim
úrskurði til æðra dómstigs.
10-11 skráð
á VÞI í mars
VÖRUVELTAN HF., fyrirtækið
sem rekur 10-11 verslanirnar, verð-
ur skráð á Verðbréfaþing Islands í
mars næstkomandi og stendur und-
irbúningur skráningarinnar nú sem
hæst.
Eignarhaldsfélagið Alþýðubank-
inn hf., Landsbréf hf., Lífeyrissjóð-
urinn Lífiðn auk nokkurra annarra
aðila keyptu 70% hlut í fyrirtækinu
í lok síðasta árs af hjónununum Ei-
ríki Sigurðssyni og Helgu Gísla-
dóttur sem eiga nú 25% hlut í fyrir-
tækinu. Þau 5% sem eftir standa
mun Islandsbanki selja á almenn-
um markaði í dreifðri sölu. Eignar-
haldsfélagið á 27% hlutafjár í félag-
inu.
Gylfi Arnbjörnsson, fram-
kvæmdastjóri EFA, segist binda
góðar vonir við að ski-áningin muni
•*-skila EFA ávinningi enda sé um
gott og „ferskt" fyrirtæki að ræða
með jákvæða ímynd. Sagði hann að
gefa ætti hluthöfum EFA kost á að
kaupa af hlut EFA í Vöruveltunni,
áður en það verður skráð á markað,
og þá í hlutfalli við eign sína í Eign-
arhaldsfélaginu Alþýðubankinn hf.
^ ■ Ávöxtun/20
LANDHELGiSGÆSLAM
Morgunblaðið/Sigurður Jónsson
Nefndum verði
fækkað á þingi
ÞINGMENN forsætisnefndar Ai-
þingis hafa lagt fram frumvai-p sem
gerir ráð fyrir verulegum breyting-
um á störfum Alþingis, meðal annai's
styttingu ræðutíma og fækkun
nefnda. Ólafur G. Einarsson, forseti
Alþingis, kveðst vona að með breyt-
ingunum verði Alþingi skemmtilegri
vettvangur skoðanaskipta. Hann
segir þó að ekki sé eining í þing-
flokkum um þær allar og því óljóst
hvort þær verði samþykktar.
Ræðutími þingmanna við aðra um-
ræðu um mál verður verulega stytt-
ur en á móti kemur að þeir mega
taka eins oft til máls og þeir vilja,
ólíkt því sem nú er. „Eg tel að mál-
þóf verði úr sögunni með þessu því
ég myndi ekki skilgreina það sem
málþóf þó menn tali oft í stuttu og
meitluðu máli. Menn geta vafalaust
misnotað þetta en engu að síður held
ég að ræðurnar verði líklegri til þess
að hlustað verði á þær heldur en þær
sem taka marga klukkutíma.11
Ólafur segist vona að breytingarn-
ar verði til þess að þingmenn, frétta-
menn og almenningur fylgist meira
með ræðunum. „I dag er yfirleitt
Fjögurra bíla
árekstur aust-
ur af Selfossi
ÞYRLA Landhelgisgæslunnar
var kölluð út í gærkvöld til að
sækja tvo menn sem slösuðust
alvarlega í fjögurra bfla
árekstri á Suðurlandsvegi, aust-
ur undir Kjartansstöðum, 7-8
km austur af Selfossi, skömmu
fyrir klukkan 18. Samkvæmt
upplýsingum frá Sjúkrahúsi
Reykjavíkur er annar þeirra
mjög mikið slasaður en þó ekki í
bráðri lífshættu.
Suðurlandsvegur var lokaður
í um einn og hálfan tíma vegna
árekstursins og að sögn lög-
reglu á Selfossi myndaðist þar
mikil bflaröð.
Talið er að kóf frá siyóruðn-
ingstæki hafi valdið því að öku-
mennirnir tveir sem fyrstir
lentu í árekstri sáu ekki hvor
annan í tæka tíð. Þeir slösuðust
báðir alvarlega og bflarnir, lítill
jeppi og fólksbfll, eru ónýtir.
Tveimur ökumönnum sem
komu aðvífandi tókst ekki að
stöðva bfla sína í tæka tíð og
lenti annar á jeppanum en hinn
aftan á þeim fyrrnefnda. Tveir
menn hlutu við það minniháttar
meiðsl.
Kallað var eftir aðstoð þyrlu
Landhelgisgæslunnar. Um tíma
leit út fyrir að hún kæmist ekki
til Selfoss vegna éljagangs og
var sjúkrabflum stefnt til Eyrar-
bakka til móts við hana.
Skömmu síðar stytti þó upp og
tókst þá að lenda þyrlunni við
Sjúkrahús Selfoss og setja þá
slösuðu um borð.
enginn í salnum þegar verið er að
flytja þessar maraþonræður.“
I breytingartillögunum er jafn-
framt gert ráð fyrir að þingnefndum
verði fækkað úr þrettán í sjö. Meðal
annars er lagt til að landbúnaðar-,
sjávarútvegs- og iðnaðarnefnd verði
sameinaðar i eina atvinnumálanefnd
sem einnig taki að sér hluta af verk-
efnum efnahags- og viðskiptanefnd-
ar og lagt er til að menntamálanefnd
og allsherjai'nefnd verði sameinað-
ar.
■ Ræðutími/10