Morgunblaðið - 16.03.1999, Síða 1
62. TBL. 87. ÁRG.
ÞRIÐJUDAGUR 16. MARZ 1999 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Skýrsla nefndar um spillingu innan framkvæmdastjórnar ESB veldur uppnámi í Brussel
Framkvæmdastj órnin
segir af sér sem heild
Brussel. Reuters.
ALLIR tuttugu meðlimir framkvæmdastjórnar
Evrópusambandsins (ESB) sögðu af sér í gær-
kvöld eftir að stjómarhættir hennar vom harð-
lega gagnrýndir í skýrslu óháðrar nefndar sér-
fræðinga sem lögð var fram í gær. Greindi
Jacques Santer, forseti framkvæmdastjómarinn-
ar, frá þessu á fréttamannafundi rétt fyrir mið-
nætti í gærkvöld en fýrr um kvöldið höfðu ýmsir
þingmenn Evrópuþingsins farið fram á afsögn
framkvæmdastjóraarinnar.
Reuters
SIR Leon Brittan (t.v.), sem fór með viðskiptamál í
framkvæmdastjórn ESB, og Jacques Santer, forseti
framkvæmdastjórnarinnar skoða skýrsluna 1' gær.
Afsögn framkvæmdastjómarinn-
ar hleypir samstarfi Evrópuríkj-
anna á vettvangi ESB í mikið upp-
nám en einungis fáeinir mánuðir
eru síðan ellefu aðildarríki ESB
tóku upp sameiginlegan gjaldmiðil,
evruna. Jafnframt voru í undirbún-
ingi gagngerar umbætur á fjármál-
um sambandsins, áður en nokkrum
fyrrverandi austantjaldsþjóðum
yrði hleypt inn í sambandið. „Vegna
þessarar skýrslu [...] hafa meðlimir
framkvæmdastjórnarinnar einróma
samþykkt að segja af sér allir sem
einn,“ sagði Santer á fréttamanna-
fundinum í gær eftir neyðarfund
framkvæmdastjómarinnar.
Bráðabirgðastjórn tekur nú að
sér að stýra málefnum ESB þar til
ríkisstjómir aðildarlanda ESB em
búnar að tilnefna nýja fulltrúa í
framkvæmdastjómina.
Neil Kinnock, sem ábyrgur var
fyrir samgöngumálum í fram-
kvæmdastjóminni, sagði í viðtali við
Sky-sjónvarpsstöðina í gærkvöld að
þótt hann teldi
sig ekki hafa
gerst sekan um
spillingu í starfi
væri hann sam-
þykkur ákvörð-
uninni, öll fram-
kvæmdastjómin
hefði orðið að
fara sem heild.
„Eg er sammála
því að við tökum
sameiginlega
ábyrgð - en ég
samþykki ekki
sameiginlega
sekt,“ sagði
Kinnock.
Tony Blair,
forsætisráðhema Bretlands, sagði í
yfirlýsingu í gærkvöld að fulltrúar
Bretlands í framkvæmdastjóminni,
Kinnock og Sir Leon Brittan, sem
fór með viðskiptamál, hefðu ekki
orðið uppvísir að neinu misferli og
að breska stjórnin myndi tilnefna
mennina tvo í framkvæmdastjórn-
ina á nýjan leik.
Aður en framkvæmdastjórnin
hóf fund sinn hafði Pauline Green,
formaður þingflokks jafnaðar-
manna á Evrópuþinginu, hvatt alla
framkvæmdastjómina til að segja
af sér. Sagði hún að gerði fram-
kvæmdastjómin það ekki myndu
jafnaðarmenn leggja til á Evrópu-
þinginu næstkomandi mánudag að
vítur yrðu samþykktar á fram-
kvæmdastj órnina.
Cresson gagnrýnd
sérstaklega
Pingflokkur jafnaðarmanna er sá
stærsti á Evrópuþinginu en ýmsir
aðrir Evrópuþingmenn beindu sjón-
um sínum einkum að Edith
Cresson, öðmm fulltrúa Frakk-
lands í hinni 20 manna fram-
kvæmdastjórn, en undir hana heyr-
ir meðal annars menntamálasam-
starfsáætlunin Leonardo. Sannast
hefur að í kringum þessa áætlun
viðgekkst fjármálaóreiða, sem
Cresson er gerð ábyrg fyrir, en í
skýrslunni er hún jafnframt sögð
hafa hyglað vinum sínum að a.m.k.
einu sinni.
Hin óháða spillingarrannsóknar-
nefnd var sett á laggimar í kjölfar
þess að borin var upp tillaga um
vantraust á framkvæmdastjórnina í
janúar sl. Var nefndinni ætlað að
fara 1 saumana á spillingarásökun-
um á hendur framkvæmdastjórn
ESB. Segir í skýrslu hennar að
fundist hafi dæmi um að meðlimir
framkvæmdastjórnarinnar væra
ábyrgir fyrir misferli, jafnvel þótt
þeir hefðu sjálfir ekki hagnast fjár-
hagslega á því. Era þeir ennfremur
gagmýndir fyrir að vilja ekki gang-
ast við þessari ábyrgð.
Reuters
FRÁ vettvangi tilræðisins.
Norður-Irland
Þekktur
lögfræðing-
ur myrtur
Belfast. Reuters.
ÞEKKTUR kaþólskur lögfræðing-
ur á Norður-írlandi, Rosemary
Nelson, lést um miðjan dag í gær af
völdum meiðsla sem hún hlaut er
sprengja sprakk í bifreið hennar
fyrr um daginn skammt frá heimili
hennar í bænum Lurgan, suðvestur
af Belfast. Einn af öfgahópum sam-
bandssinna, Verjendur Rauðu
handarinnar, lýstu í gærkvöld
ábyrgð á ódæðinu á hendur sér en
samtökin era andvíg friðarsam-
komulaginu á N-írlandi.
Nelson hafði séð um málsvörn
fjölda þekktra lýðveldissinna en var
kunnust fyrir störf sín í mannrétt-
indamálum og sem lögfræðilegur
ráðgjafi kaþólskra íbúa Garvaghy-
vegs í Portadown, en árleg ganga
sambandssinna í Oraníureglunni
niður veginn hefur undanfarin
fjögur ár ætíð aukið mjög spennu í
héraðinu. Fréttaskýrendur
sögðu í gær að morðið á Nelson
ógnaði friðarferlinu á N-írlandi.
Ekki væri útilokað að öfgahópar
kaþólikka leituðu hefnda sem aftur
myndi gera verkefni stjórnmála-
mannanna; að leysa deilur sínar
um afvopnun öfgahópa og stofnun
heimastjórnar, mun erfiðara.
Reuters
Gephardt styður Gore
Manchester. Reuters.
AL Gore, varaforseti Bandaríkj-
anna og líklegur forsetaframbjóð-
andi demókrata í kosningunum á
næsta ári, tryggði sér í gær stuðn-
ing Richards Gephardts, leiðtoga
demókrata í fulltrúadeild Banda-
ríkjaþings, en Gephardt var áður
talinn helsti keppinautur Gores um
útnefningu Demókrataflokksins.
Gephardt fylgdi Gore í eins
dags ferðalagi hans um New
Hampshire og Iowa, en ríkin tvö
munu halda tvö fyrstu forvöl
vegna forsetakosninganna. „Ég er
hingað kominn til að tala um [...]
A1 Gore varaforseta," tilkynnti
Gephardt um Qögur hundruð
dyggum flokksmönnum á fundi í
Manchester í New Hampshire og
bætti því við að hann ætlaði að
berjast, fyrir því að tryggja Gore
forsetaembættið. „Hann er frábær
manneskja og við gætum öll verið
stolt af því að hafa hann sem for-
seta Bandaríkjanna.“ Tóku þeir
Gephardt og Gore siðan höndum
saman við lok fundarins, ásamt
Bill Shaheen, eiginmanni Jean
Shaheen, ríkisstjóra í New
Hampshire.
Kosovo-Albanar lýsa því yfír að þeir samþykki friðarsamkomu-
lag vesturveldanna á fyrsta degi viðræðna í Frakklandi
• •
011 spjót standa nú á
stjórnvöldum í Belgrad
París, Washinglon, Pristina. Reuters.
VESTURVELDIN juku mjög
þrýsting á stjómvöld í Belgrad í
gær um að samþykkja samkomulag
um sjálfstjórn Kosovo eftii- að
sendinefnd Kosovo-AIbana hafði til-
kynnt að hún myndi skrifa undir
samninginn. Yfirlýsing Albananna
kom á fyrsta degi annarrar lotu við-
ræðna um frið í Kosovo, sem hófust
í París í Frakklandi í gær, en á
sama tíma geisuðu ákafir bardagar í
Kosovo milli serbneskra öryggis-
sveita og liðsmanna Frelsishers
Kosovo (UCK).
Hubert Vedrine, utamákisráð-
herra Frakklands, og Robin Cook,
breskur starfsbróðir hans, sendu
stjómvöldum Júgóslavíu, sam-
bandsríkis Serbíu og Svartfjalla-
lands, þau skilaboð að þau væra nú
á síðasta snúningi með að skrifa
undir samkomulagið. Samningurinn
felur m.a. í sér að friðarsveitir Atl-
antshafsbandalagsins (NATO) muni
fara til Kosovo en Slobodan Milos-
evic, forseti Júgóslavíu, hefur ítrek-
að staðhæft að hann muni ekki
sætta sig við NATO-herlið í Kosovo.
„Nú standa öll spjót á fulltrúum
Júgóslavíu [...] þeirra er valið,“
sagði Vedrine á fréttamannafundi
eftir að þeir Cook höfðu fundað með
samninganefndum deilenda.
Að minnsta kosti 22
féllu um helgina
Ummæli Milans Milutinovics, for-
seta Serbíu, bentu hins vegar ekki
til að Serbar hygðust samþykkja af-
arkosti vesturveldanna. Hann sagði
enga endanlega sátt ríkja og að
samkomulag það um aukna sjálf-
stjóm Kosovo, sem Kosovo-Albanar
hefðu lýst sig reiðubúna til að skrifa
undir, væri ekki til. Vestrænir
stjómarerindrekar sögðu í gær-
kvöld að ummæli Serbanna væra til
þess ætluð að tefja fyrir.
í Washington lét Bill Clinton
Bandan'kjaforseti hafa eftir sér að
NATO ætti engra annarra kosta völ
en láta til skarar skríða, og efna til
loftárása á Júgóslavíu, samþykktu
Serbar ekki samninginn. Rudolf
Scharping, vamannálaráðherra
Þýskalands, sem staddur var í
Bandaríkjunum, tók í sama streng.
„Ég vona að mönnum sé ljóst að
NATO er fyllilega reiðubúið til að
láta til skarar skríða, ef nauðsyn
krefur."
Bardagar hafa geisað milli
serbneskra öryggissveita og liðs-
manna UCK frá því á laugardag.
Helgin var ein sú blóðugasta í sögu
átakanna í Kosovo, sem staðið hafa
síðan snemma á síðasta ári, en
a.m.k. 22 féllu í átökum. Þar af fór-
ust átta Kosovo-Albanar í hrinu
sprengjutilræða á laugardag og
fjórir albanskir skógarhöggsmenn
voru skotnir til bana nærri þorpinu
Suva Reka á sunnudag.
■ Tengslahópurinn/27