Morgunblaðið - 16.03.1999, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 16.03.1999, Blaðsíða 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 16. MARZ 1999 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR _ Samþykktað hefia hvalveið-1 ÉG er bara farinn . . . Breyting laga um almannatryggingar og aðstoð Psoriasis- og exem- sjúklingar mótmæla SAMTÖK psoriasis- og exemsjúk- linga mótmæla þeirri ákvörðun Alþingis að afnema lagaákvæði í lögum um almannatryggingar og félagslega aðstoð, sem tryggði psoriasissjúklingum rétt til að fara á norræna meðferðarstöð á Kanaríeyjum í svokallaða lofts- lagsmeðferð. Að sögn Helga Jó- hannessonar, formanns samtak- anna, er þessi þróun öfug á við það sem gerist á hinum Norðurlönd- unum, því þar er þróunin sú að senda fleiri í meðferðina. I fréttatilkynningu frá samtök- unum segir að meðferðin á Kanaríeyjum hafí reynst mjög ár- angursrík og sé ein sú besta sem sjúklingarnir eigi völ á. Þar segir ennfremur að fulltrúar frá sam- tökunum hafi farið á fund heil- brigðis- og trygginganefndar Al- þingis til að skýra sín sjónarmið en að það hafi engu breytt því ákveðið hafi verið að afnema þessi réttindi. I fréttatilkynningunni segir: „Afdrif þessa máls urðu Samtök- um psoriasis- og exemsjúklinga mikil vonbrigði og sérstaklega kom á óvart sú þrautseigja og harðfylgni sem heilbrigðisráð- herra, ásamt varaformanni heil- brigðis- og trygginganefndar, Siv Friðleifsdóttur, sýndu í málinu og órofið fulltingi annarra þingmanna Framsóknarflokks og Sjálfstæðis- flokks við að leggja ofuráherslu á það í þinglok að skerða réttindi psoriasissjúklinga, sem þeir hafa haft svo áratugum skiptir. Að sögn Helga var fyrst farið til Kanaríeyja í þessum erindagjörð- um árið 1979 og um 40 manns á ári fóru í meðferðina allt til 1996. Hann sagði að frá því 1996 hafi sjúklingar sem sótt hafi um að fá styrk til ferðarinnar flestir fengið umsóknir sínar endursendar frá Tryggingastofnun. Hann sagði að aðeins einn sjúklingur hefði farið á síðasta ári en gert væri ráð fyrir að sex sjúklingar færu til Kanarí- eyja nú í apnl og að það yrði síð- asti hópurinn sem fengi styrk til að fara út. Að sögn Helga er kostnaðurinn við að senda einn sjúkling út um 150.000 krónur en meðferðin kemur í stað sjúkrahús- vistar hér. Full búð af nýjum vörum Tilbúnir eldhústaukappar frá kr, 650 á metrinn. Falleg stofuefni frá kr. 980 á metrinn. Tilbúnir felldir stofutaukappar frá kr. 1.790 á metrinn. Z-brautir, Faxafeni 14. Sími 533 5333/533 5336 Starfsmannafélag ríkisstofnana 60 ára Nýtt launakerfí skilar auknum dagvinnutekjum Jens Andrésson Starfsmannafélag ríkisstofnana er 60 ára á þessu ári. Af því tilefni hefur meðal annars verið ákveðið að gefa út sögu félagsins. Formaður Starfsmanna- félags ríkisstofnana er Jens Andrésson. „Stjórn félagsins fékk Þorleif Óskarsson sagn- fræðing til að skrá sögu félagsins og hún mun væntanlega koma út árið 2000. Þorleifur mun með- al annars vinna úr óprentuðum heimildum félagsins og skoða skjála- safn og fundargerðar- bækur.“ Jens segir að höfuðmarkmiðið með út- gáfu bókarinnar sé að saga félagsins verði að- gengileg, hún rakin á skýran og skipulegan hátt og sett í til- hlýðilegt samhengi við sögu heildarsamtakanna BSRB og þróun samfélagsins. -Þið ætlið líka að setja upp ljósmyndasýningu með vorinu? „Já, verið er að vinna að ljós- myndasýningu um sögu félags- ins. Sýningin verður sett upp í félagsmiðstöðinni Grettisgötu og sem farandsýning sem mun fara um allt land á afmælisár- inu.“ Jens segir að sýningin eigi að endurspegla sögu og vinnuum- hverfi hins dæmigerða opinbera starfsmanns. „Við fáum aðstoð frá Ljósmyndasafni Reykjavík- ur sem mun annast öflun mynda og setja upp sýninguna fyrir okkur.“ - Er fleira á döfinni í tilefni afmælisins? „Við höfum verið að hvetja fé- lagsmenn okkar sem hafa feng- ist við myndlist að þiggja boð okkar um sýningaraðstöðu á fjórðu hæð í félagsheimili okk- ar. Fyrir viku opnuðum við fyrstu sýninguna en verk á henni eru eftir Arsæl Þórðarson og Karl Stefánsson en þeir starfa sem umsjónarmenn í skólum." Jens segir að aðal hátíðahöld- in í tilefni afmælisins verði síð- an 19. júní næstkomandi í Fjöl- skyldugarðinum í Laugardal. „Þar gerum við okkur glaðan dag og bjóðum félagsmönnum og fjölskyldum þeirra upp á ým- is skemmtiatriði, götuleikhús, tónlistaruppákomur, leiktæki og svo framvegis." - Starfsmannafélag ríkis- stofnana hefur gengist fyrir svokölluðum rekspalarnám- skeiðum. Hvernig ganga þau? „ Námskeiðin hafa gengið vel og eru unnin í sam- ráði og samvinnu við stjórnsýslufræðslu og Endurmenntunar- stofnun Háskóla Is- lands. Alls hafa milli 800-900 félagar sótt rekspalarnámskeiðin en um er að ræða 60 tíma námskeið. Innihald námskeiðanna og markmið er að auka vellíðan og færni starfsmanns á vinnustað." - Hvernig hefur gengið að taka í notkun nýja launakerfið hjá opinberum starfsmönnum? „Það hefur gengið ágætlega en tekið mun lengri tíma en áætlað var. Samkvæmt kjara- samningum frá árinu 1997 var ►Jens Andrésson er fæddur í Reykjavík árið 1952. Hann lauk vélfræðiprófi frá Vélskóla Islands árið 1976 og var á sjó frá Sauðárkróki til ársins 1982 er hann gerðist starfsmaður _ Þróunarsamvinnustofnunar Is- lands á Grænhöfðaeyjum. Jens var starfsmaður Vinnu- eftirlits ríkisins frá 1987-1996. Hann hefur verið formaður St- arfsmannafélags ríkisstofnana frá árinu 1996. Eiginkona hans er Kristín Þorsteinsdóttir og eiga þau eina sex ára dóttur. ákveðið að taka upp nýtt launa- kerfi. Það er fyrst núna sem þeim þætti kjarasamningsins er að ljúka. Starfsmannafélag rík- isstofnana hefur gert aðlögun- arnefndarsamninga við um 207 ríkisstofnanir en þar er starfs- mannafjöldinn í kringum 3.500-3.700 manns.“ Jens segir að kauphækkanir hafi verið 19-21% þ.e. hækkun dagvinnu- launa frá 1.4. 1997 og fram til dagsins í dag. Hann segir að ef fer sem horfir ætti þessi hópur að ná fram hækkun á dagvinnu- launum upp í 28% árið 2000. „A samningstímanum hafa laun lífeyrisþega sem fá greitt frá lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins og taka mið af meðal- talsreglunni hækkað um 32%. Annað af meginmarkmiðum kjarasamninganna var að auka hlut dagvinnulauna með því að breyta samsetningu heildar- launa. Þá var óunnin yfirvinna tekin inn í grunnlaunin og það hefur gengið eftir. Hitt mark- miðið var að færa framkvæmd kjarasamningsins inn á stofnan- ir. Það hefur gerst hægar en gert var ráð fyrir en væntan- lega mun það takast á samningstímanum.“ - Um þessar mund- ir eruð þið líka að hefja úthlutun til sí- menntunar félaga úr Þróunar- og símenntunarsjóði SFR? „Já, það er um þessar mundir verið að úthluta úr Þróunar- og símenntunarsjóði í fyrsta skipti en hann varð til í kjarasamning- unum í apríl árið 1997. Úthlutað verður til stofnana til að þær geti staðið straum af kostnaði við endur- og símennt- un starfsmanna innan SFR. Nokkrar stofnanir hafa þegar sótt um og fengið úthlutun." Verið er að skrá sögu félagsins
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.